Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2002, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 25. MARS 2002
DV
Fréttir
Formaöur Rannsóknarnefndar sjóslysa um meintan vanda nefndarinnar:
Engin pólitísk af-
skipti af starfinu
- ekkert óhóf og ærinn starfi - „ekki einu sinni með skrifstofustúlku“
Stykkishólmur.
Gagnagrunnur
sem á að geyma
niðurstöður
rannsókna á sjó-
slysum fyrri ára
verður tilbúinn
alveg á næst-
unni. Þetta segir
Ingi Tryggvason,
formaður Rann-
sóknarnefndar
sjóslysa, í sam-
tali við DV. „Síðasta árið hafa
menn unnið að gerð þessa gagna-
grunns og nú er verið aö prufu-
keyra hann,“ segir formaðurinn. í
DV á fostudag sagði aðstoðarmað-
ur samgönguráðherra að grunnur-
inn væri, samkvæmt sínum upp-
lýsingum, tilbúinn. Á meðan situr
Kristján Guðmundsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri nefndar-
innar, heima en starfslokasamn-
ingur sem við hann var gerður, fól
það í sér að hann myndi færa upp-
lýsingar inn í nefndan grunn.
Útgáfa á skýrslum Rannsóknar-
nefndar sjóslysa fyrir árin 1998 og
1999 hefur dregist og þær eru enn
ekki komnar út. Ingi segir þær þó
væntanlega fljótlega. Ástæður
þessa dráttar segir hann aö sam-
starfíð við þann
aðila sem falið
var að safna aug-
lýsingum í
skýrslumar hafi
ekki gengið upp.
Útgáfu á rann-
sóknarniðurstöð-
um verður
breytt á næst-
unni og þær
framvegis gefnar
út á Netinu. Segir Ingi nauðsynlegt
að breyta formi útgáfunnar, enda
hafi skýrslumar ekki verið „... að-
gengilegar eða spennandi aflestr-
ar“, eins og hann komst að orði.
Eins og DV hefur greint frá hef-
ur launakostnaður Rannsóknar-
nefndar sjóslysa aukist mikið sið-
ustu misseri. Ingi segir hins vegar
að starfsemin hcifi vaxið og í sam-
ræmi við ný lög um starf nefndar-
innar sem tóku gildi haustiö 2000.
Þá hafi verið ljóst að fjölga þyrfti
starfsmönnum hennar - og eru
þeir nú tveir talsins. „Laun fram-
kvæmdastjóra em ekki 300%
hærri en laun fyrrverandi starfs-
manns.
Framkvæmdastjórinn hafði ekki
uppi sérstakar kröfur um laun
heldur var samið við hann með
sama hætti og aðra starfsmenn hjá
ríkinu í sambærilegum störfum,"
segir Ingi. Hann vísar því á bug að
óhóf sé í rekstri nefndarinnar.
Starfsmenn nefndarinnar hafl ær-
inn starfa..og eru ekki einu sinni
með skrifstofustúlku", bætir for-
maðurinn við.
í DV á laugardag segir Lúðvík
Bergvinsson, þingmaður Samfylk-
ingar, að ljóst sé að fjármunir sem
Rannsóknarnefnd sjóslysa hafi úr
að spila hafi runnið til annars en
þeirra lögbundnu verkefna sem
henni séu ætluð. Pólitísk afskipti
valdi því að nefndin nái ekki að
sinna sínum skyldum.
„Það er rakalaust hjá þingmann-
inum að Rannsóknamefnd sjóslysa
hafi ekki getað sinnt lögboðnu hlut-
verki sínu vegna pólitískra afskipta.
Þaö hafa engin slík afskipti verið
höfð af störfum nefndarinnar sem
ekki glímir við neinn vanda vegna
þeirra breytinga sem gerðar hafi
verið á starfinu eða flutningi á að-
setri í Stykkishólmi. Engir fjármun-
ir hafa verið teknir af fjárveitingu
nefndarinnar vegna kostnaðar við
flutninginn," segir Ingi Tryggvason.
-sbs
Ingi
Tryggvason.
