Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Blaðsíða 10
10 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001 I>v Oryggisveröir í Bonn Ströng gæsla er á Bonn-svæöinu þar sem Afganistan-fundurinn fer fram. Bonnráðstefnan hófst í morgun Fulltrúar afganskra þjóðarbrota og sérfræðingar og sendimenn Samein- uðu þjóðanna, auk Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, hittust á fundi strax í gær til að undirbúa Bonn-ráðstefnuna um framtíðarríkis- stjóm Afganistans. Um þrjátíu fulltrú- ar fjögurra helstu þjóðarbrotanna i landinu mættir til ráðstefnunnar, sem fram fer fyrir luktum dyrum á fjalla- hóteli í Petersberg í nágrenni Bonn. „Menn eru á því að mikilvægt sé að vinna hratt,“ sagði Ahmad Fawzi, talsmaður SÞ, eftir fundinn í gær. Hóparnir sem mættir eru á fundinn eru frá Norðurbandalaginu, sem stjóma Kabúl, sendinefnd Zahiers, fyrrum konungs, Kýpur-hópurinn svokallaði, að mestu skipaður fyrrum foringjum mujaheddin-stríðsmanna og Peswar-hópurinn, skipaður pastún- um, stuðningsmönnum konungsins. Sænskur mynda- tökumaður drep- inn í Afganistan Vopnaðir menn skutu sænskan kvikmyndatökumann til bana í borginni Taloqan í norðurhluta Afganistans í nótt. Myndatökumaöurinn, hinn 42 ára gamli Oluf Stromberg frá sjónvarps- stöðinni TV4, var ásamt öðrum sænskum fréttamönnum í húsi í Taloqan þegar byssumennirnir réð- ust til inngöngu í þeim tilgangi aö ræna fréttamennina. Stromberg er áttundi fréttamaðurinn sem lætur lífið í Afganistan frá því Banda- rikjamenn hófu loftárásir sínar. Stromberg varð fyrir kúlu sem byssumennirnir skutu í gegnum hurð á herberginu þar sem hann svaf þegar árásin var gerö. Hermenn á veröi Nepalskir hermenn standa vöröinn í höfuöborginni Kathmandu eftir aö konungurinn lýsti yfir neyöarástandi vegna átaka viö skæruliöa. Allt með kyrrum kjörum í Nepal Allt var með kyrrum kjörum í Nepal í morgun eftir að konungur landsins lýsti yfir neyðarástandi í gær og fyrirskipaði hernum að brjóta uppreisn skæruliða maóista á bak aftur. Átök milli skæruliða og stjórnarhersins um helgina voru hin verstu frá því skæruliðarnir hófu uppreisn sína fyrir 5 árum. Talið er aö rúmlega eitt hundrað manns hafi látið lífið. Dagblöð í Nepal lýstu yfir stuðn- ingi sínum við þá ákvöröun kon- ungs að beita hemum gegn skæru- liðum. Bandarísku samningamennirnir hittu Sharon í morgun: Hóta að fara ekki fyrr en vopnahlé sé tryggt ísraelski herinn lauk í nótt við að flytja hemámslið sitt frá bænum Jen- in á Vesturbakkanum, sem var síðasti bærinn af sex sem herteknir voru eft- ir morðið á ísraelska ferðamálaráð- herranum og harölínumanninum Rehavam Zevvi. Brottflutningurinn fór fram sama dag og bandarísku samningamennimir Antony Zinni, fyrrum flotaforingi í bandaríska hern- um, og Williams Burns, aðstoðarutan- ríkisráöherra Bandaríkjanna, voru væntanlegir til ísraels til viðræðna við Ariel Sharon forsætisráðherra, til að þrýta á um vopnahlé milli stríð- andi aíla á svæðinu. Gideon Meir, talsmaður ísraelska utanríkisráðu- neytisins, viðurkenni í gær að brott- flutningnum hefði verið hraðað til aö liðka til í viðræðunum, en bætti við að herinn yrði þó i stöðugri viöbrags- stöðu og myndi hiklaust grípa til að- gerða ef með þyrfti. Á sama tíma hóta Bandaríkjamenn að annar fulltrúa þeirra, sem mun vera Zinni, muni Arlel Sharon Bandarisku sendimennirnir munu þjarma aö honum um aö koma á varanlegum friöi. ekki yfirgefa svæðið fyrr en varanlegt vopnahlé sé í höfn og endi bundinn á stanslausan fjórtán mánaöa óróa á svæðinu. Talsmaður forsætisráðherrans ít- rekaði þó í gær að Sharon stæði enn fast við þá ákvörðun sina að friðarvið- ræður hefjist ekki fyrr en reynt hafi á að vopnahlé geti haldið í heila viku. Fyrr muni hann ekki hefja viðræður. Talmenn Palestínumanna sögðu aftur á móti að ef Sharon gæfi ekki eftir í kröfum sínum, verði koma banda- rísku samningamannanna til einskis, en Sharon, sem heldur til fundar við Bush Bandaríkjaforseta í næstu viku, hefur sjálfur sagt aö hann muni fyrst einbeita sér að vopnahléinu. Þeir félagar hittu Sharon á fundi strax í morgun og fór fundur þeirra fram á skrifstofu forsætisráðherrans í Jerúsalem. Eftir fundinn mun