Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Síða 32
3
*
Aðeins kr. 1.050.00C
Nissan Almera
bílaleigubílar
skráðir 06/00
.UMKKA
9F'i’Sáevarhöfða 2-112 Reykjaylk
r
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001
Jt
i Wt
Boð í SL:
Tilboðið
rennur út á
hádegi
Ragnar H.
Hall.
Tilboð sem Islenskar ævintýraferð-
ir hf. og Heimsferðir lif. hafa gert i
þrotabú Samvinnuferða- Landsýnar
rennur út klukkan tólf á hádegi í dag.
„Það kemur í ljós
fyrir hádegi hvort
þessu tilboði verð-
ur tekið,“ sagði
Ragnar H. Hall
skiptastjóri í sam-
tali við DV í gær-
kvöld. Amgrímur
Hermannsson,
stjórnarformaður
íslenskra ævin-
týraferða, vildi
ekki tjá sig um til-
boðið þegar DV
leitaði eftir þvi í
gær. Fyrirtæki
hans sérhæfir sig
í innanlandsferð-
um en Heimsferð-
ir bjóða utan-
landsferðir.
„Ég hef ekki
sett mér nein
tímamörk i þeirri
vinnu sem nú stendur," sagði Ragnar
H. Hall. Hann sagðist hafa átt samtöl
við fleiri aðila, einkum á sviði ferða-
þjónustu, sem sýnt hefðu þrotabúinu
og kaupum á eignum þess áhuga.
Formleg tilboð hefðu hins vegar ekki
borist. Um sölu á eignum þrotabúsins
að öðru leyti sagði Ragnar að við-
leitni sín gengi út á að selja eignir
þess í sem stærstum einingum. -sbs
Arngrímur
Hermannsson.
■( *
VONANDI ERU ALLIR
MED RÉTTU RÁOI!
Smáralind
DV-MYND PJETUR
Greinar trjánna viö Kringlumýrarbraut svignuðu undan snjóþunganum í gær.
Konan á myndinni lét sér hins vegar fátt um finnast þar sem hún óö nýfallna mjöllina. Ekki eru líkur á því aö trén þurfi aö taka á sig meiri þunga á næstunni
því ekki er spáö mikilli ofankomu á höfuöborgarsvæöinu næstu daga.
Metro-vél frá Flugfélagi íslands á Höfn:
Snerist í lendingu og
fór út af brautinni
- sjokkið kom eftir á, segir farþegi
Snerist og fór út af
Metróflugvél eins og sú sem snerist og endaöi fyrir utan flugbrautina á Höfn í
Hornafíröi. Flugvirkjar fara við fyrsta tækifæri austur til aö kanna skemmdir á vélinni.
Metro-vél frá Flugfélagi
Islands snerist í lendingu á
Hornafjarðarflugvelli um
sexleytið seinnipartinn í
gær með þeim afleiðingum
að hún rann út af flugbraut-
inni. í frétt á vefsíðu Flugfé-
lagsins kemur fram að mik-
il hálka hafi verið á svæð-
inu þegar óhappið átti sér
stað. Þegar bremsað var eft-
ir lendingu byrjaði vélin að
snúast og rann hún síðan út
fyrir brautina.
Um borð voru nítján far-
þegar og tveir flugmenn.
Ragnhildur Jónsdóttir, íbúi
á Höfn, var ein farþeganna
og segir hún að lendingin
hafi verið í lagi en síðan
hafi vélin snúist og lent út af.
„Við sáum það ekki fyrr en við
komum út úr vélinni hversu heppin
við vorum,“ segir Ragnhildur en
engin slys urðu á fólki við óhappið.
Hún segir að enginn hafi kastast til
og að þetta hafi tekið fljótt af.
„Sjokkið kom eiginlega ekki fyrr en
í flugstöðina var komið."
Einhverjar skemmdir eru á vél-
inni eftir atvikið þar sem skrúfu-
blöð virðast hafa rekist niður þegar
vélin rann út fyrir brautina. Rann-
sókn á atvikinu mun fara fram og
munu flugvirkjar fara til Horna-
fjarðar við fyrsta tækifæri til að
kanna skemmdir á vélinni.
-MA
Óvenjumikil
snjókoma
Snjó hefur kyngt niður á höfuðborg-
arsvæðinu um helgina. Hjá veðurstof-
unni fengust upplýsingar um að úr-
komulítið yrði á
landinu næstu
daga. Búist er við
éljum seinni part
vikunnar.
í gær var floti
vinnuvéla við
mokstur á götum
borgarinnar og
voru flestallar göt-
ur opnar. í gær-
kvöld voru menn á
fúllu að undirbúa mokstur dagsins í
dag. „Við byrjum mokstur klukkan flög-
ur í fyrramálið en þá fer okkar eigin
bilafloti af stað,“ sagði Sigurður Skarp-
héðinsson, gatnamálastjóri í Reykjavík,
í gærkvöld. „Milli klukkan sjö og átta
bætast svo við leigutæki þannig að við
verðum með geysilegan flota við störf.“
Sigurður segir að um óvenjumikla
snjókomu hafi verið að ræða í Reykja-
vík á skömmum tíma. „Þetta er þó
ástand sem maður hefúr séð áður. Það
er ekkert neyðarástand í borginni."
Þegar slík snjókoma verður hefst
mikil törn hjá stjómendum vélanna og
aðspurður segir Sigurður það vera
beggja blands hvort þeir gleðjist yflr
allri aukavinnunni. „Þetta er heiimikil
vinna sem fylgir þessu og skiptar skoð-
anir um hana.“ -ÓSB
Siguröur
Skarphéöinsson.
Ríkisf j ármálar áð:
Niðurskurður kynntur í dag
- eða á morgun. Furidað var um helgina
Formenn og varaformenn stjórn-
arflokkanna, hið svonefnda ríkis-
fjármálaráð, fundaði um helgina og
fór yfir þá stöðu sem nú er uppi í
ríkisfjármálunum. Sem kunnugt er
liggur fyrir að skera þurfi niður
stórlega í ríkisútgjöldum og hefur
talan 3,5 milljarðar kr. verið nefnd í
því sambandi. Samkvæmt heimild-
um blaðsins má búast við að fyrir
liggi í dag eða á morgun hvar niður-
skurðarhnifnum verði beitt.
í DV á laugardag vildi Geir H.
Haarde fjármálaráðherra ekki stað-
festa neinar tölur í sambandi við
Geir H. Hjálmar
Haarde. Árnason.
niðurskurð, sagði aðeins að nauð-
synlegt væri að bregðast viö breytt-
um aðstæðum í ríkisbúskapnum.
Frestun feðraorlofs er ein þeirra
sparnaðarhugmynda sem ræddar
hafa verið en líklegt þykir að ekki
verði af því.
„Það eru allir sammála um að
skera þurfi niður, menn eru sam-
mála um meginmarkmiðin. Aftur á
móti er ágreiningur innan og milli
stjórnarflokkanna um hvar niður-
skurðurinn eigi að koma til. Það fer
bæði eftir áhugasviði þingmanna -
og ekki síður kjördæmahagsmun-
um,“ sagði Hjálmar Árnason, þing-
maður Framsóknarflokks, í samtali
við DV. -sbs
Utiljós
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800
JÓLAKORTfDAGATÖL OG LJÓSMYNDAB
asrríM/ i nai
OPIÐ HÚS FRÁ 12 • 16 Á LAUGARDÖGUM í NÓV-DE
WWW.NYJARVIDDIR.IS LAUGARNESVEGI 11
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i