Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Blaðsíða 7
7 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 I>V Fréttir Yfirvöld í Reykjavík segjast vilja þétta byggðina: Byggðin heldur enn áfram að dreifast Landbúnaður: Yöre Österbro Bronstioj-Hosum /Ydre [Mnrrej /ir.dre Norre- ^hro / Vaoiose hayn- Vesterbro Vatoy Vesí* arnager Suodbv Syd' Kongejia /Enghave Panasonic AV/S Þarftu bíl í borginni? Jólatilboð í Reykjavík m m Góður kostur fyrir landsbyggðarfólk Aðeins kr. 2.999 pr. dag, ótakmarkaður akstur í 7 daga, tryggingar og vsk. Umboðsmenn: Akureyri, Vestmannaeyjum, Höfn, Egilsstöðum og ísafirði Útvegum einnig bíla erlendis Sími: 591 4000 Fax: 591 4040 E-mail: avis@avis.is - Knarrarvogur 2 - www.avis.is Bætt afkoma í búskap Rekstur sérhæfðra kúabúa í land- inu skilaði viðunandi aíkomu á síð- asta ári og rekstur sauðfjárbúa er að nálgast jafnvægi á ný. Þetta eru helstu niðurstöður ársskýrslu Hag- þjónustu landbúnaðarins um af- komu í landbúnaði á árinu 2000. Þær byggja á niðurstöðutölum rekstrar rúmlega 200 kúabúa og 100 sauðfjárbúa í landinu. Hagþjónusta landbúnaðarins seg- ir aö kúabúin hafi skilað um 1,9 millj. kr. i hagnað á síðasta ári, það er fyrir laun eigenda. Það er sama krónutala og i hittifyrra. Meðalkúa- búið er í dag, samkvæmt búreikn- ingum, með um 113 þúsund lítra framleiðslurétt, samanborið við 100 þúsund lítra á árinu 1999. Um sauðfjárbúin segir að rekstur þeirra sé nú að vænkast frá því sem var. Afkoman hafi verið slök á ár- inu 1999, meðal annars vegna verð- falls á gærum. Jákvæö tekjuþróun, auk þess sem búin hafi stækkað, skili tæplega einni milljón í hagnað fyrir laun eigenda. Meðalstórt sauð- fjárbú er nú með tæplega 290 ær- gilda greiðslumark í kindakjöti og 314 vetrarfóðraðar kindur. -sbs Láttu okkur yfirfara upptökuvélina tímanlega fyrir jól Einholti 2 • sími 552 3150 - þéttleikinn nú ríflega helmingur á við Kaupmannahöfn Skipulag höfuðborgarsvæðisins tíl 2024 Gert er ráö fyrir aö byggöin haldi áfram aö þenjast út. Rauöu ftetimir sýna fyrirhugaöa byggö á skipulagstímanum en dökkgráu fietirnir sýna atvinnu- og hafnarsvæöi. Á sama tíma og talað er um í aðal- skipulagi Reykjavíkur að þétta beri byggðina er unnið að skipulagningu á frekari útþenslu byggðar í höfúðborg- inni. Grafarholts- og Grafarvogshverfi eru enn í byggingu og íyrirhugað er að hefja framkvæmdir við nýtt 400 hektara hverfi undir Úlfarsfelli á næsta ári. Hef- ur þetta verið nokkuð gagnrýnt, m.a. með tilliti til kostnaðar við samgöngu- kerfi borgarinnar. Þéttleiki byggðarinn- ar í Reykjavík í dag samsvarar ríflega helmingi af þéttleika byggðar í Kaup- mannahöfn. Miðað við áætlun aðal- skipulags um aukið landrými og íbúa- þróun til 2024 mun þéttleiki byggðarinn- ar hins vegar minnka, þvert á yfirlýs- ingar ráðamanna. Þéttbýlismörk Reykjavíkur eru skil- greind í nýju aðalskipulagi og af- markast af svokölluðum grænum trefli við útmörk borgarinnar i austri og landamörkum ann- arra sveitarfélaga. Heildarstærð byggjanlegs lands er talið vera 63 fer- kílómetrar. Af því er byggt land í dag um 34 ferkílómetr- ar eða um 54%. í upphafi ársins 2000 voru íbúar í borg- inni 110 þúsund sem þýðir að þétt- leiki á byggðu svæði eingöngu var þá 32,74 ibúar á hektara. -Þéttleik- inn er hins vegar 17,47 íbúar á hekt- ara ef miðað er við 63 ferkílómetra. Samkvæmt aöal- með landfyllingum. Þéttleikinn á því svæði öflu yrði samkvæmt spám um 20,5 íbúar á hektara. Nú er byggt land 34 ferkílómetrar en áætlanir gera ráð fyrir að byggt verði á 45 ferkílómetrum i borginni árið 2024. Þéttleiki byggðar á þessu svæði yrði því um 30 íbúar á hekt- ara samkvæmt áætlunum. Það virðist því á skjön við yfirlýsingar ráðamanna borgarinnar