Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2001, Blaðsíða 1
Bóksala komin vel á skrið og jólabækur boðnar á tilboðsverði:
Til í slaginn
Guöjón Smári Agnarsson, bóksali í Bókaverslun Lárusar Blöndals, ætlar ekki að gefa neitt eftir í verðstríðinu fyrir jól en verslunin
flutti nýlega í Listhúsið á Engjateigi.
Kennir fólki
að hella uppá 31
Nennti ekki á
elliheimili 18
Hörkuverðstríð á bókum
Leitað að
skyrtu og bindi 19
„Meðan ég fæ bækur frá útgefendum þá stend-
ur mitt verð fram yfir jól. Ég er með fjölda
bókatitla á tilboðsverði og fer óhræddur í stríð
viö samkeppnisaðilana. Þetta- hefst allt með
spamaði í mannahaldi og ódýrara húsnæði," seg-
ir Guðjón Smári Agnarsson, bóksali í Bókaversl-
un Lárusar Blöndal, við DV-Innkaup.
Bóksala er hafin af fullum krafti fyrir jólin og
meðfylgjandi verðstríð með auglýsingum um til-
boð á jólabókum. Guðjón Smári býður 200
bókatitla á tilboðsverði og aðrir bóksalar bjóða
reglulega 30 prósenta afslátt af völdum titlum.
Hagkaup og Bónus hafa þegar auglýst tilboðsverð
á bókum, allt að 35 prósenta afslátt.
„Við auglýstum 30 prósenta afslátt af völdum
bókatitlum um síðustu helgi og viðbrögð við-
skiptavina okkar voru mjög góð. Við erum komn-
ir á fullt í bóksöluna og munum halda áfram með
fjölda tilboða fyrir okkar viðskiptavini," sagði
Finnur Árnason, forstjóri Hagkaups.
Guðmundur Marteinsson, forstjóri Bónuss,
segist munu leggja allt í sölumar til að Bónus
bjóði ódýrustu bækurnar fyrir þessi jól. „Það
verður hart barist eins og i fyrra og reyndar und-
anfarin ár. Við gáfum 35 prósenta afslátt af völd-
um titlum um síðustu helgi. Jólabækurnar eru að
detta inn og þetta leggst vel í okkur enda höfum
við fjölgað útsölustöðum."
Bryndís Loftsdóttir hjá Pennanum/Eymunds-
son fagnar þvi hve vel bóksala hefur farið af stað
og eins því að bækur hafi ekki hækkað i verði.
Hún ráðleggur fólki þó að lesa auglýsingar um
bókatilboð vel og vandlega. „Fólk er farið að sjá í
gegnum þetta tilboðsstríð. Tilboð stórmarkað-
anna gilda oft ekki nema stuttan tíma og fólk
verður svekkt að koma þangað síðar og sjá bæk-
urnar þá á fullu verði. Bóksalar eru með 30% af-
slátt af völdum titlum árið um kring og við höld-
um því auðvitað áfram.“
„Við munum auðvitað bjóða 30 prósenta afslátt
af völdum titlum og einnig kaupauka þar sem ein
eldri bók fylgir nýrri en það verður auglýst sér-
staklega. Við munum einnig verða með ýmsar
uppákomur. Þannig mim fjöldi rithöfunda verða
við afgreiðslustörf í Laugavegsbúðinni 1. desem-
ber,“ sagði Kjartan Valgarðsson, rekstrarstjóri
bókaverslana Máls og menningar.
-hlh
Lausar eldhús-
innréttingar 32
Matarkarfan í Bónus er allt að 45% ódýrari en hjó keppinautunum (DV könnun 20. nóv.)
lEKKEBJ
i lUUIDlf
fyrir budduna
Ekki gleyma útsölulagernum í Kjörgarði Laugavegi,
inngangur er hœgra megin við inngang Bónuss
Sífellt bœtast við vörur, tilvaldar í gjafasjóð
BONUS
Kíklu á Bónufopnuna o? komdu í Bónut!
- og kynntu þér verðið hjá okkur - A£)UR en þú kaupir þér jólabókina