Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Page 24
40
Tilvera
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
x>v
Ljóð í strætó
Tillaqa að
svæðisskipulaqi
Samkvæmt 13.qr. skipulaqs-oq byqqinqarlaqa
nr. 73/1997, er hér með auqlýst til kynninqar
tillaqa að svæðisskipuiaqi höfuðborqarsvæð-
isins 2001-2024.
DV-MYND EINAR J.
Reykvískt rapp
Strætó stoppar á Lækjartorgi
Strætisvagninum var lagt á Lækjar-
torgi og gátu vegfarendur komiö
þangaö inn úr hlýjunni og litiö á sýn-
ingu um sögu Strætisvagna
Reykjavíkur.
DV-MYNDIR EINAR J.
0, strætó
Jón Hallur Stefánsson flytur eigiö Ijóö um strætó og leikur undir á kassagítar.
Strætisvagnar eru ómissandi í lífi
margra borgarbúa og eiga ófáir
skemmtilegar og hugljúfar minning-
ar tengdar strætóferðum um borg
og bý. Þá hefur einnig fjöldi skálda
og listamanna fengið innblástur að
ljóðum og listaverkum þar sem þeir
sátu 1 strætisvagni og fylgdust með
borgarlandslaginu líða hjá.
Söngvaskáldið og útvarpsmaðurinn
Jón Hallur Stefánsson er í þessum
hópi en á fullveldisdaginn frum-
flutti hann eigið lag og ijóð sem
hann tileinkar strætisvögnum. Fór
dagskráin fram í forláta strætis-
vagni sem hættur er daglegum ferð-
um fyrir aldurs sakir en gegnir þess
í stað hlutverki
hreyfanlegs safns
um strætisvagna
og sögu þeirra hér
í borg. Var vagnin-
um góða ekið nið-
ur Hverfisgötuna
og lagt á Lækjar-
torgi þar sem gest-
ir og gangandi
gátu kíkt inn,
skoðað sýninguna
og hlýtt á ástaróð
Jóns Halls til þess-
ara þörfu þjóna
Reykvíkinga.
höfuðborqar-
svæðisins
Skipulagstillaqan sýnir landnotkun í sveitarfélögunum átta
sem adild eiga aö samvinnunefndinni. Á korti og í greinargerö
er gerð grein fyrir stefnumörkun sveitarfélaganna, áætlaðri
byggðarþróun og samgöngukerfi.
2001-2024
Tillaga að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024,
uppdráttur ásamt greinargerð og fylgiritum, liggur frammi
almenningi til sýnis frá 3. desember 2001 til 11. janúar 2002.
Diplo matics-flokkurinn:
Rapp í
Reyk j avík
Það hefur færst í vöxt að íslenskir
rapparar flytji rímur sínar á hinu ást-
kæra ylhýra í stað engilsaxneskunnar
sem áður þótti eina nothæfa tungumál-
Fylgirit eru: Borgin og landslagið, Skipulagstölur, Endurnýjun
og þróun borgar, Umferðarspár, Umhverfisstefna, Fram-
kvæmdakostnaður og Framkvæmd svæðisskipulags. Tillagan
hefur verið kynnt sveitarstjórnum og á almennum kynningar-
fundum. Greinargerð ásamt skipulagskorti verður einnig til
sölu hjá skrifstofu borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, Reykja-
vík, 3. hæð.
Tillaqan liqqur frammi á eftirtöldum stöðum:
1. Hafnarfjörður: á afgreiðslu umhverfis- og tæknisviðs,
Strandgötu 8-10, Hafnarfirði.
2. Ðessastaðahreppur: á skrifstofu hreppsins, Bjarnastöð-
um, Bessastaðahreppi.
3. Garðabær: á bæjarskrifstofum, Garðatorgi 7, Garðabæ.
4. Kópavogur: á skrifstofu bæjarskipulags, Fannborg 6, 2.
hæð og í Smáralind við Hagasmára, Kópavogi.
5. Reykjavík: í sýningarsal Borgarskipulags og byggingar-
fulltrúa á 1. hæð að Borgartúni 3, Reykjavík.
6. Seltjarnarnes: á bæjarskrifstofunum, Austurströnd 2,
Seltjarnarnesi.
7. Mosfellsbær: á bæjarskrifstofum, Þverholti 2, Mosfells-
bæ.
8. Kjósarhreppur: á skrifstofu hreppsins að Félagsgarði,
Kjós
9. Skipulagsstofnun Laugavegi 166 Reykjavík.
Einnig er hægt að kynna sér efni tillögunnar á www.ssh.is
og www.rvk.is.
Athugasemdum við skipulagstillöguna skal skila
skriflega til skrifstofu borgarverkfræðings, 3. hæð,
Skúlatúni 2, Reykjavík, merkt samvinnunefnd um
svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, eigi síðar en
14. janúar 2002.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins tíma
teljast samþykkir tillögunni.
Samvinnunefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins
3
X
ið í rappheimum. Án efa hefur tilkoma
rappara á borð við Sesar A og X
Rottweiler hunda haft sin áhrif en á
dögunum komu út fyrstu hljómdiskar
þessara listamanna sem jafnframt eru
fyrstu plötunar þar sem rappað er á ís-
lensku. Samhhða þessari þróun hafa
svo kallaðar rimnaflæðishátíðir orðið
vinsælli en á þeim stíga rapparar á
stokk og kveða rímur sínar með til-
heyrandi mjaðmahnykkjum og
handapati. Ein slík hátíð var haldin í
félagsmiðstöðinni Miðbergi í Breið-
holti á föstudaginn þar sem reykvískir
rapparar af yngstu kynslóðinni komu
saman og sýndu hvað í þeim býr.
DV-MYND EINAR J.
Umvafinn jólakveðjum
Þorri Hringsson, sonur Hrings Jó-
hannessonar listmálara, fyrir framan
nokkur jólakort sem faðir hans
teiknaði á sínum tíma.
Jólakort Hrings:
Með jóla-
kveðju
Það er gamall og góður siður að
senda jólakort og víst að margir
sitja um þessar mundir með sveitt-
an skallann við jólakortaskrif.
Hringur Jóhannesson listmálari
hafði þann sið um áratugaskeið að
teikna persónuleg jólakort sem
hann sendi vinum og vandamönn-
um. Um helgina var opnuð sýning á
hluta þessara korta í Listasafni ASÍ,
Ásmundarsal, en það er Þorri, son-
ur Hrings, sem stendur að sýning-
unni. Sjálfur hefur Þorri fetað í fót-
spor föðurins í jólakortagerð og eru
nokkur kort eftir hann einnig til
sýnis á neðri hæð safnsins.