Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Blaðsíða 26
30
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2001
* Tilvera
I>V
Bing vill fara í
faðernispróf
Steve Bing, fyrrum kærasti of-
urskvísunnar og leikkonunnar
Elizabeth Hurley, er tilbúinn til
aö gangast undir DNA-próf til að
sanna að hann sé ekki faðir barns-
ins sem Hurley ber undir belti.
Hurley hefur haldið því fram að
Steve hafi barnað hana.
Fréttaþjónustan Ananova
greindi frá því á dögunum að
Steve hefði sagt vinum sínum að
hann ætti ekkert i barninu. Hann
hefur meira að segja rætt um að
ráða sér lögfræðing til að berjast
gegn því að þurfa að borga meðlag
með barninu þegar það kemur í
heiminn í april næsta vor.
Beinast sjónir manna þá ekki aö
enn eldri kærasta Hurley, Hugh
litla Grant, sem hefur verið þaul-
setinn við hlið stúlkunnar síðustu
vikurnar og farið með henni í
mæðraskoðanir?
Tónlist sem býr í undirmeðvitundinni
Óskar Guðjónsson saxófónleikari sendi nýlega frá sér disk þar sem hann leikur lögin úr Dýrunum í Hálsaskógi í djassútsetningu.
Dýrin í Hálsaskógi í djassútsetningu:
Tilraun með
tónlist sem
allir þekkja
- segir Óskar Guðjónsson sem heldur útgáfutónleika í kvöld
V
i
Allt þetta og fleira tengt jólunum verður
umfjöllunar-efni blaðsins.
I blaðinu verða matar- og kökuuppskriftir fyrir
jólin og skemmtilegt föndur fyrir alla fjölskylduna.
Einnig verður kynnt það nýjasta í föndurlínunni
í dag.
Umsjónarmenn blaðsins eru
Ragnheiður Gústafsdóttir - rg@dv. is simi 550 5725
og Vilmundur Hansen - kip@dv.is sími 550 5000
Þeir sem áhuga hafa á að auglýsa í þessu sérblaði
vinsamlega haFi samband við Ragnheiði fyrir 22.
nóvember nk.
Einnig er þeim sem eru með góðar uppskriftir sem
þá langar að deila með lesendum DV bent á að
hafa samband við Vilmund eða senda honum
tölvupóst kip@dv.is
„Hvorki gras né garðakál borðar
heilbrigð sál,“ sagði Mikki refur í
Dýrunum í Hálsaskógi þegar hon-
um var sagt að ekkert dýr í skógin-
um mætti borða annað dýr. Þessi
orð hafa verið mér mjög hugleikin í
gegnum tíðina og ég hef oft beitt
þeim fyrir mér þegar ég hef lent i
orðaskaki við grænmetisætur um
hollustu jarðargróðurs.
Fyrir skömmu sendi Óskar Guð-
jónsson saxófónleikari frá sér disk
þar sem hann leikur lögin úr Dýr-
unum í Hálsaskógi eftir Thorbjörn
Egner og Christian Hartman í djass-
útsetningu.
Óskar segir að hugmyndin á bak
við diskinn sé að takast á við tónlist
sem allir þekkja og búi jafnvel í
undirmeðvitund fólks. „Ég fékk því
Eðvarð Lárusson, Matthías M. D.
Hemstock og Pétur Grétarsson til
liðs við mig og við lágum yfir lögun-
um hver í sínu horni og komum svo
saman og úr varð þessi plata.“
Tek ekki eftir því sjálfur
Við fyrstu hlustun er tónlistin á
disknum hæg og þegar Óskar er
spurður hvort það sé tempóið sem
hann valdi lögunum segir hann að
það sé reyndar keyrsla í nokkrum
lögum. „En þau eru svolítið stutt og
þetta er það sem okkur fannst
henta.“ Hann segir einnig að miðað
við að þetta sé djassplata sé nokkuð
um inprófiseringar þótt það sé ekki
í öllum lögum. „Við ákváðum ekki
fyrirfram að gera hæga plötu, þetta
kom bara svona af sjálfu sér og satt
best að segja hef ég ekki tekið eftir
því sjálfur að platan sé neitt hæg.“
Óskar segir að í byrjun næsta árs
sé væntanleg önnur plata með hon-
um og Skúla Sverrissyni þar sem
þeir spila eingöngu frumsamið efni.
Útgáfutónleikar verða á Smíða-
verkstæði Þjóðleikhússins í kvöld
og heljast þeir klukkan 21.
-kip
REUTER-MYND
Maradona í Argentínu
Argentíska knattspyrnugoðið Diego Maradona, með túrban á höfðinu, er hér í heim-
sókn hjá vini sínum Carlosi Menem, fyrrum forseta Argentínu, sem þessa dagana
dvelur í stofufangelsi vegna ólöglegra eriendra viðskipta á forsetaárum sínum við að-
ila í Ekvador og Króatíu. Maradona, sem dvalið hefur í Havana á Kúbu síðan í byrjun
árs 2000 vegna eiturlyfjameðferðar, var mættur til Argentínu um helgina til að leika
þar kveðjuleik á leikvelli gamta liðsins síns, Boca Juniors, og notaöi tækifærið til að
heimsækja vin sinn. Með þeim á myndinni er Cecelia Bolocco, eiginkona Menems.