Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2001, Síða 30
34
MIÐVIKUDAGUR 21. NOVEMBER 2001
íslendingaþættir________________________________________________________________________________________________________PV
Umsjón: Kjarian Cxtinnar Kjarfansson
Fólk í fréttum
mm
90 ára_____________________________
Una Margrét Bjarnadóttir,
Hrafnistu viö Kleppsveg, Reykjavík.
80 ára_____________________________
Anna Jóhannesdóttir,
Hóli, Dalvík.
Sveinbjörg Árnadóttir,
Hofi 2, Sauöárkróki.
Vilborg Einarsdóttir,
Digranesvegi 36, Kópavogi.
75 ára_____________________________
Jón Eggertsson,
Vesturbergi 54, Reykjavík.
Jón Óskar Jóhannsson,
fyrrv. bifreiöastjóri,
Strandaseli 2, Reykjavík.
Kristín Pálsdóttir,
Drafnarstlg 2a, Reykjavlk.
70 ára
María Valgeröur
Sigtryggsdóttir,
Lönguhlíð 6, Akureyri.
Hún verður aö heiman á
afmælisdaginn en tekur á
móti ættingjum og vinum
I laugardaginn 24.11. kl.
14.00-18.00 í sal KFUM og K aö
Sunnuhlíð 12 á Akureyri.
Eyþór Guömundur Guömundsson,
Vestursíöu 8a, Akureyri.
Ragna Bjarnadóttir,
Stekkjarflöt 14, Garðabæ.
Valey Jónasdóttir,
Hafnartúni 4, Siglufirði.
60 ára____________________
Hlédís Guðmundsdóttir,
Laugavegi 105, Reykjavík.
Hreinn Júlíusson,
Hafnargötu 34, Siglufirði.
Stefán Pálsson,
Skipasundi 25, Reykjavík.
Pórunn J. Gunnarsdóttir,
Dynskógum 1, Reykjavík.
Vignir Jónasson
knapi ársins
Vignir Jónasson, tamningamaður
og reiðkennari, var krýndur knapi
ársins á uppskeruhátíð hestamanna
sem haldin var á Hótel íslandi sl.
fostudagskvöld. Þetta kom fram í
DV í gær.
Starfsferill
Vignir fæddist í Stykkishólmi
31.5. 1971 og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann var í barna- og ung-
lingaskóla í Stykkishólmi.
Vignir vann í frystihúsum og
starfaði lengi við málningarvinnu í
Stykkishólmi á unglingsárunum.
Hann hóf störf við tamningar sam-
hliða annarri vinnu í Stóra-Langa-
dal á Skógarströnd 1987 og hefur
stundað tamningar síðan, viðs veg-
ar um landið og erlendis. Hann tók
frumtamingapróf á vegum Félags
tamningamanna 1990, þjálfarapróf
1991 og reiðkennarapróf á vegum
Félags tamningamanna 1995.
Vignir stundar tamningar og
þjálfun í Dal í Mosfellssveit auk
þess sem hann stundar reiðkennslu.
Vignir hefur keppt á hestamótum
frá þrettán ára aldri, hefur keppt til
úrslita á nokkrum siðustu lands-
mótum hestamanna, var með fjögur
hross í úrslitum í gæðingakeppni á
landsmótinu 2000, hefur keppt á
flestum íslandsmótum síðustu ára,
hefur oft lent þar í úrslitum og varð
íslandsmeistari í flmmgangi 2000 og
2001, keppti á Norðurlandamótinu
1994 og varð þar í úrslitum í tölti og
fjórgangi, keppti á heimsmeistara-
mótinu í Sviss 1995 og var þar í úr-
slitum í tölti og fjórgangi, keppti á
heimsmeistaramótinu i Austurríki
sl. sumar þar sem hann varð heims-
meistari á hestinum Klakki í fimm-
gangi og samanlögðum stigum.
Vignir situr í stjórn Félags tamn-
ingamanna frá 2000 og er varafor-
maður félagsins.
