Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Síða 27
43
FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001
I>V
Tilvera
Afmælisbarnið
Lyle Lovett 44 ára
Söngvarinn og gít-
arleikarinn Lyle
Lovett, sem eitt sinn
var giftur Juliu Ro-
berts, er afmælisbarn
dagsins. Lovett hafði
verið lengi við tónlist-
ariðkun áður en fyrsta
plata hans kom út 1986. Lovett fæddist
í Texas og var skírður Lyle Pierce
Lovett. Áður en hann hóf tónlistarfer-
ilinn hafði hann útskrifast frá háskóla
í Texas með gráður í þýsku og blaða-
mennsku. Lovett hefur fjölbreyttan
tónlistarsmekk og í lögum hans má
greina áhrif frá þjóðlögum, kántrí og
djassi, auk rokksins.
Gildir fyrir föstudaginn 2. nóvember
Vatnsberinn (?o. ian.-is. fehr.i:
, Gerðu ráð fyrir að
þú verðir fyrir
truflunum síðari
hluta dags. Þér finnst
lifsbaráttan hörð en hagur
þinn fer batnandi.
RskarnÍK19. febr.-20. marsl:
Eitthvað verður til að
Iminna þig á löngu
liðna tíð og þér finnst
eins og allt hafi veriö
betra þá. Mundu að þú lifir í nú-
tíðinni en ekM fortíðinni.
Hrúturinn 121. mars-19. apríh:
Það borgar sig að gera
öðrum hlutdeild í
\hugsunum sínum. Þeir
geta áreiðanlega gefið
góð ráð varðandi erfitt mál sem er
að angra þig.
Nautið (20. apríl-20. maí):
/ Undarleg staða kemur
upp í vinahópnum og
sýnist sem mál geti
orðið ansi flókin þó að
tilefhið virðist ekki mikið.
Happatölur þínar eru 3, 16 og 20.
Tvíburarnir <2.1. maí-21.. iúnii:
Þú gerðir réttast í
því að blanda þér
—V / ekki i deilur annarra
heldur sinna eigin
málum. Enginn vill þiggja
ráð frá þér í dag.
Krabbinn (22. iúní-22. iúin:
Þú ert ekki einn á báti
| í vandamáli sem þú
stendur frammi fyrir.
Vinir þinir eru fullir
velvilja og þú þarft aðeins að
leyfa þeim að komast að.
Liónið (23. iúií- 22. áeúst):
Gerðu þér grein fyrir
þvi að ekki snýst allt
um þig eða það sem þú
ert aö fást við. Það er
þreytandi að hlusta á fólk sem
talar eingöngu um sjálft sig.
Mevian (23. ágúst-22. seoU:
Þú tekur til hendinni á
heimilinu og sýnist ekki
vanþörf á þvi. Svo virð-
^ r ist sem eitthvað mikið
standi til í fjölskyldunni.
Happatölur þinar eru 7,18 og 25.
Vogin (23. sept-23. oktl:
S Þú stendur í stórræð-
Oy um á viðskiptasviðinu.
Svo virðist sem fast-
r f eignakaup eða
eitthvað slikt sé á döfinni. Þú
ert í essinu þínu.
Sporðdreki (24, okt.-2i. nóv.):
Láttu sinámuni ekki
draga úr þér kjarkinn
I varðandi ákvörðun
sem þú þarft að taka
varðandi framtíð þína. Þú getur
það sem þú vilt.
Bogmaðurinn (22. nóv.-2i. des.):
^^Þú stendur á krossgöt-
\^^um í vissum skilningi.
W Það er upplagt að
\ reyna eitthvað nýtt i
stað þess að hjakka sífellt
í sama farinu.
Stelngeitin (22. des.-19. ian.l:
^ Gerðu þér grein fyrir
því að allir eiga við
VJr\ sín vandamál að
stríða, ekki bara þú.
Þér hættir til að loka þig af
í eigin heimi.
Ingólfur Sigurðsson
fyrrv. framkvæmdastjóri Vöku ehf.
Ingólfur Sigurðsson, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri Vöku ehf., Skúlagötu
40, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára
í dag.
Starfsferill
Ingólfur fæddist í Vestmannaeyj-
um en ólst upp í Vesturbænum í
Reykjavík og á Seltjarnamesinu.