Sharon fara með þá í útsýnisflug yfir óróa- svæðið áður en samningamennirnir hitta Yasser Arafat á morgun. REUTERWND Skæruliöar í skjóli Vopnaðir skæruliðar múslíma á Filippseyjum skýla sér á bak viö óbreytta borgara sem þeir töku í gslingu á eyjunni Zambonga á sunnanveröum Filippseyjum í morgun. Skæruliöarnir tóku fótkiö i gíslingu eftir aö þyrlur og sprengjuvélar stjórnarhersins höföu ráðist tii atlögu gegn þeim. Sitt sýnist hverjum um klónun á fósturvísum manna: Páfinn fordæmir en aðrir vísindamenn eru lítt hrifnir Sitt sýnist hverjum um tilkynn- ingu bandaríska líftæknifyrirtækis- ins Advanced Cell Technology um að það hafi einræktað fósturvísi manns. Trúarhópar, með Jóhannes Pál páfa í broddi fylkingar, voru ekki seinir á sér að fordæma athæf- ið en hópar vísindamanna sem keppa að sama markmiði sögðu þetta lítið afrek. Michael West, framkvæmdastjóri bandaríska fyrirtækisins, lagði á það áherslu í gær að vísindamenn hans hefðu ekki í hyggju að búa til einræktuð börn, heldur væri til- gangurinn sá að nota einræktuðu fósturvísana fyrir stoðfrumurnar sem í þeim eru. Vísindamenn sem vinna viö sams konar rannsóknir sögðu í gær að starfsmenn ACT hefðu verið langt Michael West Framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækis- ins ACT segir aö ekki standi til aö búa til einræktuð börn. frá því að framleiða nógu stóran einræktaðan fósturvísi til að geta náð út honum stoðfrumum. Aðeins eitt eggjanna lifði nógu lengi til að skipta sér í sex frumur. Og öll hættu þau að vaxa eftir nokkrar klukkustundir. Vísindamennimir sem skópu ána Dolly, fyrsta einræktaða spendýrið, sögðu að vinna ACT væri á algjöru frumstigi. George W. Bush Bandaríkjafor- seti fordæmdi verk bandaríska fyr- irtækisins og hvatti bandaríska þingið til að banna tæknina sem þarf til aö einrækta fósturvísa manns. Forsetinn, sem er andvígur allri einræktun, sagði fréttamönnum að hann teldi þessa gjörð ACT „sið- ferðilega ranga“. Bush varar íraka viö George W. Bush Bandaríkjaforseti krafðist þess í gær að stjórnvöld í írak leyfðu alþjóð- legum vopnaeftir- litsmönnum að koma til landsins, þar sem baráttan sem nú stendur yfir gegn hryðju- verkamönnum beinist líka að þeim sem framleiða gjöreyðingarvopn. Bresk neyðarlög Bresk stjómvöld stóðust atlögu andstæðinga sinna i gær þegar þingið samþykkti ný neyðarlög sem heimila yfirvöldum áð fangelsa grunaða hryðjuverkamenn án dóms eins lengi og þurfa þykir. Kreppan byrjaöi í mars Samdráttarskeið í bandarísku efnahagslífi hófst í mars síðastliðn- um, eftir tíu ára hagvöxt. Hershöfðingi fyrir rétt Réttarhöld hófust i Frakklandi i gær yfir 83 ára fyrrum hershöfð- ingja, Paul Aussaresses, sem sakað- ur er um pyntingar og aftökur í frelsisstríðinu í Alsír á 5. og 7. ára- tug síðustu aldar. Skipst á skotum í Kóreu Suður- og norður-kóreskir landamæraverðir skiptust á skotum yfir landamæri ríkjanna í morgun. Enginn slasaðist sunnan megin en ekki er vitað um hvað gerðist hin- um megin. Stjórn Koizumis vinsæl Ríkisstjórn Jun- ichiros Koizumis, for- sætisráðherra Jap- ans, nýtur gríðar- legra vinsælda meðal landsmanna og stuðningur við um- bótastefnu stjórnar- irrnar hefur vaxið, þrátt fyrir að harönað hafi á daln- um í eíhahagslífinu. Stjórnarhermenn burt Sérsveitir makedónska hersins hafa að mestu farið burt frá jöðrum landsvæða þar sem fyrrum albansk- ir skæruliðar búa. Þar með hefur dregið verulega úr spennu. Solana hvetur til samtala Javier Solana, utan- rikismálastjóri Evr- ópusambandsins, ætl- ar að þrýsta á stjórn- völd í bæði Serbíu og Svartfjallalandi, sem mynda sambandsríki Júgóslaviu, um að koma sér fljótt saman um leiðir tfl að halda ríkjunum saman. Lok, lok og læs Pakistanskir embættismenn ræddu um það í gær að hluti landamæranna að Afganistan yrði kirfilega lokaður tU að koma í veg fyrir að vígamenn úr röðum tali- bana geti komist yfir til Pakistans. Annan fær nýjan kagga Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur fengið nýjan brynvarinn bíl. Að þessu sinni er þaö BMW 750 sem framleið- andinn gaf honum og kemur hann í staðinn fyrir brynvarinn Volvo, að sögn talsmanns Annans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.