Fjölskylda
Systkini Vignis eru Þorsteinn, f.
16.1. 1966, háseti á Flóabátnum
Baldri, búsettur í Stykkishólmi; Sig-
urður Grétar, f. 21.7. 1986, nemi við
Grunnskólann í Stykkishólmi;
Dagný Lára, f. 1.4. 1975, d. 24.5. 1987.
Foreldrar Vignis eru Jónas Sig-
urðsson, f. 6.10. 1944, skipstjóri í
Stykkishólmi, og k.h., Árný Ingi-
björg Ólafsdóttir, f. 24.2. 1946.
Ætt
Jónas er sonur Sigurðar, b. og
síðar vélstjóra í Stykkishólmi og í
Keflavík, Þorsteinssonar, b. að
Helgafelli og á Ytri-Kóngsbakka í
Helgafellssveit, Jónassonar. Móðir
Sigurðar var Þórleif Kristín Sigurð-
ardóttir.
Móðir Jónasar var Margrét, syst-
ir Tómasar, lögfræðings og fyrrv.
sparisjóðsstjóra í Keflavík, og Jóns,
fyrrv. stöðvarstjóra Pósts og síma
og forstjóra. Margrét var dóttir
Tómasar, útvegsb á Jámgerðarstöð-
um i Grindavík og síðar skólastjóra
í Keflavík, Snorrasonar, b. á Norð-
ur-Reykjum í Mosfellssveit, Jóns-
sonar. Móðir Tómasar var Margrét
Tómasdóttir.
Móðir Mar-
grétar yngri
var Jórunn,
systir Stefaníu,
móður Guð-
laugs, háskóla-
rektors og rík-
issáttasemjara,
og Tómasar út-
gerðarmanns
Þorvaldssona.
Bróðir Jórunn-
ar var Eiríkur,
faðir Ellerts,
bæjarstjóra í
Reykjanesbæ.
Jórunn var
dóttir Tómasar,
útvegsb. á
Járngerðarstööum, Guðmundsson-
ar, bróður Jóns í Hópi, afa Kristins
Reyrs rithöfundar og Jónu, móður
Kristbjargar Kjeld leikkonu. Móðir
Jórunnar var Margrét, systir
Bjarna fiskifræðings, afa Bjarna,
forstjóra Byggðastofnunar og Guð-
mundar, forstjóra Skipaútgerðar
ríkisins, Einarssona. Margrét var
dóttir Sæmundar, b. á Járngerðar-
stöðum, bróður Þorláks, langafa
Steingríms Hermannssonar, fyrrv.
forsætisráðherra. Sæmundur var
sonur Jóns, ættföður Húsatóftaætt-
ar Sæmundssonar. Móðir Margrétar
var Sigríður Bjarnadóttir af Kaldað-
arnesætt.
Ingibjörg er dóttir Ólafs, sjó-
manns í Borgarfirði eystra, Ágústs-
sonar, sjómanns þar, Ólafssonar.
Móðir Ólafs var Guðrún Margrét
Arnadóttir.
Móðir Ingibjargar var Helga Sess-
elja Jóhannsdóttur, b. að Ósi í Borg-
arfirði eystra, Helgasonar, b. í
Njarðvík, Jónssonar, hins fróða í
Njarðvík, Sigurðssonar, ættföður
Njarðvíkurættar yngri, en hann átti
tuttugu og sjö börn.
Móðir Helgu Sesselju var Berg-
rún, dóttir Árna, útvegsb. í Bakka-
koti í Borgarafirði, Steinssonar, ætt-
föður Steinsættar, Sigurðssonar, afa
Halldórs Pjeturssonar rithöfundar
og Önnu Guðnýjar Guðmundsdótt-
ur, ömmu Hallórs Ásgrímssonar
utanríkisráðherra. Móðir Bergrún-
ar var Ingibjörg, dóttir Jóns, b. í
Litluvík, Sveinssonar og Önnu
Árnadóttur frá Hólalandi.
