Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Side 13
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
x>v
Útlönd
13
Blóðug helgi í ísrael:
Tuttugu og sex láta lifið í
skot- og sjálfsmorðsárásum
Hryðjuverkasamtökin Hamas
lýstu í gær yfir ábyrgð sinni á
sprengju- og skotárásum i ísrael um
helgina. Að minnsta kosti 26 manns
létust í þeim. Á laugardagskvöldið
er talið að tveir Palestínumenn hafi
sprengt sig upp á sama tíma í kafíi-
húsahverfi í Jerúsalem. Tíu létust
þar og um 150 manns særðust, þar
af 7 alvarlega. í gærdag sprengdi
einn liðsmaður Hamas sig upp í
strætisvagni í ísraelsku hafnarborg-
inni Haifa. Þar fórust 15 og 40 særð-
ust. Skömmu síðar komust tveir
vopnaðir Palestínumenn inn í land-
nemabyggð gyðinga á Gazasvæðinu
og skutu einn til bana og særðu
fimm.
Fyrstu viðbrögð ísraelskra stjórn-
valda var að loka öllum vegum sem
liggja á milli Israel og yfirráða-
svæða Palestínu. Forsætisráðherra
Israel, Ariel Sharon sagði Yasser
Maher Ihbeishi
Sprengdi sjálfan sig upp í strætis-
vagni í Haifa.
Arafat, forseta Palestínu, bera
ábyrgð á árásunum þar sem hann
hefði enn ekkert gert til að hefta
starfsemi hryðjuverkamanna. Við-
brögð palestinskra yfirvalda var að
setja herlög á yfirráðasvæðum sín-
um á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu. Óljósar fréttir bárust um
að palestínsk lögregla hefði hand-
tekið marga félaga í Hamas, sem og
Jihad, sem einnig heyja vopnaða
baráttu fyrir sjálfstæði Palestínu.
Leiðtogar erlendra ríkja gagn-
rýndu árásirnar. George W. Bush
Bandaríkjaforseti hvatti Arafat til
að herða baráttu sína gegn hryðju-
verkamönnum á yfirráðasvæði
sinu. Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Colin Powell, tók undir það og
sagði tímann réttan fyrir Arafat til
að sýna samstarfsvilja.
Jólahlaðborðið okkar bíður ykkar í Skrúð alla daga vikunnar og í Súlnasal
um helgar þar sem boðið er upp á skemmtiatriði og dansleik.
Pantanir í síma S25 9900.
Hagatorgi, 107 Reykjavik
www.radissonsas.com l.'AfU. K. KMUSSOK f **' HOTtts * resorts
Robert Mugabe
Vill ekki gagnrýni einkarekinna fjöl-
miöla fyrir næstu kosningar.
Simbabve:
Atlaga að tján-
ingarfrelsi
Einkarekin fjölmiðlafyrirtæki í
Simbabve ætla að berjast gegn lög-
gjöf um ritskoðun sem ríkisstjórn
Roberts Mugabe, forseta landsins,
ætlar að setja. Lögin, sem enn hafa
ekki tekið gildi, kveða á um að yfir-
völd landsins hafi algjört vald yfir
því sem birt er í fjölmiðlum lands-
ins. Ekkert má birta án samþykkis
stjórnvalda. Auk þess geta erlendir
fréttaritarar ekki starfað í landinu.
Talið er að ein • meginástæðan
með lögunum sé að þagga niður í
einkareknum fjölmiðlum fyrir for-
setakosningarnar í landinu á næsta
ári. Lögin hafa verið gagrýnd í ná-
grannalöndum Simbabve. Mbeki,
forseti Suður-Afríku, segir Mugabe
ekki geta leitað aðstoðar þar.
Svisslendingar
vilja áfram her
Almenningur í Sviss felldi með
miklum meirihiuta í þjóðarat-
kvæðagreiðslu um helgina tillögu
um að leggja niður her landsins.
Þetta er í annað skipti á þremur ár-
um sem slík tillaga er felld í Sviss.
Her landsins er einn hinn stærsti
og kostnaðarfrekasti í heimi, í
honum eru að jafnaði 360.000 manns
hverju sinni. Allir karlmenn á milli
18 og 42 ára þurfa að mæta í her-
þjálfun einu sinni á ári. Þetta kost-
ar svissneska ríkið rúma 600 millj-
arða króna á ári. Ekki hefur verið
ráðist á Sviss i rúm 500 ár og land-
ið fylgir hlutleysisstefnu.
Svissnesk stjórnvöld vilja draga
úr umfangi hersins en eru mótfallin
því að leggja hann niður. Gagn-
rýnendur hersins segja hann of dýr-
an og mannfrekan.
síðustu skiladagar fyrir jólasendingar til útlanda
Þú vinnur tvennt með því að senda jólapakkana og kortin tímanlega: Þú losar spennu og nýtur þess að vera til á aðventu og gera allt hitt sem gaman er að. Svo gleður þú viðtakandann sem hlakkar til að opna sendinguna þína.
Við ráðleggjum þér að senda jólasendingarnar þínar til útlanda í tæka PÓSTURINN
tíð - í síðasta lagi samkvæmt dagsetningunum hér að ofan svo að þær m&ðjó Lokue-dju-
nái að gleðja viðtakandann á jólum.
www.postur.is