Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2002, Qupperneq 21
finni og ævintýrum hans, Smæiksins, Drullumalla, Vitringsins og aö sjálfsögðu Barnsins. Skemmtileg sýning fyrir alla fjöl- skylduna. ■ CYRANO - SKOPLEGUR HETJULEIKUR Hann býr yfir leiftrandi gáfum, er talandi skáld og vígfimastur allra í París. Hann er hetja sem ekkert fær stöövað nema nefið. Þetta risastóra nef sem meinar honum að ná ástum hinnar fögru Roxönnu. Stórkost- leg ástar- og hetjusaga frá sautjándu öld þar sem rómantíkin, húmorinn og snilldin fá að njóta sín. Sýningin hefst í kvöld kl. 20 en sýnt er á stóra sviði Þjóðleikhússlns og með aöalhlutverk fer Stefán Karl Stefáns- son. ■ FJANDMAÐUR FÓLKSINS í kvöld sýnir Borgarleikhúsið leikritið Fjandmaður fólks- ins eftir Henrik Ibsen. Leikritið hefur fengið góðar viðtökur áhorfenda en sýnt er á stóra sviðinu og hefst sýningin kl. 20. Læknirinn Tómas Stockmann stendur einn gegn sam- félaginu þegar hann gerir uppgötvun sem setur væntanlegar stórframkvæmdir bæjar- ins í uppnám. Hvers virði er sannleikurinn gegn auðsóttum gróða? Hversu langt erum við tilbúin að ganga í baráttunni fyrir rétt- læti? Hvenær eru hagsmunir samfélagsins mikilvægari en tjáningarfrelsið? Kraftmikið, áleitið og hápólitískt verk. ■ KARÍUS OC BAKTUS í dag sýnir Þjóðleik- húsið hið margþekkta barnaleikrit Karíus og Baktus eftir Thorbjörn Egner. Sýningar dagsins hefjast kl. 14, 15 og 16 en sýnt er á Smíðaverkstæðinu. • K abarett ■ BARÞJÓNAKEPPNI 00 VÖRUSÝNING Sýningin Vin og drykkir 2002 og íslands- meistaramót barþjóna fer fram í Perlunni í dag og á morgun. í dag verður opið frá kl. 14 til 18 og á morgun frá kl. 16 til 20. ís- landsmót barþjóna hefst kl. 15 í dag og þar verður keppt í Longdrinks-gerð. islands- meistari verður krýndur f kvöldverðarhófi eft- ir keppnina. Hann keppir fyrir íslands hönd á heimsmeistaramóti barþjóna sem fram fer í Blend í Slóveníu í október næstkomandi. Sýnendur á sýningunni eru Ölgerðin Egill Skallagrímsson, Austurbakki, Karl K. Karls- son, Globus, Allied Domecq, Lind, Rolf Jo- hansen & Co, Elgur hf., Rafkóp-Samvirki, og gestir frá hinum ýmsu víngerðarhúsum munu kynna vörur þeirra. •Síöustu forvöö ■ EVA KOCH í BUK Sýningu í GUK á verk- um eftir dönsku listakonuna Evu Koch lýkur í dag en þá verður opið milli klukkan 4 og 6 að staðartíma. Móðir Evu er fædd í litlu þorpi á Spáni. Fjölskylda hennar sundraðist í borgarastríðinu á fjórða áratugnum og kom síðan saman aftur mörgum árum síðar. í videoverkunum sem hún sýnir í GUK eru at- burðir í lífi fjölskyldunnar frá Villar del Cobo tengdir við þrjá aðra staði I Evrópu þar sem sambærilegir hlutir gerast alla daga. Á Sel- fossi er einnig hægt að skoða DVD-disk sem Eva hefur gert um sama efni. Þar eru viötöl við móður Evu sem var alin upp í Nor- egi og systkini hennar á Spáni.Hægt er að sjá myndir frá sýningunni á http://www.simnet.is/guk og þar er einnig hægt aö nálgast meiri upplýsingar um Evu og verk hennar.Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. ■ GRAFÍVERK í GALLERÍ GEYSI Það er síðasti séns í dag að kíkja á sýninguna“4“ en þar eru sýnd grafikverk eftir:Arngrím Borgþórsson, Önnu Á. Brynjólfsdótt- ur.Hrafnhildi Heiðu Gunnlaugsdóttur og Ólöfu Dómhildi Jóhannsdóttur. Sýnendurnir eru allir listnemar og eru að Ijúka námi á myndlistarbraut viðFjölbrautaskólann í Breiðholti. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 9 til 20 og um helgar frá kl. 14 til 18. ■ GUÐMUNDUR R. í HAFNARHÚSINU Sýn ingu Guðmundar R. Lúðvíkssonar Ý' Beggja skauta byr“ í Listasafni Reykjavíkur, Hafn- arhúsi. Leiðsögn verður um sýninguna kl. 16 og einnig um aðrar sýningar Hafnarhúss- t ins, Bernd Koberling og Erró. Verk Guð- mundar hafa verið mótuð af náttúruöflunum bæði norðanlands og sunnan. Guðmundur hefur um langt skeið unnið við gerð svo- nefndra veðurteikninga, þar sem vindurinn hefur ráðið sköpunarferlinu við listaverkin, og listamaöurinn alfarið lotið vilja hans um endanlega útkomu verkanna. Þannig fær náttúran að tjá sig meö beinum hætti í lista- verkinu, og listamaðurinn verður þjónn hennar fremur en túlkandi. • B í ó ■ KYNNING Á KVIKMYNDASKÓLANUM Kvikmyndaskólinn mun kynna starfsemi sína á efri hæð Gauksins í kvöld og hefjast herlegheitin kl. 19. Sýndar verða verkefni útskrifaðra nemenda á tveimur tjöldum, bæði lokaverkefni sem og önnur verkefni. Það er frítt inn á þessa sýningu, þar sem tölvubúnaður og tökuvélar verða einnig kynntar. ■ DAUÐASTRÍÐIÐ í BÍÓSAL MÍR Kvik myndin Dauöastríöiö verður sýnd í bíósal MlR, Vatnssttg 10. í myndinni er fjallað um Georgíj Raspútin, rússneska bóndann og farandpredikarann sem komst til ótrúlegra mikilla áhrifa hjá rússnesku keisarafjöl- skýldunni og hiröinni á árunum frá 1907 til 1916, en i desember það ár var hann ráð- inn af dögum fyrir atbeina hóps úr yfirstétt- inni. Kvikmyndin var fullgerð á árinu 1975 en ekki sýnd í Rússlandi fyrr en nokkrum árum siðar. íslenskur texti, ókeypis að- gangur. ■ HARRY POTTER í EGILSBÚÐ Stórmyndin Harry Potter og viskusteinninn er sýnd kl. 17 og 21 í Egilsbúð, Neskaupstað. ■ OCEANVS ELEVEN í RAFEIND Stór myndin OceanYs Eleven er sýnd í Rafeind kl. 20. ■ SKÓLALÍF í RAFEIND Teiknimyndin Skólalíf er sýnd í Rafeind kl. 18. • K rár ■ BINGÓ Á KAUPFÉLAGINU Það er tilvalið að styrkja gott málefni i kvöld og skella sér á bingó á Kaupfélaginu. Allur ágóöi bingós- ins rennur til langveikra barna. Frábærir vinningar I boði frá verslunum og fyrirtækj- um í miðbænum. Hingað til hafa bingókvöld- in heppnast mjög vel og færri komist að en vilja. Því er um að gera að mæta tímanlega og tryggja sér sæti. Bingóið hefst stundvís- lega á slaginu kl. 9. • K1a s s í k ■ MYRKIR MÚSÍKDAGAR Strengjakvar- tettstónleikar eru haldnir í Salnum, Kópa- vogi, kl. 20 sem partur af tónleikaröðinni Myrkum músíkdögum. Á efniskrá eru verk eftir Eirík Árna Sigtryggsson, Þórð Magnús- son, Snorra Sigfús Birgisson og Judith Weir. Flytjendur eru Sigrún Eðvaldsdóttir, fiöla. Zbigniew Dubik, fiöla, Helga Þórarins- dóttir, víóla, og Bryndís Halla Gylfadóttir, selló. • K a b a r e 11 ■ FRANSKT KVÖLD MEÐ LJÓÐ OG TÓN- LIST i Listaklúbbnum í Leikhúskjallaranum verður samfléttuðdagskrá með Ijóðum og tónlist frá Frakklandi.Guðrún S. Birgisdóttir flautuleikari og Elísabet Waage hörpuleikari flytjatónlist eftir Georges Bizet, Marcel To- urnier, Maurice Ravel, Claude Debus- sy.Gabriel Fauré og Jacques Ibert.Jóhann Sigurðarson leikari les við undirleik Guðrún- ar og Elísabetar.