50 ára
Níræð
mmwm
Áslaug Thorlacius
fyrrv. ritari við Þjóðskjalasafnið
Aöalbjörg Vagnsdóttir,
Víðigrund 22, Sauöárkróki.
Björg Guömundsdóttir,
Skaftárvöllum 4b, Kirkjubæjarklaustri.
Helgi Guöjón Jóhannesson,
Smiðjugöíu 13, Isafiröi.
Ingvar Jóhann Kristjánsson,
Heiðarhjalla 39, Kópavogi.
Stefán Friðgeirsson,
Lundarbrekku 2, Kópavogi.
Unnur Sveinsdóttir,
Norðurvangi 25, Hafnarfirði.
40 ára________________________________
Auður Helena Hinriksdóttir,
Hvanneyrarbraut 46, Siglufirði.
Bragi Jóhann Ingibergsson,
Breiðvan^i 61, Hafnarfiröi.
Fanney Ósk Gísladóttir,
Merkurgötu 4, Hafnarfirði.
Jóhanna Magnúsdóttir,
Álfaskeiði 50, Hafnarfiröi.
Ragnar Sverrisson,
Tröðum, Selfossi.
Stefanía Hulda Þóröardóttir,
Kaldárbakka, Hnappadalssýslu.
^órdís Skúladóttir,
Skarösbraut 9, Akranesi.
'jórunn Þórarinsdóttir,
Vesturgötu 22, Reykjavík.
Smáauglýsingar
vísir.is
Ester Áslaug Thorlacius Kristjáns-
dóttir, fyrrv, ritari við Þjóðaskjala-
safnið, Kleifarvegi 6, Reykjavík, er ní-
ræð i dag.
Starfsferill
Áslaug fæddist að Fremstafelli í
Köldukinn í Suður-Þingeyjarsýslu og
ólst þar upp í foreldrahúsum. Hún
stundaði nám að Laugum og nám við
Héraðsskólann að Laugarvatni.
Eftir að Áslaug giftist stundaði hún
heimilisstörf Hún hóf síðan skrifstofu-
störf hjá KRON 1954 og starfaði þar í
nokkur ár. Hún var síðan ritari við
Þjóðskjalasafnið þar sem hún vann
lengi við að lesa og skrifa upp gamlar
kirkjubækur en Áslaug hafði lært
gottneskt letur i æsku hjá ömmu
sinni. Hún starfaði við Þjóðskjalasafn-
ið þar til hún hætti fyrir aldurs sakir.
Áslaug var trúnaðarmaður starfs-
mannafélagsins á vinnustað um ára-
bil og sat í jafnréttisnefnd um skeið.
Fjölskylda
Áslaug giftist 29.4. 1931 Sigurði
Ólafssyni Thorlacius frá Búlandsnesi,
f. 4.7. 1900, d. 17.8. 1945, uppeldisfræð-
ingi og skólastjóra Austurbæjarskól-
ans. Hann var sonur Ólafs Thorlacius,
f. 11.3. 1869, læknis á Búlandsnesi, og
k.h., Ragnhildar Eggerz, f. 31.10. 1879,
húsmóður.
Börn Áslaugar og Sigurðar eru
Örnólfur Thorlacius, f. 9.9.1931, fyrrv.
rektor MR en kona hans er Rannveig
Tryggvadóttir húsmóðir og á hann
fjóra syni; Kristín Rannveig Thorlaci-
us, f. 30.3. 1933, bókasafnsfræðingur
við Grunnskólann i Borgarnesi, var
gift Rögnvaldi Finnbogasyni, sóknar-
presti á Staðarstað á Snæfellsnesi og
eignuðust hún sjö börn og eru sex
þeirra á lifi; Hraifnkell Thorlacius, f.
22.1.1937, arkitekt í Reykjavík, kvænt-
ur Kristínu Bjarnadóttur, meinatækni
og sagnfræðingi, og á hann fimm
börn; Hallveig, f. 30.8. 1939, brúðuleik-
ari, gift Ragnari Arnalds, rithöfundi
og fyrrv. ráðherra, og eiga þau tvær
dætur; Kristján, f. 30.10. 1941, kennari
og áfangastjóri við Ármúlaskóla,
kvæntur Ásdísi Kristinsdóttur grunn-
skólakennara og eiga þau fimm dæt-
ur.
