Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 Fréttir I>V Ágúst Einarsson gagnrýnir R-listann, hrósar Davíð og vill Bolla í 17 sem leiðtoga: Auðvelt að villast af leið - segir flokkssystir Ágústs, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, um gagnrýni á Línu.net „Mér finnst þetta svolítið lang- sótt hjá Ágústi. Hann dettur eigin- lega í þann pytt að láta frasana hugsa fyrir sig með þessari samlík- ingu,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri vegna gagnrýni flokksbróður hennar á R-listann. Lína.net getur orðið Reykjavík- urlistanum dýr þar sem málefni þess fyrirtækis vekja sífellt meiri furðu, að mati Ágústs Einarssonar, fyrrum þingmanns Samfylkingar- innar og prófessors í hagfræði. Mál- efni Línu.nets „minna mjög á stjórnarhætti í bæjarútgerðum fyrri tíma þegar borgarfulltrúar voru að vasast í atvinnumálum en Lina.net er núna t.d. komið í fisk- eldi,“ segir Ágúst. Hann segir að í Reykjavík hafi oft verið gengið í borgarsjóð til að greiða laun í Bæj- arútgerð Reykjavíkur en sam- keppnisstaða í sjávarútvegi hafi stórlega verið skert með slíkum rekstri. „Davíð Oddsson, þá nýorð- inn borgarstjóri, hreinsaði út þetta kerfi spillingar og óeðlilegra við- skiptahátta og seldi fyrirtækið og úr því varð eitt öflugasta sjávar- útvegsfyrirtæki landsins. Þessa frumkvæðis Dav- íðs verður lengi minnst og sýndi forustuhæfileika hans sem síðar skiluðum honum í stöðu flokksfor- manns og forsæt- isráðherra,“ segir síðu sinni. Auðvelt að villast af leið Prófessorinn hefur fram til þessa verið álitinn eindrægur stuðnings- maður R-listans en Ingibjörg Sólrún neitar því að gagnrýnin hafl komið henni neitt sérstaklega mikið á óvart. Auðvelt sé að villast af leið í umræðunni um mál Línu.nets. en bæjarútgerðin og Lina.net eigi ekk- ert sameiginlegt nema að borgin hafi komið að báðum þessum fyrir- tækjum. Bæjarútgerðir hafi verið stofnaðar til að halda uppi at- Ágúst Einarsson. Ágúst á heima- vinnustigi en með stofnun Linu.nets sé Reykjavíkur- borg að fylgja ákveöinni þróun. „Góð fjarskipti og góðar upplýsinga- veitur eru jafn mikilvægar fyrir upplýsingaþjóðfé- lagið og samgöng- ur voru fyrir iðn- aðarþjóðfélagið. Við erum að tryggja að Reykjavíkursvæðið sé í stakk búið til að takast á við þetta nýja samfélag og þá samkeppni sem verður að vera til en hefði ekki orði nema með Línu.neti," segir borgar- stjóri og afneitar með öllu að R-list- inn hafl gert nokkur mistök varð- andi fyrirtækið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Bolli skeinuhættur andstæðingur Ágúst segir einnig að sífelld um- ræða hjá Reykjavikurlistanum um uppstillingu og úthlutun embætta fyrir fram geti vakið óbeit hjá kjós- endum og verkfall tónlistarskóla- kennara geti einnig reynst Reykja- víkurlistanum hættulegt því þar skorti átakanlega frumkvæði stærsta sveitarfélagsins í þvi máli. Ágúst spáir æsispennandi borg- arstjórnarkosningum í Reykjavík og segir R-listann njóta mjög for- ystu Ingibjargar Sólrúnar. Sjálf- stæðismenn sleppa ekki heldur við gagnrýni og eru þeir sagðir tala tungum tveim ef ekki fleiri, auk þess sem þá skorti leiðtoga. Prófessorinn kemur reyndar með tillögu að nýju leiðtogaefni sjálf- stæðismanna: „Það er einkennilegt að enginn hefur lagt til að Ásgeir Bolli Kristinsson, oft kallaður Bolli í Sautján, leiði lista sjálfstæðis- manna í Reykjavík," segir Ágúst. „Hann gæti reynst Ingibjörgu Sól- rúnu skeinuhættur andstæöingur. Um þetta segir Ingibjörg Sólrún að hún hafi sjálf viðrað þessa hug- mynd í afmælisveislu sem haldin var til heiðurs Bolla í ár. „Bolli er til alls maklegur