Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Page 6
MANUDAGUR 3. DESEMBER 2001
Fréttir
I>V
Viðskiptahallinn ýtir undir óstöðugleika, segir nóbelsverðlaunahafi í hagfræði:
Staðfestir gagnrýni
Samfylkingarinnar
- segir Össur Skarphéðinsson. Gamaldags hugmyndir, segir Vilhjálmur Egilsson
Halli á viðskiptum íslendinga við
útlönd er ekki raunverulegt vanda-
mál en skapar hættu á óstöðugleika.
Því er æskilegt að gripið sé til að-
gerða til að draga úr honum. Fast-
gengisstefna stjórnvalda ýtti undir
fjármagnsflæði til landsins og þar
með viöskiptahallann því markaðs-
aðilar vanmátu líkur á gengisfell-
ingu. Þetta segir m.a. í álitsgerð sem
Joseph Stiglitz, nóbelsverðlaunahafi
í hagfræði, hefur unnið fyrir Seðla-
banka íslands - þar sem horft er
sérstaklega til íslenskra aðstæðna.
Alþingismenn sem DV ræddi við
hafa skiptar skoðanir á greinargerð-
inni.
í greinargerð Stiglitz, sem birt er
á vefsetri Seðlabankans, segir að
veiking krónunnar síðustu mánuði
ætti að lækka viðskiptahallann -
jafnvel þótt hún gangi að hluta til
baka og raunlækkun verði minni
vegna aukinnar verðbólgu. „Að-
gerðir til þess að koma böndum á
aukin útlán og til þess að minnka
gjaldeyrisáhættu innlendra aðila
sem ekki hafa tekjur í erlendri
mynt ættu einnig að hjálpa til við
að minnka viðskiptahaílann,“ segir
í greinargerð Stiglitz. Hann segir að
þessar aðgerðir dugi líklega ekki til
að koma jafnvægi á viðskipti við út-
lönd. Ekki sé skynsamlegt að freista
Ossur
Skarphéöinsson.
þess að lækka
viðskiptahallann
með því að auka
aðhald í fjármál-
um. Aðrar að-
gerðir eru hugs-
anlegar, svo sem
hækkun vöru-
gjalds á varanleg-
ar neysluvörur.
í samtali við
DV sagði Össur
Skarphéðinsson, formaður Samfylk-
ingarinnar, að Stiglitz kæmist í
stórum dráttum að þeirri niður-
stöðu sem hann og fleiri talsmenn
stjórnarandstöðunnar hefðu bent á
misserum saman; að viðskiptahall-
inn væri stóri veikleikinn í efnhag-
hagsstjórn íslendinga. Við því hefði
ríkisstjórnin aftur á móti dauf-
heyrst.
„Þaö er athyglisvert að Stiglitz
telur gengistryggingu, sem í reynd
var við lýði áður en Seðlabankinn
fékk sjálfstæði, hafl átt sinn þátt í
viðskiptahallanum," segir Össur.
„Þetta undirstrikar enn frekar
ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Einnig
þykir mér eftirtektarvert að hag-
fræðingurinn talar fyrir gildi þess
að upp séu teknar ákveðnar varúð-
arreglur varðandi innlendar fjár-
málastofnanir. Þegar stjórnarand-
Komdu og njóttu hátíðarstemmningarinnar
í Smáralind þar sem jólasveinarnir og yfir70 verslanir
og þjónustuaðilar bjóða alla velkomna.
Jóladagskráin í Vetrargarðinum í dag!
15:30 og 16:30 Jólasaganiesin.
16:00-18:00 Jólasveinarskemmta.
Ævintýraveröld barnanna í JÓlalandÍHU i allan dag.
Einnig verður líf og fjör í Veröldinni okkar og
göngugötunni í dag frá klukkan 16:00 þar sem
harmonikkuleikarar skapa rétta jólaandann.
ÍO
-R É TT I JÓLAANDtNh
Opið f dag milli kTukkan 11:00 og 20:00 • www.smaralmd.is
staðan hefur bent
á það hafa ráð-
herrar talið slíkt
óþarft. Niður-
staða mín er því
sú að málflutn-
ingur Stiglitz
undirstriki meg-
ingagnrýni okkar
i Samfylking-
unni.“
Vilhjálmur Eg-
ilsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks,
segir að Sér þyki sumt í greinargerð
Stiglitz gamaldags. Þar nefnir hann
skattlagningu fjármagnshreyfinga
milli landa sem og skatta á varan-
legar neysluvörur. „Frekar ættu
Vilhjálmur
Egilsson.
menn að spá í hvort ríkið eigi að
hafa skoðun á fjármagnshreyfingum
og stýra lánasamsetningu sinni með
hliðsjón af gengisbreytingum með
það að markmiði að draga úr sveifl-
um.“
Um mikla aukningu bæði sam- og
einkaneyslu segir Vilhjálmur að
viðurkennast verði að hún sé
vandamál. „En nú sýnist mér að
einkaneyslan sé að detta skarpt nið-
ur. Aftur á móti sitjum við uppi
með afleiðingar af hækkunum á
launum opinberra starfsmanna á
undanfórnum árum. Þær hafa verið
langt umfram það sem aðrir hafa
fengið, burtséð frá því hvort þær
hafi átt rétt á sér.“ -sbs
Baráttusveit
Halldór Björnsson, Sveinbjörg Pálsdóttir, formaöur
Samherja, Grétar Þorsteinsson, Már Guönason, formaöur Rangæings, og Ei-
ríkur Tryggvi Ástþórsson, formaður Víkings.
Sameinað verkalýðsfélag á austurhluta Suðurlands:
Sameining
eflir okkur
- segir Halldór Björnsson
Stofnfundur Verkalýðsfélags kjara- og launabaráttu.
