Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Page 28
* 44 FIMMTUDAGUR 1. NOVEMBER 2001 Tilvera I>V .4 lí f i ö E F T I R V I N N U Roni Horn í i8 Bandaríska myndlistakonan Roni Horn opnar sýningu á verkiun sínum í i8 í dag. Sýningin kallast „Still Water (The River Thames, for example)" og samanstendur af Ijósmyndum af ánni Thames í Bretlandi, ásamt stuttum textabrotum. Nýjasta bókverk hennar, „Becoming a Landscape“ úr íslandsseriunni „To Place“, verður einnig til sýnis meðan á sýningunni stendur. Leikhús ■ KRISTNIHALD Leikritið Kristnl- hald undir Jökli eftir Halldór Lax- ness veröur sýnt i kvöld, kl. 20, á stóra sviöi Borgarleikhússins. Arni Tryggvason fer á kostum í hlutverki Jóns prímusar en tónlist við verkið er eftir Quarashi. H PÍKUSÖGUR Leikritið Píkusögur verður sýnt í kvöld á 3. hæö Borgar- leikhússins. Sýningin hefst kl. 20 en leikritið er eftir Evu Ensler. ■ SYNGJANDI Leik- og söngverkið Syngjandi í rigningunni verður sýnt í kvöld í Þjóðlelkhúsinu, á stóra sviöi þess, kl. 20. Meöal þeirra sem taka þátt í sýningunni eru Selma Björns- dóttir og Stefán Kari Stefánsson. ■ VASAKLÚTUR Leikritió Veröldln er vasaklútur verður sýnt í Kaffileikhúsinu í kvöld, kl. 21. Þar fara leikkonurnar Vala Þórsdóttir og Agústa Skúladóttir með hlutverk. ■ BAR PAR Leikfélae Keflavíkur frumsýnir „Bar Par“ eftir Jim Cartwright í kvöld í Frumleikhúsinu, Vesturbraut 17, Keflavík kl. 20. Leikstjóri er Steinn Ármann Magnússon. Kabarett ■ ÞUSUND ÞJALA KVOLD I SALN- UM I KOPAVOGI I kvöld veröur svo- kallað Þúsundþjalakvöld í Salnum í Kópavogi þar sem þekktir og óþekkt- ir grínistar gantast með nútíöina. Meöal. þeirra sem fram koma eru Rosi Ólafsson, Jóhannes Kristjáns- son, Sveinn Waage og Reynistaöa- bræöur. Skemmtunin hefst kl. 21. Bíó ■ MYND UM MEGAS A nýja sviði Borgarleikhússins verður frumsýnd glæný heimildamynd um Megas, 1/2 ár meö Megasi I kvöld kl. 20. Á eftir mun goöiö halda tónleika á sama sviði. Sýningar ■ BJARNI BJÖRGVINSSON I ISLENSKRI GRAFIK Blarni Björgvinsson sýnir málverk, unnin meö olíu á pappír I íslenskri grafík í Tryggvagötu. Sýningin er opin fimmudaga til sunnudags kl. 14.-18. ■ KRISTÍN REYNISPÓTTIR í ÞJOÐARBOKHLOÐUNNI Krlstín Reynisdóttir sýnir verk í Þjóöarbókhlööunni. Þetta er fjórða sýningin í sýningaröðinni Fellingar. Tónleikar ■ AST OG AUSTRÆN VERK Verk Rnns Torfa Stefánssonar Ad amore, verður á efnisskrá Sinfóníunnar í kvöld í Háskólabíói. Þar verður líka flutt verk óskarsverðlaunahafans Tan Dun, dauöi og eldur - samræða við Paul Klee og verk eins fremsta tónskálds Japans á síðustu öld, Toru Takemistu, Gitimalya, fýrir marimbu og hljómsveit. Ráðstefna og málþing á Hótel Loftleiðum: Að fá starf sjálfboða- liðans viðurkennt „Þriðjungur landsmanna, eða 35% íslendinga, yfir 18 ára aldri hef- ur unnið mannúðar- og sjálfboða- störf einhvern tíma á ævinni, sam- kvæmt könnun sem gerð var árið 1999,“ segir Konráð Kristjánsson, deildarstjóri ungmenna- og