Ingólfur hefur verið bílstjóri alla
tíð. Hann ók fyrst hjá KRON, hóf
sjálfstæðan vörubílaakstur 1953 og
stundaði vöruflutninga í nokkur ár
til Þórshafnar, Vopnaijarðar og
fleiri staða. Síðar stundaði hann
akstur hjá Jóni Loftssyni auk þess
sem hann ók mikið í sumarferðum
fyrir Úlfar Jacobsen. Þá var hann
vagnstjóri hjá SVR á árunum
1969-93.
Ingólfur, kona hans og Steinar
Már, festu kaup á fyrirtækinu Vöku
ehf. 1974. Ingólfur var framkvæmda-
stjóri þess þar til hann seldi Bjarna,
syni sínum, hlut í fyrirtækinu.
Hann er þó enn bílstjóri á vegum
fyrirtækisins.
Ingólfur hefur alla tíð haft mik-
inn áhuga á bílum og ferðalögum.
Hann og félagi hans, Björn Sigurðs-
son, fóru fyrstir manna hringinn í
kringum landið á jeppa 17.1. 1963,
ellefu árum áður en Skeiðarársand-
ur var brúaður. Eftir að brýrnar
komu yfir sandinn hefur hann farið
fjölmargar hringferðir á hverju ári.
Fjölskylda
Ingólfur kvæntist 20.10. 1973 El-
ínu Adolfsdóttur, f. 29.1. 1929, hús-
móður. Hún er dóttir Adolfs Krist-
ins Ársæls Jóhannssonar skipstjóra
og Elínar Jónsdóttur húsmóður.
Ingólfur kvæntist 6.1. 1949, Svein-
björgu Guðmundsdóttur, f. 19.10.
1929. Síðar kvæntist hann Sonju B.
Helgason, f. 16.11. 1918. Þau skildu.
Börn Ingólfs og Sveinbjargar eru
Bjarni, f. 29.6. 1950, framkvæmda-
stjóri, kvæntur Þórunni Kristjóns-
dóttur, f. 15.11. 1951, læknaritara og
eiga þau saman þrjú böm; Guð-
mundur, f. 4.7. 1953, steypustöðvar-
stjóri, kvæntur Auði Marinósdótt-
ur, f. 17.1. 1953, sjúkraliða og eiga
þau saman tvö börn; Gunnhildur, f.
18.2. 1955, meinatæknir en eigin-
maður hennar er Aziz Hanat, f. 29.8.
1965 og á Gunnhildur þrjú börn frá
fyrra hjónabandi.
Dóttir Ingólfs og Elínar er Anna
María Ingólfsdóttir, f. 20.10. 1972,
skrifstofumaður en sambýlismaður
hennar er Bjarni Stefánsson, f. 2.7.
1961, lögfræðingur og eiga þau sam-
an eitt barn.
Fósturbörn
Ingólfs eru Guð-
rún Hanna Gall-
op, f. 26.5. 1952,
skrifstofumaður í
Englandi, gift
Richard Gallop, f.
22.5. 1948, skrif-
stofumanni og
eiga þau saman
tvö börn; Adolf
Ársæll Gunn-
steinsson, f. 23.4.
1954, bílstjóri,
kvæntur Elínu
Birnu Harðar-
dóttur, f. 17.5.
1955 og eiga þau
saman tvö börn;
Steinar Már
Gunnsteinsson, f.
31.7. 1957, verk-
stjóri, sen sam-
býliskona hans er Sigrún Sæmunds-
dóttir, f. 9.4. 1959, bókavörður og á
Steinar tvö börn frá fyrra sam-
bandi; Ingvar Jóel Ingvarsson, f. 2.4.
1963, verslunarmaður og á hann tvö
böm; Berglind Nína Ingvarsdóttir,
f. 23.10. 1964, skrifstofumaður og á
hún eitt barn.
Bróðir Ingólfs er Ragnar Sigurðs-
son, f. 16.7. 1929, kvæntur Júlíu
Hrefnu Viggósdóttur, f. 28.9. 1947 og
eiga þau saman sex börn auk þess
sem Ragnar á þrjú börn frá fyrra
hjónabandi.
Uppeldissystir Ingólfs er Selma S.
Gunnarsdóttir, f. 5.6. 1936.
