Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Blaðsíða 28
28
FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002
Sport
x>v
Frábær endur-
koma Bjarka
Stund milli stríöa á æfingu Brasilíumanna. Ronaldo situr á boltanum en aörir á myndinni eru (frá vinstri): Kaka,
Edmilson, Roque Junior, Lucio og Vampeda. Brasilíumenn mæta Englendingum á morgun í leik sem veröur
sennilega sá athyglisveröasti á HM til þessa. Reuters
Átta liða úrslitin á HM heQast í fyrramálið:
Brassar verða að
stöðva Beckham
Mikil spenna er í lofti vegna leiks
Brasilíumanna og Englendinga í 8-
liða úrslitum HM á morgun. Nokk-
ur bjarstýni ríkir í herbúðum Eng-
lendinga, einkum vegna þess að út-
lit er fyrir að Michael Owen og Paul
Scholes verða allir orðnir heilir fyr-
ir leikinn auk þess sem Owen
Hargreaves er búinn að ná sér af
meiðslum sinum.
Sven Göran Eriksson segir að
Brasilíumenn séu alls ekki ósigr-
andi þrátt fyrir að vera sterkir.
„Við verðum að leika eins vel og við
gerðum gegn Argentínumönnum ef
við ætlum að sigra Brasilíumenn.
Viö erum hugsanlega með bestu
vörnina og munum mæta bestu
sókninni á morgun svo að þetta
verður mikil barátta og mjög athygl-
isverður leikur." Eriksson sagði
einnig að hann vonaðist eftir rign-
ingu þar sem áhrifin af hitanum
yrðu þá ekki eins mikil.
Forgangsverkefni Brasilíumanna í
leiknum er talið að stöðva David
Beckham en þeir óttast mjög hversu
hættulegar aukaspyrnur hans og
hornspyrnur verða. „Við höfum þjálf-
að vörnina sérstaklega til að höndla
hornspyrnur frá Beckham," sagði
Luis Felipe Scolari, þjálfari Brasilíu-
manna. „Englendingar eru mjög
sterkir í fostum leikatriðum og við
munum vinna í því. Ég held að 1-0
sigur yrðu frábær úrslit fyrir okk-
ur.“ Það er einnig ljóst af hugleiðing-
um Brasilíumanna að það mun
skipta griðarlega miklu máli fyrir þá
að skora á undan því ef Englending-
ar ná forystunni gæti staðan orðið
mjög erfið fyrir þá.
Luci var eini leikmaður Brasilíu
sem missti af æfingu í gær en hann
á við smávægileg meiðsli í hné aö
stríða. Búist er þó við að hann verði
orðinn góður fyrir leikinn á morg-
un. -HI
Það má með sanni segja að það
hafi verið boðið upp á markaregn á
Skaganum í gær er ÍA tók á móti
Keflvíkingum. Skagamenn byrjuðu
af miklum krafti og strax á þriðju
mínútu áttu þeir gott færi en Ómar
Jóhannsson varði vel. Gegn gangi
leiksins náðu Keflvíkingar að skora
á 6. minútu og kom þetta eins og
köld vatnsgusa í andlit Skaga-
manna. Þeir voru fljótir að hrista af
sér slenið og nú hófst alvörumarka-
súpa því á næsta hálftíma breyttist
staðan úr 0-1 í 4-1. Maðurinn á bak
við þetta var enginn annar en
Bjarki Gunnlaugsson sem kominn
var aftur í Skagaliðið eftir sjö ára
fjarveru. Innkoma Bjarka í lið
Skagamanna virkaði eins og góð
vítamínssprauta og voru þeir að
spila ágætisfótbolta. í siðari hálfleik
náðu þeir síðan að bæta við fimmta
markinu og þá var bjöminn unn-
inn. Keflvíkingar náðu þó að
minnka muninn á síðustu mínút-
unum og hefðu hæglega geta skorað
fleiri mörk i lokin.
