Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2002, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 13. MAÍ 2002
19
I>V
Sport
en að kveðja Akureyri með þessum titli, sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA
Eftir að Alfreð Glslason
hafl leitt lið KA til síns
fyrsta íslandsmeistaratitils
árið 1997, en horfið svo á
brott til starfa erlendis, end-
urtekur eftirmaður hans,
Atli Hilmarsson, leikinn nú
5 árum síðar.
Sjálfsagt var stór hluti af
hvatningu leikmanna KA
fyrir að vinna titilinn að
kveðja Atla á viðeigandi
hátt. Og það stóðst, fáir
fognuðu betur en Atli sjáif-
ur og var hann í sjöunda
himni þegar DV-Sport náði
af honum tali eftir leik.
„Þessir drengir eru því-
líkt góðir og þó að þeir hafi
gert þetta að hluta til fyrir
mig var það fyrst og fremst
fyrir þá sjálfa. Það er vita-
skuld gaman að fmna það
að það hafi átt hlut að máli
og auðvitað er engin betri
leið til að kveðja Akureyri
en með þessum stóra titli.“
- Frammistaöa þinna
manna i þessari úrslita-
keppni var engri lík?
„Ég held að allir sjái það
í hendi sér aö það hefði
brotið einhvem að hafa lent
undir 2-0 í einvíginu gegn
Val og tapað í framlengingu
í bæði skiptin.
Gegn Haukum í undanúr-
slitum forum við svo í fram-
lengingu í fyrri leiknum og
vinnum eftir að hafa verið 8
mörkum undir í hálfleik og
ég held að það skýri þetta
orða best.“
- Hvað með taktísku
breytingarnar á vörninni
sem þú gerðir i hálfleikn-
um?
„Ég varð að gera eitt-
hvað, mér fannst vömin
ekki vera að virka nógu vel
þar sem þeir voru aö fá
nokkur frí skot, ég tók
ákveðinn séns með þessari
breytingu í bytjun síðari
hálfleiks til að koma þeim
aðeins á óvart en svo sá ég
að krafturinn var að þverra
hjá mínum mönnum og ég
varð að bakka með vömina
aftur. En þetta bar góðan
árangur.“
- Hvað með framtið KA
sem handboltalið eftir að
þú hverfur frá störfum?
„Mér líst mjög vel á fram-
tið KA, það er svo mikil
hefð fyrir því að vinna hjá
þessu félagi. Yngri flokkam-
ir em alltaf að vinna og það
er hefð fyrir því að fmna
fyrir þessari sigurvímu.
Þessir strákar sem em að
keppa fyrir meistaraflokk
eru vánir því að vinna og
þeir halda því bara áfram
hér og láta að sér kveða
strax.
Ég vil líka þakka mínum
mannskap, tU að mynda
markverðinum, en það vom
allir að tala um að við ætt-
um í vandræöum með
markvörslu en ég spyr á
móti, hver er að vinna þetta
fyrir okkur í kvöld?“ sagði
Atli áður en hann hvarf á
brott til að samfagna með
leikmönnum og stuðnings-
mönnum KA-liðsins. -esá
Úrslitamolar
Þrátt fyrir mikla hörku í úrslita-
leiknum kom fyrsta brottvisunin
ekki fyrr en eftir tæplega átján mín-
útna leik. Það var enginn annar en
gamla kempan Geir Sveinsson sem
þá fékk að fjúka út af; margir fylgdu
í kjölfarið.
Hinn ungi og efnilegi leikmaður KA,
Einar Logi Friójónsson, átti frá-
bæra innkomu á áttundu mínútu síð-
ari hálfleiks þegar hann fékk boltann
beint úr aukakasti og þrumaði bolt-
anum í netið með sinni fyrstu snert-
ingu í hálfleiknum.
Þegar 6 mínútur voru svo eftir af
fyrri hálfleik fór Einar Gunnarsson
út á móti Jónatan Magnussyni sem
sótti að Valsvöminni með þeim af-
leiðingum að Einar reif af aðra
skyrtuermi Jónatans. Fyrir vikið
fékk hann tveggja mínútna brottvís-
un en Jónatan var mættur í nýjum
galla eftir hléið, reyndar með númer-
inu 77 en séð var til þess með hvítu
límbandi að þaö líktist meira 17.
