Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2001, Side 25
37
ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2001
DV Tilvera
Bíófréttir
Vinsælustu kvikmyndirnar í Bandaríkjunum:
Enginn hefur roð
við Harry Potter
Sjálfsagt er ekki hægt að
fara í bíó í Bandaríkjunum
í dag án þess að þar séu
sýndar Harry Potter og
viskusteinninn, eða
Monster Inc., þar sem
þessar fjölskylduvænu
myndir eru sýndar í rúm-
lega 7300 sýningarsölum
til samans. Þessar tvær
kvikmyndir voru að sjálf-
sögðu með mestu aðsókn-
ina og Harry Potter var
aðra vikuna í röð í sér-
flokki. Þrjár nýjar kvik-
myndir voru frumsýndar
um helgina og ef farið er í
talnaleik með þær þá voru þær til
samans sýndar í jafnmörgum sölum
og tvær fyrmefndar myndir. Að-
standendur Spy Game, sem er í
þriðja sæti listans, geta í raun ekki
verið annað en ánægðir. Þeir eru
með mun meiri aðsókn á hvem sal
en Monster Inc. í Spy Game leiða
Spy Game
Robert Redford og Brad Pitt í hlutverkum sín-
um.
saman hesta sína Robert Redford og
Brad Pitt. Leika þeir njósnara og
íjallar myndin um atburði sem urðu
til að þeir kynntust og allt þar til
Redford er að hætta störfum en
hættir við þegar hann fréttir að Pitt
hafi verið handtekinn í Kína.
HELGIN 23.-25. novcmher
ALLAR UPPHÆÐIR I ÞUSUNDUM BANDARIKJADOLLARA.
SÆTI FYRRI VIKA TITILL INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍÓSALA
O 1 Harry Potter. 57.487 186.987 3672
o 2 Monster, Inc 24.055 192.229 3649
o Spy Game 21.689 30.566 2770
o Black Knight 11.102 15.409 2571
o 3 Shallow Hal 8.516 54.998 2643
o Out Cold 4.531 6.700 2011
o 4 Domeatic Disburbance 4.008 39.801 2386
o 5 Heist 3.113 20.025 1711
o 9 Life as a House 2.121 12.220 1727
0 6 The One 2.075 41.880 1119
0 11 Amelie 1.811 7.799 217
0 7 K-Pax 1.727 48.237 1256
0 8 The Wash 1.649 6.505 749
0 10 13 Ghosts 1.077 39.628 905
0 13 The Man Who Wasn’t There 954 4.593 246
© Sidewalks of New York 545 678 99
0 15 Bandlts 506 40.677 602
© 14 Serendipity 479 48.051 506
© 12 Training Day 430 74.950 458
© 18 Novocaine 340 945 120
Vinsælustu myndböndin:
Blanda af dýri
og manni
Bridget Jones hélt efsta sætinu
enda var kannski ekki um alvarlega
samkeppni að ræða. The Animal,
sem kemur ný inn á listann og beint
í annað sætið, er misheppnaður farsi
sem gleður ekki marga. í þeirri
mynd leikur Rob Schneider ungan
mann, Marvin Mange, sem á sér
þann draum heitastan að verða lög-
reglumaður. Hann hefur hingað til
ekki haft burði til þess
og vinnur því á skjala-
safni lögreglunnar.
Þegar hann lendir í
bílslysi eru græddir í
hann í tilraunaskyni
líkamshlutar dýra.
Þegar Marvin vaknar
til lífsins hefur hann
tekið stökkbreytingum
til hins betra að hans
mati og ekki líður á
löngu áður en hann er
orðinn súperlögga.
Gamanið fer að grána
þegar líkamshlutamir
úr dýraríkinu fara að
hafa áhrif á gerðir
hans ...
