Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Page 20
24
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
Skoðun
DV
Finnst þér jólaskreytingarnar
komnar of snemma?
Sigurður Björgvinsson
verslunarmaður:
Nei, gott mál í byrjun nóvember.
Oddný Haraldsdóttir, 7 ára:
Mér finnst of langt til jóla fyrir
jólaskrautiö.
Þórður Ingvarsson sjómaður:
Allt of snemmt, svona í fyrsta lagi
mánaöamót nóvember og desember.
Daníel Viðarsson, 12 ára:
Já, alltof langt til jóla.
Hreiðar Geir Jörundsson, 12 ára:
Já, það er of langt til jóla, maöur
bíður lengur.
Þórir Rafnar Rúnarsson, 12 ára:
Já, það ætti ekki aö byrja aö skreyta
fyrr en 1. desember.
Hótanir og ótti
Sagöist vera í heilögu stríöi viö óvininn í vestri.
- En fór huldu höföi og eftirlét öörum sönnunarbyröina.
„Og þjóðin fékk líka, á
einni nóttu, að hlusta á út-
varp sem stjórnin sem
studdi hann, hafði til þessa
bannað mönnum að nota
af ótta við að hið sanna
bœrist fólkinu til eyrna. “
Þá fór ýmislegt að skýrast á
myndrænan hátt. Karlarnir keyptu
sér rakvélar eða fóru á rakarastofur
og hnésítt skeggið lá í valnum og
lagðist eins og motta yfir þessar
stofur. í landinu þar sem menn
skríða inn í fjöllin til að fela sig fyr-
ir ágangi „vonda vestursins". Og
þjóðin fékk líka, á einni nóttu, að
hlusta á útvarp sem stjórnin sem
studdi hann, hafði til þessa hannað
mönnum að nota af ótta við að hið
sanna bærist fólkinu til eyma. Og
lýðurinn gerði uppreisn gegn lyg-
inni og stjórninni sem hélt yfir hon-
um verndarhendi.
Á einni nóttu komu konurnar i
ljós með því að þær köstuðu blæjun-
um og búningunum sem áður huldi
líkama þeirra frá toppi til táar og
leiddi til þess að menn fóru að líta
augum fegurð sem áður hafði verið
mönnum hulin nema fáum útvöld-
um. - Stjóm talibana í Afganistan
er fallin og bin Laden rúinn trausti,
að eilífu.
Konráö Rúnar Friðfinnsson
skrifar:
Já, hann hótaði í austur og
í vestur, formælti og bjó til
sprengjur og miltisbrand.
Stal risafarþegaflugvélum og
flaug þeim á World Trade
Center og Pentagon í Banda-
ríkjunum. í kjölfarið braust
út mikill ótti og í dag er svo
komið að farþegaflug hefur
stórlega dregist saman. Allt
vegna þess að maður varð
reiður, hótaði, sagður hafa
búið til „veiru", segist eiga
kjamorkuvopn og lætur öll-
um illum látum í fjölmiðlum
og telur sjálfan sig réttlátari
en aðra. Hann þjálfaði fólk
til að fórna sjálfu sér fyrir
málstað sem hann segir
merkilegan. - Þótt málstað-
urinn sé óskilgreindur og
enginn í raun viti með vissu
hver hann nákvæmlega er.
En þrátt fyrir þennan
sannleika hefur hann yfir að
ráða fólki sem reiðubúið er
að láta sitt eigið líf fyrir
óskilgreinda hluti. Hann sagðist
vera í heilögu stríði við óvininn í
vestri og hina kristnu. En eftir at-
burðinn 11. september fór hann
huldu höfði og viðurkenndi ekki
sök í málinu heldur eftirlét öðrum
þessa sönnunarbyrði. Sönnunin
kom og hún leiddi til þess að
sprengjum tók að rigna yfir fjarlægt
land með öllum þeim skelfingum
sem slikt sprengjuregn manna er
fært um að framkalla.
Draumurinn um fyrirmyndar-
heim, gerðan af mannahöndum, án
atbeina Skaparans, bíður enn síns
tíma. Og nú er svo komið að stjórn-
in sem studdi hann, hvatti til dáða
og verndaði gegn „vonda vestrinu
og hinum kristnu" er fallin.
Póstkosning hjá Samfylkingu
Kristinn Magnússon
skrifar:
Formaður Samfylkingarinnar,
nýendurkjörinn, segir að orðið
„stefnuleysi" sé síbylja andstæðinga
fylkingarinnar. En er nú nokkur
furða þótt orðið „stefnuleysi" sé
bendlað við stjórnmálasamtök sem
hafa bókstaflega ekkert markmið
sýnilegt annað en það að koma ís-
lendingum á vonarvöl með inn-
göngu í Evrópusambandið. Vonandi
mun það þó ekki takast, enda ekki
alveg full samstaða um það mál inn-
an Samfylkingarinnar, frekar en
um annað í þeim samtökum.