Foreldrar Ingólfs: Sigurður Guð-
mundsson, f. 16.7. 1900, d. 21.8. 1989,
ritstjóri, og Rannveig Runólfsdóttir,
f. 28.11. 1897, d. 1.10. 1968, húsmóðir.
Smáhjálp skaðar ekki
Myndin er á sýningunni í MR-búöinni.
Hestal j ósmyndir
Ljósmyndararnir Eiríkur Jónsson
og Valdimar Kristinsson munu í dag
opna sýningu á hestaljósmyndum í
MR-búðinni, Lynghálsi 3 í Reykjavik.
Á sýningunni verða sýndar litmyndir
af hestum og hestamönnum sem voru
teknar á árinu 2001. Einnig verður í
kafííhorni búðarinnar sérstakt þema
frá heimsmeistaramóti íslenskra
hesta í Stadl Paura síðastliðið sumar.
Þar getur að lita myndir af gæðingum
og knöpum í fremstu röð auk unn-
enda íslenska hestsins frá öllum
heimshornum.
í tilefni sýningarinnar verður MR-
búðin með ýmis freistandi tilboð á
hestavörum og fatnaði. Sýningin verð-
ur opin á afgreiðslutíma verslunar-
innar frá kl. 8-18 virka daga og 10-14
á laugardögum. Sýningin stendur til
17. nóvember.
Gene Hackman í handalögmálum
Holywoodstórleikarinn Gene
Hackman var trúr harðnaglaímynd-
inni um daginn þegar hann lenti í
útistöðum við sér miklu yngri mann
eftir að bílar þeirra lentu saman á
fjölfarinni götu í Hollywood.
Hackman hjólaði í manninn og
kýldi hann fjórum eða fimm sinnum.
Hinn maðurinn, og annar sem var
með honum í bílnum, svaraði fyrir
sig. Saman tókst þeim að fella leikar-
ann í götuna. Skipti þá engum togum
að kona nokkur vippaði sér út úr bil
ungu mannanna og sparkaði í Hack-
man þar sem hann lá í götunni.
Lögreglan var kölluð til og skakk-
aði hún leikinn. Hackman var svo
illa útleikinn eftir slagsmálin að
binda þurfti um höfuð hans.
Talsmaður Hackmans segir að
leikarinn hafi einungis verið að
svara fyrir sig. Hinn hafi byrjað. Það
var Hackman sem ók aftan á hinn.
Radcliffe er „kúl“
Daniel Radcliffe, sem leikur aðal-
hlutverkið í myndinni „Harry Potter
og töfrasteinninn", sem frumsýnd
verður í Bandaríkjunum þann 18.
nóvember nk„ segist ekki hafa verið
mjög hrifinn af sögum J.K. Rowlins
um Harry Potter þegar hann las þær
fyrst. „Ég las tvær fyrstu sögurnar
þegar hann var átta eða níu ára og
þær höfðuðu einhvern veginn ekki til
mín, frekar en aðrar sögur á þessum
árum,“ sagði Radcliffe, sem nú er orð-
inn tólf ára gamall. Talið er að mynd-
in eigi eftir að slá í gegn, eins og bæk-
urnar hafa gert og er Radcliffe að eig-
in sögn óhræddur við að takast á við
hugsanlega athygli sem því fylgir.
„Það verður bara „kúl“,“ sagði hann.
Jacko í samvinnu
við siálfan guð
Michael Jackson er engum líkur.
Nú heldur hann því fram að hann eigi
náið samstarf við guð almáttugan þeg-
ar hann gerir plöturnar sínar. Reynd-
ar er þáttur guðs svo mikill að popp-
arinn er hálffeiminn við að eigna sér
heiðurinn að þeim.
Jacko upplýsti þetta á dögunum
þegar hann tók þátt í vefspjalli við að-
dáendur sína.
„Það er erfitt að skýra hvernig lög-
in verða til því þetta er svo andlegt
ferli. Maður er i guðs höndum og
stundum er sem þegar sé búið að
semja lögin,“ sagði erkipopparinn
meðal annars við aðdáendur sína.
Nýja plata kappans hefur fengið
fremur dræmar viðtökur víða um
heim en hann lætur þaö hreint ekki
slá sig út af laginu, enda er það guð
sem semur allt fyrir hann.
c
1
r