Atli Hilmarsson, þjálfari KA, hamp-
aði islandsmeistaratitlinum einu
sinni sem leikmaður og þá með FH,
1984, í liöi sem margir telja eitt besta
lið sögunnar. Hann varð síðan bikar-
meistari tíu árum seinna, 1994, með
FH, eftir að hafa lagt KA að velli í úr-
slitaleik. Á fimm árum sem þjálfari
leiddi hann KA til tveggja deildar-
meistaratitla, 1998 og 2001, og nú kom
sá stóri í hús. Þetta kallar maður að
hætta á toppnum!
Geir Sveinsson, kollegi Atla hjá Val,
sá sér hins vegar ekki fært að taka á
móti verðlaunapeningi sínum með
öðrum Valsmönnum eftir leikinn á
fostudaginn. -esá/SMS
Guðmundur Guðmunds-
son landsliðsþjálfari:
Enn einn hand-
boltasigurinn
„Þetta var alveg ótrúlegt, leikur-
inn var eins og hinn besti „thriiler",
ég verð að segja það. Eftir að hafa
lent 2-0 undir þá sýna leikmenn KA
ótrúlegan karakter og ég hafði það
einhvem veginn á tilfmningunni
eftir að þeir unnu þriðja leikinn hér
að Hlíðarenda að einvígið færi í
fimm leiki og KA-menn vom ein-
faldlega grimmari hér í kvöld. Það
er hreinlega aðdáunarvert hversu
mikið þeir fómuðu sér í þetta og
börðust fyrir titlinum.
Valsmenn voru hins vegar að
spila mjög góðan vamarleik í kvöld
eins og i öllum hinum leikjunum en
þeir áttu ekkert svar sóknarlega við
vamarútspili Atla í síðari hálfleik.
En þeir, eins og KA, stóðu sig
stórkostlega í þessu einvígi og
kvöldið í kvöld var enn einn
sigurinn fyrir handbolta enda
leikirnir aílir mjög hraðir og
skemmtilegir á að horfa. Þetta var
alveg frábært," sagði Guðmundur
landsliðsþjálfari. -esá
Halldór markahæsti meistarinn
Halldór Jóhann Sigfússon skoraði 39 mörk fyrir nýkrýnda
íslandsmeistara KA i lokaúrslitunum í ár sem er það mesta sem
leikmaður hefur gert fyrir meistaralið en Halldór sló met Julian
Duranona sem skoraði 38 mörk þegar KA vann titilinn í fyrsta sinn 1997.
Duranona á samt enn markametið en hann gerði 44 mörk fjTÍr KA árið
á undan þegar þeir máttu sætta sig við silfrið.
Halldór er nú aðeins 13 mörkum frá meti Ólafs Stefánssonar yfir flest
mörk í lokaúrslitunum frá upphafi en mörkin sín 72 hefur hann gert á
síðustu tveimur árum og úr aðeins 122 skotum sem þýðir að Halldór
hefur nýtt 59% skota sinna í lokaúrslitum, leikjum þegar allt tímabilið
er undir. -ÓÓJ
Flest mörk í lokaúrslitum á einu ári
Julian Duranona, KA, 4 leikir 1996 (silfur).......................44/19
Valdimar Grimsson, KA, 5 leikir 1995 (silfúr).....................42/23
Halldór Jóhann Sigfússon, KA, 5 leikir 2002 (gull)................39/17
Julian Duranona, KA, 4 leikir 1997 (gull).........................38/9
Guðjón Valur Sigurðsson, KA, 5 leikir 2001 (silfur) ..............34/9
Sigurður Valur Sveinsson, Selfossi, 4 leikir 1992 (silfur)........33/10
Valdimar Grímsson, Val, 4 leikir 1993 (gull)......................33/16
Halldór Jóhann Sigfússon, KA, 5 leikir 2001 (silfur) .............33/19
Flest mörk í lokaúrslitum frá upphafi
Ólafur Stefánsson, Val...............................................85
Julian Duranona, KA .................................................82
Dagur Sigurðsson, Val................................................77
Valdimar Grímsson, KA og Val.........................................75
Jón Kristjánsson, Val ...............................................74
Halldór Jóhann Sigfússon, KA.........................................72
Patrekur Jóhannesson, KA ............................................51
Jóhannes Jóhannesson og Hreinn Hauksson fagna sigri KA-manna meö miklum tilþrifum. DV-mynd Hilmar Þór