„Þetta var sanngjam sigur, við
vorum miklu betri en þeir,“ sagði
Ólafur Þórðarson, þjálfari Skaga-
manna, er DV-Sport ræddi við hann
að leik loknum. „Markið sem við
fengum á okkur i byrjun var gegn
gangi leiksins en við náðum að sýna
karakter og koma til baka og jafna
fljótlega. Að fá Bjarka til liðs við
okkur er alveg frábært. Þetta er það
sem okkur vantaði, við misstum
nokkra leikmenn frá því í fyrra og
þvi vissum við að hann myndi
styrkja liðið. Við höfum ekki verið
að spila svo iila í leikjunum sem
búnir eru en okkur hefur ekki tek-
ist að skora en það má segja að það
hafi tekist í kvöld,“ sagði Ólafur,
kampakátur, að lokum.
„Þetta var mjög gaman. Siðast
þegar ég spilaði með Skagamönnum
skoraði ég tvö mörk. Það var árið
‘95 svo þetta var ekki leiðinleg byrj-
un. Ég fékk svona frjálst hlutverk
inni á vellinum og það hentaði mér
vel, þó vildi ég ekki spila lengur í
fyrsta leiknum þar sem staða okkar
var orðin góð,“ sagði Bjarki Gunn-
laugsson, nýliðinn í hópi Skaga-
manna.
„Við klikkuðum. Þeir skoruðu en
ekki við,“ sagði Kjartan Másson,
þjálfari Keflvíkinga. „Þeir voru
ákveðnari en við og voru að spila
vel. Þó áttum við ágætisspretti í
seinni hálfleik en það nægir ekki að
spila vel hluta leiksins. Þetta hefur
verið að hrjá okkur. Við höfum ver-
ið að spila ágætisbolta annan hálf-
leikinn en það nægir ekki,“ sagði
Kjartan að lokum. -EH
Eyjamenn leita að markverði í Makedóníu:
Sambandsleysi
hefur tafið málið
- tókst loks að hafa uppi á umboðsmanni
1. deildar líð ÍBV í handknattleik
hefur að undanfömu verið að leita
að markverði í Makedóníu en mjög
erfitt hefur reynst að ná sambandi
þangað suður eftir og fátt hefur
verið um svör. Ljóst er að Eyja-
menn vantar markvörð fyrir næsta
tímabil en Hörður Flóki Ólafsson,
sem varði lengstum markið hjá
þeim á síðasta tímabili, verður
ekki í þeirri stöðu áfram.
Jóhann Pétursson, gjaldkeri
handknattleiksdeildar ÍBV, sagði í
samtali við DV í gær að nú væri
vonandi að komast einhver skriður
á máli því þeir hefðu loksins kom-
ist í samband við umboðsmann
sem annast m.a. mál leikmanna í
Makedóníu til að komast til erlends
liðs sem þykir mjög eftirsóknar-
vert.
Málin farin aö skýrast
„Málin eru farin að skýrast og
við erum famir að fá upplýsingar
og ljóst að okkur standa til boða
nokkrir markmenn. í fyrstu vorum
við að sækjast eftir landsliðsmark-
verði Makedóníu en að sögn um-
boðsmannsins eru fleiri slikir í
boði. Við erum ekki komnir langt
áleiðis í þessu máli en vonandi
skýrast málin á næstu dögum. Það
er brýnt að leysa markmannsmálin
en auðvitað vantar okkar fleiri
leikmenn eftir að hafa misst sterka
leikmenn nú í vor. Við leitum í all-
ar áttir, bæöi hér heima og erlend-
is, en engar viðræður hafa átt sér
stað. Reynslan hefur sýnt okkur að
það er mjög erfitt að finna leik-
menn erlendis á þessum árstíma.
Við eigum ágætan hóp ungra og
efnilegra stráka en það er markmið
okkar að mæta með sterkt lið í bar-
áttuna í haust," sagði Jóhann Pét-
ursson.
-JKS
0-1 Adolf Sveinsson (6., skot frá teig eftir sendingu Þórarins Kristjánssonar)
1- 1 Bjarki Gunnlaugsson (8., skot frá markteig eftir sendingu Kára Steins Reyniss.)
