Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Qupperneq 14
14
________________________________________________________________________________________________MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
Útlönd DV
Anders Fogh Rasmussen leiðir ríkisstjórn Danmerkur:
Lofar að verða forsæt-
isráðherra allra Dana
Borgaraflokkarnir í Danmörku
unnu stærsta kosningasigur sinn í
áttatíu ár í gær þegar þeir veltu rík-
isstjórn jafnaöarmanna eftir snarpa
kosningaþaráttu þar sem innflytj-
endur og flóttamenn voru helsta
hitamálið.
Poul Nyrup Rasmussen, leiðtogi
jafhaðarmanna, verður nú að
standa upp úr forsætisráðherra-
stólnum, eftir átta og hálfs árs setu,
fyrir ótvíræðum sigurvegara kosn-
inganna, Anders Fogh Rasmussen,
leiðtoga Venstre, sem er hægra meg-
in við miðju. Venstre er nú orðinn
stærsti flokkurinn á þinginu.
Flokkur Anders Foghs fékk 56
menn kjörna, bætti við sig fjórtán,
en jafnaðarmenn fengu 52 menn,
misstu ellefu. Alls fá borgaraflokk-
arnir 98 þingmenn en jafnaðarmenn
og stuðningsflokkar þeirra fengu 77
menn kjörna.
„Ég er ánægður með það traust sem ég ætla að taka við af mikilli vita að ég ætla að verða forsætisráð-
sem Venstre og mér var sýnt, traust auðmýkt. Þeir sem töpuðu verða að herra allra,“ sagði Anders Fogh áð-
Urslit dönsku kosninganna |
- fjöldi þingsæta
60
56
50
e
40
30 g
Q
22
20
42
I
.1
c
I
10
Þing-
menn
52
I
lií ifell
i
i
.Í13
j
j
,e
Ul
ur en hann hélt til ferjunnar Sjá-
lands þar sem Venstre hélt kosn-
ingavöku sína.
Poul Nyrup Rasmussen var tár-
votur um augun þegar hann játaði
ósigur sinn fyrir borgaraflokkunum
skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld.
Poul Nyrup hvatti væntanlega
stjórn borgaraflokkanna til að
vinna að því að halda atvinnuleys-
inu í skefjum. Atvinnuleysið er nú 5
prósent og hefur ekki verið lægra í
aldarfjórðung. Poul Nyrup gekk á
fund Margrétar Þórhildar drottning-
ar í morgun og afhenti afsagnar-
beiðni sína og stjómar sinnar.
Anders Fogh sagði eftir að sigur-
inn var í höfn að stjóm hans myndi
herða reglur um innflytjendur, sem
hægrimenn segja að séu margir
hverjir hálfgerð sníkjudýr á kerf-
inu. Þá sagði hann að stefnt væri að
því að bæta velferðarkerfið.
Kjörsókn í gær var 89,3 prósent
sem telst mikið í Danmörku.
Pia hefur í hótun-
um við nýja ríkis-
stjórn Danmerkur
Pia Kjærsgaard, leiðtogi Danska
þjóðarflokksins, gerði Anders Fogh
Rasmussen, væntanlegum forsætis-
ráðherra Danmerkur, það ljóst i
gærkvöld að hún myndi gera stjórn
hans lífið leitt ef flokkur hennar
fengi ekki að hafa áhrif á stefnuna,
einkum þó í málefnum útlendinga.
Danski þjóðarflokkurinn byggði
kosningabaráttu sína á andstöðu
við innflytjendur, einkum þó
múslíma, sem flokkurinn vill helst
að verði reknir úr landi.
Danski þjóðarflokkurinn fékk 22
menn kjörna f gær, níu fleiri en í
kosningunum 1998. Það er því ekki
undarlegt að Pia Kjærsgaard hafi
verið hyllt sem sigurvegari þegar
hún mætti til kosningavöku flokks-
ins í gærkvöld.
„Nú verður Anders Fogh að
hlusta á okkur,“ sagði Pia.
Án stuðnings Danska þjóðar-
flokksins hefur væntanleg ríkis-
stjóm Venstre og íhaldsflokksins
ekki meirihluta á þinginu.
Sambands-
flokkurinn vann
í Færeyjum
Færeyingar og
Grænlendingar
gengu einnig til
kosninga í gær
um fulltrúa sína á
danska þingið og
urðu nokkrar
breytingar á stöð-
unni í báðum
löndunum, en
kosið var um tvo
fulltrúa frá hvoru
landinu.
í Færeyjum töpuðu íhaldið og
jafnaðarmenn fulltrúum sínum og
varð Sambandsflokkurinn, systur-
flokkur Venstre í Danmörku, helsti
sigurvegari kosninganna. Fékk rúm
27 prósent atkvæða og verður Lis-
beth L. Petersen, fyrrum bæjarstjóri
í Þórhöfn, fulltrúi þeirra. Hinn full-
trúi Færeyinga á danska þinginu
verður Högni Hoydal, formaður
Þjóðveldisflokksins, en flokkur
hans hlaut tæp 25 prósent atkvæða.
Jafnaðarmannaflokkurinn hlaut um
23,5 prósent sem er heldur meira en
síðast, en íhaldsflokkurinn, sem
tapaði mestu, fékk rúm 20 prósent.
Á Grænlandi náðu þeir Kuupik
Kleist frá Inuitaflokknum og Lars
Emil Johansen frá Siumutflokknum
kosningu, en báðir flokkamir höfðu
sjálfstæði landsins á stefnuskrá sinni.
Högni Hoydal
náöi kosningu á
danska þingiö.