sjálf- boðastarfs hjá Rauða krossi íslands. Hann segir engan mun á körlum og konum þegar komi að sjálfboða- störfunum. Bæði kynin leggi jafnmikið af mörkum og útkoman sé svipuð á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu. Fórnfúst starf í félögum Þegar Konráð er sþurður hvort sjálfboðastörfin hafi verið skil- greind frekar svarar hann því til að þar sé af ýmsu að taka. „ínnan stóru félaganna eins og Rauða krossins, Landsbjargar, Lionsklúbbanna og Kiwanis, ungmennafélaganna, skátahreyfíngarinnar óg kVenfélag- anna eru unnin margvísleg sjálf- boðastörf, fyrir utan að smærri fé- lög, hópar og einstakliiigar leggja sitt af mörkum." En því er þessi umræða í gangi nú. Jú, vegha þess að á morgun verður ráðstefna á Hótel Loftleiðum undir yfirskriftinni Sjálfboðaliða- störf - fjölbreytt afl í þágu þjóöfé- lagsins og á laugardaginn verður málþing um sama efni. Konráð veit allt um þessar samkomur: Fjárhaglegur ávinnlngur samfélagsins „Ráðstefnan er fyrst og fremst ætluð opinberum aðilum og þar veröur bent á mörg mikilvæg at- riði,“ byrj{u: hann og heldur áfram: „Þar mun Helgi Grímsson, skóla- stjóri Laúgarnesskóla, til dæmis tala um þá miklu menntun sem felst í sjálfboðastarfi. Ánnað erindi flytur dr. Sigrún Júlíusdóttir um þróun sjálfboðastarfs á íslandi og Karl Björnsson, bæjarstjóri Árborgar, talar um sjálfboðastarf og samfélag- ið. Síðan erum við með einn erlend- an fyrirlesara bæði á ráðstefnunni og málþinginu. Það er Dr. Kathar- ine Gaskin sem kynnir merkilegar rannsóknir um fjárhagslegan ávinn- ing samfélagsins af sjálfboðastarfí. Slík rannókn hefur ekki farið fram hér heima en hún hefur verið gerð í Danmörku og Hollandi. Hún sýnir að hver króna sem látin er í sjálf- boðastarf skilar sér margfalt og ekki er síður ástæða til að vekja athygli á þeirri þjónustu sem sjálfboðaliðar veita i mannúðarskyni." Hvað skyldi svo vera á döfinni á málþingi laugardagsins? „Þar verða tekin fyrir málefni sem brenna á sjáifboðaliðasamtök- unum sjálfum," svarar Konráð. „Þar eru fulltrúar frá nokkrum félagasamtökum og fyrirtækjum, eins og Rauða krossinum, Kvenfé- lagasambandinu, skátunum, Al- mannavörnum, Blóðbankanum og fleirum og þar verða rædd ýmis málefni, svo sem öflun sjálfboðaliða, réttarstaða, kröfur til þeirra og fleira. Þetta verða bæði framsögur og pallborðsumræður. Þarna kemur fram fólk á öllum aldri og af báðum kynjum og þingið verður opið öll- um.“ Konráð segir að samhliða mál- þinginu og ráðstefnunni séu félögin með kynningu á starfsemi sinni og eftir morgunkaffí muni lögreglukór- inn skemmta gestum með söng. Sameinuðu þjóðirnar gáfu tóninn báðar haldnar í samvinnu við Slysa- varnafélagið Landsbjörgu og Banda- lag íslenskra skáta með styrk frá ut- anríkisráðuneytinu. Þær séu haldn- ar í tilefni af ári sjálfboðaliðans 2001 sem Sameinuðu þjóðirnar hafi skipulagt. Markmiðið sé að vekja at- hygli á mikilvægi sjálfboðaliða, hvetja stjómvöld og frjáls félaga- samtök til að bæta vinnuumhverfi þeirra og fá störf þeirra viðurkennd í auknum mæli. Gun. Konráð segir þessar samkomur Maöur Irfandi Frelsi til orða Koibrún Bergþórsdóttir skrifar. í Djúpu lauginni, kjánalegum stefnumótaþætti á Skjá einum, var ung stúlka spurð hvaða persónu i mannkynssögunni hún vildi helst fara með út að borða. Hún svaraði: „Ég veit það ekki, ég hef ekki lesið söguna.