Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Blaðsíða 22
42 Islendingaþættir Umsjón: Kjartan Gurtnar Kjartansson MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 2002 DV 85 ára____________________ -» Einar Sturluson, ' Ljósheimum 14, Reykjavík. Hugrún Stefánsdóttir, Víðilundi 24, Akureyri. 80 ára___________________________ Fjóla Ólafsdóttir, Egilsbraut 9, Þorlákshöfn. Jóna Magnúsdóttir, Kleifahrauni 2d, Vestmannaeyjum. Lilja Ólafsdóttir, Skólastíg 11, Bolungarvík. Ólafur Jónsson, Skarðsbraut 19, Akranesi. 75 ára__________________________ ' Egill Guðmundsson, Grundarbraut 32, Ólafsvík. Friðrik Sófusson, Safamýri 46, Reykjavík. Geir Christensen, Lyngbraut 10, Selfossi. Margrét Matthíasdóttir, Gunnarsbraut 40, Reykjavík. Sigurgeir Bóasson, Hveramörk 3, Hveragerði. 70 ára__________________________ Páll Steinar Bjarnason, Eyjabakka 7, Reykjavík. Stefanía Halldórsdóttlr, Sólvöllum 7, Húsavík. 60 Órg__________________________ Bjarni Aðalsteinsson, Aðalstræti 22, Bolungarvík. Hermann Guðmundsson, Ægisgötu 13, Stykkishólmi. Jónasína Skarphéðinsdóttir, Álfhóli 2, Húsavík. Niels Axelsson, Miðstræti 8b, Reykjavík. Sveinbjörn M. Davíðsson, Heiðmörk 17, Hveragerði. 50 ára___________________________ Amaiía Ragna Þorgrímsdóttir, Hraunhóli 8, Höfn. Rnnur Baldursson, Lynghrauni 5, Reykjahlíð. Rnnur Magni Rnnsson, Grófarsmára 9, Kópavogi. Jón Vilberg Högnason, Sörlaskjóli 18, Reykjavík. Jónas Freyr Sumarliðason, Kirkjustíg 7, Siglufirði. Óskar Guðjónsson, Brekkutúni 12, Kópavogi. 40 ára__________________________ Ása Hrönn Sæmundsdóttir, Garðhúsum 10, Reykjavík. Benedikt Ragnarsson, Barkarstöðum, Hvammstanga. Edda Friðfinnsdóttir, Móasíöu 6a, Akureyri. Elsa Björg Þórólfsdóttir, Fálkagötu 3, Reykjavík. Gunnar Þór Friðleifsson, Ekrusmára 14, Kópavogi. Indriði Jónsson, Hlíðarhjalla 50, Kópavogi. Jóhann Örn Ingimundarson, Hæðarseli 13, Reykjavík. Ragnar Kristinn Guðjónsson, Vanabyggð 2h, Akureyri. Sigurður Guðjón Sigurðsson, Týsgötu 6, Reykjavík. Þorsteinn Hólm Stefánsson, Jarðbrú, Dalvík. Þorstelnn Ingi Víglundsson, Álandi 3, Reykjavík. Þorvaldur I. Hilmarsson, Álfheimum 46, Reykjavík. Þóra Þórisdóttir, Austurgötu 47, Hafnarfiröi. Þröstur Þorbjörnsson, Víðigrund 5, Kópavogi. Þjónustu- auglýsingar ►I550 5000 Níræð Margrét Jónsdóttir húsfreyja í Skagafirði og á Akureyri Margrét Jónsdóttir, Öldustíg 8, Sauðárkróki, er níræð í dag. Starfsferill Margrét fæddist að Kaldrana á Skaga. Hún bjó með foreldrum sínum á Kaldrana fyrstu þrjú æviárin, síðan að Kambakoti til 1925, að Sæunnarstöðum í Hallárdal í eitt ár og loks á Skagaströnd en þar bjuggu foreldrar hennar til dauðadags. Margrét var í vist frá flmmtán ára aldri að Harrastöðum á Skagaströnd til 1931. Hún var síðan á Hólum í Hjaltadal í flmm ár, fyrst sem nemandi og síðan í vinnu við að þjónusta skólapilta. Þar kynntist hún eiginmanni sínum. Eftir það stundaði hún búskap og ýmis störf. Margrét og maður hennar bjuggu lengst af á Fjalli í Kolbeinsdal i Skagafirði og í Ásgeirsbrekku í Viðvíkursveit. Þau fluttu til Akureyrar 1958 en er maður hennar lést flutti hún til Sauðárkróks. Fjölskylda Margrét giftist 1936 Víglundi Péturssyni, f. 9.12. 