Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Qupperneq 32
M
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001
Óheppilegt innlegg í kjaradeilu:
Sjúkraliðar
hýrudregnir
- þó þeir hafi unniö á undanþágu
Þeir sjúkraliðar sem hafa starfað á
Landsspítala á undanþágu í verkfoll-
um hafa verið hýrudregnir sem nem-
ur fjölda verkfallsdaganna. Níu dagar,
þ.e. fjöldi verkfallsdaga, hafa verið
dregnir af öllum án tillits til hvort
þeir hafa unnið í verkföllunum eða
ekki og hvort þeir eru í fullu starfi
eða hlutastarfi. Kristín Á. Guðmunds-
dóttir, formaður Sjúkraliðafélags ís-
lands, sagði við DV í morgun að þetta
gæti orðið til þess að sjúkraliðar
fengjust ekki til að vinna á undanþág-
um i þeim verkfollum sem boðuð hafa
verið, komi þau til framkvæmda. Þá
sé þetta síst fallið til að liðka um í
samningaviðræðum.
Lista yfir þá sjúkraliða sem starfað
hafa á undanþágu í verkfóllunum
hafði verið skilað inn til launanefndar
ríkisins til þess að þeir fengju þau
laun sem þeim ber. Engu að síður
voru þeir hýrudregnir um síðustu
mánaðamót. Þeir höfðu vænst leið-
<t» -------------------------------------
réttingar um þessi mánaðamót en hún
var ekki gerð. Þær upphæðir sem
dregnar hafa verið af sjúkraliðum
nema allt að 41, 5 prósentum af laun-
um þeirra, eða um það bil 56 þúsund
af meðaltalslaunum með öllu.
„Þessir níu dagar eru dregnir af öll-
um sem verkfallið nær til og eru á fyr-
irframgreiddum launum," sagði Krist-
ín. „Við höfðum vænst þess að spítal-
inn myndi sjá til þess að undanþágu-
listamir skiluðu sér inn til launa-
nefndar en það virðist ekki hafa dug-
að til þess að fólk fái leiðréttingu."
Kristín sagði þetta ekki einungis
koma niður á þeim sem ynnu í verk-
fóllum því hinir sem hefðu skilað
vinnuhlutfalli sínu þrátt fyrir verk-
faUið hefðu einnig fengið níu daga
launaskerðingu.
Ekkert hefur þokað í viðræðum
sjúkraliða og viðsemjenda þeirra.
AllsherjarverkfaU sjúkraliða hefur
verið boðað 12. nóvember nk. -JSS
DVJilYND BRINK
Nýjasta hártískan frá París
íslendingum gafst í gær kostur á aö sjá þaö nýjasta í hártískunni frá París. Þaö voru samtökin Intercoiffure á íslandi
sem sýndu nýjustu strauma og stefnur innan hártískunnar.
156 þúsund í
ársreykingar
Sá sem reykir einn pakka af sígar-
ettum á dag þarf nú að eyða rétt um
13 þúsund krónum á mánuði og 156
þúsund krónum á ári sé miðað við
nýjustu hækkun ÁTVR á tóbaki nú
um mánaðamótin. Pakki af algengri
tegund af sígarettum mun kosta um
435 krónur á útsölustöðum. Þetta er
mikiU munur frá því fyrir einu ári,
eða í október 2000.
Bjarni Þorsteinsson hjá ÁTVR
sagði við DV að á þeim tíma hefði
gengi á doUar verið á 82,90 krónur.
/ Núna, það er miðað við þann dag sem
hækkunin var miðuð við, var doUar-
inn kominn í 104,85 krónur. Bjarni
segir að erlendir framleiðendur hafi
líka hækkað verð á sígarettum. Heild-
söluverð hefur því hækkað mjög og er
nú 356 krónur á algengum pakka af sí-
garettum. Mismunurinn á þeirri tölu
og 435 er útsöluálagning. -Ótt
Ódýrasta
bensínið
Bensínlitrinn er ódýrastur hjá
Orkunni eftir 4 króna lækkun elds-
neytis hjá olíufélögunum á mið-
nætti. Hjá Orkunni kostar lítrinn af
95 oktana bensíni kr. 91,10. Á sjálfs-
’ afgreiðslustöðvum ÓB, sem eru í
eigu Olíss, og hjá Esso Express kost-
ar lítrinn nú 91,30. -JSS
Samgönguráðherra reiður vegna umfjöllunar um vél Flugmálastjórnar:
Telur þingmann vera
að koma höggi á sig
- Ríkisendurskoðun beöin að kanna ferðir TF-FMS
Harðar deilur urðu á Alþingi í
gær þegar Gísli S. Einarsson, al-
þingismaður Samfylkingar, setti
fram skriflegar spurningar til sam-
gönguráðherra vegna notkunar
ráðamanna á flugvél Flugmála-
stjórnar. Eins og DV greindi frá í
vikunni eru farþegalistar vegna
ferðalaga ráðherra ekki lengur til.
