Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
Norðurland DV
Nemendur Norðurlands eystra á toppnum í samræmdum prófum 4. bekkjar:
Bestur námsárangur
í Brekkuskóla
- skordýrin duga ekki til að hamla gegn góðu skólastarfi
Björn Þórleifsson, skólastjóri í
Brekkuskóla, segir vísbendingar
uppi um aö kennaraliðið á Akureyri
sé stöðugra og betra síðari misseri
en verið hefur um nokkurt skeið.
Hann þakkar kennurum og aukinni
vitund foreldra í námi grunnskóla-
bama góðan árangur í samræmdu
prófunum.
Eins og fram hefur komið náðu
grunnskólabörn í 4. bekk bestum ár-
angri í samræmdum prófum i haust
en reykvísk börn standa enn best í
7. bekk skv. samræmdum prófum.
Brekkuskóli hefur náð einna best-
um árangri grunnskólanna á Akur-
eyri undanfarið ef litið er til ein-
kunna. Þannig hefur 10. bekkur ver-
iö í stöðugri sókn og má nefna að
meðaleinkunn hefur hækkað úr 4,75
vorið 1998 úr öllum samræmdu
prófunum í 5,53 í fyrravor. I 4. og 7.
bekk hafa einkunnir verið svipaðar.
Hvað varðar samræmdu prófin
hjá 4. og 7. bekk nú, var Brekku-
skóli með meðaltal svæðiseinkunn-
ar í stærðfræði í 4. bekk. En stærð-
fræöingar 7. bekkjar og báðir ís-
lenskuhóparnir skara fram úr mið-
að við aðra grunnskóla á Akureyri.
Athyglisvert er að skólinn nái
þessum árangri í ljósi umræðu um
aðbúnaö. Frægasta dæmið er að
skordýr tóku sér búsetu í veggjum
skólans nýverið og var einni
kennslustofunni lokað vegna þess.
Þá hafa þrengsli verið mikil og seg-
ir Bjöm að árangurinn sýni að hægt
sé að reka gott skólastarf þótt að-
búnaður sé misjafn. Hann telur hins
vegar að enn betri árangur gæti
náðst ef skikk yrði komið á þau
mál. Sem dæmi hafi komið fyrir að
aðfluttir kennarar hafi fremur kosið
hina grunnskólana vegna betri að-
búnaðar þar. -BÞ
Norðlensk bókaútgáfa:
Risi, limrur og Ijúfar sögur
„Bækur okkar að þessu sinni tengj-
ast ekkert fremur Akureyri eða Norð-
urlandi, við eram með allt landið und-
ir. Jóhann Svarfdælingur var þó mik-
ið norðlenskur. En við erum með þrjá
norðlenska rithöfunda á okkar snær-
um, þaö eru Björn Þorláksson blaða-
maður með smásögur og þetta er hans
fyrsta bók og það telst alltaf til tíðinda
þegar nýir menn kveðja sér hljóðs.
Svo er Gísli Jónsson með limrabókina
sem er eina bókin sem til er um limr-
ur á íslandi. Ég skrifa svo sjálfur bók-
ina um Jóhann risa,“ segir Jón Hjalta-
son hjá Bókaútgáfunni Hólum á Akur-
eyri, en Hólar gefa út 12 bækur nú fyr-
ir jólin.
Af bókum Hóla sem nú eru komnar
út má nefna „Bestu brandararnir - al-
gjört æði“, sem er 80 blaðsíður.
„Gilitrutt" sem myndskreytt er af
Kristni G. Jóhannssyni, þá er það
smásagnabókin „Við“ sem er eftir
Björn Þorláksson blaðamann. „Grát-
brosleg, meinleg, fyndin, sorgleg.
Bjöm skrifar um nútímann og honum
er ekkert heilagt. Beinskeyttur, ófeim-
inn, jafnvel djarfur umfram það sem
getur talist hollt. Lesandinn er neydd-
ur til að taka afstöðu. Frábærlega vel
skrifaðar smásögur sem láta engan
ósnortinn," segir Jón Hjaltason um
bók Björns. Bjöm mun vera eini Ak-
ureyringurinn sem gefur út skáldverk
um þessi jól og hefur bók hans þegar
fengið miklar og góðar viðtökur.
