Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2001, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2001, Qupperneq 8
30 *•- Innkaup FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2001 DV BúSaráp Auqlýsinqakrúsir Þaö er gott aö eiga góðar krúsir fyrir kakóið eða jafnvel tesopann. Úrvalið í verslunum er geysimikið og litir og munstur enn fleiri. Mörgum þykir sjarmi yfir krúsum sem minna á gamla tíma. Slíkar krúsir fundum við í Decor en þær eru skreyttar með gömlum auglýsingum, mörgum afar lit- skrúðugum. Slík krús kostar 90 krónur. Hiti og form Hitakanna getur i verið meira en hitakanna. Hún getur líka verið skúlptúr og staðið ein og sér sem slík. Slík kanna kemur frá Evu, framleiðanda potta, panna og áhalda, og heitir Eva Solo. Þessi formfagra kanna er í Byko og kostar 7.627 krónur. Er því lof- að að hún haldi kaffinu heitu í að minnsta kosti 10 klukku- stundir. Babyborn 10 ára Babyborn- dúkkurnar hafa átt mikl- um vinsæld- um að fagna meðal ungra telpna síðastliðin ár, enda eru þær mjög raunveru- legar í útliti, borða mat, gráta og gera í bleiuna. Babyborn fagnar 10 ára afmæli um þessar mundir og i tilefni þess fæst sér- stök Babyborn-afmælisdúkka. Slikur kostagripur fer á 5.199 krónur í Dótabúðinni. Rúskinnystígvél Rúskinnsklæðnaður er afar vinsæU þessa dagana og eru skór þar engin undantekning. Þessi laglegu stíg- vél fást hjá Ástu G og kosta 9.995 krónur. Þau fást einnig í dökk- Vínsæl áhöld Áhaldarekkinn í WiUe- roy&Boch er afar vinsæll enda má þar finna fjölbreytt úrval af vönd- OB&g* uðum og fallega hönnuðum eldhúsáhöld- um úr stáli, aUt frá fiskispaða til barkarklóru. Áhöldin eru bæði með glansandi áferð og burstaðri. Fiskispaðinn kostar 1.990 krónur en úrvaUð í áhaldarekkanum er mikið og gaman að dunda sér við að skoða. > Flauelsjakkaföt Tískan á það til að fara í hringi og nú er aftur komið að flauelsfotum. Þessi laglegu föt frá Cruse eru þýsk gæðavara og bíða kaupanda síns í Herragarð- inum. TilvaUn föt þegar kólna tekur. Verðið er 29.980 krónur. Er öðrum þræði félagsheimili Lárus Jóhannesson, Jóhannes Ágústsson og Einar Þór Kristjánsson sjá um aö viðskiptavinum 12 tóna líöi vel og þeirgefa sér gjarnan tíma til aö spjalla yfir espresso-kaffi. 12 tónar á Skólavörðustíg laða til sín áugafólk um tónlist: Tönlist, espresso og tími til að spjalla saman Tónlist „Við höfum báöir haft mikinn áhuga á tónlist í gegnum tíðina. Jói var verslunarstjóri í Japis í Brautarholti þegar þar voru seldar plötur og ég eyddi þar miklu af kaupinu mínu. Okkur fannst hins vegar að mikið af góðri tónlist rataði ekki til íslands og eins fannst okkur vanta töluvert upp á þjónustustig plötuverslunar i landinu. Þegar Jói hætti í Japis komum viö okkur í samband við ýmsa erlenda útgefendur og dreiflngaraðila og stofnuðum 12 tóna,“ segir Lárus Jóhannesson, sem rekur 12 tóna, sérstæða og skemmtilega plötuverslun á Skólavörðustíg, ásamt Jóhannesi Ágústssyni og Einari Þór Kristjánssyni, einnig þekktum sem Einar Sonic. 12 tónar hafa sannarlega fest rætur meðal áhugafólks um tónlist á þeim þremur árum sem liðin eru síðan Lárus og Jóhannes stofnuðu 12 tóna á homi Grettisgötu og Barónsstígs. Þar fæst nánast öll tónlist en verslunin sérhæfir sig í klassískri tónlist, raftónlist og djassi og býður einnig mikið úrval af heimstónlist og reggae, bæði á geislaplötum og vínil. Má fullyrða að þar fáist tónlist sem alla jafna hefur verið illfáanleg hér á landi eða þá fengist í afar takmörkuðu úr- vali. Hefðbundið listapopp er þó ekki að finna í rekkunum „Það eru aðrir sem sjá mun betur um þá deild. Þar höfum við litlu við að bæta. Hins vegar bjóð- um við dægurtónlist fyrir jólin en þá koma við- skiptavinir oft með tossamiða yfir jólagjafir og vilja gjarnan kaupa allt á sama stað.