Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002 DV Fréttir Stórar væntingar um íslenskan raddstýribúnað VoiceEra: Fyrirtækið virðist hafa gufað upp - tæknin samt talin framtíðin í tölvuheiminum Eins og greint var frá í DV i gær hefur rekstur fyrirtækisins VoiseEra á Islandi ehf. í Bolungar- vík hafi stöðvast. Miklar væntingar voru gerðar til fyrirtækisins vestra en Verkalýðs- og sjómannafélag Bol- ungarvíkur skoðar nú viðskilnað fyrirtækisins vegna vangreiddra gjalda starfsmanna. Hvorki starfs- menn í Bolungarvík né bæjaryfir- völd hafa náð sambandi við yfir- menn fyrirtækisins vegna van- greiddra launa og samninga um húsnæði, en framkvæmdastjórinn er sagður staddur í Kanada. Eru menn að vonum daprir vestra yflr ástandinu. Raddstýribúnaður á íslensku Fyrirtækið var stofnað þann 16. mars á síðasta ári. Markmið VoiceEra er eins og segir í kynn- ingu félagsins að útvega hinum nýj- ungagjarna íslenska markaði ís- lenskar tungutæknivörur. Ætlunin var að byggja raddþekk- ingarkerfi sem skilur talað íslenskt mál sem geri notendum kleift að hafa bein samskipti við upplýsinga- kerfi viðskiptavina. Sagt var að nýr markaður væri í þróun fyrir radd- Vokw Er» i Kolungarvðt Enn eHt draumafyrirtæki Byggðastofnunar hætt I«ua rfcfei ssrvWd «« *turtvmvn« (omir Mt Frétt DV í gær þekkingarkerfi. Talað mál væri hentugasta leiðin til tjáskipta og næði lengra en lyklaborð og IVR kerfi (Interactive voice response) sem byggja á tónvalskerfi. Fullyrt var að markaðsfræðingar í fremstu röðum hafi spáð radd- þekkingarkerfum 150% vexti á ári sem nemur yfir 1,1 milljarði Banda- ríkjadollara um árið 2005 fyrir sjálf- virk raddþekkingarforrit ASR, eða Automatic Speaker Recognition software. Er síðan vitnað í Forrest- er Research sem hafi áætlað að tekj- ur af raddstýrðum viðskiptakerfum gætu farið yfir 450 milljarða dollara um árið 2003. Það er þrisvar sinnum hærri tala heldur en um er að ræða í venjulegum viðskiptum um Netið. Miklar væntingar í Ijósi þessa urðu fljótlega til miklar væntingar um fyrirtækið. Var því tekið opnum örmum í Bol- ungarvík þar sem bæjaryfirvöld lögöu til húsnæði undir starfsemina og tryggð var fyrirgreiðsla Byggða- stofnunar. Frekari sókn í opinbera sjóði mun þó ekki hafa borið árang- ur samkvæmt heimildum DV, en að- alviðskiptabankinn er Sparisjóður Bolungarvíkur. í júní í fyrra var kynnt þróunar- vinna VoiceEra við hugbúnað sem skilur íslensku og fer eftir munnleg- um fyrirmælum. Á aðalfundi félags- ins 30. ágúst í fyrra var samþykkt að auka hlutfé félagsins úr 500 þús- undum í tvær milljónir króna. í jan- úar á þessu ári var svo kynnt þró- unarvinna við raddstýrðan kennslu- búnað hjá fyrirtækinu í Bolungar- vik. í kjölfar þess að ársafmæli fyr- irtækisins var fagnað í febrúar, var haldið opið hús hjá VoiceEra í Bol- ungarvík í mars sem þótti lukkast vel. Var þá skrifað undir samning 1. mars við Póls hf. á ísafirði um sam- starf varðandi þróun á raddtækni- lausnum í fiskiðnaðinum. Þriðja mars var einnig skrifað undir víð- tækan samstarfssamning við belgíska fyrirtækið Babeltech um þróun raddtæknihugbúnaðar. Babeltech var á sínum tíma ráðið af VoiceEra sem undirverktaki við hönnun eina tölvuraddkerfisins (ASR) sem til er fyrir íslenska tungu. Auk þessara fyrirtækja er nefnt samstarf við íslandsbanka, Ljósvirki, Juventus