Ásdís ívarsdóttir þýddi bókina
„Konu flugmannsins" eftir Anitu
Shreve og Kristinn R. Ólafsson þýddi
bókina „Mannkynið og munúðin -
kynlífssaga mannsins" eftir Reay
Tannahill. „Nýja limrubókin" heitir
bók Gísla Jónssonar, bókin sem alla
ljóðavini hefur vantaö að sögn Jóns
Hjaltasonar. Efni hennar skiptist í
tvennt, fyrst er ítarleg ritgerð um lim-
rur, þær útskýrðar með dæmum og
saga þeirra rakin. Seinni hlutinn
geymir limrar eftir Hlymrek handan
og fleiri.
Þá má nefna bókina „Undir fjalls-
hlíðum" eftir Jón Bjarman. „Með lífið
í lúkunum - gamansögur af íslensk-
um læknum“ er í umsjón Jóns Hjalta-
Jólabækur á Akureyri
Jón Hjaltason, bókaútgefandi hjá
Hólum.
Smásagnahöfundur
Björn Þorláksson, sá eini á Akureyri
meö frumsamiö skáldverk um þessi jól.
sonar og Guðjóns Inga Eiríkssonar, en
bókina segir Jón barmafulla af gleð-
skap sem lengir lífið en styttir stund-
irnar. Þá er ógetið um „Rauða herinn
- sögu Liverpool 1892-2001“ eftir Agn-
ar Frey Helgason og Guðjón Inga Ei-
ríksson.
„Úr fóram þular“ heitir bók Péturs
Péturssonar, fyrrum útvarpsþular, en
í bókinni fer Pétur á kostum í bráð-
skemmtilegum frásögnum af horfnum
tíma. Síðast en ekki síst er svo bókin
„Of stór fyrir ísland" sem er ævisaga
Jóhanns risa eftir Jón Hjaltason. í
bókinni segir frá ævintýrcdegum lífs-
ferli, barnæsku í Svarfaðardal,
þrautalífi í Danmörku, betra lífi í
Frakklandi og putalífi í Þýskalandi.
Árið 1945 fluttist Jóhann heim en þeg-
ar íslendingar brugðust honum
hrökklaðist hann til Bandaríkjanna
þar sem hann starfaði í stærsta og
frægasta sirkus heims. Mikill fjöldi
ljósmynda frá einstæðri og ævintýra-
legri ævi Jóhanns prýðir bókina. -gk
Bæjaryfirvöld á Akureyri áhyggjufull vegna reynslusveitarfélagsverkefna:
Hundrað milljóna halli
- ríkið hefur ekki viljað mæta þessum halla með auknum framlögum
Um 100 milljóna króna halli er
fyrstu níu mánuði ársins á rekstri
reynslusveitarfélagsverkefnanna sem
Akureyrarbær hefur með höndum frá
ríkinu og hafa forsvarsmenn bæjarfé-
lagsins ekki fengið nein skýr svör um
það hvernig þessum halla verður
mætt. Málið hefur verið rætt bæði í
félagsmálaráði og bæjarráði og kemur
fram í bókun félagsmálaráðs að ráðið
hefur þungar áhyggjur af stöðu mála
hvað varðar rekstrarhalla þessa árs.
„Leita verður ailra leiöa til að fá ráðu-
neytin til að bæta þennan halla með
því að viðurkenna þá samninga sem
launanefnd sveitafélaga hefur gert og
greitt er að mestu eftir í þessum mála-
flokkum," segir í
bókuninni.
Oktavia Jóhann-
esdóttir, formaður
félagsmálaráðs,
segir að mestur
hallinn sé til kom-
inn vegna reksturs
öldrunarstofnana
og vegna málefna
fatlaðra. Lítill hluti
hans stafi hins veg-
ar af rekstri heilsugæslunnar. Samn-
ingar bæjarins við ríkið um reynslu-
sveitarfélagsverkefnin era lausir um
áramót og ljóst er að ef ekki næst sam-
komulag um þessi mál verður ekki
framhald á þeim. Oktavía segir að
rekstur öldrunarþjónustunnar hafi
verið á hendi bæjarins áður og muni
væntanlega verða þaö áfram en hins
vegar færu málefni fatlaðra og heilsu-
gæslan þá aftur yfir til ríkisins miðað
við þessa niöurstöðu. Hún kveðst þó
halda i þá von að samningar náist og
að til þess þurfi ekki að koma að þessi
verkefni fari frá sveitarfélaginu.
