Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2001, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2001, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 19 Imíkaup Herrahúsið 6.600 krónur. Hátíðarfatnaður Galakvöld í Debenham's á fimmtu- dagskvöld. Galakvöld Debenham’s í Smáralind efnir til galakvölds i húsnæði verslun- arinnar, 2. hæð, á fimmtudag, kl. 20-22. Þar mun djasshljóm- sveit spila, freyðivin verður í glösum og konfekt frá Nóa-Sír- íusi í skálum. Þar verður tískusýning á gaia- fatnaði fyrir árshátíðir og nýárs- kvöld en fyrirsætur frá Model 79 munu sýna. Aveda mun sjá um hárgreiðslu og No Name um förðun. Snyrtivöruumboðin munu kynna nýjustu línuna í förðun. Þá verður Anna Toher með kynningu á Stílista-þjón- ustu Debenham’s sem vakið hef- ur mikla athygli og margir hafa notfært sér. Allar konur fá smágjöf þegar þær fara af galakvöldinu. Galafatnaður er ekki skilyrði. Jólaskap í Sand Jólavörurnar fylla nú hillur verslunar- innar Sand í Kringlunni en þar fæst glæsilegur fatnaður á konur sem karla. Vignir Jóhannsson mun opna málverkasýningu í versluninni í kvöld, fimmtudag, en sýning hans mun standa til 14. desember. Á opnuninni verða lifandi tónlist og léttar veitingar í boði. Gestir geta notið þessa og auðvitað skoðað nýju vörurnar. Vín og bjór í matvöruverslanir SVÞ - Samtök versl- | unar og þjónustu taka kk undir þau viðhorf n sem koma fram í neytendakönnxm ; Pricewaterhouse- Coopers um sölu ' léttvíns og bjórs í ' matvöruverslunum og öðrum smásöluverslunum, þar sem það á við. Samtökin telja að gera ætti þessa breyt- ingu hið fyrsta. Könnun PricewaterhouseCoopers er þriðja neytendakönnunin á stuttum tíma sem leiðir í ljós að sterkur vilji neytenda er til að hægt verði að kaupa léttvín og bjór í matvöruverslunum. „Léttvín og bjór eru vörur sem neytendur líta í dag á sem hverj- ar aðrar matvörur og vilja fá að kaupa sem slíkar. Krafa neyt- enda er að geta sett þessar vörur í sömu körfu og kjöt og fisk,“ segir i tilkynningu SVÞ. Fyrir Alþingi liggur frumvarp um að einokun ríkisins á sölu áfengis verði afnumin. -hlh Skyrta og bindi Tíska Hvað er í boði ef ungur karlmað- ur fer á stúfana til að kaupa sér skyrtu og bindi? Til að fá svör við þeirri spumingu leituðu DV-Inn- kaup til fimm verslana sem selja karlmannafatnaö. Þær eru íslenskir karlmenn, Laugavegi 74, Herrahús- ið, Laugavegi 47, Herragarðurinn, Kringlunni, Herrafataverslun Birg- is, Fákafeni 11, og Debenham’s í Smáralind. Teitur Atlason, starfsmaður DV, var með í för og gegndi hlutverki fyrirsætu. Hann var í eigin jakkaföt- um, dökkgráum, og var það hlut- verk starfsmanna fyrmefndra versl- ana að klaeða hann í skyrtu og bindi við hæfi. Árangurinn af þessu búða- rápi með Teiti er hér á siðunni. Til- gangur ferðarinnar var eingöngu að sýna hvað verslanirnar hefðu upp á að bjóða í þessu sérstaka tilfelli, óháð verði. -hlh OV-MYNDIR E.ÓL Debenhams Skyrta: Thomas Nash, 60% bómull og 40% polyester. 3.690 krónur. Bindi: Jeff Banks silkibindi. 3.390 krónur. Skyrta: Casa Moda úr bómull. Straufrí. 4.900 krónur. Bindi: Laurant Benon silkibindi. 3.900 krónur. HerragarÖurinn Skyrta: Dahlin, úr bómull. 8.490 krónur. Bindi: Strellson-silkibindi. 3.980 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.