Systkini Áslaugar; Anna, nú látin,
húsfreyja, var gift Júlíusi Lárussyni á
Kirkjubæjarklaustri sem er látinn;
Rannveig, nú látin, húsfreyja, var gift
Páli H. Jónssyni, tónlistarkennara á
Laugum sem er látinn; Friðrikka,
húsfreyja á Fremstafelli, var gift Jóni
Jónssyni, bónda þar, nú látinn, bróð-
ur Páls; Helga, fyrrum. skólastjóri
Húsmæðraskólans á Akureyri og hús-
freyja á Silfrastöðum, var gift Jóhanni
Lárusi Jóhannessyni, bónda á Silfra-
stöðum í Skagafirði sem er látinn;
Jón, fyrrv. bóndi á Fremstafelli, er
kvæntur Gerði Kristjánsdóttur hús-
freyju; Jónas, fyrrv. forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar, er
kvæntur Sigríði Kristjánsdóttur hús-
móður; Ásdís, lést sjö ára.
Foreldrar Áslaugar voru Kristján
Jónsson, f. 29.1. 1881, d. 16.4. 1964,
bóndi í Fremstafelli, og k.h., Rósa
Guðlaugsdóttir, f. 25.3. 1885, d. 30.7.
1962, húsfreyja.
Ætt
Kristján var bróðir Jónasar frá
Hriflu, afa Sigurðar Steinþórssonar
prófessors. Kristján var sonur Jóns, b.
i Hriflu, Kristjánssonar, b. í Sýrnesi
Jónssonar, b. í Sýrnesi, bróður Jó-
hannesar, ættföður Laxamýrarættar,
afa Jóhanns Sigurjónssonar skálds.
Jón var sonur Kristjáns, b. á Halldórs-
stöðum, Jósefssonar, b. í Ytra-Tjarn-
arkoti, bróður Jónasar, afa Jónasar
Hallgrimssonar skálds. Jósef var son-
ur Tómasar, ættfóður Hvassafellsætt-
ar Tómassonar. Móðir Kristjáns á
Halldórsstöðum var Ingibjörg Hall-
grímsdóttir, systir Gunnars, afa
Tryggva Gunnarssonar bankastjóra
og Kristjönu, móður Hannesar Haf-
steins. Móðir Kristjáns í Fremstafelli
var Rannveig Jónsdóttir, b. á Gvend-
arstöðum, Jónssonar.
Rósa var dóttir Guðlaugs, b. i
Fremstafelli, Ásmundssonar, b. á
Ófeigsstöðum, Jónssonar. Móðir Guð-
laugs var Guðný Guðlaugsdóttir, b. í
Álftagerði, Kolbeinssonar og Kristín-
ar, systur Þuríðar, móður Sigurðar,
ráðherra í Ystafelli, afa Jónasar bún-
aðarmálastjóra. Þuríður var einnig
móðir Árna, afa Þórs Vilhjálmssonar
dómara, fóður Helga, forstöðumanns
Reiknistofu HÍ. Önnur systir Kristin-
ar var Friðrika, móðir Sigurðar,
langafa Sveins Skorra Höskuldssonar
prófessors. Kristín var dóttir Helga,
ættföður Skútustaðaættar, Ásmunds-
sonar. Móðir Rósu var Anna Sigurð-
ardóttir, b. á Litluströnd, Erlendsson-
ar, b. á Rauðá, Sturlusonar. Móðir
Önnu var Guðrún, systir Guðnýjar á
Ófeigsstöðum.
Áslaug mun taka á móti gestum í
Sóknarsalnum, Skipholti, Reykjavík,
laugard. 24.11. kl. 17.00-19.00.