Flugmálastjórn hefur fleygt gögnun-
um og ráðuneytin eiga þau ekki
heldur. Fjárlaganefnd hefur vísað
því til Ríkisendurskoðunar hvort
skoða beri rekstur flugvélarinnar.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra var harðorður og hann taldi
þingmanninn vera að reyna að
koma á sig höggi með umfjöllun um
leiguflug ráðuneyta með TF-FMS,
flugvél Flugmálastjórnar. Þá lýsti
hann því að umfjöllunin væri verk
Gísli S. Sturla
Einarsson. Böövarsson.
Glsla S. og „samstarfsmanna hans á
DV“. Ráðherrann afsakaði mikla
notkun sína á vélinni 25. maí, með-
al annars með þvi að hann hefði
þurft að mæta á frumsýningu á leik-
ritinu Fróðárundrin í Ólafsvík.
Sama dag hefði hann kynnt íslenska
hestinn í Reykjavík, undirritað
samning við Slysavarnafélagið á
Akureyri og tekið á móti hópi fólks
sem ferðamálaráðherra i Stykkis-
hólmi. Þvi hefði hann neyðst til að
leigja vélina. Hann kveðst hafa ekið
heim um nóttina.
Upphaf þessa máls má rekja til
þess að DV leitaði fyrr á þessu ári
ítrekað eftir upplýsingum um ferðir
flugmáalastjómarvélarinnar á veg-
um ráðuneyta eins og fram hefur
komið i blaðinu síðustu daga. Þar
hefur komið fram að farþegaskrám
hefur verið hent.
Sturla sagði á Alþingi í gær að
rangt væri að ráðuneyti sitt hefði
flogið fyrir 5 milljónir króna síðan
1998 eins og fram kom í DV. í ráðu-
neytinu væru gögn um að kostnað:
urinn væri 1,9 milljónir króna. Eins
og tilgreint var f frétt DV er vísað
til upplýsinga frá forsætisráðuneyt-
inu þar sem fram kemur að sam-
gönguráðherra hafi haft vélina á
leigu í rúma 58 flugtíma. Með þvf að
margfalda þá tölu með 85 þúsund
krónum, sem er hinn opinberi taxti
Flugmálastjórnar fyrir TF-FMS,
fæst útkoma sem er rétt innan við 5
milljónir króna. Þarna er gengið út
frá kostnaði á verðlagi yfirstand-
andi árs. Ef upplýsingar ráðherrans
um flugkostnað ráðuneytisins eru
réttar er ljóst að flugið er enn meira
niðurgreitt en Flugmálastjórn lætur
í veðri vaka.
Sturla Böðvarsson harðneitar því
í samtali við DV að hann hafi ofnot-
að TF-FMS, en ráðherra verður í
DV-yfirheyrslu í blaðinu á morgun.
Sturla.
Nánar á bls. 5
-rt
Flugumferðarstjórar vinna of mikið, að sögn formanns þeirra:
Ofurálag veldur óöryggi
- vilja losna við yfirvinnu án þess að það rýri kjör þeirra
Ein ástæða þess að flugumferðar-
stjórar boða vinnustöðvun á næstu
dögum er að flugöryggi er ábótavant
vegna mikillar yfirvinnu þeirra. Þetta
segir Loftur Jóhannsson, formaður
Félags flugumferðarstjóra. Hann viil
helst hætta yflrvinnu. Nokkur fjölgun
hafi orðið i stéttinni en hún sé ekki í
takt við stækkun flugumferðarsvæðis-
ins og aukið álag því samfara.
„Auðvitað hangir öryggi í fiugi
saman við þreytu og þessi krafa okk-
ar hefur því mikið öryggisgildi. Við
viljum helst að yfirvinnu verði hætt
en með þeim fyrir-
vara að það hafi
ekki áhrif á af-
komu flugumferð-
arstjóra. Ef yfir-
vinnan yrði tekin 1
burtu án þess að
það hefði áhrif á af-
komuna að meðal-
tali þá væri deil-
Jóhannsson. unni lokið-“ segir
Loftur.
Yfirvinna flugumferðarstjóra er
gríðarleg að sögn Lofts þótt hún sé
heldur minni en þegar ástandið var
allra verst. íslenskir flugumferðar-
stjórar eru núna 103 en voru 88 ekki
alls fyrir löngu. „En það má benda á
að flugumferð um svæðið hefur frá
1985-1998 aukist um 100%. Núna er
tækifæri til að gera þetta. Ef það dreg-
ur úr umferðinni tímabundið i kjölfar
atburðanna í Bandaríkjunum þá er
upplagt að draga úr yfirvinnu og fá
svo svigrúm til að bregðast við þegar
flugumferð fer að vaxa aftur,“ segir
Loftur.
-BÞ
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800
heimili og
fyrirfagmenn
og fyrirtaeW,
skóla, fyrir rflð
ogreglu.mig
ogþig.
ngbytauegi 14 • sfml 554 4443 • if.ls/rafport