Fleiri nýjar myndir
koma inn á listann og
þar er helst að geta
Antitrust sem fjallar
um unga sakamenn í
tölvugeiranum. Hún
þykir ekki, frekar en
The Animal, merkileg-
ur gripur. -HK
SÆTI FYRRI VIKA TITILL (DREIFINGARAÐILI) VIKUR ÁUSTA
O 1 Bridget Jones’s Diary isam-myndbönd) 2
o _ The Animal (myndtormi 1
© 4 Crimson Rivers iskIfani 2
o _ Antitrust (sam myndböndi 1
© 2 Pearl Harbor isam myndbönd) 3
© 3 BiOW (MYNDF0RM) 4
o 7 The Tailor of Panama iskífan) 3
© 5 One Night at McCool’s (skífanj 4
© 8 The Mexican isam myndböndi 6
© 9 Bais-Moi (GÓÐAR STUNDIR) 2
© 12 The Virgin Suicldes (bergvík) 2
0 _ Dracula 2001 iskífan) 1
© _ Double Take isam myndbönd) 1
© 10 Brother isam myndbönd) 3
© 6 Exit Wounds (sam myndböndj 6
© 13 The Grinch isam myndbönd) 7
© © 11 Miss Congeniality isam myndbönd) 9
14 Blowdry (myndform) 2
© 19 Men of Honor (skífan) 10
© 16 Spy Klds (Skífan) 7
The Animal
Rob Schneider ieikur lögguna sem fær
óæskilega líkamshluta.
Ljúfir tónar
Edda Erlendsdóttir segist ætla aö flytja verk eftir Haydn, Sónötu í A moll eftir Schubert, þrjú píanóstykki eftir
Páll ísótfsson og Ijóöræn smálög eftir Grieg á tónleikunum í Salnum í kvöld.
Edda Erlendsdóttir í Salnum:
Píanóverk eftir Haydn
Ljúfir píanótónar berast úr Saln-
um í Kópavogi þegar undirritaður
gengur inn í húsið. Erindið er að
hitta Eddu Erlendsdóttur píanóleik-
ara sem verður með tónleika i Saln-
um í kvöld. Ég læöist inn til að
trufla hana ekki og njóta tónanna
eilítið lengur.
Fjölbreyttur ferill
Edda er aðlaðandi kona og sjarm-
erandi í framkomu og býður mig
velkominn. Hún er búsett í Frakk-
landi en kemur reglulega til íslands
til að spila á tónleikum.
„Já, það er rétt, ég var að gefa út
geisladisk með píanóverkum eftir
Haydn, tilbrigði og sónötur, og ég
Bíógagnrýni
verð með tónleika í Salnum í kvöld.
Þetta er fjórði einleiksdiskurinn
sem ég spila inn á og sá þriðji sem
ég gef út sjálf.“
Ferill Eddu er fjölbreyttur. Hún
hefur spilað á tónleikum um allan
heim og er jafnvíg á elstu verk sem
samin voru fyrir píanó og tónsmíö-
ar samtíma-tónskálda. Hún hóf pí-
anónám í Tónlistarskólanum í
Reykjavík, lauk einleikaraprófi árið
1978 og hélt síðan til framhaldsnáms
í Frakklandi.
Dálæti á kammertónlist
„Á tónleikunum í kvöld ætla ég
að flytja verk eftir Haydn, Sónötu í
A moll eftir Schubert, þrjú píanó-
stykki eftir Páll Isólfsson og ljóðræn
smálög eftir Grieg.“
Edda segist hafa mikið dálæti á
kammertónlist og hefur verið list-
rænn stjórnandi kammertónlistar-
hátíðarinnar á Kirkjubæjarklaustri
frá árinu 1991. „Ég átti frumkvæði
að hátíðinni ásamt menningarmála-
nefndinni á Klaustri fyrir ellefu
árum.“
Að sögn Eddu kemur hún aftur til
landsins í sumar til aö spila á Lista-
hátíð og á Klaustri. „Á Listahátíð
stendur til að frumflytja Brúðkaup-
ið eftir Strawinsky, sem er mjög
spennandi verk, og svo er ég farin
að æfa fyrir tónleikana á Klaustri í
sumar.“
-Kip
Sambíóin - High Heels and Low Lives: ★★
Sterkar konur og
kjánalegir karlar
Sif
Gunnarsdóttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Shannon (Minnie Driver)
er hjúkka í London sem býr
með leiðindagaur. Hann er
svo leiðinlegur að hann er
spenntari fyrir því að búa til
hljóðskúlptúra úr samtals-
brotum sem hann tekur upp
(ólöglega) en að bjóða henni
út á borða á afmælinu henn-
ar. Sem betur fer á hún líka
vinkonuna Francis (Mary
McCormack), ameríska
leikkonu sem heldur upp á
afmælið með henni. Þegar
þær koma drullufullar heim
til Shannon heyra þær í
hlustunargræjum kærastans
fjarverandi strák tala við
kærustima sína í GSM-síma
um bankarán sem hann er
að taka þátt í. Þær skrifa hjá
sér símanúmerið og æða á
nærliggjandi löggustöð til að
tilkynna innbrotið.
