Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Page 26
42
>
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára
Ingólfur Þ. Sæmundsson,
Víkurbraut 6, Vik.
Stefán Þorleifsson,
Hofi, Neskaupstaö.
80 ára____________________________
Guðfinna Eyvindardóttir,
Strembugötu 19, Vestmannaeyjum.
75 ára____________________________
Else V.A. Proppé,
Kirkjuteigi 33, Reykjavík.
Guömundur 0. Júlíusson,
Holtageröi 52, Kópavogi.
Ólafur Bergsteinsson,
Skeljagranda 7, Reykjavík.
Sigríður Stefánsdóttir,
Eyjahrauni 2, Vestmannaeyjum.
Soffía Björgvinsdóttir,
Hamarsgeröi 6, Reykjavík.
70 ára____________________________
Birgir Sigurösson,
Suöurvangi 17, Hafnarfiröi.
60 ára____________________________
Bjarni Árnason,
Litla-Sandfelli, Egilsstööum.
Hallur Jóhannesson,
Eskihlíö 14a, Reykjavík.
Jón S. Traustason,
Miöstræti 30, Vestmannaeyjum.
Soffía Pétursdóttir,
Finnmörk, Hvammstanga.
Þórða Berg Óskarsdóttir,
Fossheiði 24, Selfossi.
50 ára____________________________
Anton Örn Guðmundsson,
Víöigrund 3, Kópavogi.
Árnheiöur Guðnadóttir,
Garðbraut 22, Garði.
Matthías Konstantin Annisius,
Ásgarðsvegi 21, Húsavík.
Ólafur Ingimundarson,
Höföagötu 13, Hólmavík.
Rósa Hrönn Hrafnsdóttir,
Ljósheimum 8, Reykjavík.
Sigurður Ásgrímsson,
Látraströnd 34, Seltjarnarnesi.
Þórunn Ástrós Siguröardóttir,
Höföabrekku 23, Húsavík.
40 ára____________________________
Fanney Særún Benediktsdóttir,
Eyrarlandsvegi 22, Akureyri.
Guðlaugur Elís Jónsson,
Vallarbraut 17, Akranesi.
Guðný Freyja Pálmadóttir,
Miðvangi 10, Hafnarfirði.
Guðráður Jóhann Sigurjónsson,
Lindasmára 8, Kópavogi.
Kolbeinn Sigmundsson,
Rituhöfða 13, Mosfellsbæ.
Kristín Ragnarsdóttir,
Frostafold 39, Reykjavík.
Lára Guðrún Gunnarsdóttir,
Njörvasundi 27, Reykjavík.
Magnús Ásgeir Magnússon,
Svæöi, Dalvík.
Marta Þuríður Pálsdóttir,
Byggöavegi 124, Akureyri.
Ragnhildur Mosel Goethe,
Grettisgötu 35, Reykjavík.
Védís Húnbogadóttir,
Aflagranda 36, Reykjavík.
Aðventu-leiðískrossar
12V - 34V
Sent í póstkröfu, sími 898 3206
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Svsrrlr Einantson Bryndts
útfararstjóri Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suóurhliö35* Sími 581 3300
allan sólarhringinn. www.utforin.ís
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
DV
mamsmmm
Sigurður Pálsson
skald og rithöfundur
Sigurður Pálsson skáld hefur sent
frá sér sína elleftu ljóðabók, Ljóð-
tímaleit, en hún er jafnframt önnur
ljóðabók hans í trilógiunni um tim-
ann. Þetta kom fram í viðtali við
Sigurð í helgarblaði DV.
Starfsferill
Sigurður fæddist að Skinnastað í
Norður-Þingeyjarsýslu 30.7. 1948 og
ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1967, stundaði frönsku-
nám í Toulouse og París 1967-68,
nám í leikhúsfræðum og bókmennt-
um í Sorbonne 1968-73 og lauk það-
an DUEL-prófi og fyrri hluta mat-
rise-gráðu í leikhúsfræðum, stund-
aði þar nám 1978-82 og lauk þaðan
matrise-gráðu og fyrri hluta dokt-
orsgráðu, var jafnframt við nám í
kvikmyndaleikstjórn við
Conservatoire Libre du Cinéma
Francais og lauk þaðan lokaprófi.