Suðurlands var haldinn i Skógum
undir Eyjafjöllum á laugardaginn.
í Verkalýðsfélagi Suðurlands sam-
einast Verkalýðsfélagið Rangæing-
ur í Rangárvallasýslu, Verkalýðs-
félagið Víkingur í Vík og Verka-
lýðsfélagið Samherjar á Kirkjubæj-
arklaustri. í nýja félaginu verða
um 600 virkir félagsmenn. Fram
kom hjá formönnum félagana sem
sameinuðust að þeir binda vonir
við að nýja félagið veiti félags-
mönnum enn betri þjónustu og það
verði þeim öflugra baráttutæki í
Halldór Björnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins, sagði að
eitt af markmiðunum viö stofnum
Starfsgreinasambandsins hefði
verið að efla félagseiningarnar,
meðal annars með sameiningu
minni verkalýðsfélaga. Halldór
sagði að á því rúma ári sem Starfs-
greinasambandið hefði starfað
hefðu myndast fjögur félög við
sameiningu nokkurra félaga. Því
bæri að fagna, það skilaði félags-
mönnum þeirra félaga ótviræðum
árangri. -NH
Maður stunginn
með hnífi
Karlmaður var fluttur á slysa-
deild um hálfsexleytið í gærmorgun
eftir að hafa orðið fyrir hnífstung-
um í Tryggvagötu í Reykjavík. Mað-
urinn sem varð fyrir árásinni hafði
blandað sér í erjur pars. Árás-
armaðurinn dró upp hníf og lagði til
mannsins með þeim afleiðingum að
hann fékk skurð á hendi og háls.
Hánn var því fluttur á slysadeild
Landspítalans - háskólasjúkrahús í
Fossvogi. Árásarmaðurinn komst
undan en var handtekinn um há-
degisbilið i gær.
Að sögn lögreglunnar í Reykja-
vík var nokkur erill í miöbæ
Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags-
ins og var nokkuð um slagsmál og
líkamsárásir. Ekki kom þó til neina
alvarlegra ryskinga en ekið var á
mann í Lækjargötu. Hann skall í
götuna og var fluttur til rannsóknar
á slysadeild. Meiðsj^hans reyndust
ekki vera alvarleg. -MA
Umsjón: Gyifi Kristjáns$on
netfang: gylfik@dv.is
Skorað á Ellert
Mikið er nú pískrað um það í
heita pottinum að Ellert Eiríks-
son, bæjar-
stjóri í Reykja-1
nesbæ, hyggist
hella sér út í |
landsmálapóli-
tíkina og bjóða I
sig fam fyrir |
Sjálfstæðis-
flokkinn til Al-
þingis. Sterkur I
orðrómur er'
um að Ellert hafi fengið margar
áskoranir um að taka slaginn en
hann hefur sem kunnugt er lýst
því yfir að hann muni hætta af-
skiptum af sveitarstjómarmálum í
Reykjanesbæ í vor og láta þá af
starfi bæjarstjóra. Ellert er röskur
og nokkuð vinsæll og telja margir
að hann muni hafa ágætismögu-
leika á að verða framarlega á lista
Sjálfstæðisflokksins í hinu nýja
kjördæmi, taki hann þá ákvörðun
að hella sér í slaginn.
Hvaö gera þeir næst?
Þá hefur Samfylkingin haldið
sína miklu skrautsýningu eins og
hinir pólitísku
flokkarnir og
kosið forustu
sína með
lófataki og til-
heyrandi.
Höfðu margir
fylkingarfélag-
ar á orði að
landsfundi
þeirra loknum
að þar hafi tekist aldeilis prýðilega
til og fundurinn verið stórglæsileg-
ur sem engin ástæða er til að ve-
fengja. Velunnari þeirra sem
svamla um í heita pottinum og
sendir þeim oft vísur laumaði þess-
ari að okkur i tilefni fundarins:
Nú Samfylkingin fundaö hefur,
fólk þar á eitthvaö hefur sœzt.
En enginn um það hugmynd hefur
hvaö þeir œtla aó gera nœst.
írar fá það frítt
Einhverjar fregnir munu hafa
borist af því að frændur vorir írar
(eða þeir
þeirra sem á
þurfa að
halda) fái
fjórar ókeyp-
is víagratöfl-
ur á mánuði.
í bókinni Með
lífið í lúkun-
um, þar sem
sagðar eru
gamansögur af
læknum, er sagt frá því að svo hafi
verið kveðið hér heima á Fróni
þega fréttist af þessu ókeypis
víagraáti Iranna:
Alltaf heyrist eitthvað nýtt,
engu þurfa aö kvíöa,
írskir sem aö fá nú frítt
fjóra daga aö ríóa.
Óþægilegir verkir...
í sömu bók er einnig vísað til
nokkurra skondinna tilvitnana í
sjúkra-
skýrsl-
um og
fylgir
hér smá-
sýnis-
horn af
þeirri
speki: - „Hún hefur þroskast eðli-
lega framan til“. - „Misnotaði
áfengi í óhófi áður fyrr“. - „Tekin
var mynd af sjúklingi sem sýndi
breytingar í Hafnarfirði". - „Sjúk-
lingur borðar reglulegt mataræði".
- „Fékk vægan verk undir morg-
unsárið". - „Sjúklingur hefur verið
mæddur síðastliðin fimm ár“. -
„Sjúklingur hefur fremur óþægi-
lega verki“. - „Þessi maður veit
ekkert um skyldleika í ætt“. -
„Sjúklingur tekur engin lyf en
magnyl þess á milli".