og mjög ráðagóð- ur,“ segir borgarstjóri. -BÞ Sátt möguleg um sjávarútveg Bæði Halldór Ás- grímsson og Einar K. Guðflnnsson, formað- ur sjávarútvegsneíhd- ar Álþingis, telja að sátt ætti að geta náðst um flskveiðistjómun milli stjórnarflokk- anna í ljósi sam- þykkta sem flokkam- ir hafa gert upp á síðkastið. Á lands- fundi Sjálfstæðisflokks var samþykkt að taka hóflegt veiðigjald af útgerðinni og nú hafa framsóknarmenn tekið af skarið og mæla með auðlindagjaldi á sjávarútveg. í samþykkt þeirra segir að rétt sé að „innheimt verði magntengt veiðigjald af þeim sem hafa fengið út- hlutað eða greitt fyrir aflaheimildir." Sú túlkun hefur komið fram að með þessari samþykkt hafi fymingarleið- inni verið sópað út af borðinu og að sjónarmið sem Kristinn H. Gunnarsson og fleiri hafa staðið fyrir hafl orðið und- ir. Því hafnar bæði Kristinn og stuðn- ingsmenn hans og benda á að í þessari málamiðlun hafi þeir t.d. náð því fram að ákvæði um sameign þjóðarinnar á auðlindum sjávar beri að setja í stjórn- arskrá. -BG Segir sölumeö- ferðina klúður Framkvæmda- nefnd um einkavæð- ingu hefúr ákveðið að framlengja skilafrest í siðasta áfanga sölu Landssímans til 7. desember. Sjö óbund- in tilboð bárust i lok síðasta mánaðar og hafði nefndin áður ákveðið að bjóða þremur aðstandend- um þeirra að halda áfram og skila inn bindandi lokatilboði i lok nóvember. Síðar kom fram ósk frá áhugasömum flárfestum um frekari frest og varð nefndin við þvi. „Þetta er einn eitt dæmið um klúður í tengslum við þessa sölu. Ég get þó varla sagt að þetta komi á óvart i þess- um vitleysisgangi öllum," segir Stein- grímur J. Sigfússon, formaöur Vg. Steingrímur hefur ásamt fleirum gagnrýnt á Síminn sé settur í sölu á sama tíma markaðir hafa hrunið. Hann segir liklegt að fresturinn nú sé tilkom- inn vegna áhugaleysis flárfesta og velt- ir upp spurningu um hverju verði núna kennt um. „Hver skyldi verða sökudólg- urinn núna hjá einkavæðingamefnd- inni?“ Ekki náðist í Hrein Loftsson, for- mann einkavæðingamefndar. -BÞ Steingrímur J. Sigfússon. Halldór Ásgrímsson. Vetraraflinn á land Dv MYND Gw Þeir létu ekki kuldann og bylinn á sig fá, sjóararnir i Hafnarfiröi í gærdag sem voru aö landa úr Hafsvölunni um það bil hálfu tonni af þorski. Þeir Gabríel og Haraldur fönguöu þennan fiskinn í net á Faxaflóa. íslensk kona vísindamannsins Dons C. Wileys sem hvarf í Memphis: Hef ekki hugmynd um hvað hefur gerst „Þetta stendur allt í sama stað núna. En það fyrsta sem kom upp í hugann var sjokk. Ég hef ekki hug- mynd um hvað hefur gerst,“ sagði Katrín Valgeirsdóttir, eiginkona prófessors Dons C. Wileys sem lög- reglan í Memphis í Tennessee leitar að eftir að hans var saknað á ferð hans þar um miðjan nóvember. Heimili Katrínar og Dons er í Cambridge í Massachussetts á aust- urströndinni en hann er sérfræðing- ur i veirurannsóknum við Harward- háskóla. Lögreglan í Memphis sagði við DV að rannsókn málsins væri ekki lengur í höndum deildar sem fer með mannshvörf. „Morðdeildin fékk málið til rannsóknar fyrir nokkrum dögum," sagði talsmaður lögreglunnar í Memphis. 