Sigurður kenndi við Leiklistar-
skóla íslands frá stofnun 1975-78 og
hefur m.a. verið fréttaritari, leið-
sögumaður og háskólakennari. Þá
hefur hann starfað við sjónvarp og
kvikmyndir en lengst af hefur hann
stundað ritstörf og þýðingar. Ljóða-
bækur Sigurðar eru Ljóð vega salt,
útg. 1975; Ljóð vega menn, 1980;
Ljóð vega gerð, 1982; Ljóð námu
land, 1985; Ljóð námu menn, 1988;
Ljóð námu völd, 1990; Ljóðlínudans,
1993; Ljóðlínuskip, 1995; Ljóðvega-
safn (fyrstu þrjár bækumar saman),
1996; Ljóðlínuspil, 1997; Ljóðatima-
skyn 1999.
Leikrit Sigurðar sem hafa verið
sviðsett eru Hvað er í kokinu á
hvalnum, barnaleikrit, 1975; Undir
suðvesturhimni, 1976; Hlaupvídd
sex, 1977; Miðjarðarfor (eða innan'
og utan við þröskuldinn) 1983; Hús-
ið á hæðinni (eða hring eftir hring)
1986; Hótel Þingvellir, 1990; Völund-
arhús, 1997; Einhver í dyrunum,
2000. Þá hafa komið út eftir Sigurð,
skáldsögumar Parísarhjól, 1998, og
Blár þríhyrningur, 2000.
Sigurður samdi sjónvarpshand-
ritið Nóttin, já nóttin, 1989; einþátt-
unginn Dvínandi rödd, 1991; út-
varpsleikritið Klukknahringingu,
1996, og óperutextann Tunglskins-
eyjuna við tónlist Atla Heimis
Sveinssonar, 1995. Þá hefur hann
þýtt sextán verk úr frönsku og tvö
úr ensku, skáldsögur, ljóð, leikrit og
ritgerðir. Hann leikstýrði sjón-
varpsmyndunum Líkamlegt sam-
band í Norðurbænum; Bleikar
slaufur, og Nóttin, já nóttin, leik-
stýrði i leikhúsi verkunum Jakob
og meistarinn, hjá Stúdentaleikhús-
inu, 1984, Piaf, hjá LA, 1985, og Dídó
og Aeneas, hjá íslensku hljómsveit-
inni, 1990, og framleitt tvær kvik-
myndir í fullri lengd, Á hjara ver-
aldar og Svo á jörðu sem á himni.
Sigurður var forseti Alliance
Frangaise 1976-78 og formaður Rit-
höfundasambands íslands 1984-88.
Hann var útnefndur Chevalier de
la Ordre des Arts et des Lettres af
menningarmálaráðherra Frakk-
lands 1989 og hlaut bókmenntaverð-
laun RÚV 1999 og menningarverð-
laun SPRON 2000.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 26.6. 1987
Kristínu Jóhannesdóttur, f. 17.11.
1948, kvikmyndaleikstjóra. Hún er
dóttir Jóhannesar Elíassonar, f.
19.5. 1920, d. 17.3. 1974, bankastjóra,
og k.h., Sigurbjargar Þorvaldsdótt-
ur, f. 8.10.1918, húsmóður.
Sonur Sigurðar og Kristínar er
Jóhannes Páll, f. 20.3. 1987, nemi.
Systkini Sigurðar eru Hanna Jó-
hanna Katrín, f. 10.2.1933, fyrrv. að-
alféhiröir; Stefán, f. 7.12.1934, fyrrv.
bankastjóri við Búnaðarbankann;
Þorleifur, f. 17.6. 1938, sýslumaður í
Kópavogi; Amór Lárus, f. 21.4. 1943,
forstjóri, búsettur í Kópavogi.
Foreldrar Sigurðar voru Páll Þor-
leifsson, f. 23.8. 1898, d. 19.8. 1974,
prófastur að Skinnastað, og k.h.,
Guðrún Elísabet Arnórsdóttir, f.
22.12. 1905, d. 18.11. 1983, húsfreyja.
Ætt
Páll var bróðir Þorbergs, alþm. í
Hólum, og Jóns listmálara. Páll var
sonur Þorleifs, alþm. í Hólum, Jóns-
sonar, hreppstj. þar, Jónssonar, pr.
