Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Blaðsíða 26
26
FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002
Sport
DV
*
Góður sigur
„Þetta var mjög góður sigur.
Við fengum mörg færi og hefðum
alveg getað unnið enn stærra,“
sagði Aðalsteinn Víglundsson,
þjálfari Fylkis, eftir sigurinn á
Grindavík.
Aðalsteinn var ánægður með
baráttuna i liðinu. „Það er vitað
mál með Grindavíkurliðið að
það má ekki gefa því frið því ef
það gerist er liðið stórhættulegt.
Helsti veikleikinn hjá þeim var
hins vegar að vörnin var fullflöt
þannig að við áttum auðvelt með
að komast á bak við hana. Það er
gott að vera á toppnum núna og
þar ætlum við að halda okkur.“
Undir í baráttunni
„Við vorum alveg eins liklegir
á upphafsmínútunum og áttum
þá jafnvel frumkvæðið. Það
reyndist hins vegar vera allt og
sumt og við mættum hér vel
stemmdu og- kraftmiklu Fylk-
isliði," sagði Bjami Jóhannsson,
þjálfari Grindvíkinga, sem var
mættur á kunnuglegar slóðir, til
liðsins sem hann þjálfaði í fyrra.
„Við vorum einfaidlega undir
í baráttunni og þrátt fyrir að við
gerðum breytingar í seinni hálf-
leik gekk þetta ekki upp. Við
verðum hreinlega að taka okkur
saman í andlitinu og reyna að
spila betur." -HI
Finnur Kolbeinsson, Fylki, og Grindvíkingurinn Óli Stefán Flóventsson eigast hér við á Árbæjarvelli í gærkvöldi.
DV-mynd Teitur
Fyikir skaust
á toppinn
? * SÍMA
DEILDIN
Fylkir 6 3 2 1 11-7 11
KR 5 3 11 8-4 10
KA 6 2 3 1 5-59
Grindavlk 6 2 2 2 11-11 8
Keflavtk 6 2 2 2 9-10 8
FH 6 2 2 2 8-10 8
Fram 5 13 19-8 6
Þór, Ak. 6 1 3 2 8-10 6
ÍA 6 1 2 3 8-10 5
ÍBV 6 1 2 3 7-9 5
Markahæstir:
Grétar Hjartarson, Grindavík .... 4
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV . 4
Jóhann Þórhallsson, Þór, Ak.....4
Steingrímur Jóharmesson, Fylki . . 4
Andri Fannar Ottósson, Fram .... 3
Ellert Jón Bjömsson, ÍA..........3
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR . . 3
Sigurvin Ólafsson, KR............3
Sævar Þór Gíslason, Fylki .......3
Þorbjöm Atli Sveinsson, Fram ... 3
Lokaleikur umferðarinnar fer fram í
kvöld. Þá mætast KR og Fram á KR-
velli kl. 19:15.
Fylkismenn skutust á topp deildar-
innar eftir 2-0 sigur á liðinu sem
spáð hefur verið að berjist um titil-
inn við þá, Grindavík. Sigurinn var
fyllilega sanngjarn því Fylkismenn
voru mun betri aðilinn, börðust vel
allan tímann og höfðu meiri sigur-
vilja í leiknum á meðan Grindavík-
urliðið virkaði andlaust og jafnvel
áhugalaust í leiknum.
Jafnræði var með liðunum framan
af og bæði lið virtust staðráðin í að
koma inn í leikinn af krafti. Fyrsta
færið féll þó í skaut Fylkismönnum á
6. mínútu þegar Steingrímur Jóhann-
esson skaut í þverslá af stuttu færi.
Eftir rúmlega 20 mínútna leik skap-
aðist svo hætta upp við mark Fylkis
þegar Kjartan Sturluson markvörður
missti aukaspyrnu Grétars Hjartar-
sonar fram hjá sér en ekki náðu
Grindvíkingar að nýta sér það.
Á sömu mínútunni kom hins veg-
ar vendipunkturinn í leiknum. Stein-
grímur Jóhannesson slapp inn fyrir
vörn Eyjamanna og skaut en Atli
varði. Boltinn fór þaðan í varnar-
mann og í stöng þar sem Steingrímur
fékk hann aftur og skoraði. Eftir
þetta var í raun aðeins eitt lið á vell-
inum og var eins og Grindvíkingar
heíðu gefist upp. Átta mínútum eftir
markið var svo staðan orðin 2-0 þeg-
ar Sævar fékk boltann inn fyrir vöm
Grindvíkinga eftir slæm mistök
þeirra og skoraði örugglega.