4 klukkustundir liðu Don C. Wiley er sérfræðingur i veirurannsóknum. Samkvæmt The Boston Globe var síöast vitað um ferðir hans á bílaleigubíl sem fannst á DeSoto-brúnni í Memphis, Kunnur vísindamaður Don C. Wiley, sagöur bæöi athafnasamur og hamingjusamur. skammt frá mörkum Tennessee og Arkansas. Hann hafði verið í kvöld- verði með vinum og öðrum vísinda- mönnum eftir ráðstefnu á Peabody- hótelinu sem er um 5 mínútna akst- ur frá brúnni. Hins vegar liðu flór- ar klukkustundir frá því að vinir hans kvöddu hann á hótelinu þang- að til bílaleigubíllinn, Mitsubishi Galant, fannst á brúnni. Lykillinn var í kveikjulásnum, bensíntankur- inn fullur og eftir rannsókn benti ekkert til að átök hefðu átt sér stað eða að greiðslukort hans hefðu ver- ið notuð eftir að bíllinn fannst. Wiley hafði fengið að gista hjá föður sínum á meðan hann tók þátt i ráð- stefnunni. Bíllinn sneri á brúnni eins og hann hefði verið að aka í átt frá þeim hverfum þar sem hús föð- ur hans er. 57 ára hamingjusamur maður Walter Norris, talsmaður löregl- unnar í Memphis, sagði við The Bolton Globe að það hefði ekki ver- ið útilokað að Wiley hefði fallið fram af brúnni, hvort sem það hefði verið með eða án vilja hans sjálfs. Vinir og ættingjar segja hvarfið koma mjög á óvart, ekki síst í ljósi þess að Wiley lét ávallt vita um ferð- ir sínar, meira að segja þegar hann fór út að skokka, hann væri bæði at- hafnasamur og hamingjusamur. Ný- lega hefði hann haldið upp á 57. af- mælisdag sinn, hann hefði alið upp böm með seinni konu sinni, Katrínu, en fyrir á hann uppkomin börn frá fyrra hjónanbandi. -Ótt Læknastöður lagðar niður Hugmyndir eru uppi um það inn- an heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytis að leggja niður stöð- ur héraðslækna en þær eru átta í landinu. í flestum tilvikum sitja heilsugæslulæknar í þessum stöðum í hlutastarfi nema í Reykjavík og á Akureyri þar sem þær hafa verið heilar stöður. - Mbl greindi frá. Hvítt duft á Keflavíkurvelli Hvítt duft, sem fannst í farang- ursrými Flugleiðavélar á Kefla- víkurflugvelli síðdegis í gær, var bindiefni í ávaxtasafa Ölgerðar Egils Skallagrímssonar. Viðbún- aðarástandi var lýst yfir á flug- vellinum í nokkrar klukkustund- ir og prófaði eiturdeild varnar- liðsins efnið sem reyndist skað- laust. - RÚV greindi frá. Ekki laun í meðferð Ríkisstarfsmenn eiga ekki rétt á launuðu veikindafríi þurfi þeir í áfengismeðferð. Þeir sem sjá fram á launaleysi meðan þeir eru I meðferð hætta stundum við, seg- ir læknir SÁÁ. - RÚV greindi frá. Áhugi á Perlunni Fasteignasalar, sem falið var að hafa milligöngu um sölu Perlunnar, eru á einu máli um að áhugi fyrir mannvirkinu sé tals- verður. Hins vegar sé erfitt að segja til um hve mikil alvara búi að baki og auk þess liggi ekki enn fyrir nauðsynlegar upplýsingar um skiptingu eignarinnar og lóðaleigusamning. - RÚV greindi frá. Sameining prentsmiðja Prentsmiðjurnar Steindórs- prent-Gutenberg og Grafík verða sameinaðar undir nafni Guten- berg um næstu áramót. Þær eru í eigu prentsmiðjunnar Odda. Graf- ík varð áður til við sameiningu prentsmiðjunnar Eddu og Prent- smiðju G. Ben. Um 15-20 manns munu missa vinnuna við samein- inguna. - Mbl. greindi frá. íbúðaverð hækkar íbúðaverð í fjölbýlishúsum á Akureyri hefur hækkað um 10% á þessu ári. Þá hefur verð einbýl- ishúsa hækkað um 7%. íbúðaverð síðustu tvö ár hefur hækkað um allt að 20%. Gert er ráð fyrir hækkandi íbúðaverði á Akureyri. 60% vilja hnefaleika 60% þjóðarinnar eru hlynnt því að leyfa ólympíska hnefaleika hér á landi en fjörutíu prósent eru því andvíg. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunnar sem Price WaterHouse Coopers gerði um nýliðin mánaðamót. Heitt vatn í Eyjum Fyrstu niðurstöður úr borun- um i gömlu borholuna við Skip- hella í Eyjum eru mjög jákvæðar að sögn Friðriks Friðrikssonar, veitustjóra Bæjarveitna Vest- mannaeyja. Friðrik sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að vonast væri til að holan gæfi af sér 5-10 sekúndulítra af um 60°C heitu saltvatni. - Mbl. greindi frá. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.