um þéttingu byggðar. Þéttleiki nauösyn? Gunnar Ingi Ragnarsson bygginga- verkfræðingur, sérfræðingur á sviði skipulags- og umferðarmála, sagði i DV í maí að samkvæmt erlendum skýrslum um áhrif þéttleika byggðar sé hvorki grundvöliur fyrir almenningssamgöng- um né menningarlegu borgarumhverfi ef þéttleiki byggðarinnar er undir 50 ibúum á hektara. Bendir hann t.d. á Kaupmannahöfn sem dæmi um þéttbýla borg sem þó er jaínframt frekar lágreist. Höfuðborg Dana, gamla Kaupmanna- höfn, nær yfir 89,6 ferkílómetra land- svæði. Þar voru íbúar 495.699 1. janúar 2000. Það þýðir að rúmlega 55 íbúar eru á hvern hektara lands. Á Kaupmanna- hafnarsvæðinu öllu, sem er rúmlega 2.870 ferkílómetrar, bjuggu þá um 1,8 milljónir manna. Stór hluti af þvi er sveit og nær svæðið m.a. einnig yfir Hróarskeldu og land þar í kring. Á þessu svæði öllu samsvarar þéttleiki byggðarinnar 6 ibúum á hektara. Höfuðborgarsvæðið nær til átta sveit- arfélaga sem eru: Reykjavík, Kópavog- ur, HafnarQörður, Garðabær, Mosfells- bær, Seltjarnames, Bessastaðahreppur og Kjósarhreppur. Samkvæmt aðal- skipulagsáætlunum sveitarfélaganna munu 1.000 til 1.500 hektarar lands verða teknir undir byggð næstu áratug- ina. -HKr skipulagi er gert ráð fyrir að íbúar Reykjavíkur verði orðnir 134.000 árið 2024. Þá er einnig gert ráð fyrir að þéttbýlissvæði borgarinnar hafi Gamla Kaupmannahöfn stækkaö úr 63 fer- Á þessu svæöi nam þéttleiki byggöarinnar i fyrra um 55 kflómetrum í 65,4 íbúum á hektara. ferkflómetra, m.a. Tel víst að allt muni loga hér í kjaradeilum - segir Aöalsteinn Baldursson Aðalsteinn Baldursson „Eins og stað- an er núna eru forsendur kjara- samninganna kolfallnar og ég tel jafnvel að þótt farið verði að grípa til ein- hverra ráðstaf- ana núna þá sé það of seint. Því tel ég víst að launalið kjarasamninganna verði sagt upp í febrúar og um mitt árið muni allt loga hér í kjaradeiium," segir Aðalsteinn Baldursson, for- maður Verkalýðsfélags Húsavíkur og formaður fiskvinnsludeildar Starfsgreinasambands íslands. Aðalsteinn segir að í fram- kvæmdaráði Starfsgreinasam- bandsins hafi ekki veriö neinn ágreiningur um það að forsendur kjarasamninga séu brostnar. „í framhaldi af því var fundað með fulltrúum annarra sambanda sem eru með svipuö samningsákvæði og á þeim fundi var samþykkt að vinna saman að því að fá hér breytingar á þeim kjörum sem um var samið. Ríkisstjómin hefur ekki staðið við það sem hún lofaði; að halda niðri verðbólgu og tryggja kaup- mátt. Það er heldur ekkert sem bendir til þess að þessi þróun haldi áfram. Ýmis opinber gjöld hafa verið að hækka og sveitarfélögin eru að boða hækkanir á þjónustu og útsvarsprósentu. Þetta þýðir ekkert annað en að kjarasamning- arnir eru kolfallnir og það virðist borðleggjandi að segja launalið þeirra upp í febrúar og allt verði í uppnámi í kjölfariö," segir Aðal- steinn. Hann segir ekkert benda til þess að breytingar verði en hvað þyrfti að breytast ef freista ætti þess að koma í veg fyrir að allt fari i háa- loft? „Samningarnir taka mið af verð- bólgu tii 12 mánaða sem hefur nú mælst mun hærri en miðað var við. Það má því fullyrða að for- sendur kjarasamninga séu þegar brostnar. Það sem viö þurfum að gera kröfu um er lækkun vaxta, skattabreytingar og ekki síst leið- rétting á lægstu laununum. Ég hef tekið það saman að á sama tíma og almenn verkamannalaun hafa hækkað um 15-17% hafa laun opin- berra starfsmanna hækkað um 30%. Menn hafa farið í verkföll til að sækja minni launahækkun en þama munar. Svo halda menn áfram að horfa upp á árásirnar á landsbyggðina eins og t.d. núna síðast með mjög miklum hækkun- um á öllum aðflutningum,“ segir Aðalsteinn. -gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.