1908, d. 1986, bónda og verkamanni. Sonur Margrétar og Víglundar er Pétur Símon Víglundsson, f. 28.8. 1937, stálsmíðameistar og tæknifulltrúi hjá Vinnueftirlitinu á Sauðárkróki, kvæntur Önnu Sigríði Hróðmarsdóttur, mynd- og leirlistarkonu í Varmahlíð, f. 1941, en Pétur eignaðist fimm böm með fyrri eiginkonu sinni, Rögnu Efemíu Guðmundsdóttur. Böm Péturs og Rögnu Efemíu eru Guðmundur Svanberg, f. 24.8. 1956, rafmagnstæknifræðingur og gæðastjóri hjá Landsvirkjun, kvæntur Elísabetu Guðmundsdóttur, f. 1958, hjúkrunarfræðingi á Þrcunarskrifstofu hjúkrunarforstjóra Landspítala - Háskólasjúkrahúss, en þeirra böm eru Sólveig Ragna, f. 1982, Gunnhildur Edda, f. 1984, og Guðmundur Smári, f. 1990, auk þess sem Guðmundur á eina dóttur af fyrra hjónabandi með Margréti Stefánsdóttur, Hugrúnu Helgu, f. 1977; Margrét Björg, f. 28.12. 1957, hárgreiðslumeistari á Sauðárkróki, gift Björgvini M. Guðmundssyni, f. 1954, rafvirkjameistara hjá Rarik á Sauðárkróki, en þeirra böm eru Katrin Eva, f. 1977, Efemía Hrönn, f. 1982, Stefanía Fanney, f. 1985, og Viktor Sigvaldi, f. 1991; Víglundur Rúnar, f. 3.1.1959, stálsmíðameistari og verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins á Sauðárkróki, kvæntur Hafdísi Eddu Stefánsdóttur, f. 1959, nuddara og skólaliða í Varmahlíðarskóla, en )eirra böm eru Pétur Fannberg, f. 1983, og Ellen Ösp, f. 1987; Sólborg Alda, f. 27.1. 1962, kennari, námsráðgjafi og grunnskólafulltrúi í Mosfellsbæ, gift Hallgrími H. Gunnarssyni, f. 1947, en dóttir þeirra er Brynhildur, f. 1995; Ragnar Pétur, f. 21.1. 1971, tæknimaður hjá tölvufyrirtækinu GSSLausn í Reykjavík, kvæntur Dóru Ingibjörgu Valgarðsdóttur, f. 1972, sjúkraliða á Sóltúni, en böm þeirra em Margrét Petra, f. 1993, Halla Sigríður, f. 1999, og Haukur Steinn, f. 2001. Systkini Margrétar voru Klemensína Guðný, f. 1908, d. 1966; Ámi Svanberg, f. 1919, d. 1957. Foreldrar Margrétar voru Jón Klemensson, f. 1883 að Höfnum á Skaga, d. 1935, og Guðrún Sigurðardóttir, f. 1883 að Ósbrekku í Ólafsfirði, d. 1972. Sjötug msMMm' Elizabeth Hurley 37 ára Elizabeth Hurley á af- 1 mæli í dag. Hurley er I bæði ljósmyndafyrir- H saúa og kvikmyndaleik- MM -Sm kona og sómir sér vel á MfnJH báðum vígstöðvum þó ® yfirleitt hafl ekki reynt mikið á hana sem leikkonu. Hún hefur aðallega leikið tálkvendi í myndum á borð við Austin Powers-myndirnar, My Favorite Martian og Bedazzled. Hurley er með dans- og leiknám að baki og hennar fyrstu skref í skemmt- anabransanum var á sviði í London. Hún hefur verið mikið í fréttum und- anfarið vegna deOna um faðemi son- ar sem hún átti fyrir stuttu. Gildir fyrir þridjudaginn 11. júní Vatnsberinn (7o. ian.-is. fehr.i: 9E fcj|Þú verður liklega nokkuð óþolinmóður fyrri hluta dagsins og verður að gæta þess að fda ró þinni. Notaðu kvöldið til að slappa af. Rskarnir (19. febr.