“ Verslunin er til húsa í bárujámshúsi á tveim- ur hæðum. Þegar inn er komiö finna gestir að starfsemin snýst um annað og meira en að selja. Sófahorn eru á báðum hæðum, bækur og blöð um tónlist liggja frammi til lestrar og espresso-vélin nær ekki að safna ryki. „Við lögðum á það áherslu strax í upphafi aö hafa búðina vinalega, bjóöa upp á kaffi og að- stöðu fyrir áhugafólk um tónlist til að hittast og spjalla. Þetta er öðrum þræði félagsheimili fyrir þennan hóp. Það myndast mjög náin tengsl við kúnnann þannig aö þegar tiltekin plata kemur inn á borð til okkar hugsum við sjálfkrafa að við verðum að láta þennan eða hinn vita. Þessi nánu tengsl eða tengslanet er okkar besta auglýsing." - En er rekstrargrundvöllur fyrir svona versl- un? „Já, svo sannarlega. Ég sit nú ekki sveittur við að reikna út tímakaupið mitt en við höfum allir í okkur og á. Svo flytjum við mikiö inn af tónlist sjálfir og dreifum í verslanir um allt land. Þá erum viö i viðskiptum við ýmsar stofnanir og fyr- irtæki. Þetta er lítill markaður en við hugsum stórt. En þetta er umfram allt skemmtilegt og það eru auðvitað forréttindi að starfa við sitt helsta áhugamál." 12 tónar efna til tónleika í versluninni af og til, gjarnan seinnipart fostudags, og bjóða jafnvel upp á veitingar. „Það er alveg nauðsynlegt að hitta kúnnana sína undir öðrum formerkjum en þeim að vera að selja. Þetta er stór og fjölbreytt- ur hópur sem gaman er að kynnast." Þeir Lárus og Jóhannes eru æskufélagar og gamlar skákkempur. Þeir eru báðir FIDE-meist- arar og státa sameiginlega af um 4200 ELO-stig- um. En tefla þeir enn grimmt? „Við höfum ekki teflt hvor við annan frá því við stofnuðum búðina. Enda þýddi það litið þar sem búðin væri þá alltaf lokuð.“ -hlh Gjafavara handa hálfu mannkyni Athygli fólks hefur að undanfómu beinst nokk- uð að stórum verslunarmusterum i þéttbýlinu en víða úti í hinum dreifðu byggðum landsins er líka að finna fallegar og forvitnilegar búðir sem einkar gaman er að gramsa i. í þessum pistli langar mig að riíja upp kynni mín af nokkrum þeirra því oft hef ég hitt þar á eitthvað sniðugt sem ég hef ekki fundið í stóru verslunarhöllunum. Að sjálfsögðu hefur það ekki allt endað í innkaupakörfunni enda ferðast ég ekki um landið á flutningabíl. Sumt hefði þó betur ratað þangað og foröað þannig und- irritaðri frá því að naga sig í handarbökin á eftir, næstum upp að olnboga. Aldrei gleymist til dæmis brauðboxið bláa í Dalakjöri sem skilið var eftir og var svo að sjálfsögðu selt þegar átti að panta það síðar. Sannaðist þar að að hika er sama og tapa. Kaupfélag Bitrufjarðar á Óspakseyri er líka minnisstætt. Þar var reyndar hálfrokkið þegar komið var inn þvi í rauninni var lokað þennan dag. Kaupfélagsstjórinn var að taka á móti mjólk- urvörum af bíl og því var hurðin ólæst. Ekkert var sjálfsagðara en að leyfa forvitnum ferðalöng- um að skoða varninginn í versluninni sem virki- lega gladdi augað. Aldrei gleymast fallegu boll- amir sem fengust þar - og ábyggilega hvergi ann- ars staðar. Þá var nú gaman að koma i Mirru á Hvammstanga. Hún er ein af þessum pínulitlu búðum sem rúma svo ótrúlega mikið. Maður þor- ir ekki að hreyfa sig af ótta við að hneppa sig í en horfir á dýrðina með lotningu. Þarna eru fót á alla fjölskylduna og gjafavara handa hálfu mann- kyninu og ég stóðst ekki mátið heldur keypti dráttarvélarstyttu handa bóndanum, honum bróður mínum. Fannst hún eiga vel viö. Kaupfé- lagið á staðnum reyndist líka geyma bestu banda- skó norðan Alpafjalla og þótt víðar væri leitað. Útsala var í Vefnaðarvörudeild Kaupfélagsins á Húsavik þegar þangað kom og mikið var ein búin að tvístíga hjá garnrekkanum og sjá sjálfa sig fyrir sér í handprjónaöri peysu með klukku- prjóni, mosagrænni og vænni. Á Borgarfirði eystra var margt að skoða en búið að breyta versluninni og hætt að afgreiða yfir borð. Það held ég hafi verið mistök. Varla verður svo skilist við þessa hringferð að ekki sé komið við í stór- magasíninu á Fagurhólsmýri. Þar fannst það sem búið var að leita að um gervallt landið og miðin - sólgler til að smella á gleraugun. Algert þarfa- þing því eftir það gat sú sem þetta pikkar bæði horft á landið og lesið á kort án þess að standa i stöðugmn gleraugnaskiptum. Af þessu má sjá að það er víða hægt að versla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.