Framsókn á Akureyri kynnir framboðslista sinn:
Atvinnumálin verða baráttumál
- segir Jakob Björnsson sem skipar 1. sætið
Atvinnumál verða áhersluatriði í
baráttu Framsóknarflokksins fyrir
bæjarstjómarkosningarnar á Akur-
eyri i vor. Á næsta kjörtímabili þarf
einnig að huga að frekari uppbygg-
ingu skólamála og þjónustu fyrir
aldraðra. Þetta segir Jakob Bjöms-
son bæjarfulltrúi sem fer nú fyrir
lista flokksins í þriðja sinn. Gengið
var frá listanum á fundi framsókn-
armanna á Akureyri sl. laugardag. í
2. sæti er Gerður Jónsdóttir leið-
beinandi, Jóhannes Gunnar Bjarna-
son iþróttakennari er i 3. sæti og
Guðný Jóhannesdóttir blaðamaður
skipar það 4. Björn Snæbjömsson,
formaður verkalýðsfélagsins Ein-
ingar-Iðju, situr í 5. sæti og Heiða
Hauksdóttir er í 6. sæti.
Tveir af bæjarfulltrúum flokksins
á líðandi kjörtimabili víkja nú af
velli. Það eru Ásta Sigurðardóttir og
Guðmundur Ómar Guðmundsson
sem situr í heiðurssæti listans.
Um stöðuna í bæjarmálum á Ak-
ureyri segir Jakob Bjömsson að
m . “W i ÍL :•% Hhh. t 1
DV-MYND -SBS
Framsókn og flör
í efri röö eru, frá vinstri taliö, Björn Snæbjörnsson, Jakob Björnsson og Jó-
hannes Gunnar Bjarnason. í neöri röö eru Guöný Jóhannesdóttir, Geröur
Jónsdóttir og Heiöa Hauksdóttir.
umfangsmiklum póstum við íþrótta-
mannvirki sé nú að ljúka. Þá taki
önnur verkefni við - og þau muni
flokkurinn reifa í baráttunni sem í
hönd fer. Þar nefnir hann skólamál
og skipulag hins nýja Naustahverfis
sem nú er á teikniborðinu. Um at-
vinnumálin segir Jakob að ljóst sé
að fólk með minni menntun verði
verr úti en aðrir í þeim samdrætti
sem orðið hafi. Að hag þess og stöðu
þurfi sérstaklega að huga við upp-
byggingu nýrra atvinnutækifæra.
Þar nefnir hann meðal annars orku-
frekan iðnað.
„Þetta er tvímælalaust sterkur
listi, enda er þetta eini framboðslist-
inn í bænum sem þorir að tefla
fram ungu fólki. Ég trúi ekki öðru
en ungir Akureyringar muni styðja
unga frambjóðendur sem eru þá
þeirra fulltrúar um leiö,“ segir Guð-
ný Jóhannesdóttir sem er 28 ára.
Hún skipar 4. sæti listans sem fyrr
segir.
-sbs
Kvótalausir og brottkast:
Ranghermt að Hilmar hendi fiski
- segir framkvæmdastjóri LÍÚ
Mýrdalur:
Bílvelta við
Eystri Sólheima
Bíll valt á þjóöveginum við bæinn
Eystri Sólheima í Mýrdal í gærmorg-
un. Að sögn lögreglu í Vík er talið að
bíllinn hafi lent í lausamöl inni á
klæðningunni snúist og oltiö á vegin-
um sjálfum. Bilstjórinn sem var einn
í bílnum slapp með skrámur, en bíll-
inn er stórskemmdur. -NH
Vegna fréttar í DV laugardaginn
23.3. sl. um kvótalausar útgerðir vill
Friðrik J. Amgrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, taka eftirfarandi
fram.
„I fréttinni er eftirfarandi haft eftir
mér innan gæsalappa „Þá er sem bet-
ur fer fariö að taka harðar á brotum
varðandi brottkast. Hilmar hefur lýst
því sjálfur, m.a. í Dagblaðinu, hvem-
ig hann hefur hagað sér við sínar
veiðar og m.a. hent hluta af fiskinum.
í viðtali viðkomandi blaðamanns við
mig sagði ég að formaður Félags
kvótalitilla útgerða hefði lýst því að
hann hefði hent hluta af þeim fiski
sem hann veiddi. Ég nefndi Hilmar
Baldursson ekki í þessu sambandi og
mér er ekki kunn-
ugt um að hann
hafi verið formað-
ur þessa félags-
skapar. Það er því
ranglega haft eftir
mér í umræddri
frétt að Hilmar
Baldursson hafi
Friörik J. stundað útgerð og
Amgrímsson. hent fiski.“
Athugasemd blaðamanns
í umræddri frétt svaraði Friðrik J.
