Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
Fréttir
Baltasar Kormákur
yfirtekur Kaffibarinn
á 95% hlut á móti 4% Ingvars Pórðarsonar
„Það var hald-
inn löglega boð-
aður hluthafa-
fundur. Þar
mætti Ingvar
ekki og fundur-
inn ákvað þá
hlutafjáraukn-
ingu sem orðin
er. Ég hef ekkert
heyrt frá Ingvari
um málefni Kaffi-
Baltasar
Kormákur.
barsins annað en þá yfirlýsingu sem
hann sendi Helgarblaöi DV og birt-
ist á laugardaginn," sagöi Baltasar
Kaffibarinn
Baltasar hefur tekiö yfír hlut tngvars
barnum ásamt Damon
Kormákur, leikstjóri og nýr aðaleig-
andi Kaffibarsins við Bergstaöa-
stræti.
Kaffibarinn er enn í eigu Ingvars
‘Þórðarsonar, Baltasars og Damons
Albarn tónlistarmanns. Á umrædd-
um hluthafafundi samþykktu
Baltasar og Damon, í fjarveru Ingv-
ars, að auka hlutafé félagsins og eft-
ir breytinguna á Baltasar 95%,
Damon 1% og Ingvar 4%.
Skuldum upp á fimm milljónir
vegna ógreiddra vörsluskatta vegna
Kaffibarsins hefur verið aflétt en
staðurinn er enn lokaður vegna
breytinga og
endumýjunar
veitingaleyfis.
Vegna grein-
ar í Helgarblaði
DV, þar sem
fjallað var um
umsvif Ingvars
Þórðarsonar,
vildi Baltasar
Kormákur taka
fram að hann
og Ingvar hefðu
átt jafnan hlut í
félaginu sem
framleiddi kvik-
myndina 101
Reykjavík og
Þóröarsonar í Kaffí-
Albarn.
Hvanneyri:
Tömdum fjárhundum fjölgar
Fyrir skömmu lauk 14. fjárhunda-
námskeiðinu á vegum Landbúnað-
arháskólans á Hvanneyri á þessu
ári. Aldrei fyrr hafa eins mörg nám-
skeið verið haldin. Landbúnaðarhá-
skólinn hefur haldið slik námskeið i
fjölda ára í samstarfi við Gunnar
Einarsson, bónda og fjárhundaþjálf-
ara, á Daðastöðum.
Frá árinu 1993 hafa 456 þátttak-
endur sótt þessi námskeið, sumir
oftar en einu sinni. Áhugi bænda á
að temja og þjálfa góða fjárhunda
fer sívaxandi og nú síðustu ár hefur
árangurinn orðið bæði almennari
og betri. Smalahundafélög víðs veg-
ar um land hafa auk þess haldið
fjárhundakeppni að erlendri fyrir-
mynd og jafnvel með erlendum sér-
þjálfuðum dómurum sem hefur
vafalaust verið hvatning til margra.
Á sínum tíma sótti Gunnar reynslu
sína í notkun fjárhunda til Nýja-Sjá-
lands og Ástralíu, auk þess að fylgj-
ast með fjárhundakeppni á Bret-
landseyjum. Hefur hann og staðið
fyrir eigin keppni hér heima og
fengið dómara frá Skotlandi og ír-
landi til að aðstoða við keppni og
námskeið. Gunnar hefur á nám-
skeiðunum hvatt ungt og áhuga-
samt fólk til að sækja sér reynslu í
notkun fjárhunda, líkt og hann sjálf-
ur gerði, til þeirra staða þar sem
vinna með slíka hunda er jafnari
allt árið. -DVÓ/GJ
Akranes:
Frystiskipin landa
úr góðum túrum
Frystiskip Har-
aldar Böðvarssonar
hf. eru að koma úr
vel heppnuðum
veiðiferðum. Helga
María AK 16 kom í
gær til Akraness
með afla að verð-
mæti 90 milljónir
króna. Aflinn var
aðallega þorskur en
auk þess fiskaði
skipið ýsu, karfa,
ufsa, grálúðu o.fl.
Góð veiöi
Helga María AK 16 er annaö þeirra
frystiskipa Skagamanna sem
aflaö hafa vel.
Jólahald í Dalvíkurbyggð:
Jólavefur mikiö sóttur
Nú er hafin vinna við uppfærslu
Jólavefs Júlla 2001 og verður nýr og
endurbættur vefur opnaður innan
tíðar. Júlíus Júlíusson sem hefur
veg og vanda af vefnum segir að vef-
urinn hafi fengið góðar viðtökur og
mikið verið heimsóttur.
Á vefnum er að finna ýmislegt
sem tengist jólahaldi í Dalvíkur-
byggð fyrr og síðar, sögur, ljós-
myndir o.fl. Þá er einnig jóladagatal
með léttum gátum og- bækur og
geisladiskar í vinning. Júlíus sagði
í samtali við DV að sig langaði til að
auka enn fjölbreytnina á jólavefn-
um og biður hann alla sem luma á
efni tengdu jólum á svæðinu;
skemmtilegum frásögnum, ljós-
myndum sem tengjast jólahaldi í
Dalvíkurbyggð eða einhverju því
efni sem tengist jólum á einhvern
hátt, að hafa samband. -hiá
framleitt hana saman. Uppgjöri fyr-
ir kvikmyndina 101 er ekki lokið
enn en Baltasar segist bera fulla
ábyrgð á öllum skuldum félagsins
101 ehf.
