Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2002, Blaðsíða 1
i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i J.J MOT ARMANNS I FRJÁLSUM - BLS 18 iO •'O LO DAGBLAÐIÐ VISIR 130. TBL. - 92. ARG. - MANUDAGUR 10. JUNI 2002 VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK Deilur Byggðastofnunar eru einstæðar í sögunni: Kristinn H. hyggst sitja sem fastast - og útilokar ekki samstarf við forstjórann. Stjórnarmenn telja starfsfólkið gott Bréfaskriftir Valgerðar Sverrisdótt- ur byggðamálaráðherra og Theódórs Agnars Bjamasonar, forstjóra Byggðastofnunar, eru án hliðstæðu í sögu sto&iunarinnar. Deilan er að stigmagnast og blanda æ fleiri aðilar sér í opinbera umræðu um málið. Varaformaður stjórnar, Guðjón Guð- mundsson, hefur nú tekið afstöðu gegn bréfaskriftum ráðherra og furð- að sig á ásökunum ráðherra gagnvart forstjóranum. Örlygur Hnefill Jóns- son situr einnig í stjóm Byggðastofh- unar og í samtali við DV í gærkvöld sagðist hann vel geta tekið undir með Guðjóni að starfsfólk Byggðastofnun- ar hefði staðið sig. „Og þar undanskil ég engan,“ sagði Örlygur Hnefill en vildi ekki svara hvort hann styddi Kristin sem formann stjómar. Útilokar ekkert Kristinn útilokar ekki að hann og forstjórinn geti starfað saman þrátt fyrir það sem á undan er gengið og telur hann bestu leiðina þá að menn séu „meðvitaðir um hiutverk sitt“, eins og hann orðar það. Hann vill ekki leggja mat á hvort deilan hafi bitnað á störfum stofnunarinnar en viðurkennir að staðan sé óþægOeg. „Annars finnst mér þessi spuming, hvort ég eigi að hætta, dálítið skrýtin. Það eru gerðar athugasemdir við störf forstjóra en þá spyrja menn hvort ég eigi að víkja. Þetta er einkennileg umræða," segir Kristinn. Meðal þess sem tekist er á um innan stofiiunarinnar er hvort Kristinn eða Theódór séu ábyrgir fyrir því að ársreikningar Byggða- stofnunar komu of seint fram. Þcir vís- ar hvor sök á hinn og sama á við um samskipti Byggðastofnunar við Spari- sjóð Bolungarvíkur. Theódór sakar Kristin um valdníðslu í því efhi en Kristinn H. Gunnarsson. Kristinn segir forstjórann hafa beitt sér gegn samningunum í blóra við stjómarsamþykkt. „Það hljóta allir að sjá að ég hef mátt þola að vinna við algjörlega óásættanleg vinnuskilyrði, stöðuga áreitni og sálrænt ofbeldi," segir Theódór en Kristinn segir um þátt for- stjórans í sparisjóðsmálinu. „Hann stöðvaði viðræðumar og neitaði að taka þátt í þeim eftir að ég setti þær í gang.“ -BÞ NANARI UMFJOLLUN Á BLS. 6 í DAG Kosið í Frakklandi: Yfirburðasigur hægriflokkanna Allt stefnir í yfirburðasigur mið- og hægriflokkanna í Frakk- landi í síðari umferð þingkosn- inganna á sunnudaginn kemur, eftir gott gengi þeirra i fyrri um- ferðinni í gær. Samkvæmt útgönguspám fá hægriflokkamir allt að 446 menn kjöma af 577 á franska þinginu. Vinstriflokkamir, sem hafa farið með völdin undanfarin fimm ár, fá ekki nema milli 127 og 192 þingmenn. Þjóðfylking hægriöfgamanns- ins Le Pens fékk minna fylgi en í kosningunum 1997 og er ekki spáð nema fjórum þingmönnum í mesta lagi, hugsanlega engum. NANARI UMFJOLLUN Á BLS. 11 í DAG ISLAND A HM I HANDBOLTA: Frábær síðari hálfleikur SUMARSYNING A KJARVALSSTÖÐUM: Maður og borg BÍLASPRAUTUN OG RÉTTINGAR AUÐUNS Nýbýlavegi 10 og 32 200 Kópavogi W' S: 554 2510 Tjónaviðgerðir á öUum tegundum bíla ® IOYOTA ÞféiiMsts

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.