hugbúnaðar- hús, Gangverk, Orkuveitu Reykja- víkur, Öryrkjabandalag íslands og Blindrafélagið. Ein af síðustu fréttum af VoiceEra er frá í maí þegar tilkynnt var um gjöf fyrirtækisins í Bolungarvík á talgervl- um til Blindrafélagsins. Það sem koma skai í samtölum DV við menn í rafeinda- geiranum binda menn enn miklar vonir við raddstýringu tækja til víð- tækra nota. Ekki sé spumingin um hvort, heldur hvenær slíkt verður að veruleika. -HKr. Hættumat vegna ofanflóða kynnt á ísafirði: Óvíst um uppkaup á 40 húseignum Hættumat vegna ofanflóða á ísa- firði og í Hnífsdal var kynnt á borg- arafundi á ísafirði í gær þar sem mættir voru um 130 manns. Halldór Halldórsson bæjarstjóri segir að það sé ekki nema I undantekningatilfell- um að hús séu í einhverri hættu, hættan sé hlutfallslega meiri t.d. í Neskaupstað og á Siglufirði. íbúar hafa fjórar vikur til að gera athuga- semdir við ofanflóðamatið en síðan fer það til staðfestingar umhverfis- ráðherra. Bæjaryfirvöld hafa sex mánuði til að ákveða hvort þau fari i uppkaup fasteigna eða ráðist í vamarframkvæmdir, en hvort sem uppkaup eða vamarframkvæmdir eru valdar, greiðir ríkið 90% kostn- aðarins en sveitarfélagið 10% sam- kvæm lögum. I Hnífsdal eru þetta um 20 hús og svipaður fjöldi á ísa- firði, en á fleiri svæðum. „Nú veit fólk sína stöðu, en hér hefur rikt mikil óvissa síðan 1995 þegar flóðin féllu á Flateyri og Súða- vík og ekkert hættumat í gildi. Nú hafa íbúar fengið staðfestingu á því hættumati sem gildir þar sem þeir búa. í mínum huga koma uppkaup á fasteignum ekki til greina, þau eru ekki valkostur, enda eigum við ekki of mikið byggingarland hér. En við höfum frest til ársins 2010 til þess að ljúka þeim framkvæmdum sem okk- ur ber lagaskylda til, t.d. að byggja vamargarða," segir Halldór Hall- dórsson bæjarstjóri. Einar Yngvason býr á Hjallavegi á ísafirði. Hann segir skriðufoll al- geng í hlíðinni fyrir ofan götuna en það hafi aldrei hvarlað að honum að flytja burtu eða fara þess á leit við bæjaryfirvöld að flytja burtu. Þama hafi hann búið aila tið og muni gera. „Þetta eru ekki skelfilegar fréttir, en ég játa að hættusvæðið hér i Hnífsdal er stærra en ég átti von á,“ segir Guðmundur Þór Kristjánsson sem býr við Dalbraut í Hnifsdal. „Þetta breytir ekki afstöðu minni til búsetu hér, ég mun áfram vera hér, tel mér ekki standa neina sérstaka ógn af umhverfinu, og bið þess að sveitarfélagið ráðist í byggingu varnargarða. Það er meiri ógn aust- an megin í Hnifsdalnum vegna gilj- anna en hér geta þó komið flekaflóð. Ég er í meiri hættu við umferðarljós í Reykjavík, þá sjaldan sem ég kem til höfuðborgarinnar, heldur en hér.“ -GG Tveir piltar dæmdir fyrir að nauðga 16 ára stúlku: Háttsemi þeirra svívirðileg og einkar niðurlægjandi - segir í dómsorði Héraðsdóms Reykjaness Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo 19 ára gamla menn, Elvar Þór Sturluson og Gunnar Jóhann Gunnarsson, í fangelsi fyrir að hafa nauðgað stúlku sem var þá 16 ára. Elvar Þór fékk tveggja ára fangelsis- dóm en Gunnar Jóhann 22 mánaða dóm. Stúlkan sem nauðgað var hitti pilt- ana tvo aðfaranótt 29. júlí árið 2000 ásamt vinkonu sinni og þáði heimboð til annars piltanna. Þegar kynlíf var fært í tal fór önnur stúlkan út en pOt- arnir meinuðu hinni útgöngu. í dómn- um segir að háttsemi