En það er búið að ræða við ný-
kjörinn formann Samfylkingarinn-
ar í flestum fjölmiðlum og svo að
„Uppákoma Samfylkingar-
innar í Súlnasalnum á Sögu
um sl. helgi snerist upp í leik-
araskap og óðagot um að
ræða það sem minnstu máli
skipti. Öllu öðru var sleppt
eða tekið af dagskrá.“
segja samtímis í Kastljósi Sjónvarps
og þætti svipaðs eðlis á Stöð 2, sama
kvöldið. Það eitt sýnir nú berlega að
þessar tvær sjónvarpsstöðvar hafa
ekki úr miklu að moða í viðtals-
þætti sína. Uppákoma Samfylking-
arinnar í Súlnasalnum á Sögu um
sl. helgi snerist upp í leikaraskap og
óðagot um að ræða það sem
minnstu máli skipti. Öllu öðru var
sleppt eða tekið af dagskrá.
Það sem fréttamenn fengu í hend-
ur var því heldur rýrt í roðinu og
snerist um tvennt; átta tillögur að
nýju nafni og póstkosningu sem
framkvæmd verður á næsta ári um
um inngöngu í ESB. Hvort tveggja
mál sem Samfylkingin þorir ekki að
taka á og setur í bið. Sú bið á eftir
að verða löng og dýrkeypt þessum
stjómmálasamtökum. - Landsfund-
ur Samfylkingarinnar bar sannar-
lega merki doða og dáðleysis, og því
geta andstæðingar hennar haldið
áfram að prakkarast í umræðum
um Samfylkinguna með orðinu
„stefnuleysi". Það eru sannmæli.
Garri
Varnarliðseignir
Stríðið um Reykjavíkurborg er nú i algleym-
ingi. Raddimar um Linu.net hafa aðeins hljóön-
að í bili á meðan athyglin beinist að skipulags-
málum og Geldinganesi, en ákafinn og hitinn í
umræðunni er þó sá sami. Og sala Perlunnar er
nú komin í gegnum sjálfa borgarstjórnina þrátt
fyrir þögul mótmæli sjálfstæðismanna, sem sátu
hjá af öllu afli. Sjálfstæðismenn upplifa nú hlut-
skipti hins króníska minnihluta, sem er mikil
breyting frá þvi sem áður var, en sem kunnugt
er drottnaði flokkurinn með miklum yfirburðum
í borginni áratugum saman. Þvi sárari er sú til-
flnning að þurfa nú að sætta sig við hlutskipti
hornkerlingarinnar, sem situr til hliðar og er í
aukahlutverki.
Varnarliðið
Garri minnist hins vegar þeirra gömlu daga
þegar það þótti jafn sjálfsagt og að sólin risi að
morgni að sjálfstæðismenn réðu Reykjavík. Þetta
gerðu þeir þrátt fyrir ítrekaðar árásir og tilraun-
ir hinna aðskiljanlegustu hópa kommúnista,
samvinnumanna og sósialdemókrata til að hrifsa
af þeim völdin. Þá stóð Qokkurinn saman og
myndaði skjaldborg um borg sína og varði hana
fyrir ásókn barbaranna. Sjálfstæðisflokkurinn
leit á sig sem varnarlið vestrænna stjórnarhátta
í borginni og eins og tíðkast með varnarlið var
þar aðeins einn herforingi á hverjum tíma og
það fór aldrei á milli mála hver stýrði þessu
varnarliði. Undir lokin var varnarliðsforinginn
enginn annar en Davíð Oddsson, og til heiðurs
fræknum sigrum hans lét hann reisa bæði Perlu
og Ráðhús, sem bæði standa enn til glæsilegs
vitnis um fyrri velgengni varnarliðsins.