2- 1 Hjörtur Hjartarson (18., skot frá vítateig, frákast af skalla Bjarka sem var varinn)
3- 1 Bjarki Gunnlaugsson (23., skalli frá vítateig eftir fyrirgjöf Ellerts Jóns Bjömss.)
4- 1 Ellert Jón Björnsson (37., skot utan teigs eftir stungusendingu frá Bjarka.)
5- 1 Baldur Aðalsteinsson (53., skalli frá vitateig eftir homspymu Ellerts Jóns.)
5-2 Hörður Sveinsson (81., skot frá vítateig eftir sendingu Adolfs Sveinssonar)
IA (4-4-2)
Ólafur Þór Gunnarsson
Andri Karvelsson ....
Gunnlaugur Jónsson ..
Reynir Leósson .....
Hjálmur Dór Hjálmsson
Ellert Jón Björnsson ..
Baldur Aðalsteinsson ..
(68. Pálmi Haraldsson .
Kári Steinn Reynisson .
Grétar Rafn Steinsson .
Hjörtur Hjartarson ...
(80. Garðar Gunnlaugsson
Bjarki Gunnlaugsson
(58. Hálfdán Gíslason
.4
.3
.4
.4
.3
. 4
.4
.2)
. 4
. 4
.3
.-)
.5
.2)
Dómari: Eyjólfur Ólafsson
(5).
Áhorfendur: 1058.
Gul spiöld:
Hjálmur (70.),
ÍA. Kristján
(30.), Adoif
(41.), Jón Örvar
Arason (aðstoð-
arþjálfari, 70.),
Kef.
Rauð spjöld:
Engin.
Skot (á mark):
12 (9) - 19 (8)
Born:
6-7
Aukaspyrnur:
15-14
Rangstööur:
5-2
Varin skot:
Ólafur 5 - Ómar
4.
Keflavík (4-3-3)
Ómar Jóhannsson.........3
Jóhann Benediktsson .... 3
(75. Brynjar Guðmundss. . 2)
Haraldur Guðmundsson . 2
Zoran Ljubicic..........2
Kristján Jóhannsson .... 2
Þórarinn Kristjánsson ... 3
Magnús Sv. Þorsteinsson . 2
(60. Hólmar Öm Rúnarss. 2)
Adolf Sveinsson.........3
Georg Birgisson .........2
Jónas Guðni Sævarsson . 3
Guðmundur Steinarsson
(55. Hörður Sveinsson ..
. 2
.3)
Gæði leiks
Maður leiksins hjá D -Sporti:
Bjarki Gunnlaugsson, ÍA
EM í handbolta:
Fjögur íslensk
lið verða með
Fjögur íslensk félagslið hafa
ákveðið að taka þátt í Evrópu-
mótunum í handknattleik í
haust. í karlaflokki taka
Haukar þátt í Evrópukeppni
bikarhafa, Valsmenn í EHF-
keppninni og Grótta/KR í
áskorendakeppninni. Aftur-
elding hefur formlega til-
kynnt að ekki verði af þátt-
töku liðsins en íslandsmeist-
arar KA hafa ekki enn komist
að niðurstöðu. Kvennalið ÍBV
verður með í Evrópukeppni
bikarhafa. Það er langt síðan
að jafnmörg íslensk félagslið
hafa verið með á Evrópumót-
unum í handknattleik.
Ef KA-menn taka ekki þátt í
meistaradeildinni getur ekk-
ert annað lið frá íslandi tekið
sæti þeirra í keppninni.
Landsmeistarar frá 32 þjóðum
taka þátt í meistaradeildinni
þannig að ekki eiga öll lönd
öruggt sæti í keppninni. Frest-
ur til að sækja um þátttöku
rennur út 1. júlí og síðar í
sama mánuði verður dregið til
1. umferðar á mótunum.
-JKS
-Keflavík 5-2 (4-1)