í fjárlagafrumvarpi virðist ekki
vera gert ráð fyrir þeim raunkostnaði
sem þarf til að reka þetta áfram, en
Oktavía segir þó ljóst að bæði heil-
brigðis- og félagsmálaráðherrar hafi
skilning á málinu og séu áhugasamir
um að koma því í höfn. Peningahliðin
sé hins vegar óklár og á því strandi
núna - sem sé sérkennilegt þvi það
verður ekki ódýrara fyrir rikið að
reka þessi verkefni.
Ljóst er að þessi óvissa er farin að
hafa skaðleg áhrif á þá starfsemi sem
verið er að vinna í þessum málaflokk-
um. „Þetta er afleitt fyrir starfsfólkið,
sem veit ekkert hvorum megin
hryggjar það kemur til með að liggja.
Þetta er afleitt fyrir alla stjórnun á
starfseminni - við vitum ekki hvort
við eigum að slíta þetta sundur eða
halda áfram því þróunarstarfi sem
verið hefur í vinnslu. Óvissan sem
fylgir þessu leiðir af sér bæöi leiðindi
og óöryggi," segir Oktavía.
Gaukarnir gefnir
Lionsmenn afhenda páfagaukana
góöu.
Lionsmenn á Akureyri:
Gefa gauka
- á sambýli aldraðra
Félagar í Lionsklúbbnum Hæng á
Akureyri komu færandi hendi á dög-
unum á sambýli aldraðra í Bakkahlíð
39 á Akureyri. Þeir höfðu spurnir af
því að í búsældarlega Bakkahlíðina
vantaði gæludýr og því varð úr að
þeir komu og gáfu heimilisfólki og
starfsmönnum tvo páfagauka. Það var
Ólafur Kristjánsson, heimilismaður á
sambýlinu, sem veitti gjöfinni viðtöku
frá Stefáni Vilhjálmssyni, formanni
Hængs, sem afhenti þá með eftirfar-
andi vísu.
Lions-gaukar gala vel,
glaóir alltaf sperra stél.
Drjúgt má gleöjast dœgrin löng
viö dœgilegan fuglasöng.
-sbs
Æsifréttir
og skítkast
„Flestir sem
þekkja til vinnu á
sjó eru sannfærðir
um að myndskot
þau sem Ríkissjón-
varpið sýndi í síð-
ustu viku hafi ver-
ið sviðsett atriði af
Magnúsi Þór Haf-
steinssyni og óá-
byrgum sjómönn-
um. Mér finnst það
mjög miður hvernig búið er að draga
þessa umræðu niður í svað æsifrétta-
mennsku og skítkasts," segir Guð-
brandur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf„
á vefsíðu félagsins.
„Flestir sem ég þekki stunda sjó-
mennsku af ábyrgð og líta brottkast
hornauga. Við þekkjum vel þann
vanda sem fylgir því að ná ekki í rétta
stærð af fiski en frekar en að gefast
upp og brjóta lögin höfum við fundið
leiðir til að búa til ásættanleg verö-
mæti úr þeim fiski sem er að koma af
togurum ÚA. Það er von mín að hægt
verði að lyfta umræðunni um brott-
kast á „hærra plan“ og að stjórnvöld
taki á þessu máli af festu," segir Guð-
brandur. -BÞ
Þjóðlegar heföir
Laufás verður vettvangur stofnunar
hins nýja félags.
Félag um varð-
veislu hefða
Fólk sem búsett er við Eyjafjörð
og starfar að því leynt og ljóst að
viðhalda þekkingu á fornum vinnu-
brögðum, islensku handverki og
öðrum þjóðlegum hefðum í verk-
menningu, söng, dansi og sagnahefð
hyggst nú stofna með sér félags-
skap. Fyrr i mánuðinum var hald-
inn undirbúningsfundur í Minja-
safninu á Akureyri og komu margir
á fundinn og var samkvæmt upplýs-
ingum aðstandenda félagsstofnunar-
innar mikill hugur í mönnum að
stofna formlegt félag fyrir jól. Nú
hefur verið blásið til stofnfundar
Félags um varðveislu íslenskra
hefða á sviði verkmenningar og al-
þýðulistar og verður fundurinn
haldinn í Laufási annað kvöld kl. 20.
Guöbrandur
Sigurösson.