Arnheiður Einarsdóttir, Bugðulæk 17,
Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Land-
spítalans við Hringbraut laugard. 17.11.
Bjarni Jóhannesson, fyrrv. skipstjóri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
sunnud. 18.11.
Stefán Jóhannesson, Lautasmára 3,
Kópavogi, lést sunnud. 18.11.
Jón Elías Eyjólfsson, fyrrv. verslunar-
stjóri, Aflagranda 40, lést á hjúkrunar-
heimilinu Skógabæ, laugard. 17.11.
Borghildur Hinriksdóttir frá Neskaup-
staö lést á sjúkradeild Hrafnistu í Hafn-
arfirði laugard. 17.11.
Sigurlaug Þórey Þorsteinsdóttir John-
son hjúkrunarfræöingur andaðist á
hjúkrunarheimilinu Skjóli 18.11.
Helga Ólafsdóttir, eili- og hjúkrunar-
heimilinu Grund, áöur Grandavegi 47,
lést að morgni laugard. 17.11.
Merkir Islendíngar
Asgeir Ólafsson Einarsson dýralæknir hefi
orðið níutíu og fimm ára í dag heföi hann lif-
að. Hann fæddist í Reykjavík og ólst upp í Skugga-
hverfinu, lauk stúdentsprófi frá MR 1927, kandi-
datsprófi í dýralækningum frá dýralæknaháskól-
anum í Hannover í Þýskalandi 1934 og dvaldi við
nám í Bretlandi 1967.
Ásgeir var skipaður héraðsdýralæknir í Aust-
firðingafjórðungsumdæmi 1934-1939, starfaði við
dýralækningar í Reykjavík 1940-1950, var skipaður
héraðsdýralæknir Gullbringu- og Kjósarsýslu 1950
en fékk lausn 1968. Hann var eftir það héraðsdýra-
læknir í Vestur-Skaftafellssýsluumdæmi og var
síðan skipaöur heilbrigðisráðunautur við Heil-
brigðiseftirlit ríkisins 1970 en lét af störfum fyrir
Ásgeir Ólafsson Einarsson
aldurs sakir 1976. Þá starfaði hann í nokkur ár sem
bókavörður við bókasafn Elli-og hjúkrunarheimil-
isins Grundar.
Ásgeir var áhugamaður um frjálsar íþróttir á
sínum yngri árum og vann afrek á því sviði. Hann
sat í stjóm Glímufélagsins Ármanns um skeið, sat
í iþróttaráði Austurlands 1935-1939, í stjórn Dýra-
læknafélags íslands og í stjórn Sambands dýra-
verndunarfélaga. Hann var kvæntur Kirstínu Láru
Sigurbjörnsdóttur handavinnukennara en börn
þeirra eru Einar Þorsteinn arkitekt, Sigrún
Valgerður deildarstjóra og kennnaramir Guðrún
Lára, Þórdís og Áslaug Kirstín.
Ásgeir lést 4. apríl 1998.
Lárus Hjalti Ásmundsson lést af slysför-
um laugard. 17.11. Útförin verðurgerð
frá Grafarvogskirkju 23.11. kl. 13.30.
Margrét Indiana Halldórsdóttir, Stiga-
hlíö 97, Reykjavík, veröur jarösungin frá
HSteigskirkju 22.11. kl. 15.00.
Hildir Guðmundsson, Geröavegi 25,
Garði, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju fimmtud. 22.11. kl. 13.30.
Þorsteinn Valdimarsson, Ánahlið 4,
Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Borg-
arneskirkju miövikud. 21.11. kl. 14.00.
Sigríður Sigurðardóttir frá Kollafjarðar-
nesi, Hafnarbraut 17, Hólmavik, verður
jarðsett frá Kollafjarðarneskirkju laug-
ard. 24.11. kl. 13.30. Bílferö veröur frá
Umferðarmiðstöö kl. 8.00 sama dag.
Þóra Ólafsdóttir, Laxárdal, Þistilfirði,
Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarðsungin
frá Hafnarfjarðarkirkju 21.11. kl. 15.00.