Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Side 12
28
MÁNUDAGUR 11. MARS 2002
Sport
Mánadarverölaun
Erla Þorsteinsdóttir, Keflavik, er
besti leikmaður 1. deildar kvenna í
febrúar að mati blaðamanna DV-Sport.
Erla skoraði 18,7 stig, tók 11,0 fráköst
og varði 3,3 skot að meðaltali í þremur
leikjum Keflavíkur í mánuðinum. Auk
þessa áttl Erla 2,7 stoðsendingar að
meðaltali í leik. Erla nýtti öll 12 víti
sín í þessum leikjum og bæði þriggja
stiga skotin sin en alls nýtti hún 50%
skota sinna.
Erla átti sinn besta leik gegn Grinda-
vík þegar 27 stig, 22 fráköst hennar
nægðu ekki Keflavík en 15 frákast
hennar í leiknum tryggðu henni aftur
á móti 1000 slík á ferlinum þar sem
hún var aðeins önnur í sögunni til að
afreka það á eftir þjálfara sínum,
Önnu Maríu Sveinsdóttur.
Aörar tilnefndar
Alda Leif Jóns-
dóttir, ÍS, skor-
aði 17,3 stig, gaf
5,8 stoðsendingar
og stal 5 boltum
að meðaltali i
íjórum leikjum
Stúdína í febrú-
ar. Alda Leif tók
auk þess 5,5 frá-
köst og varði 3 skot í leik. Alda Leif
átti sinn besta leik gegn Grindavík
þegar hún gerði átta síðustu stig leiks-
ins og geröi alls 31 stig og átti 8
stoðsendingar í leiknum.
Helga Þorvalds-
dóttir, KR, skor-
aði 13,3 stig, tók
4,5 fráköst og stal
4,5 boltum að
meðaltali i ijór-
um leikjum KR-
liðsins. Helga
nýtti 39% þriggja
stiga skota sinna
og 89% vítanna. Besti leikur Helgu var
i bikarúrslitunum gegn Njarðvík þar
sem hún skoraði 24 stig, tók 5 fráköst,
gaf 4 stoðsendingar og hitti úr 9 af 18
skotum sinum.
Guðbjörg Noró-
fjörð, KR, skor-
aði 13,3 stig, tók
6.5 fráköst og stal
3.5 boltum í fjór-
um leikjum KR.
Guðbjörg nýtti
93% víta sinna í
deildinni í febrú-
ar og leiðir deild-
ina í vítanýtingu en 28 af 30 vítum
hennar í vetur hafa ratað rétta leið
sem gerir ótrúlega 93,3% vítanýtingu.
Besti leikur Guðbjargar var í sigurleik
gegn Keflavík þar sem hún skoraði 24
stig, tók 9 fráköst og nýtti 8 af 15 skot-
um sínum þar af 3 af 4 þriggja stiga
skotum.
Anna Maria
Sveinsdóttir,
Keflavik, skor-
aði 18,0 stig og
tók 12 fráköst i
tveimur leikjum
Keflavikur. Anna
Maria nýtti i
þessum leikjum
48% skota sinna
og 83% vítanna en bestan leik átti hún
gegn ÍS þar sem hún gerði 29 stig og
tók 13 fráköst.
Gréta Maria
Grétarsdóttir,
KR, skoraði 12,8
stig, tók 6,3 frá-
köst og stal 3
boltum að meðal-
tali í 4 leikjum
með KR þar sem
hún nýtti 45%
þriggja stiga
skota sinna. Gréta María átti bestan
leik gegn Njarðvík þar sem hún skor-
aði 18 stig á aðeins 20 mínútum og
nýtti 7 af 11 skotum sínum.
Besti þjálfarinn
Keith Vassell, KR, er besti þjálfarinn
í febrúar að mati blaðamanna DV-
Sport en undir hans stjórn vann KR
alla fjóra leiki mánaðarins og fagnaði
bikarmeistaratitlinum annað árið í
röð. Keith Vassell varði þar með titil-
inn en hann fékk einnig þessi verð-
laun frá DV-Sport fyrir janúar. KR
hefur nú unnið ellefu leikí í röð i deild
og bikar undir hans stjóm og liðiö hef-
ur eflst með hveijum leik eftir að hafa
átt erfiða byrjun á mótinu.
Auk Keith Vassell voru þeir ívar Ás-
grimsson, ÍS, Einar Jóhannsson,
Njarðvik og Unndór Sigurðsson,
Grindavik tilnefhdir.
