Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Blaðsíða 7
7
FIMMTUDAGUR 20. JÚNl 2002
H>V Fréttir
Stofntölur yfir fiskafla fyrstu 5 mánuði ársins:
Aflinn aldrei verið
meiri
Spyrnuslysið:
Útskrifaður
af gjörgæslu
stefnir í nýtt aflamet, segir Fiskistofa
Útlit er fyrir að yfirstandandi ár
verði besta aflaár nokkru sinni.
Heildaraflinn fyrstu fimm mánuði
ársins eða til 31. maí 2002 var
1.257.043 tonn. Á sama tima í fyrra
var heildaraflinn 1.011.061 tonn.
Þetta er 24,3 prósenta aukning milli
ára. Aðeins einu sinni áður hefur
afli fyrstu funm mánuði ársins ver-
ið álíka mikill en það var metaflaár-
ið 1997 þegar aflinn frá janúar til og
með maí var 1.237.840 tonn.
Aflinn í maí 2002 var 135.657 tonn
Trollið inn.
sem er rúmlega 80 þúsund tonnum
meiri afli en í maí 2001, en þá var
aflinn 53.581 tonn. Botnfiskaflinn
var 55.115 í nýliðnum mai en var að-
eins 30.225 tonn i maí i fyrra. Þenn-
an mikla mun má rekja til verkfalls
fískimanna sem stóð frá lokum apr-
íl fram að fyrstu viku í maí í fyrra.
Athygli vekur að alls bárust á
land 19.160 tonn af úthafskarfa
fyrstu funm mánuði ársins en í
fyrra var hann aðeins 107 tonn.
Veiðar á úthafskarfa hefjast venju-
DVWND SIGURÐUR K. HJALMARSSON
Þrifabað fyrir sumarbúðir
Kópurinn Lúlli litli labbakútur fékk gott baö áöur en ekiö var meö hann eins og hvern annan farþega til Slakka. Krakk-
arnir Ylfa, Eiríkur, Gunnar og Guörún baöa kópinn í Víkuránni i Vík daginn áöur en þau létu hann frá sér.
Selkópur í sumarbúðum
Kópurinn sem fannst á Víkurfjörum i
slæmu ástandi fyrir mánaðamót hefur
nú fengið ný heimkynni yfir sumarið.
Segja má að kópurinn Lúlli litli
labbakútur, eins og hann er kallaður,
hafi farið í sumarbúðir í dýragarðinn í
Slakka í Biskupstungum. Þar er Lúlli
litli og unir sér vel, þyngist, þroskast og
dafnar. í augunum er hins vegar sorg og
söknuður og einhvetjir gestir hafa gert
athugasemdir. í haust verður honum
sleppt út á sjó úr fjörunni við Vík og
ekki útilokað að Hafrannsóknastofnun
festi við hann tæki til að hægt verði að
fylgjast með ferðum hans. -JBP
Vaxtalækkun Seðlabankans:
Aðeins 0,2% hús-
bréfavaxtalækkun
óveruleg áhrif á skuldir Jóns og Gunnu
Vaxtalækkun Seðlabankans nemur
orðið 1,6 prósentustigum á árinu. í árs-
byrjun voru vextir 10,1% en verða nú
8,5%. Hér er um að ræða nafnvaxta-
lækkun en ekki raunvaxtalækkun
þannig að áhrifm á skuldastöðu al-
mennings verða mun minni. Flest lán
eru verðtryggð eins og t.d. húsbréfa-
lán. Húsbréfavextir hafa aðeins lækk-
að um 0,2% frá ársbyrjun.
Már Guðmundsson, aðalhagfræðing-
ur hjá Seðlabankanum, segir að sam-
dráttur í eftirspum hafi verið nauð-
synlegur til að eyða viðskiptahalla og
skapa forsendur fyrir lítilli verðbólgu.
„Við spenntum upp vextina til að
spyma á móti of-
þenslu hagkerfis-
ins og þær aðgerð-
ir hafa skilað sér.
Nú erum við að
lækka vextina aft-
ur samfara lægri
verðbólgu en þrátt
fyrir allt era raun-
vextir enn töluvert
háir. Hinn al-
menni maður er
með megnið af sinum skuldum verð-
tryggt og þeir vextir hafa lækkað mun
minna en stýrivextir okkar," segir
Már.
Þeir verðtryggðu vextir sem snerta
almenning helst era húsbréfavextir.
