Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2002, Blaðsíða 14
30 MÁNUDAGUR 11. MARS 2002 Sport DV Veiöifélagiö Lax-á hefur gefið út veglegan bækling, sem kom út fyrir skömmu. Meðal annars er viðtal við Sigurö Fjeldsted og kennir þar ýmisa grasa. Sigurður á ættir sínar að rekja til Ferjukots í Borgar- firði. Skúli Kristinsson, Bjarni Róbert Jónsson og Stefán Sigurðsson kynna Last Hope fluguhnýtingarefni, sem er að slá í gegn erlendis og hér heima, annað kvöld í Útivist og veiði. Þeir félagar ætla að kynna hrosshár, selshár, heim- skautaref og íslensku ullina. Stefán Sigurðsson var kosinn leiðsögumaður árins á árshá- tíð veiðifélags Lax-ár fyrir skömmu. Viðigerði í Víðidal hefur boðið veiðimönnum ferðir upp á Arnarvatnsheiði og það merkilega við þessar ferðir er að þær kosta ótrúlega lítið. Gisting, veiðileyfi, ferðir upp á heiði og matur fyrir manninn kostar aðeins 12 þúsund. Menn mæta á fostudagskvöldi, síðan er farið á heiðina á laugardegi, veitt og farið aftur í Víðigerði um kvöldið. Þar biður veiði- manna glæsileg mátíð og síðan er haldið heim á sunnudaginn. Þetta þykir alls ekki mikið, þegar veiðiskapur er annars vegar. Einhverjar þreifingar eru í gangi með Gljúfurá í Víðidal en áin losnar næsta haust og verður þá líklega boðin út. Bændur hafa sjálfir selt veiði- leyfl í ána sl. 14 ár. Stangaveiðifélag Reykja- víkur hefur tryggt sér Hópið í Víðidal næsta sumar. En mikl- ir veiðimenn á Hvammstanga hafa verið með síðustu árin. íslandsmótið í dorgveiði á Hólavatni tókst vel um síðustu helgi, þó svo að veðurfarið hefði mátt vera miklu betra. Það veiddist hellingur af murtu og þónokkuð af regn- bogasilungi. Mikið er af flski í vatninu og verður víst opið næstu helgar fyrir veiðimenn, sem geta ekki beðið eftir að veiðitíminn byrji fyrir alvöru. Traustmynd á Akureyri tók upp dorgmótið og vinnur fyrirtækið að heimildarmynd um dorgveiðina. Mótstjóri á Hólavatni var Björn G. Sig- urðsson sem hefur unnið þrekvirki við að koma dorg- veiðinni á kortið. Hann hefúr verið formaður Dorgveiðifé- lags íslands síðan félagið var stofnað fyrir rétt um tíu árum síðan. Veióidellan getur verið ótrúleg. Veiðimaður sem við fréttum af fyrir skömmu var erlendis við veiðar í viku og gekk ágætlega. Þegar hann kom heim gat hann ekki á sér setið og fór upp á Amarvatns- heiði á dorg og veiddi helling af silungi. Hélt hann heim en stoppaði stutt við, veiðifélagi hans bauð honum á svartfúgl. Hann gat bara alls ekki með nokkru móti sagt NEI. Skrítið. Stangaveióifélag Hafnar- fjarðar varð fimmtíu ára fyrir skömmu og gáfu þeir Hafnfirð- ingar út glæsilegt blað af því tilefni. Þar er hægt að lesa ým- islegt fróðlegt um félagið í gegnum árin en í blaðinu er mikið af mjög gömlum mynd- um úr starfinu. -G.Bender Margir veiðimenn hafa áhuga á veiöi í Grenlæk enda svæðið faliegt og gjöfult. Nú er kominn út diskur sem hefur aö geyma 309 myndir af veiðistöðum í Grenlæk. Grenlækur og Veiðivötn Það þarf ansi mikla hugkvæmni til að fara og taka myndir af veiðistöðum veiðiánna