“ Þetta svar er brilljant i fáfræði sinni og má flokka sem ljóskubrand- ara, en þeir þykja mér ljómandi skemmtilegir, kannski af því ég er dökkhærð. Einhverjir líta þessa brandara hornauga af því þeir draga upp neikvæða mynd af ákveðnum hópi kvenna, en mér er bara alveg sama. Það sem er fyndið er fyndið og það skiptir sjaldnast máli gegn hveij- um fyndnin beinist. Vel heppnaður brandari byggist venjulega á einhvers konar móðgunum. En ef horfið er frá bröndurum og að alvörunni þá lætur fólk út úr sér alls kyns hluti og á að hafa leyfi til þess. Stundum vísa niðrandi ummæli á ákveðna hópa, eins og sætar ljóskur sem eru sagðar heilalausar. Sumar virðast reyndar vera það og má þar nefna fyrrum yfirskvísu Pamelu And- erson sem aðeins er farið að slá í. Hún getur ekki mætt í stuttan spjallþátt án þess að verða sér tO háborinnar skammar vegna greindarskorts. Svo heyrir maður alls kyns fullyrðingar um ágimd og sérhlífni gyðinga. Um Þjóðverja er oft talað sem nískustu túristana sem moki morgunverðar- hlaðborði á hótelum ofan í nestisbox. Og þegar konur koma saman er íjarska algengt að heyra þær segja setningar eins og: „Karlmenn eru nátt- úrlega tilfínningalega vanþroska". Ég nenni ekki að geta upp á því hvað karlmenn segja um konur þegar þeir eru saman í hóp en þar fara örugglega fram einhverjar alhæfmgar. Og hvað með það? Fólk á að fá að tjá sig. Reyndar er fátt leiðinlegra en fólk sem getur aldrei látið út úr sér setningar án þess að hafa íhugað fyrirfram hvort þær standist öll möguleg rök. Ég hef verið svo lánsöm að kynnast mörgu bráð- skemmtilegu fólki sem laumar hvað eftir annað út úr sér óhemju fyndnum setningum. Þær setningar einkennast aldrei af pólitiskri rétthugsun. Þær eru snjallar, satt aö segja óvenju greindarlegar og hugmyndaríkar, en um leið fullyrðingasamar. Þar er iðu- lega vegið að einstaklingum og hópum á ósvífmn hátt. Bráðskemmtilegt, ef ég má leyfa mér að segja mina skoðun. Já, þetta er víst minn pistill og ég má segja það sem mér sýnist. Og segi það „En ef horfið er frá bröndurum og að alvör- unni þá lœtur fólk út úr sér alls kyns hluti og á að hafa leyfi til þess. Stund- um vísa niðrandi um- mœli á ákveðna hópa, eins og sœtar Ijóskur sem eru sagðar heilalausar. Sumar virðast reyndar vera það og má þar nefna fyrrum yfirskvísu Pamelu Anderson sem að- eins er farið að slá í. “ bara. Ef einhverjum líkar það ekki þá hef ég ekki tíma til að hugsa um það. Þegar búið er að skrifa einn pistil kemur að því að hugsa um annan. Þannig er nú það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.