Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Síða 10
10_____ Landið MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001 DV Brimbrjótur meðal verkefna á Húsavík: Löngu tímabær bygging - sameiningarferlið heldur áfram Bæjarráð Húsavíkur leggur til að innheimtuprósentan í staðgreiðslu verði 13,03% á árinu 2002, þ.e. há- marksálagning, og að sú álagning verði síðan tekin upp árið 2003. Önnur stærstu sveitarfélög á Norðurlandi, s.s. Akureyri, Skagafjörður og Dalvíkur- byggð verða einnig með hámarks- álagningu, eða 13,03%. Kristján Ásgeirsson, forseti bæjar- stjómar Húsavíkur, segir að á næsta ári verði ráðist í löngu tímabært en dýrt verkefni sem sé bygging brim- brjóts framan við núverandi brim- brjót. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 400 milljónir króna. Dýpi á þessum slóðum er mikið frá náttúrunnar hendi svo ekki þarf að ráðast í kostn- aðarsamar dýpkunarframkvæmdir. Nýr brimbijótur mun kyrra til muna núverandi Húsavíkurhöfn, auk þess sem mögulegt verður að taka inn stærri skip en hingað til, sérstaklega í norðan- og vestanátt sem oft reynist erfið þama. Kristján segir að úrslit sameiningar- kosninga nýverið sýni að nágranna- sveitarfélög Húsavíkur vilji taka minni skref í átt að sameiningu þingeyskra sveitarfélaga, og hann segist reikna með að næsta skrefið verði kosning um sam- emingu Aðaldælinga, Reykdælinga og Mývetninga. „Vesturbandalagið" svo- kallaða, eða sameining sveitarfélaga milli Fljótsheiðar og Vaðlaheiðar auk Reykjadals, flýti fyrir þeirri þróun, enda sveitarfélög á Islandi mörg hver allt of fámenn og vanmáttug að veita íbúunum eðlilega þjónustu. -GG Húsavík Forseti bæjarstjórnar Húsavíkur segir að úrslit sameiningarkosninga nýverið sýni að nágrannasveitarféiögin viljji taka minni skref í sameiningu þingeyskra sveitarfélaga. Viltu líta vel út um jólin? Jólatilboð Mánaðarkort 10x40 mín. Aðeins kr. 5.900 Tilboð á árskortum til 14. des. 2001 Hringdu núna í síma 553 3818 t ............ Við höFum reynsluna og metnaðinn VaFningar - vatnsnudd - Ijós Frír pruFutími G www. trimForm.is TRIM/\FORM BergSndar Grensásvegi 50 sími 553 3818 Opið mánud. - Fimmtud. 8-22, Föstud. 8-20, laug. 10-14 Trébryggja byggð viö Vesturfarasetrið Undanfamar vikur hefur verið unnið við smíði timburbryggju í fjörunni framan við Vesturfarasetr- ið á Hofsósi. Það er Vesturfarasetr- ið sem stendur fyrir framkvæmd- inni en nýtur til þess styrks frá samgönguráðuneytinu. Bryggjan er hönnuð af Hafnamálastofnun ríkis- ins sem jafnframt hafði eftirlit með framkvæmdinni. Guðlaugur Einars- son, skipa- og bryggjusmiður frá Fá- skrúðsfirði, er verktaki og hefur unnið að smíðinni við annan mann. Guðlaugur sagði í samtali við fréttamann að bryggjan væri 33 metrar á lengd og 3 metrar á breidd en bryggjuhaus er nokkru breiðari. Hún er byggð á gamla mátann og undir henni eru 25 öflugir tréstaur- ar sem reknir eru niður á fast. Var notað rafmagnsspil við að reka staurana niður því ekki gengur að fara með stórvirk tæki eins og bygg- ingarkrana út á bryggjuna. Að sögn Valgeirs Þorvaldssonar, fram- kvæmdastjóra Vesturfarasetursins, er tilgangurinn með bryggjusmið- inni m.a. sá að hún gefur möguleika á að nota svæðið sem leikmynd fyr- ir útisýningar og einnig setur bryggjan skemmtilegan svip á um- hverfið og verður þægileg fyrir fólksflutninga. Að sögn Valgeirs verður kostnaður við framkvæmd- ina á bilinu 5-6 milljónir króna. Um 10 þúsund manns komu í Vestur- farasetrið á þessu ári og hópar er- lendra ferðamanna eru þegar famir að boða komur sínar á næsta ári. -ÖÞ DV-MYND ÖRN ÞÖRARINSSON Bryggjusmiöir Þeir Guölaugur Einarsson smiður, til hægri á myndinni, og Guðmundur Guðlaugsson á bryggjunni við Vest- urfarasetrið á Hofsósi. Þátttaka í happdrætti Krabbameinsfélagsins er stuðninqur við mikilvægt forvarnastarf Veittu stuðning - vertu með! ‘Drcgið 24. desembcr OCITHO(N mninfiar: jt 1 Citroén Xsaro P»cassó Verðnurtl 2.070.000 kr. I Bífrefd eda sreidsfa upp f »búd VwðmætJ 1.000.000 kr. Úttékt hjé fetdoikrifitofu tdd Vtfihin Verðmxti 100.000 kr. f/Mi útffrlinn* miit: tJJ.U Rússi sigldi á bryggjuna Rússneskt flutningaskip, sem er að taka við 250 tonnum af síld frá Har- aldi Böðvarssyni, sigldi á aðalhafnar- garð Akraneshafnar og laskaði hann að hluta en skemmdirnar á hafnar- bakkanum eru ekki miklar. Óttast var að gat hefði komist á stefni skips- ins og var maður frá skipinu að gera við skemmdirinarþegar að DV bar að garði. Eins og sést á meðfylgjandi myndum virðist skutur skipsins hafa skemmst og óverulegar skemmdir eru á hafnargarðinum. -DVÓ DV-MYND DANÍEL V. ÖLAFSSON Gat á stefnið Rússinn fékk gat á stefnið viö áreksturinn og var verið aö gera viö skemmd- irnar í gær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.