á Hofi, Bergssonar. Móðir Þorleifs
alþm. var Þórunn Þorleifsdóttir,
systir Benedikts á Hala, afa meist-
ara Þórbergs Þórðarsonar.
Móðir Páls var Sigurborg Sigurð-
ardóttir, í Krossbæjargerði, Þórar-
inssonar.
Elísabet er systir Lárusar, pr. í
Miklabæ, föður séra Ragnars Fjal-
ars, og Stefáns, pr. í Odda. Elísabet
er dóttir Arnórs, pr. á Hesti í Borg-
arfirði, bróður Þórarins B„ fyrsta
lærða íslenska listmálarans, og
bróður Þorláks, foður Jóns forsætis-
ráðherra og Bjargar, fyrsta islenska
kvendoktorsins Þorláksbarna, en
bók um hana er nýútkomin eftir
Sigríðu Dúnu Kristmundsdóttur.
Amór var sonur Þorláks, pr. á Und-
irfelli í Vatnsdal, Stefánssonar og
Sigurbjargar, systur Guðrúnar,
ömmu Sveins Björnssonar forseta,
og systur Þórunnar, langömmu Jó-
hanns Hafsteins forsætisráöherra,
föður Péturs hæstaréttardómara.
Sigurbjörg var dóttir Jóns, prófasts
í Steinnesi, Péturssonar. Móöir El-
isabetar var Guörún Elísabet Jóns-
dóttir, b. í Neðra-Nesi, Stefánssonar,
prófasts í Stafholti, bróöur Þuríðar,
langömmu Vigdísar Finnbogadótt-
ur. Önnur systir Stefáns var Sigríð-
ur, móöir Kristínar, langömmu
Matthíasar Johannessens. Hálfsyst-
ir Stefáns var Rannveig, langamma
Þórunnar, móður Gylfa Þ. Gíslason-
ar, fyrrv. menntamálaráðherra, foð-
ur Þorsteins, heimspekings og
skálds. Stefán var sonur Þorvalds,
prófasts i Holti, Böðvarssonar, pr. í
Holtaþingum, Presta-Högnasonar,
Sigurðssonar. Móöir Guðrúnar El-
ísabetar var Marta Stephensen,
systir Hans Stephensens, afa Þor-
steins Ö. Stephensens leikara. Syst-
ir Mörtu var Sigríður, amma Helga
Hálfdánarsonar og langamma Hann-
esar Péturssonar skálds. Marta var
dóttir Stefáns Stephensens, pr. á
Reynivöllum, Stefánssonar Stephen-
sens, amtmanns á Hvítárvöllum,
Ólafssonar, ættfööur Stephensen-
sættar, Stefánssonar.
Sigurður Árnason
frjótæknir í Fellabæ
Sigurður Árnason frjótæknir,
Lagarfelli 13, Fellabæ, er sextugur í
dag.
Starfsferíll
Sigurður fæddist í Birkihlíð í
Skriðdal og ólst þar upp til sjö ára
aldurs. Þá flutti fjölskyldan að Há-
túni í sömu sveit þar sem hún bjó
1947-61 er hún flutti að Litla-Sand-
felli í Skriðdal. Hann ólst upp við al-
menn sveitastörf á þessum bæjum.
Sigurður stundaði nám við
Bændaskólann á Hvanneyri frá 1958
og lauk þaðan búfræðiprófi 1960.
Sigurður vann í vegagerð á Aust-
fjörðum 1958-69, fyrst með námi og
síðan í fullri sumarvinnu, en vann
við búskapinn hjá foreldrum sinum,
auk þess sem hann stundaði sjálfur
búskap um það leyti.
Sigurður flutti í Fellabæ 1969. Þá
hóf hann störf sem frjótæknir og
hefur stundað það síðan.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 3.12. 1966 Sig-
varðínu Guðmundsdóttur, f. 10.3.
1942, húsmóður og ræstitækni. Hún
er dóttir Guðmundar Halldórssonar
og Kristborgar Jónsdóttur en þau
eru bæði látin.