Róttækar breytingar
Bjami Jóhannsson, þjálfari Grind-
víkinga, gerði róttækar breytingar á
liðinu í leikhléi. Paul McShane byrj-
aði á bekknum vegna smávægilegra
meiðsla en nú var hann settur inn á
í stöðu hægri bakvarðar og Ólafur
Örn Bjarnason færður inn á miöjuna
auk frekari tilfæringa í vörninni.
Þetta hafði engin áhrif á leik Grind-
víkinga sem virkuðu áfram jafn
máttlausir. Þeir komust í raun aldrei
nálægt því að minnka muninn á með-
an Fylkismenn fengu þrjú prýðileg
marktækifæri til að auka muninn.
En þau nýttust ekki og Fylkismenn
fögnuðu sigrinum og toppsætinu vel
í leikslok.
Fylkismenn voru vel að sigrinum
komnir eins og áður sagði. Þeir börð-
ust um hvern bolta og unnu flest ná-
vígi. Liðið var jafnt en þó ber að telja
helstan fyrirliðann Finn Kolbeinsson
sem átti mjög góðan leik á miðjunni
og vann þar vel. Gunnar Þór Péturs-
son var traustur í vinstri bakverðin-
um og var einnig hættulegur sóknar-
lega. Þá vora Steingrimur og Sævar
Þór síógnandi fram á við. En í raun
stóð allt liðið sig vel og þessi leikur
lofar góðu um framhaldið.
Það var mikið andleysi í liði
Grindvíkinga og eins og þeir gæfust
um við minnsta mótlæti miðað við
hvernig fyrsta markið fór í þá. Varn-
armenn Fylkis héldu mönnum á borð
við Grétar Hjartarson og Sinisa
Kekic að mestu niðri og miðjan veitti
framherjunum engan stuðning. Þá
var vörn Grindvíkinga mjög Qöt og
opnaðist illa hvað eftir annað. Atli
Knútsson markvörður var einna
skástur í liðinu, varði nokkram sinn-
um prýðilega og verður ekki sakaður
um mörkin. -HI
Steingrimur Johannesson er kom-
inn meö 4 mörk í deildinni.
Fylkir-Grindavík 2-0 (2-0)
1- 0 Steingrlmur Jóhannesson (21., skot frá vítateig, fékk sendingu frá Hrafnkeli
Helgasyni og skoraði í þriðju tilraun.)
2- 0 Sævar Þór Gíslason (29., skot frá vítateig eftir stungusendingu Hrafnkels.)
Fylkir (4-3-3)
Kjartan Sturluson .......3
Gunnar Þór Pétursson .... 4
Þórhallur D. Jóhannsson .. 4
Ómar Valdimarsson........4
Valur Fannar Gíslason ... 3
Sverrir Sverrisson.......3
(63. Jón B. Hermannsson .. 2)
Finnur Kolbeinsson.......4
Hrafnkell Helgason ......4
Steingrímur Jóhannesson . 4
Sævar Þór Gíslason.......4
Theodór Óskarsson ........2
(87. Bjöm V. Ásbjörnsson . -)
Dómari: Kristinn Jakobs-
son (4).
Áhorfendur: 1043.
Gul spjöld:
Valur Fannar
(70.), Fylki. Ray
(63,), Gestur
(69.), Ramsey
(78.), Grindavík.
Rauð spjöld:
Engin.
Skot (á mark):
13 (8) - 7 (2)
Horn:
7- 3
Aukaspyrnur:
15- 17
Rangstöóur:
8- 3
Varin skot:
Kjartan 2 -
Atli 4.
Grindavík (4-3-3)
Atli Knútsson .........4
Gestur Gylfason .......3
Ólafur Öm Bjamason ... 3
Guðmundur Bjarnason . . 2
Ray Jónsson ...........3
Vignir Helgason .......2
(46. Paul McShane......2)
Óli Stefán Flóventsson ... 3
Heiðar Aðaigeirsson ...1
(76. Eysteinn Hauksson ... -)
Sinisa Kekic ..........2
Grétar Hjartarson.........3
Scott Ramsey..............3
Gæði leiks:
Maður leiksins hjá DV-Sporti:
Finnur Kolbeinsson, Fylki