-ÓÓJ
Keith Vassell, KR, besti þjálfari 1. deildar kvenna í körfuknattleik í febrúar, og Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík, besti leikmaöurinn í febrúar. DV-mynd Hilmar
Þór
Erla Þorsteinsdóttir og Keith Vassell best í febrúar í 1. deild kvenna:
Var sagt aö hætta
á síðasta vori
- segir Erla Þorsteinsdóttir, leikmaður körfuknattleiksliðs KefLavíkur
Erla Þorsteinsdóttir var kjörin
besti leikmaður 1. deildar kvenna
í febrúar. Erla, sem hefur um ára-
bil verið einn af burðarstólpum
Keflavíkurliðsins, er vel að þess-
um titli komin. „Síðastliðið vor
hefði ég átt að hætta samkvæmt
læknisráði en ég neitaði að gefast
upp,“ sagði Erla Þorsteinsdóttir í
samtali við DV-Sport.
„Þannig er mál með vexti að ég
er með gigt sem kom út af vírus-
sjúkdómi 1997 og hann greindist
ekki fyrr en vorið 1999. Að auki
er ég búin að vera bakveik i
nokkur ár. Síðasta sumar var
mér síðan bent á Ríkharð
Jósafatsson sem er nálastungu-
læknir og ég hef verið hjá honum
í heilt ár i nuddi, hnykkingum og
nálastungum. I dag fer ég til hans
einu sinni til tvisvar í viku og
hann heldur mér gangandi. Það
má eiginlega segja að það sé hon-
um að þakka að ég er að spila í
dag, og það svona vel.“
En hvað um framhaldið, úr-
slitakeppnina, hvernig er Kefla-
víkurliðið? „Það er ungt, fjórir
reynsluboltar og svo unglinga-
flokkur. Við erum mjög gloppótt-
ar, ef við komum tilbúnar í leik-
inn þá vinnum við en annars get-
um við tapað fyrir öllum."
Hverjir verða Islandsmeistar-
ar? „Við stefnum á titilinn en svo
verðum við bara að sjá hvað set-
ur,“ sagði þessi geðþekka körfu-
knattleikskona sem varð 24 ára
síðastliðinn föstudag og er einn
af „reynsluboltunum" í kvenna-
liði Keflavíkur.
Mikill heiður fyrir mig
Keith Vassell, þjálfari 1. deildar
liðs KR í körfuknattleik kvenna,
stýrði sínu liði til sigurs í bikar-
keppninni þegar KR vann Njarð-
vík í framlengdum úrslitaleik.
Vaseell fékk þó ekki tækifæri til
að fagna með liði sínu næstu
klukkustundir þvf hann fór beint
í úrslitaleikinn í karlaflokki þar
sem KR tapaði fyrir Njarðvík.
Það voru því bæði gleði- og sorg-
artár hjá þessum snjalla þjálfara
og leikmanni laugardaginn 9.
febrúar. „Ég er ekki endilega viss
um að ég sé besti þjálfarinn í
augnablikinú en ég held að ég sé
með besta liðið sem er að spila í
dag.“ Okkur gengur mjög vel og
þetta er I rauninni ekki um mig
heldur um hve stúlkurnar leggja
hart að sér við æfingar til þess að
sigra.“
Þú áttir einstakan dag þann
9. febrúar, bikarúrslitin i
karla- og kvennaflokki?
„Það var svo erfitt, vegna þess
að ég var svo ánægður með sigur-
inn hjá stúlkunum, en á móti var
ég jafnvonsvikinn meö leikinn
hjá okkur körlunum. Við vorum
að vinna og vorum með leikinn í
okkar höndum en því miður gekk
þetta ekki upp. Hvað varðar
stúlknaliðið sem ég þjálfa þá byrj-
uðum við mótið ekki vel, sóknin
var ekki góð og þetta var ansi
erfitt um tima. En allir stóðu
saman og við reyndum aö ein-
beita okkur betur og síðan unn-
um við bikarinn sem var frábært
og mikill heiður fyrir mig,“ sagði
Keith Vassell. Nú er það úrslita-
keppnin.
„Já, ég er mjög spenntur. Sér-
staklega fyrir leikinn gegn ÍS sem
er í kvöld en sá leikur ræður úr-
slitum hvort liðið verður í fyrsta
sæti og tekur þar með deildar-
meistaratitilinn. Það er heiður
fyrir okkur að komast svona
langt og allt liðið er vel einbeitt.
Við vitum ekki fyrr en eftir leik-
inn í kvöld gegn ÍS hverjum við
mætum í úrslitakeppninni en eitt
er víst að baráttan um íslands-
meistaratitilinn verður hörð,“
sagði þjálfari 1. deildar liðs KR í
körfuknattleik kvenna en hann
var kjörinn besti þjálfari febrúar-
mánaðar hér hjá okkur á DV-
Sport.
Þaö er svo í góðu lagi að
minna á leik ÍS og KR í íþrótta-
húsi Kennaraháskólans í kvöld
klukkan 20.15 en þessi leikur
ræður úrslitum um hvort liðið
verður deildarmeistari. -vbv