„Ég sóttist ekki eftir liðsinni hans
við framleiöslu Hafsins og hann leit-
aði ekki eftir þvi.“ -PÁÁ
£5
Sg
(/>»-
w (0
Z co
NISSAN PATROL 3,3 TURBO DÍSIL^
árg. 1987, ekinn 238 þ. km, 35“ dekk,
álfelgur, er á gormum, gott kram.
Verð 590.000,
skipti athugandi,
100% lán athugandi.
Til sölu á JR Bílasölu, Bíldshöfða 3,
sími 567-0333
j. R. BÍLASALAN
www.jrbilar.is
Visa/Euro raðgreiðslur.
Höfrungur III
AK 250 var vænt-
anlegur síðdegis í
gær með afla að
verðmæti 100 millj-
ónir króna. Aflinn
þar var líka að
mestu þorskur en
skipið fiskaði
einnig ufsa, karfa,
grálúðu o.fl. Bæði
skipin fengu aflann
að mestu leyti út af
Vestfjörðum. -DVÓ
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing,
um tillögu til breytinga á aðalskipulagi
Reykjavíkur 1996-2016,
breytingu á deiliskipulagsáætlun og tillögur að
deiliskipulagsáætlunum í Reykjavfk.
[ samræmi við 21. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar eftirfarandi tillögur að breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, tillögur að deiliskipulagáætlunum og
breytingu á deilskipulagsáætlun í Reykjavík.
Bryggjuhverfi, Naustabryggja 13-17, 21-33 (oddatölur) og 54-57 og
Tangarbryggja 10-12, breyting á deiliskipulagi.
Tillagan gerir ráð fyrir að breyttu fyrirkomulagi bílastæða við hús nr. 12 og 13 á
uppdrætti þ.e. Naustabryggju nr. 21 -33. Tillagan gerir og ráð fyrir að lóðir nr. 14A og
14B á uppdrætti, þ.e. Naustabryggja nr. 13-17 (oddatölur), sameinist. í samræmi við
það verði ekki lengur gert ráð fyrir að heimilt verði að byggja neðanjarðarbílageymslu
á lóðinni nr. 14B en hún var m.a. ætluð fyrir húsin nr. 54-57 við Naustabryggju.
Langholtsvegur 109-115, deiliskipulag og breyting á aðalskipulagi.
Annarsvegar er um að ræða tillögu að deiliskipulagi reits sem afmarkast af
Langholtsvegi til vesturs, Drekavogi til norðurs, opnu grænu svæði og lóðinni nr. 6
við Drekavog til austurs og göngustíg norðan húsanna nr. 12-16 við Sigluvog til
suðurs. Hinsvegar er um að ræða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur
1996-2016 varðandi lóðina nr. 115 við Langholtsveg.
Tillögurnar gera ráð fyrir að heimilt verði að byggja inndregna hæð ofan á húsið nr.
109-111 við Langholtsveg. Lóðinni nr. 115 verði skipt upp í tvær lóðir og landnotkun
hennar, skv. Aðalskipulagí Reykjavíkur 1996-2016, breytt úr athafnasvæði í
íbúðasvæði. Heimilt verði að byggja viðbyggingu norðan við húsið nr. 115 við
Langholtsveg (þ.e. húsið sem stendur við Langholtsveg). Jafnframt verði heimilt að
byggja tvær hæðir ofan á austara húsið sem nú stendur á lóðinni nr. 115 og tvö
þriggja hæða íbúðarhús, með 6 íbúðum í hvoru, syðst á lóðinni þ.e. aftan við húsin
nr. 12 og 14 við Sigluvog. Tillagan gerir jafnframt ráð fyrir öðrum minni breytingum f
tengslum við þær sem taldar hafa verið upp hér að framan.
Kirkjutún, deiliskipulag (Sóltún, Mánatún, Borgartún, Kringlumýrarbraut).
Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi svæðis sem afmarkast af Borgartúni til
norðurs, Sóltúni og Kringlumýrarbraut til austurs, Sóltúni tii suðurs og lóð Sóltúns 3
og Borgartúns 26 til vesturs.
Tillagan gerir m.a. grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á skipulagi svæðisins
frá samþykkt síðasta heildarskipulags þess. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að
byggja tvö ný hús á svæðinu. Annarsvegar er um að ræða 6 hæða íbúðarhús með
24 íbúðum vestan hússins nr. 11-13 við Sóltún auk neöanjarðarbílgeymslu fyrir 24
bíla. Hinsvegar er gert ráð fyrir aftan við húsið nr. 28 við Borgartún rísi u.þ.b. 2300
m2 skrifstofuhúsnæði sem getur orðið allt að 6 hæðir (6. hæðin inndregin).
Tillagan gerir jafnframt ráð fyrir breytingu áfyrirhugaðri götu (Mánatúni) milli lóðanna
nr. 2-6 við Mánatún og Sóltúns nr. 3. Breytingin felur m.a. í sér nokkuð meiri
skerðingu á lóðinni nr. 3 við Sóltún en eldra skipulag gerði ráð fyrir.
Tillögurnar verða til sýnis í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3,
1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 21. nóvember til 19. desember 2001.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur
fyrir 4. janúar 2002. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna
sér tillögurnar
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 21. nóvember 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur.