Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2001, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2001, Síða 9
31 FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER DV Innkaup -------- r Kaldur biór oq lenqur opið Af- greiðslutími Vínbúðar- innar á Dal- vegi hefur verið lengd- ur á laugar- dögum, eða til kl. 18.00. Er það lengri af- greiðslutími á laugardög- um en geng- ur og gerist á höfuðborg- arsvæðinu. Þá hefur verið settur upp kæl- ir í búðinni þar sem bjór er kældur. Er þetta eina vínbúðin sem býður slíka þjónustu sem flestum þykir sjálfsögð. Jólabjór- inn má því fá kaldan á Dalvegi en þar eru 6 tegundir jólabjórs á boðstólum. Talsmenn vínbúðarinnar segj- ast hafa orðið fyrir smávegis samdrætti í verslun með tilkomu Smáraiindar en trúa því að góð aðkoma og bílastæöi, auk lengri afgreiðslutíma, muni falla við- skiptavinum vel í geð og rétta hlut þeirra á ný. timabil 8. desember Ákveðið hefur verið að greiðslukortatímabilið í næsta mánuði hefjist laugardaginn 8. desember. Þetta gildir um þær verslanir sem hafa gert samn- inga við Visa og Eurocard um svokallað breytilegt kortatíma- bil. Með þessu móti nást þrjár verslunarhelgar fyrir jól í stað tveggja þar sem hægt verður að greiða með greiðslukortum sem nær yfir sama tfmabilið. SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu, Þróunarfélag miðborgarinnar, Kringlan og Smáralind óskuðu sameiginlega eftir því við korta- fyrirtækin að kortatímabilið yrði lengt með þessum hætti.-hlh Jón Gestur Sörtveit hjá Lavazza-kafTiskólanum: Espresso er hollasta uppáhellingin Kaffi kaSifram- leiðslu, Arabica og Robusta. Hvort af- brigði um sig er rækt- að víða um heim und- ir ýmsum nöfnum. Hvort um sig gefur ákveðin bragðein- kenni. -hlh „Flestir kunna að hella upp á kaffi en fólk vill gjarnan bæta við þekkingu sína á kaffi og vill einnig vita hvort það er að drekka gott kafíi eða ekki. Því kafFi er ekki bara kafíi,“ segir Jón Gestur Sörtveit, kaffimeistari hjá Lavazza á íslandi. Jón Gestur hefur séð um kafFi- námskeið um nokkurt skeið þar sem hann fer yfir sögu kaffisins og gerð espresso. í fyrstu voru þessi námskeið eingöngu haldin fyrir fag- menn, þjóna o.fl., en nú eru þau opin almenningi. Og áhuginn er mikill enda margir með espressovél- ar heima í eldhúsinu. I framhaldi af grunnnámskeiöi um espresso er hægt að skrá sig á námskeið í gerð espesso-kafFidrykkja, bæði óáfengra og áfengra. Skráning á kaffinám- skeiðin hjá Lavazza-kaffiskólanum fer fram á www.matarlist.is eða í síma 540 9000. „Grunnnámskeiðið fjallar fyrst og fremst um espresso-kaffi en það er nauðsynlegur grunnur í flestum kafFidrykkjum. Ég fer yfir sögu kaff- isins, hvernig espresso-kaffi á að vera og ýmsar aö- ferðir við uppá- hellingar." En hvemig er espressokafFi? Er það ekki bara lútsterkt kafFi? „Nei, það er útbreiddur mis- skilningur. Espresso á að vera frekar þykkt og ilmandi með þykkum og fallegum broddi (crema). Það á að taka um 25 sekúndur fyr- ir vatnið að fara í gegnum kaffið, 6,8-7 grömm (u.þ.b. kúfuð mat- skeiö), svo úr verði 35 ml bolli. Út- koman á að vera bragðmikill kafFi- bolli með góðu eftirbragði sem er laus við alla remmu." Kaffi er ekki bara kaffi / kaffiskóla Lavazza læra margir að meta kaffi upp á nýtt. Jón Gestur Sörtveit kaffimeistari sér um kennsluna en eftirspurn eftir námskeiöum hans er sífellt aö aukast. vatnið að fara um kafFið því hollari er drykkurinn. Við gerð espresso er vatnið einungis 25 sekúndur að fara í gegnum kafFið og þá losnar minna af koffíni, sýrum og óæskilegum efnum úr læðingi. Með þessa reglu að vopni má fullyrða að pressukönnuuppáhelling sé óholl en þá er vatnið í stöðugu sambandi við kafFið. Mokkakönnurnar, þessar sem settar eru á eldavél, eru hins vegar finar og þægileg aðferð til þess að búa til espresso. En þegar um sjálf- virka vél er að ræða er alltaf betra ef hún sýður vatnið áður.“ Jón Gestur segir mölun kaffisins skipta máli eins og upprunaleg gæði. Kaffið í espressovélarnar þarf að vera finmalað. Ef það er of gróft vantar broddinn en ef það er of fint vill það brenna og broddurinn verður dökk- ur og brunninn. Lavazza-kaffiskól- inn er kominn frá Ítalíu, frá kaffifram- leiðandanum Lavazza. Skólinn hér á landi er sá níundi í röðinni og sá fyrsti á Norðurlöndum. Þrif mikilvæg En espressolögun verður ekki framkvæmd nema með espressovél. „Espressovélin var fundin upp á ítallu um aldamótin 1900 og er not- uð í öllum löndum heims í dag. Það hefur enginn einn hlutur haft jafn afgerandi áhif á kafFimenninguna og þessi vél. Á námskeiðinu förum við yfir það hvernig þessar vélar virka, handbragö og umgengni um vélina, en það eru ekki síður mikil- vægir þættir en gott hráefni. Og Jón Gestur fer líka í flóun á mjólk. „Það vefst fyrir mörgum að flóa mjólk í kafFi en best er að nota G-mjólk. Ég fer alveg í gegnum það ferli.“ En hvað sem kaffið heitir er gott hráefni nauðsynlegt. Til eru um 60 afbrigði af kaffibaunum en tvær eru aðallega not- aðar viö HoJI aðferð Jon Gestur segir að í einum espressobolla séu um 800 bragðteg- undir - sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. Espresso er sjálf að- ferðin, óháð kaffitegund. Þannig má gera espresso úr ýmsum tegundum kafFis en grunnskilyrði er þó að um gæðakaffi sé að ræða. Og svo má ekki gleyma að espresso er hollasta að- ferðin við að laga kafFi. „Því skemmri tíma sem það tekur Herbert Guðmundsson kaupir inn: t ■t V Soðinn Eyvi í kvöldmatinn Innkaup Herbert Guðmundsson er upp- tekinn maður þessa dagana. Hann hefur nýlega gefið út plötu sem á er að finna frum- samið efni og hefur stundað spilamennskuna stíft. Um þessar mundir er hann að und- irbúa stóra útgáfutónleika sem fram eiga að fara í Óperunni miðvikudaginn 28. nóvember. Þar ætlar hann, í fyrsta skipti, að koma fram meö 13 manna hljóm- sveit og kynna nýja diskinn sinn sem kallast Ný spor - á íslenskri tungu. Þó I mörgu sé að snúast hjá Her- berti reynir hann yfirleitt að elda kvöldmatinn á heimilinu en fimm manns eru í heimili. Innkaup fengu að fylgjast með þegar Herbert skrapp í Nóatún og; keypti I kvöldmatinn. „Ég var að hugsa um að hafa soðinn Eyva,“ segir Herbert þegar hann er spurður um hvað verði fyrir valinu sem kvöldmatur þetta skipt-1 ið. „Þegar ég var kokkur á sjó þá var súpu- kjöt kallað Fjalla-Ey- vindur þvi eins og allir vita lifði hann á lambakjöti. Eyvi sparifötunum var svo steikt súpukjöt með brúnni. Soðinn Eyvi er hins vegar bestur með uppbakaðri karrírjómasósu, þar sem notað er gæðakarrí, Herbert Guðmundsson songvarl er liðtækur í eldhúslnu „Þaö þýðir ekkert annaö en aö nota alvöru hrísgrjón meö karríkjötinu, “ segir hann. og hns- grjón- um i og m þau verða að vera frá Tilda, svona alvöruhrisgijón." Herbert segir hið sama eiga við um matseldina og tónlist- ina, hann sé sjálflærð- ur í hvoru tveggja. „Ég var kokkur á sjó í mörg ár og þar lærði ég að elda. Ég héld að sjómennirnir á skipunum hafi bara verið nokkuö sáttir við mína eldamennsku." Aðspurður um skemmtilegar sjóara- sögur sem tengjast elda- mennskunni rifjar hann upp eftirminnilegan jólatúr sem hann fór í afleysingum á einu skipa Eimskips. „Þegar að því kom að elda jólamatinn biðu mín 10 hangilæri með beini. Ég hafði aldrei úrbeinað neitt en var svo heppinn að á skipinu var strákur sem hafði unnið sem þjónn á Sögu og hann hafði einhvern tím- ann séð kokkana þar úrbeina læri. Hann aðstoðaði mig við þetta verk en ég var um hálftíma að úrbeina hvert læri. Þeir sem kunna það eru svona 8-10 mínútur að því.“ Önnur eftirminnileg elda- mennska átti sér stað þegar Her- bert var að byrja sem kokkur á sjó, þá á báti frá Vestmannaeyjum. „Þar varð ég meistari í skúffukássu. Hún varð þannig tO að ég stóð í eldhúsinu í öllu vagg- inu og veltunum og þegar færi ^ gafst henti ég hakki í ofnskúffuna og lokaði. Svo skar ég laukinn og paprikuna og allt hitt úti um allt eldhús og henti því jafnóðum inn í ofninn. Eftir smátíma var þetta allt vel blandaö saman og út kom fín- asta skúffukássa." Herbert segist yfirleitt elda venjulegan heimilismat. „Um há- tíðirnar verður hins vegar nær eingöngu fugl á boðstólum á mínu heimili. Ég ætla að elda gæs á að- fangadag og kalkún með öllu til- heyrandi um áramótin. Svo reyni ég, þegar ég er á ferð minni um landið, að fá gott hangilæri hjá ein- * hverjum bóndanum, helst á Norð- urlandi, eitthvað sem er kofareykt og fint. Takist það ekki þá kaupi ég norðlenskt hangikjöt, það er ómissandi um jólin.“ -ÓSB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.