piltanna hafi veriö svívirðileg og einkar niðurlægj- andi en á tímabili nauöguðu þeir stúlkunni báðir samtímis. Piltamir neituðu báðir sök og báru fyrir sig minnisleysi sökum ölvunar. Elvar Þór sagðist þó hafa átt í kynferðisathöfnum með stúlkunni með hennar samþykki. Hins vegar þótti framburður hans óljós og stundum með ólíkindum en hann greindi að hluta frá því sem hann taldi sér í hag en sleppti atrið- um sem gætu verið honum og Gunnari Jóhanni í óhag. Stúlkan þótti hins vegar lýsa atburðum i megindráttum á sama veg við skýrslugjöf hjá lögreglu og fyrir dómi. Að auki þótti frásögn hennar í samræmi við frásögn sem læknir á bráðamóttöku skráði eftir stúlkunni sama dag. Þá bera vitni að stúlkan hafi verið döpur og stressuð daginn eftir og að flest benti til þess að hún hefði orðið fyrir alvarlegu áfalli. Áleit dómurinn að þrátt fyrir neitun piltanna mætti leggja frásögn stúlkunnar til grundvallar enda hefði ekkert komið fram sem drægi úr trúverðugleika hennar. Væri sannað að pOtarnir hefðu þröngvað henni tO samræðis og annarra kyn- ferðismaka. Miskabætur tO stúlkunnar þóttu hæfilegar 500 þúsund krónur en fyrri ofbeldis- og þjófnaðardómar pOtanna voru teknir upp og þeim gerð refsing í einu lagi. -hlh 1 Sólargangur o; REYKJAVIK AKUREYRI Sólariag i kvöld 24.04 23.50 Sólarupprás á morgun 02.54 02.39 Síðdegisflóð 14.46 19.29 Árdegisflóö á morgun 03.05 07.38 V Léttir tii í kvöld Norðaustan og austan 5-10 m/s og dálítO rigning á sunnanverðu landinu í dag en annars skýjað og úrkomulítið. Léttir smám saman tO í kvöld og nótt. Hiti verður á bOinu 8-14 stig, svalast norðan tO. Hægur vindur og bjartviðri Austlæg eða breytOeg átt, 3-8 m/s og víða bjart veður á morgun en stöku skúrir með suður- og austurströndinni. Hiti 4 tO 13 stig, hlýjast vestanlands. wmm*su Laugardagur Sunnudagur Mánudagur ^í> HHi 8° Hiti 8" til 13* tll 14° Vindur: 3-5 Vindun Víndun Hægur andvari um land allt og yflrleitt bjartviöri. Milt og mátulega hlýtt veöur. Áframhaldandi hægviörí um mestallt landiö og áfram bjart í veöri. Þykknar upp þegar líöur á kvöldiö sunnan og vestan til. Suöaustlæg átt og lítils háttar úrkoma meö suöur- og vesturströndinni en annars þurrt aö mestu. Veöur fer hlýnandi. m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stlnningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,9-17,1 Hvassviðri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveöur 28,5-32,6 Fárviðri >= 32,7 Bi AKUREYRI úrkoma 4 BERGSSTAÐIR alskýjað 4 BOLUNGARVÍK úrkoma 3 EGILSSTAÐIR alskýjaö 3 KIRKJUBÆJARKL. rigning 7 KEFLAVÍK rigning 7 RAUFARHÖFN alskýjað 2 REYKJAVÍK skúr 6 STÓRHÖFÐI rigning 8 BERGEN skýjað 13 HELSINKI léttskýjaö 19 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 18 ÓSLÓ léttskýjaö 16 STOKKHÓLMUR 16 ÞÓRSHÖFN súld 9 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 12 ALGARVE heiðskírt 19 AMSTERDAM rigning 16 BARCELONA léttskýjaö 20 BERUN skruggur 15 CHICAGO heiöskirt 22 DUBUN skýjaö 11 HAUFAX þoka 8 FRANKFURT skýjaö 20 HAMBORG skýjaö 18 JAN MAYEN þoka 2 LONDON skýjaö 15 LÚXEMBORG skýjað 19 MALLORCA heiöskirt 22 MONTREAL heiöskírt 17 NARSSARSSUAQ léttskýjaö 4 NEW YORK heiöskírt 21 ORLANDO alskýjaö 22 PARÍS rigning 15 VÍN léttskýjaö 23 WASHINGTON hálfskýjað 18 WINNIPEG léttskýjaö 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.