og setja þá síðan á disk - þar sem maður getur séð veiöistaðinn og jafnvel fiskana í honum. Maður þarf varla að mæta á staðinn heldur setur maður bara diskinn í tölvuna og lætur hugann reika. „Það eru komnir út 7 diskar núna og það komu tveir út fyrir jólin, um Veiðivötn og Grenlækinn. Veiðivatnadiskurinn hefur gengið sérlega vel," sagði Einar Guðmann, veiðimaður og geisladiskaútgefandi í samtali við DV-Sport. „Þetta eru orðnar þúsundir mynda sem maður hefur tekið og það eru fleiri diskar að koma út, ég hef tekið myndir meðal annars í Eystri- og Ytri-Rangá. Einnig fyrir austan og þá meðal annars í Þistilfirðinum," sagði Einar enn fremur. -G. Bender Veiðivötn eru bæði fallegur og gjöfull veiöistaöur og þangaö flykkjast hundruð veiðimanna til veiöa á hverju sumri. Diskurinn inniheldur 217 myndir. www.langa.is * Veiðileyfi * fluguveiðiskóli * veiðihús til vinafunda Það vantaði ekki áhugann þegar við við kíktum á fluguhnýtingarmámskeið fyrir skömmu í Sjóbúðinni á Akureyri. Á stærri myndinni hnýta áhugsamir nemendur flugur en á þeirri minni er veiðimaðurinn og kennarinn Hermann Brynjarsson. DV-myndir G.Bender Mikill áhugi a hnýtingum - fleiri og fleiri læra hnýtingar og hnýta sínar flugur sjálfir Áhugi á fluguhnýtingum er mikil þessa dagana, yngri og yngri veiðimenn Íæra þá list sem fluguveiðin er. Fluguhnýtingar er aðeins farið að kenna í grunnskólunum landsins en gera mætti miklu meira af slíku. Áhug- in er allavega fyrir hendi hjá mörgum ungum veiöimönnum. Við kíktum inn á námskeið í Sjóbúð- inni á Akureyri fyrir skömmu en þar var veiðimaðurinn Hermann Brynjars- son með námskeið. Kennarinn gaf fyrirskipanir og nem- endumir fór eftir þeim enda Hermann búinn að reyna ýmsar flugur í veiðiám landsins. „Við skulum hnýta Nobblerinn núna,“ sagði Hermann kennari og nem- endumir fundu til réttu litina til að hnýta í fluguna. „Þetta em tvö kvöld sem námskeiðin standa yfir, tvo tíma í senn,“ segir Her- mann við blaðamann og bætir við: „Við hnýtum 5-6 flugur á þessum tveimur kvöldum. Ég er búinn að halda nám- skeið í kringum tíu ár og ætli það hafi ekki verið á annað hundrað nemendur á þessum námskeiðum. Áhuginn á fluguhnýtingum er ótrúlega mikill þessa daga finnst mér,“ segir Hermann. „Það er alltaf mikil áhugi á þessum námskeiðum, sérstaklega þegar styttist í veiðitímann,“ segir Þórður Helgason í Sjóbúðinni. Það er mikið hnýtt núna, fleiri og fleiri læra þá list sem fluguhnýtingar og veiði er. Veiðimenn hópa sig mikið saman og hnýta flugur fyrir sumarið. Hnýtingakvöld hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur fyrir skömmu vakti mikla athygli og margir mættu til að hnýta flugur. Biðin eftir að veiðitíminn byrji fyrir alvöru styttist, sjóbirtingsveiðin byrjar 1. apríl, veiði í vötnum landsins 1. maí og síðan laxveiðin 1. júní. Það eru ekki nema 20 dagar þangað til sjóbirtingsveiðin byrjar fyrir alvöru. Og margir veiðimenn eru fyrir löngu búnir að tryggja sér veiðileyfi í birting- inn. -G.Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.