Börn Sigurðar og Sigvarðínu eru
Árný, f. 8.8. 1965, búsett í Fellabæ,
en maður hennar er Jóhann Örvar
Ragnarsson og eru synir þeirra
Ingólfur, Björgvin og Svanur Freyr;
Fjóla, f. 3.8. 1968, búsett í Fellabæ,
en maður hennar er Ólafur Gauti
Sigurösson og eru böm þeirra Birk-
ir Dan og Kristín Rún; Guðmundur,
f. 6.5. 1978, búsettur í Reykjavik, en
kona hans er Fjóla Rún Jónsdóttir.
Systkini Sigurðar: Bjarni, f. 3.12.
1941, búsettur í Litla-Sandfelli i
Skriðdal; Einar Birkir, f. 17.2. 1947,
búsettur á Egilsstöðum; Sigurbjörn,
f. 7.2. 1954, búsettur í Þingmúla í
Skriðdal.
Foreldrar Sigurðar: Ámi Bjama-
son, f. 7.8. 1915, og Ragnheiður Ein-
arsdóttir, f. 27.9. 1922. Þau bjuggu
lengst af á Hryggstekk í Skriðdal en
em nú til heimilis að Miðvangi 22,
Egilsstöðum.
Ætt
Árni er sonur Bjarna Björnsson-
ar, b. að Borg í Skriðdal, og k.h.,
Kristínar Ámadóttur húsfreyju.
Ragnheiður er dóttir Einars
Björgvins Björnssonar, b. í Eyjum í
Breiðdal, og k.h., Katrínar Einars-
dóttur húsfreyju.
Sigurður verður að heiman á
afmælisdaginn.
Merkir Islendingar
Gxmnlaugur Valgardsson Claessen yfir-
læknir fæddist á Sauðárkróki 3. desem-
ber 1881. Hann var sonur Jean Valgards
van Deurs Claessens sem var verslunar-
stjóri á Hofsósi, kaupmaður á Sauðár-
króki og síðar landsféhirðir í Reykja-
vík. Móðir Gunnlaugs var Kristín
Eggertsdóttir Claessen, f. Briem. Meðal
systkina Gunnlaugs voru Eggert Claes-
sen, lögmaður, bankastjóri og stjómar-
formaður Eimskip, faðir Kristínar,
konu Guðmundar Benediktssonar,
fyrrv. ráðuneytisstjóra; Ingibjörg, kona
Jóns Þorlákssonar forsætisráöherra og
María Kristín, móðir^mjj^j^ Thorodd-
sens forsætisráðhff^Kristín Briem var
dóttir Eggerts Briems, sýslumanns á Reynistað,
Gunnlaugur Claessen
bróður Ólafs Briem, fóður Haralds, langafa
Davíðs Oddssonar forsætisráðherra.
Gunnlaugur lauk stúdentsprófl frá
Lærða skólanum 1901, embættisprófi í
læknisfræði frá Hafnarháskóla 1910, dr.
med.-prófi frá Karolinska Institutet í
Stokkhólmi 1928 og var viðurkenndur
sérfræðingur í geislalækningum af
Læknafélagi íslands 1923.
Gunnlaugur var brautryðjandi í
geislalækningum og röntgentækni hér
á landi, merkur vísindamaður á því
sviöi og kennari í röntgen- og ljóslækn-
ingum. Hann var forstöðumaður Röntgen-
stofnunar HÍ frá 1914 og radíumlækninga
frá 1919 og yfirlæknir á röntgendeild Land-
spítalans frá 1931. Hann lést 23. júli 1948.
Jarðarfarir
Marta Maria Þorbjarnardóttir, áður að
Grettisgötu 19, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni I Reykjavík
mánud. 3.12. kl. 13.30.
Guðmundur Sæmundsson, Miðgarði 2,
Egilsstöðum, verður jarðsunginn frá
Egilsstaöakirkju mánud. 3.12. kl.
14.00.
Kristín Erlendsdóttir, Kópavogsbraut
5-7, Kópavogi, veröur jarðsungin frá
Kópavogskirkju þriðjud. 4.12. kl. 10.30.
Páll Sigurjónsson múrarameistari,
Framnesvegi 55, Reykjavík, veröur
jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjud.
4.12. kl. 13.30.
Sesselja Aðaisteinsdóttir (Daddý),
Asparfelli 12, veröur jarösungin frá
Bústaöakirkju þriðjud. 4.12. kl. 13.30.
1