En lögreglan er fámenn á laugar-
dagskvöldi (hljómar kunnuglega) og
hefur ekki tíma til að athuga málið.
Þannig komast bófarnir burt með
fenginn en eftir sitja vinkonurnar
tvær, enn þá með símanúmer glæpa-
mannsins, og finnst endalok sögunnar
ómöguleg. Enda komast þær að þeirri
niðurstöðu að bófarnir eigi ekki að
sitja að góssinu aleinir og ráðgera
fjárkúgun - sem er hættuspil af því
glæpamenn eru engin iömb að leika
við. En eins og oft vill verða þá eru
hjúkkur og leikkonur í raun mun
klárari og hættulegri en heill glæpa-
flokkur, svo ekki sé minnst á lögregl-
una. Engin furða að þessar starfsstétt-
ir skuli alltaf vera að fara fram á
hærri laun!
Það er plottið sem er veiki hlekkur-
inn í High Heels and Low Lives. Fyr-
ir stuttu sá ég myndina Beautiful
Creatures með þeim Rachel Weisz og
Susan Lynch, þar sem þær léku tvær
ógæfusamar stúlkur sem reyna fjár-
kúgun við hættulega glæpamenn.
Ástæðan er augljós: Þær eru algjör-
lega á síðasta snúningi og hafa engu
að tapa með þessu áhættusama ráða-
bruggi. High Heels and Low Lives leit-
ar á sömu mið, nema'ástæðan fyrir
því að hinar huggulegu Shannon og
Frances leggjast í glæpi er nokkuö
óljós - allt í einu eru þær
bara til í að vera griðarlega
ólöglegar og svikja, pretta,
fjárkúga, limlesta og gott ef
ekki drepa...
Þó er besta skemmtun að
fylgjast með þeim stöllum,
sérstaklega hvernig þær
fikra sig áfram í fjárkúgun-
inni, en hún hefur hvorki
verið liður í hjúkrunarnámi
né leiklistarnámi: það hlýtur
að vera til heimasíðá um
fjárkúgun, segir Francis þeg-
ar bófarnir taka ekki mark á
kröfum þeirra og hótunum.
Driver og McCormack fara
líka prýðilega með hlutverk
sín, sérstaklega Driver sem
er ansi skemmtileg gaman-
leikkona eins og hún sýndi
m.a. í jafn ólíkum myndum
og Grosse Pointe Blank og
An Ideal Husband. Allir karlmenn eru
með afskaplega vanþakklát hlutverk.
Rannsóknarlögregluþjónarnir eru ein-
staklega hálfvitalegir og glæpamenn-
irnir hálfvitalegir og andstyggilegir.
öllu þessu stýrir gamanleikarinn vin-
sæli og leikstjórinn Mel Smith lipur-
lega og með finni tímasetningu en
stundum er hann að reyna að vera að-
eins of smart.
Leikstjóri: Mel Smith. Handrit: Kim Full-
er. Kvikmyndataka: Steven Chiver. Tón-
list: Charlie Mole. Aöalleikarar: Minnie
Driver, Mary McCormack, Kevin McNally,
Danny Dyer, Michael Gambon, Hugh
Bonneville.