-20. marsl: . \ Einhver breyting verð- á sambandi þínu ,IS við ákveðna mann- :r; f eskju. Haltu gagnrýni fyrir sjálfan þig þar sem fólk gæti tekið hana óþarílega nærri sér. Hrúturinn (21. mars-19. anríH: Þú gætir lent í erfiðleikum með að sannfæra fólk um það sem þér finnst og þú mætir einhverri andstöðu við hugmyndir þínar. Sigrún Magnúsdóttir framhaldsskólakennari í Reykjavík Sigrún Magnúsdóttir fjölbrauta- skólakennari, Hvassaleiti 103, Reykjavík, er sjötug í dag. Starfsferill Sigrún fæddist í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófl frá MR 1951, stundaði nám í frönsku og þýsku við Hl 1951-53, lauk BA-prófi í sagn- fræði og dönsku við HÍ 1977, lauk prófi í uppeldis- og kennslufræðum við HÍ 1983 og lauk cand. mag.-prófi í sagnfræði og listasögu frá HÍ 1997. Sigrún var kennari í dönsku við MR 1973-74, var ráðin kennari í sögu og dönsku við Flensborgar- skóla í Hafnarfirði 1974 og hefur kennt þar síðan. Hún hefur haft á hendi deildarstjóm í dönsku og sögu við skólann og átti sæti í stjórn félags sögukennara og var formaður félagsins um skeið. Fjölskylda Sigrún giftist 6.8. 1955 Sigurði Jóni Sigvaldasyni, f. 28.6.1926 í Ær- lækjarseli í Öxafirði, byggingar- verkfræðingi hjá Bændasamtökum íslands. Foreldrar Sigurðar voru Sigvaldi Jónsson, f. 2.12. 1886, d. 5.11. 1968, bóndi og söðlasmiður i Ærlækjar- seli og i Klifshaga, og k.h., Sólveig Jónsdóttir, f. 29.7. 1897, d. 6.12. 1982, húsmóðir i Ærlækjarseli og í Klifs- haga. Böm Sigrúnar og Sigurðar era Sigurður Sigurðarson, f. 12.7. 1956, byggingarverkfræðingur og deildar- verkfræðingur hjá Siglingastofnun íslands í Reykjavík, kvæntur Hrönn Sævarsdóttur, f. 5.12. 1958, innan- hússarkitekt en börn þeirra eru Brynjar, f. 15.6. 1986, Auður Ýr, f. 27.3. 1991, og Sigvaldi, f. 7.4. 1993; Ragnheiður Sigurðardóttir, f. 22.3. 1959, geðlæknir í Uddevalla í Sví- þjóð, gift Ulf Anders T. Josephsson, f. 2.5. 1958, presti í Uddevalla, en börn þeirra eru Ásdís Dögg, f. 8.3. 1985, Sigrún Rut, f. 10.10. 1988, Karl Magnús, f. 7.3. 1991, Elsa Björk, f. 21.1. 1996, og Sigurður, f. 14.9. 1999; Solveig Sigurðardóttir, f. 8.5. 1963, bamalæknir og sérfræðingur hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkis- ins, gift Sigurði Jóhannessyni, f. 26.10.1961, hagfræðingi hjá Samtök- um atvinnulífsins, og eru börn þeirra Magnús, f. 13.8. 1992, Sveinn f. 2.9. 1997; Magnús Sigurðarson, f. 27.10. 1966, myndlistarmaður í Reykjavík, kvæntur Margréti Blön- dal, f. 28.1. 1970, og er sonur þeirra Sölvi, f. 8.11. 1991, en þau slitu sam- vistum. Systur Sigrúnar eru Svana, f. 15.10. 1929, húsmóðir í Omex í Frakklandi, gift Jóni Karlssyni inn- anhússarkitekt; Lilja, f. 12.4. 1926, fyrrv. fulltrúi i bókhaldsdeild Flug- leiða, búsett í Reykjavík, gift Guð- mundi Ástráðssyni, áður fulltrúa hjá Eimskipafélagi íslands. Foreldrar Sigrúnar: Magnús Magnússon, f. 7.5. 1892, d. 13.11. 1958, verkstjóri og k.h., Ragnheiður Jónasdóttir, f. 29.6. 1895, d. 3.1. 1984, húsmóðir. Ætt Magnús var bróðir Áma, útvegsb. í Landakoti í Sandgerði, fóður Ein- ars, fyrrv. flugstjóra og útgerðar- manns. Magnús var sonur Magnús- ar, b. í Nykhóli í Mýrdal og útvegsb. í Krókshóli á Miðnesi, Eyjólfssonar, b. á Ytri-Sólheimum, Eyjólfssonar. Móðir Magnúsar Eyjólfssonar var Steinunn Magnúsdóttir. Móðir Magnúsar verkstjóra var Vilborg Berentsdóttir, b. í Mör- tungu, Oddssonar og Málfríðar Ólafsdóttur, b. í Eyjarhólum, Högnasonar. Móðir Málfríðar var Ingveldur Jónsdóttir, b. í Drangs- hlíð, og Þuríðar Guðmundsdóttur, frá Selkoti, Jónssonar, ísleifssonar. Ragnheiður