Súrt og sætt
Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráöherra Danmerkur, óskar helsta andstæöingi sínum, Anders Fogh Rasmussen, for-
manni Venstre, til hamingju með stórsigurinn í dönsku þingkosningunum í gær.
Talibanar í Kunduz fá þrjá daga til að gefast upp:
Mikil skelfing í
Bandarískar sprengjuflugvélar
gerðu í nótt og í morgun harðar
sprengjuárásir á bækistöðvar talibana
í umkringdu borginni Kunduz í norð-
urhluta Afganistan og einnig á stöðvar
þeirra í borginni Kandahar í suður-
hluta landsins. Samkvæmt fréttum
urðu íbúðarhverfi i Kunduz fyrir
sprengjum og var talið að mikið tjón
og mannfall hafi hlotist af i þeim fjór-
um árásum sem gerðar voru á borg-
ina, þó ekkert hafi enn fengist staðfest.
Harðar árásir voru einnig gerðar á
varðstöðvar talibana utan borgarinn-
ar, þar sem þúsundir hermanna tali-
bana hafast við ásamt erlendum
stríðsmönnum al-Qaeda-samtaka
Osama bin LadenS, sem aðallega
koma frá Pakistan, Sádi-Arabíu og
Tststjsníu. Talið er að um þúsund
hermenn talibana hafi þegar gefist
upp fyrir hersveitum Norðurbanda-
lagsins og að mun fleiri hyggi á flótta
frá borginni. Vandamálið sé hins veg-
ar að þeir séu í gíslingu erlendu her-
mannanna sem taldir eru skipta þús-
Mohammad Doud
Mohammad Doud, foringi Noröur-
bandalagsins, sem stjórnar umsátr-
inu um Kunduz hefur gefiö taiibön-
um þrjá daga til aö gefast upp.
Kunduz
undum, en þeir munu ákveðnir í að
berjast til síðasta blóðdropa, enda
ekki líklegt að herir norðanmanna
sýni þeim nein grið.
Að sögn talsmanna Norðurbanda-
lagsins hafa farið fram viðræður við
foringja talibana um uppgjöf i Kunduz
og hafa þeim nú verið gefnir þrír dag-
ar til að ákveða sig. Að öðrum kosti
verði þeir að taka afleiðingunum og
er líklegt að ekkert annað en slátrun
bíði þeirra geri Norðanmenn árás á
borgina.
Talibanar hafa hingað til aðeins
ijáð máls á því að gefast upp fyrir sér-
stökum gæslusveitum SÞ, en að sögn
talsmanna SÞ er það ekki mögulegt
þar sem gæslusveitir eru á svæðinu
og því ekki á þeirra valdi.
Mikill straumur flóttamanna er nú
frá Kunduz en miklar loftárásir hafa
verið gerðar á hæðirnar i kringum
borgina síðustu daga. Talið er að um
30 þúsund manns séu nú lokaðir inni
í borginni í gæslu talibana og mun
mikil skelfing ríkja meðal þeirra.
Vill ekki ráðherrastól
Uffe Ellemann-
Jensen, fyrrum leið-
togi Venstre og fyrr-
um utanríkisráð-
herra Danmerkur,
ætlar ekki að taka
sæti í nýrri ríkis-
sfjóm borgaraflokk-
anna. Hann sagði
aðspurður að hann yrði ekki beðinn
um slíkt en ef það gerðist myndi
hann hafna boðinu.
Áhyggjur af úrslitum
Norðmenn og Svíar hafa margir
hverjir áhyggjur af niðurstöðum
kosninganna í Danmörku þar sem
borgaraflokkarnir unnu stórsigur.
Toga að miðjunni
Jann Sjursen, leiðtogi Kristilega
þjóðarflokksins, vill að vinstriflokk-
arnir í Danmörku reyni að toga
væntanlega stjórn inn að miðju,
einkum þó í málefnum útlendinga.
Rússar sammála Könum
ígor ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði í gær að Rússar
væru að mestu sammála stjórnvöld-
um í Washington um hvernig leita
eigi friðar i löndunum fyrir botni
Miðjarðarhafs.
Grunur um miltisbrand
Talið er að 94 ára gömul kona
sem býr ein í landbúnaðarhéraði í
Connecticut hafi smitast af miltis-
brandi í lungum. Ekki er vitað
hvernig það getur hafa gerst.
Malasíukóngur dauður
Konungurinn í
Malasíu, Sultan
Salahuddin Abdul
Aziz Shah, lést í
morgun, 75 ára að
aldri. Konungur-
inn, sem var einn
níu hefðbundinna
leiðtoga sem skipt-
ust á að gegna æðsta embætti lands-
ins, náði sér aldrei eftir hjartaað-
gerð sem hann gekkst undir fyrir
tveimur mánuðum.
Dýr enduruppbygging
Yfirmaður enduruppbyggingar-
starfs Sameinuðu þjóðanna í
Afganistan sagði í gær að veita-
þyrfti milljörðum dollara til verks-
ins, eftir áratuga styrjaldarátök.
fordæmir
Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna,
fordæmdi í gær
morð á fjórum
blaðamönnum i
Afganistan. Að sögn
talsmanns Annans
hefur framkvæmda-
stjórinn þungar áhyggjur af öryggi
og velferð óbreyttra borgara í
Afganistan.
Stórfé til höfuðs Osama
Bandaríski herinn útvarpar þessa
dagana tilkynningu til Afganistans
um að 25 milljónir dollara verði
veittar þeim sem geta veitt upplýs-
ingar um Osama bin Laden og leiða
til handtöku hans.
Flokkur styður Schröder
Flokksbræður Gerhards Schröd-
ers Þýskalandskanslara lýstu yfir
stuðningi sínum við hann í gær og
á sama tíma hlóð Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, hann lofi.
Kofi Annan