Alfreð selur
En allt er í heiminum hverfult og í hinum
nýja meirihluta R-listans eru ekki margir sem
voru þátttakendur í borgarpólitík á velmektar-
dögum varnarliðs sjálfstæðismanna. Alfreð Þor-
steinsson var þó þarna og sýnist Garra greinilegt
að reynsla hans frá því á varnarliðsdögunum sé
að birtast í ákvörðunum hans þessa dagana. Al-
freð hefur sem kunnugt er verið forstjóri i fyrir-
tæki sem heitir Sala vamarliðseigna og sem slík-
ur selt landsmönnum hvers kyns dót sem ekki er
þörf fyrir hjá vamarliðinu. Heldur hafa umsvif
bandaríska basans minnkað á seinni árum en
Alfreð lætur það ekki á sig fá og hefur nú fundið
leið til að vega upp þennan samdrátt. Hann held-
ur einfaldlega uppteknum hætti og falbýður
varnarliðseignir sem ekki eru not fyrir, nema
hvað að þessu sinni eru það eignir úr búi varn-
arliðs sjálfstæðismanna í Reykjavík. Perlan fyrst
og síðan væntanlega Ráðhúsið líka. Hér er því í
raun á ferðinni einföld og vel þekkt viðskipta-
fræðileg aðgerð, sem Alfreð Þorsteinsson er sér-
fræðingur í. Því telur Garri það algeran óþarfa
hjá sjálfstæðismönnum að taka þessari sölu jafn
illa og raun ber vitni og fmna Alfreð allt til for-
áttu vegna hennar. Maðurinn er einfaldlega að
gera það sem hann kann hvað best og er fagmað-
ur í - nefnilega að selja
varnarliöseignir! CyXffi,
Fjölskylduvæn dagskrá
Fastur liöurf Sjónvarpinu?
Góðar Disneymyndir
Ungur faðir skrifar:
Ég vil koma á framfæri þakklæti til
Sjónvarpsins fyrir sýningu Disney-
mynda sem öll fjölskyldan getur horft
á án þess að skaðast verulega á sál og
sinni. Þannig er hjá okkur hjónunum,
sem eigum þrjá krakka á aldrinum
7-11 ára, að við bíðum með óþreyju eft-
ir hverju föstudagskvöldi til að horfa á
eina góða og fjölskylduvæna mynd. Og
um síðustu helgi kom meira af svo
góðu. - Ævisaga Judy Garland i tveim-
ur hlutum og ævintýramyndin Galdra-
karlinn í Oz. Fyrir svona innlegg er
ástæða til að þakka Sjónvarpinu, því
þessa dagskrárhlið hefur sárlega vant-
að. Og íjölskylduvænni dagskrá verður
líka að halda úti, ekki satt?
Furðulegar saka-
málafréttir
Halldór Jóhannsson skrifar:
Það sætir furðu hvemig fjölmiölar,
einkum ljósvakamiðlarnir, matreiða
sakamálafréttir. Með fréttum af hvers
kyns sakamálum eru sýndar myndir af
húsum héraðsdóma og sýslúmanns-
embætta en ekki af því sem máli skipt-
ir. Ég tek sem dæmi nýlegar fréttir af
nauðgunarmálum á Akureyri, þar sem
sýndar eru myndir af Héraðsdómi
Norðurlands. Eða fréttir af erlendum
byggingaverkamönnum sem óprúttnir
Islendingar íluttu inn og leigðu til verk-
taka í byggingabransanum. - Aftur
sýndar myndir frá sýslumannsembætti
eða lögreglustöðvum. Þetta finnst mér
engin íréttamennska. Hvers vegna ekki
að sýna myndir eða tala við hina
meintu sakamenn eða sýna frá vett-
vangi þar sem starfsemin fór fram?
Sundlaugar til sölu?
Þorleifur Jónsson skrifar:
Nú hefur
Perlan við
Öskjuhlíð ver-
ið sett á sölu-
lista, því borg-
arstjórn þarf á
miklu fjár-
magni að
halda til að
greiða skuldir
og ný áhættu-
verkefni. Ég
er á móti því
að borgin selji
verðmætar eignir sínar, og alls ekki
Perluna, sem getur gefið af sér arð ef
rétt væri á haldið. En hvert verður
framhaldið hjá borginni? Kannski að
selja Ráðhúsið, Lækjartorg til at-
hafnamanna sem vildu setja þar niður
miðbæjar-“mall“? Eða sundlaugarn-
ar? Það er „tap“ á þeim. Já, því ekki
selja sundlaugarnar, allar eða í hlut-
um? Byrja kannski á Vesturbæjar-
lauginni eða Árbæjarlauginni? Hún
myndi seljast fljótt. Mér stendur ógn
af þessari söluáfergju.
Brottkast - lögbrot
Sigurbjörn hringdi:
Ég verð að lýsa furðu minni og and-
styggð á fréttunum um brottkast á
fiskiskipum okkar. Bæði er nú það að
ekki er enn staðfest að fullu hvort um
sviðsetningu var að ræða vegna
myndatöku fyrir rikissjónvarpið, þar
eru orð gegn orðum, og eins hitt að
þessi brottkastsmál virðast engan dilk
draga á eftir sér, þrátt fyrir að hér sé
um lögbrot að ræða hjá öllum þeim
sem brottkast stunda. Er hægt að hafa
svona glæpi hangandi í lausu lofti, ef
svo má komast að orði? Er ekki ís-
lenskt réttarkerfi öflugra en þetta?
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar með bréfunum á
sama póstfang.
í Árbæjarsundlaug
Já, því ekki á
sölulista?