íslenskar þýðingar á frönskum Ijóðum sem skáldiö Sigurður Pálsson hefurvalið. Ljóðin eru eftir þrjá af helstu skáldrisum Frakka, nítjándu aldar- skáldin Charles Baudelaire og Paul Verlaine og tuttugustu aldar skáldiðJaques Prévert . Þýðendur Ijóðanna eru Helgi Hálfdanarson, Jón Óskar.Sigurður Pálsson og Þorsteinn Gylfason.Dagskráin hefst kl. 20.30 en hús- ið er að venju opnað kl. 19:30 • B í ó ■ OCEANVS ELEVEN j RAFEIND Stór- myndin OceanYs Eleven er sýnd í Rafeind kl. 20. •Klassík ■ SALURINN Kl. 20 í kvöld veröur áfram- hald á Tónleikaröð kennara, Tónlistarskóla Kópavogs, í Salnum. Peter Tompkins, óbó, og Guöríður St. Sigurðardóttir, píanó, flytja efnisskrá tileinkaða ensku horni. Verk eftir Ravel, Ó. Kentish, Dubois, Hindemith, Koechlin og Donizetti. • L eik h ú s ■ ÍSLANDS ÞÚSUND TÁR í NEMENDA- LEIKHÚSINU Nemendaleikhúsiö sýnir nýtt ísienskt leikrit eftir Elísabetu Jökulsdóttur kl. 20 í kvóld. Verkið nefnist íslands þús- und tár og er sýnt í Smiðjunni við Sölvhóls- götu. í blokk í Breiðholtinu býr sama fjöl- skyldan í öllum íbúðunum, öllum bænum, öllu landinu. Saga um island í dag og alla daga. Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir, dramatúrg er Magnús Þór Þorbergsson.um leikmynd og búninga sjá Finnur Arnar Arnar- son og Þórunn Sveinsdóttir ásamt nemend- um úr Myndlistardeild Listaháskólans. Lýs- ing og tæknistjórn er f höndum Egils Ingi- bergssonar. • B í ó ■ INTIMACY Aö þessu sinni sýnir Filmund- ur frönsk/ensku myndina Intimacy sem leikstýrt er af Patrice Chéreau. Myndin vakti mikla athygli þegar hún var frumsýnd í Evr- ópu fyrir opinskáa kynlífsumfjöllun en kyn- lífsatriðin þykja á köflum vera á mörkum vel- sæmis. Hefur myndinni verið líkt við Last Tango in Paris að þessu leytinu og hafa svipaðar umræður og sögusagnir komið upp um það hvort kynlífiö sé -leikið eöa fram- kvæmt í raun og veru. Handritiö er unnið í samstarfi við breska rithöfundinn Hanif Kureishi og byggt á tveimur sögum eftir hann, skáldsögunni Intimacy og smásög- unni Nightlight úr smásagnasafninu Love in a Blue Time. Skáldsagan Intimacy er mörg- um landsmönnum að góðu kunn, en hún var gefin út hér nýlega undir nafninu Náin kynni. Unglingakvikmyndin Gemsar eftir Mikael Torfalon verður frumsýnd um næstu helgi. Fókus lætur lesendur sína þó ekki bíða svo lengi því 300 miðar eru í boði á frumsýningu á þriðjudaginn. Fokus býður á Gemsa Eins og fólk hefur kannski tekið eftir er Fókus af- skaplega gjafmildur þessa helgina. Á opnuauglýS' ingu' hér í blaðinu er að finna lítinn miða sem gæti veitt þér aðgang að frumsýningu á Gemsum næsta þriðjudagskvöld kl. 20 í Smárabíói eða í Háskólabíói klukkan 20.30. Til að