var dóttir Jónasar, b. á Bjarteyjarsandi á Hvalfjarðar- strönd, Jóhannessonar, og Guð- finnu Jósefsdóttur. Þau vom bæði ættuð úr Leirársveitinni, hann frá Narfastöðum en hún frá Hávarðs- stöðum. Merkir Islendingar Jónas Guðmundsson, alþingismaður og ritstjóri, fæddist á Skálanesgrund við Seyðisfjörð 11. júní 1898, sonur Guðmund- ar Jónassonar, útgerðarmanns í Brim- neshjáleigu við Seyöisfjörö, og k.h., Val- gerðar Hannesdóttur húsmóður. Jónas lauk kennaraprófi frá KÍ 1920, stundaði framhaldsnám við Kennara- háskólann í Kaupmannahöfn og sótti íþróttanámskeið í Reykjavík. Hann kenndi við Bændaskólann á Hvanneyri og Bamaskólann á Norðfirði og ung- lingaskólann þar, var framkvæmda- stjóri Fóðurmjölsverksmiðju Norðfjarðar, eftirlitsmaður sveitarstjórnarmálefna 1939-52, skrifstofustjóri félagsmálaráðuneyt- isins 1946-53, framkvæmdastjóri Sambands ís- lenskra sveitarfélaga 1945-67 og forstjóri Bjargráðasjóðs 1952-67. Hann var formaður Verkalýðsfélags Norðfiarðar 1924-28 og 1929-37, ritstjóri Jafnaðarmannsins á Norðfirði 1927-37 og Alþýðublaðsins í Reykjavík 1939, oddviti Neshrepps í Norðfirði frá 1925, síðar bæjarfúlltrúi í Neskaupstað og forseti bæjarstjómar og alþingismaður fyrir Alþýðuflokk- inn 1934-37. Jónas gegndi áhrifamiklum trúnað- arstörfum við lagasetningu um trygg- ingar- og velferðarmál. Hann beitti sér fyrir aðstoð við drykkjusjúka og nútima- legri viðhorfum til drykkjusýki, og var mjög áhugasamur um austræna dulspeki og egypska spádómsfræði. Hann lést 4. júlí 1973. Jónas Guðmundsson Nautlð (20, april-20. mai): Fyrri hluti dagsins verður óvenjulegur að einhverju leyti en kvöldið verður mjög rólegt og þú nærð góðu sambandi við ástvini þína. Tvíburarnir (21. maí-21. iúnii: Sjálfstraust þitt er ekki í hámarki fyrri hluta dagsins en þú verður sjálfsöruggari og ánægðari eftir því sem Uður á daginn. Krabbinn (22. iúní-??. ifilíu jl Ekki vera of opinská(r) við fólk og gættu þess að sýna ókunnugmn _ B ekki tilfinningalíf þitt nema að litlu leyti. Skipuleggðu næstu daga eins fljótt og þú getur. Liónlð (23. iúlt- 22. ágústi: Þetta er ekki dagur fyrir áhættu. Reyndu að halda þig við þá hluti sem þú þekkir. Dagurinn verður ánægjulegur með tilliti til vina og ættingja. Mevian (23. áeúst-22. seot.l: Dagurinn verður mjög ánægjulegur og VVlLþú eyðir honum * F með fólki sem þér líður vel með. Happatölur þínar eru 4, 15 og 27. Vogin (23. sept-23. okt.l: Það gerist eitthvað í dag sem kemur af stað óvenjulegri atburðarás en það er ekki víst að þú takir eftir því fyrr en seinna. Happatölur þínar era 3, 16 og 34. Sporðdrekl (24. okt.-21. nóv.i: Þú færð kjörið tæki- færi til að sýna vænt- iþykju þína í verki í dag. Einnig mætirðu góðvild frá öðrum og færð hjálp sem þú þarfnast. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.l: 'ú gætir þurft að eiðrétta misskilning sem kom upp ekki alls fyrir löngu og þér ætti að vera það létt. Happatölur þínar era 8,19 og 23. Steingeitin (22. des.-19. ian.l: Næstu dagar gætu orðið nokkuð fiöl- JT\ breytilegir og þú veist ^'(*** ef til vill ekki alltaf hverju þú mátt eiga von á. Kvöldið verður rólegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.