Þeir voru í árslok um 6% en eru nú
komnir í 5,8%. „Raunvextir hafa lækk-
að töluvert minna en nafnvextir þar
sem verðbólgan er á niöurleið. Nú
erum við fyrst og fremst að koma í veg
fyrir að aðhaldið verði of mikið og
forðast að meiri samdráttur verði í
hagkerfmu en þarf til að ná verðbólg-
unni aftur niður,“ segir Már.
Skuldir heimilanna í lok mars vora
725 milljarðar og höfðu vaxið um 33
miUjarða síðan um áramót. Þá voru
þær 692 milljarðar. -BÞ
Már
Guðmundsson.
lega ekki fyrr en í apríl. Þar sem
sjómenn voru í áðumefndu verk-
falli i þeim mánuði í fyrra var afl-
inn ekki meiri en raun ber vitni.
Sérstaka athygli vekur litill afli í
ýsu en fréttir undanfarið benda til
aukinnar veiði. Ýsuaíli i maí er sá
slakasti í áratug ef undan er skilinn
aflinn í fyrra sem var minni sökum
verkfallsins.
Af öðrum tegundum má sjá tölu-
verða aukningu í afla loðnu og
kolmunna. Loðnuafli fram í júní er
903.175 tonn en var 773.884 á sama
tímabili í fyrra. Þetta er aukning
sem nemur 16,7 prósentustigum.
Kolmunnaaflinn var 79.983 tonn
fyrstu flmm mánuði ársins en hann
var aðeins 18.285 tonn árið 2001.
Aflamet I augsýn?
Ari Arason, starfsmaður Fiski-
stofu, segir aðalástæðuna fyrir þess-
um mesta heildarafla sem veiðst
hefur liggja i metafla af loðnu. „Það
sem skiptir mestu máli er þessi
mikla loðnuveiði en loðnustofninn
virðist vera í ágætis ásigkomulagi í
ár. Þetta er næstmesta loðnuveiði
sem mælst hefur í maí. Einnig er
kolmunnaaflinn miklu meiri en í
fyrra,“ segir Ari.
Spurður um hvort metaflaárið
1997 verði ekki slegið segir Ari það
ráðast af loðnuvertíðinni í sumar.
„Útlitið er ágætt í loðnunni og ef
það verður meðalvertíð þá ætti met-
ið að verða slegiö," segir Ari. -vig
Maðurinn sem slasaðist alvarlega
um helgina þegar hann var að
spyrna á bifhjóli á Akureyri var út-
skrifaður af gjörgæsludeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri í
gær. Honum heilsast eftir atvikum
en hann bæöi mjaðmagrindarbrotn-
aði og lærbrotnaði við áreksturinn.
Rannsókn málsins stendur yfir en
ein ástæða þess að bUl komst inn á
keppnissvæðið við Tryggvagötu og
lenti á bifhjólinu er talin sú að lok-
unarmerkingar hafi verið ónógar
samkvæmt heimUdum DV. -BÞ
Nýtt farsíma-
fyrirtæki á
Akureyri
Búið er að undirrita vUjayfirlýs-
ingu af hálfu Félagsstofnunar stúd-
enta við Háskólann á Akureyri, Fé-
lags stúdenta við Háskólann á Akur-
eyri og farsímafélagsins IMC ísland
ehf. um að stofna fyrirtæki um far-
símaþjónustu á Akureyri. Hið nýja
farsímafyrirtæki mun njóta aðstoðar
Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar við
uppbygginguna og verður væntanlega
tU húsa við Glerárgötu 36.
IMC ísland ehf., sem er að hefja
rekstur símstöðvar hér á landi fyrir al-
þjóðlega reikiþjónustu bandarísks móð-
urfyrirtækis síns við farsímanotendur
ásamt farsímakerfis innanlands á
nokkrum stöðum á landsbyggðinni,
hefur í ofangreindum tUgangi sett upp
farsímakerfi á Akureyri sem tekið
verður í notkun 1. júlí nk. -BÞ
Erum með sagir með
hraðastilli, sem henta vel
til að saga gifsplötur.
FESTO
Tenging við ryksugu
tryggir nánast ekkert
ryk á vinnustað,
Beinn og góður skurður
sem minnkar alla eftirvinnu
fýrir málara.
. Minni kostnaður
við blikkkanta
..það sem
fagmaðurinn
notar!
Veldu h/jómtæki
sem hæfa bílnum!
Komdu með bífínn og við græjum hann
Verð frá 29.900
NYTT
•DEH-1400
■ 4x45w
• RCA útgangur
■FM/MW/LW
18 stöðva minni
20%
afsláttur af öllum
bí/hátö/urum
BRÆÐURNIR
HLJÓMTÆKI
Lágmúla 8 • Sími 530 2800