komast á sýninguna þarftu að klippa miðann út og mæta í Jack & Jones í Kringl- unni, Smáralind eða á Laugavegi. Eins og alltaf eru það þeir fyrstu sem mæta sem fá miða. Nánari upp- lýsingar er annars að finna á auglýsingunni. Á sýningunni verða leikararnir í myndinni að sjálfsögðu mættir, sem og leikstjórinn, aðrir aðstand- endur og auðvitað eitthvað af tónlistarmönnunum sem eiga lag í myndinni. Meðal annars mætir hin mjög svo ferska rappsveit, Skytturnar, frá Akureyri og er aldrei að vita nema strákarnir taki lagið. Þess ber að geta að aðstandendurnir verða viðstaddir báðar sýningarnar - þeir verða einfaldlega fluttir á milli. Á miðvikudeginum verður svo myndin sýnd á Ak- ureyri og þar verða Skyttumar einnig viðstaddar. Gemsar fara svo í almennar sýningar frá og með næstu helgi. Guðlaugur Karlsson er ein skemmtilegasta týpan f Gemsum eins og lesendur Fókuss fengu að kynn- ast f sfðasta blaði. C. Meö aðalhlutverk fara Mark Rylance og Kerry Fox, sem vann til verðlauna á kvik- myndahátíðlnni í Berlín fyrir leik sinn. Þar vann leikstjórinn Patrica Chéreau einnig Gullbjörninn og einnig má geta þess aö Intimacy var tilnefnd til Evrópsku kvikmynda- verðlaunanna sem besta myndin. Sýning á myndinni er í kvöld kl. 22.30. j mi9V<kudagw| 111 I 11 30/1 •Krár ■ NUDP Á KAUPFÉLAGINU Miövikudags- kvöldin eru rólegheitakvöld á Kaupfélag- inu. Þá er spiluö notaleg tónlist og frá kl. 21.30 gengur nuddari á milli gesta og býð- ur þeim axlarnudd þeim að kostnaðar- lausu. •Lgikhús ■ FYRST ER AÐ FÆÐAST Leikritiö Fyrst þarf nú að fæðast (Fprst bli’r man jo fpdt) fjallar um Axel sem var að skilja við Dúllu, því hann bæöi elskar hana og elskar hana ekki. Sissa hefur þann undarlega galla að þola ekki að sjá laufið falla af trjánum og fólk yfirgefa hvað annað og getur ekki stillt sig um að spyrja hvers vegna, en systur hennar, sem kallast Pissa, finnst hún of svartsýn. Viktor er mígrenisjúkling- ur sem fær gjarna köst ef fólk talar of mik- ið en Volgeir reynir að sjá samhengi hlut- anna. Sama hvaö minnimáttarkennd og óhagstæðu útliti líöur, dreymir alla um að finna þann sem getur gægst inn í sál þeir- ra. Verkiö er sýnt á Nýja sviði Borgarleik- hússins og hefst sýningin kl. 20. • L eik h ú s ■ BOÐORÐIN 9 í kvóld sýnir Borgarleik- húsið leikritiö Boðorðin 9 eftir Ólaf Hauk Símonarson. Söngur, gleði, tregi, taumlaus harmur. Síglld dægurlög, óperuaríur, sígaunamúsík. Allt í einni beiskri blöndu. Leikrit um nútímafólk í kröppum dansi. Leik- stjóri verksins er Viðar Eggertsson en sýn- ingin hefst klukkan 20. ■ HVER ER HRÆDDUR VIÐ VIRGINÍU WOOLF? í kvöld sýnir Þjóðleikhúsið hið magnaða leikverk Hver er hræddur viö Virg- iníu Woolf? Martha og George bjóða ungum hjónum í „eftirpartí" við upphaf háskólaárs- ins, en eftir því sem líður á nóttina veröur Ijóst að hér er ekki um neitt venjulegt heim- boð að ræða. Magnþrungið verk um grimmi- leg átök, eitt frægasta leikrit tuttugustu ald- arinnar í nýstárlegri uppfærslu. Höfundur verksins er Edward Albee en sýningin í kvöld hefst kl. 20. ■ MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI i kvöld sýnir Þjóöleikhúsiö verkið Með fulla vasa af grjóti eftir Marie Jones. Leikendur eru Stef- án Karl Stefánsson og Hilmir Snær Guðna- son en leikritið er nýtt írskt verðlaunaleikrit sem nú fer sigurför um leikhúsheiminn. Verkið var frumsýnt á Smíðaverkstæðinu 30. desember 2000 og hefur fengið frábær- ar viðtökur. Verkið fjallar um tvo írska ná- unga sem taka að sér að leika i alþjóðlegri stórmynd. Fjölskrúöugar persónur verksins eru allar leiknar af tveimur leikurum; kvik- myndaleikstjórinn, Hollywoodstjarnan, þorpsbúarnir og allir aðrir. Sýningin hefst í kvöld kl. 20. • Bíó ■ KVENLEG KVIKMYNDAVEISLA i dag hefst Kvenleg kvikmyndaveisla í Háskóla- bíói. Tilgangurinn meö veislunni er að vekja athygli á kvikmyndum Islenskra kvenna og verða sýndar myndir frá síðast- liðnum 7 árum; þverskurður af því sem konur í stuttmyndabransanum eru að að- hafast um þessar mundir. Á matseðlinum eru sjö stuttmyndir eftir átta íslenskar konur - sjö afar ólíkir réttir, framreiddir af kvenlegum næmleika og innsæi. Þeirættu hver með sínu sérstaka bragöi að bráðna í munni og renna Ijúft niður kok og saman að mynda sannkallaða veislumáltíð. Engar meltingartruflanir, aöeins löngun í meira af slíku lostæti. ■ NEMENDALEIKHÚSIÐ TÁRAST Nem- endaleikhúsið sýnir nýtt íslenskt leikrit eft- ir Elísabetu Jökulsdóttur kl. 20 í kvöld. Verk- ið nefnist íslands þúsund tár og er sýnt í Smiðjunni við Sölvhólsgötu. í blokk í Breið- holtinu býr sama fjölskyldan í öllum íbúðun- um, öllum bænum, öllu landinu. Saga um ísland í dag og alla daga. Leikstjóri er Stein- unn Knútsdóttir, dramatúrg er Magnús Þór Þorbergsson.um leikmynd og búninga sjá Finnur Arnar Arnarson og Þórunn Sveins- dóttir ásamt nemendum úr Myndlistardeild Listaháskólans. Lýsing og tæknistjórn er í höndum Egils Ingibergssonar. 1000 kall inn. • S íöustu for- vöö ■ GARÐAR í LISTHÚSINU Listmálarinn Garðar Jókulsson er fæddur áriö 1935 í Reykjavík og hefur alla tíð búið á höfuðborg- arsvæöinu. Áhugi hans á myndlist, sér í lagi landslagsmálverkinu, vaknaöi snemma og hefur hann sótt flestar málverkasýningar og fylgst með þróun myndlistar frá því í kring- um 1950 eða ríflega hálfa öld. Ekki eru þó nema 17-18 ár síðan hann fór sjálfur aö mála í frístundum og er algjörlega sjálf- menntaður í þeim fræöum. Garðar sækir efnivið í landslag og náttúru íslands.Sýn- ingu Garðars í Listhúsinu Laugardal lýkur! dag. ■ ÞÓRODPUR í JL-HÚSINU Þóroddur Bjarnason lýkur sýningu sinni í Reykjavíkur- Akademínunni, á fjórðu hæð í JL-húslnu við Hringbraut. Sýningin samanstendur af Ijós- myndum, textaverki og myndbandsverki sem aðgengilegt er á Netinu á slóðinni www.kvikmynd.is/thorodduroggabrlel. í verkunum á sýningunni fjallar Þóroddur um sjálfan sig og umhverfi sittí fortíð, nútíð og framtíð. Opnunartími frá 9 til 17 allavirka daga. TONI&GUY HAIRDRESSING Laugavegi 96 Sími 511 6660 BED HEAD TIGI- ■ffM RCWELLS TiskaGæói-Betra verð 25.janúar f ó k u s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.