Amgrímsson vangaveltum Hilmars
Baldurssonar, talsmanns Félags
strandveiðimanna, í DV á fimmtudag
um að ástæðan fyrir háu verði á
leigukvóta væri hugsanlega sú að fé-
lagsmenn LÍÚ héldu að sér höndum
við að leigja frá sér kvóta.
„Ég hef ekki heyrt af slíku og ég skil
ekki hvað maðurinn er að fara,“ sagði
Friðrik af því tilefni. Var það því skiln-
ingur blaðamanns að svar Friðriks
snerist eingöngu um orð Hilmars Bald-
urssonar. Hins vegar mun Friðrik í
umræddri tilvitnun hafa átt við Sigurð
Marinósson sem mun hafa verið for-
maður Landssambands útgerðar-
manna kvótalítilla skipa. Nafn hans
bar þó aldrei á góma í umræddri frétt
enda er, að því er Hilmar Baldursson
upplýsti, sá félagsskapur hættur starf-
semi og hefur Félag strandveiðimanna
tekið við hlutverkinu. -HKr.
JfMsbW
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 19.58 19.43
Sólarupprás á morgun 07.08 07.22
Siödegisflóð 16.16 20.49
Árdeglsflóö á morgun 04.34 09.07
Súld og rigning
Norðaustan 10 tii 15 metrar á
sekúndu og snjókoma eða slydda á
Vestfjörðum en annars breytileg átt,
5 til 10 metrar á sekúndu og súld
eða rigning. Gengur í suðvestan 8 til
13 metra á sekúndu með skúrum
sunnan til í nótt.
Léttskýjaö norðan til
Suðvestan 13 til 18 metrar á
sekúndu sunnan til en mun hægari
suölæg átt norðan til. Rigning á
Suöur- og Vesturlandi en iéttskýjað
norðaustan til. Hiti 1 til 6 stig.
Veöriö i .
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
'WÍ
Hiti 0° Hiti 2° Hiti 0°
til 6° «1 r til 4°
Víndur: Vindur: Vindur:
13-18"'/» 10-18""/« 5-10 <"/«
* 7» 7»
Slydda og Skúrír, einkum Suövestanátt
rígnlng sunnan sunnan- og og skúrír eöa
tll, þykknar upp vestanlands. slydduéi sunnan-
meö hægt og vestanlands
vaxandi en léttskýjaö á
austanátt Noröausturlandi.
norban til.
m/s Logn 0-0,2 Andvarí 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviöri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveður 28,5-32,6 Fárvlöri >= 32,7
—
AKUREYRI léttskýjaö 2
BERGSSTAÐIR léttskýjaö 2
BOLUNGARVÍK skýjaö 1
EGILSSTAÐIR léttskýjaö 4
KIRKJUBÆJARKL. skúr 5
KEFLAVÍK rigning 5
RAUFARHÓFN heiðskírt 4
REYKJAVÍK skúr 5
STÓRHÖFÐI úrkoma í grennd 6
BERGEN léttskýjaö 4
HELSINKI rigning 2
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 5
ÓSLÓ léttskýjaö 7
STOKKHÓLMUR 2
ÞÓRSHÖFN léttskýjað 5
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 3
ALGARVE heiöskírt 27
AMSTERDAM skýjaö 8
BARCELONA léttskýjaö 17
BERLÍN skýjaö 6
CHICAGO hálfskýjaö -10
DUBLIN skýjaö 13
HALIFAX alskýjaö 0
FRANKFURT skýjaö 11
HAMBORG skúr 5
JAN MAYEN alskýjaö -2
LONDON skýjaö 14
LÚXEMBORG skúr 9
MALLORCA léttskýjaö 23
MONTREAL heiöskírt -15
NARSSARSSUAQ heiðskírt -8
NEW YORK hálfskýjaö -4
ORLANDO skýjaö 18
PARÍS alskýjað 12
VÍN skúr 10
WASHINGTON alskýjaö -4
WINNIPEG heiöskirt -15
M IYVM É.iil L'fatii