Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002
Viðskipti
DV
Umsjón: Vi&skiptablaðiö
Útgerðarfélag Akureyringa:
Framkvæmd-
ir hafnar viö
byggingu
geymsluhúss
í september nk. áætlar Útgerðar-
félag Akureyringa að taka í notk-
un 600 fermetra viðbyggingu sem
kemur beint suður af núverandi
vinnsluhúsi ÚA á Akureyri. Fram-
kvæmdir við byggingu hússins
eru hafnar en þar verður fyrst og
fremst geymsluaðstaða fyrir hrein
Fiskiker og sömuleiðis verður
rými til þess að rafmagnshlaða allt
að sex lyftara. Heildarkostnaður
er áætlaður 34 milljónir króna.
Lengi hefur vantað geymsluhús
fyrir fiskikerin áður en þeim er
skipað út í ísfisktogarana og því
verður þessi aðstaða kærkomin.
Örn Ingvarsson, þróunar- og
tæknistjóri ÚA, segir að unnt
verði að geyma á bilinu 1300-1500
ker í húsinu í einu. Um er að ræða
stálgrindarhús sem Öm segir að
verði létteinangrað. Húsið nær 20
metra í suður af núverandi
vinnsluhúsi ÚA. Á þessu svæði
var áður svokallað hafnarhús, sem
nú hefur verið rifið, en þar var
fyrst og fremst geymsla og aöstaða
til viðgerða á kerum og kössum.
Það er fyrirtækið Trétak sem
annast jarðvegsvinnu og steypir
undirstöður hússins.
Sýning í Smáralind:
Heilbrigði, tækni
og vísindi
í gær opnaöi forseti íslands, Ólaiúr
Ragnar Grímsson, sýninguna Heil-
brigði, tækni og vísindi sem haldin er í
Smáralind í Kópavogi. Sýningin stend-
ur til 21. júní og er opin alla dagana frá
kl. 10 til 18. Forsetinn er vemdari sýn-
ingarinnar.
Þátttakendur í sýningunni verða 92
og meðal þeirra eru 50 læknar, vísinda-
menn og verkfræðingar frá 30 til 40
löndum sem kynna verkefni sín í heii-
brigðistækni og vísindum af hvaða tagi
sem er á heilbrigðissviði. Auk þess
kynna 42 fyrirtæki á sviði heilbrigðis-
tækni starfsemi sína, þar af fjögur er-
lend.
Helstu aðstandendur sýningarinnar
eru Heilbrigðistæknivettvangurinn,
Samtök iðnaðarins, Heilbrigðistæknifé-
lag íslands, Nýsköpunarsjóður, Rann-
sóknarráð íslands, heilbrigðisráðuneyt-
ið, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið og
Impra.
Öllum er heimill aðgangur að sýn-
ingunni gegn vægu gjaldi sem rennur
til kaupa á lækningatækjum fyrir böm
og bamaböm íslands í samvinnu við
Lionsklúbbinn Fjörgyn og Bamaspít-
ala Hringsins.
Alþjóðlega ráðste&ian 12 NBC 2002
verður haldin í tólfta sinn frá 1970 og nú
í fyrsta sinn hér á landi. Ráðstefnuna
situr fjöldi manns sem starfar á heil-
brigöissviði, þar af em
um 150 útlendingar og
fjölmargir Islendingar.
Norræni heilbrigðis-
tæknivettvangurinn
og IRC Medical
Thematic Group halda
einnig fundi hérlendis
af þessu tilefni.
Þá fer fram fyrir-
tækjastefhumót þar
sem fulltrúar ís-
lenskra og erlendra
fyrirtækja ræða hugs-
anleg viðskipti sín í
milli en Impra hefur umsjón með
stefiiumótinu.
Síöast en ekki síst verður kynnt
stofnun sérstaks starfsgreinahóps í
heilbrigðistækniiðnaði innan Samtaka
iðnaðarins í tengslum við sýninguna
Heilbrigði, tækni og vísindi. Kynning-
in fer fram fóstudaginn 21. júní og hefst
kl. 8.30.
Skipulagsbreytingar
hjá dkRetis ehf.
Skipulagsbreytingar hafa átt sér
stað hjá hugbúnaðarfyrirtækinu
dkRetis ehf. Fyrir tveimur árum
stofnuðu fyrirtækin Retis ehf. og
dk hugbúnaður ehf. saman fyrir-
tækið dkRetis ehf. með það að
markmiði að þjónusta og selja dk
viðskiptahugbúnaðinn. Að sögn
Guðmundar Breiðdals, fram-
kvæmdastjóra dk hugbúnaðar ehf.,
hefur verið ákveðið að leggja niður
dkRetis ehf. og aðskilja rekstur
Retis ehf. og dk hugbúnaðar ehf.
„dkRetis ehf. hefur aldrei verið „ai-
vöru fyrirtæki", aldrei átt neinar
eignir og aldrei átt að vera með
hefðbundinn rekstur. Þessi skipu-
lagsbreyting þýðir einfaldlega að
Retis ehf. og dk hugbúnaður ehf.
hafa ákveðið að aðskilja rekstur
sinn opinberlega, þ.e hætta að nota
dkRetis ehf. sem „hatt“ fyrir rekst-
ur sinn,“ sagði Guðmundur.
Retis ehf. mun færa starfsemi
sína niður á 1. hæð í Hlíðasmára 8
og einbeita sér að sölu og þjónustu
á dk viðskiptahugbúnaðinum, al-
mennum vélbúnaði og öðrum bók-
haldskerfum. dk hugbúnaöur ehf.
verður áfram með starfsemi sína á
2. hæð í Hlíðasmára 8 og einbeitir
Spá Greiningar íslandsbanka:
Spáir 1-3 milljarða
króna afgangi
J. R. BÍLASALAN
www.jrbilar.is
Til sölu og sýnis á JR Bílasölu
Bíldshöfða 3, sími 567-0333
Getum bætt vid okkur bilum á staðinn og á skrá. visa/Euro raðgroiðslur.
Blaðberi óskast
r-.- , , i----—t.-; ,■ , —: r.i.-.sats
í Áslandshverfið
í Hafnarfirði.
Uppl. í síma 555-1031 (Ásta),
550-5744 og 550-5743.
Á fyrstu fjórum mánuðum þessa
árs var afgangur á vöruskiptum við
útlönd samanborið við halla á sama
tíma í fyrra. Gera má ráð fyrir að
tölur fyrir mai sýni viðlíka þróun,
að því er fram kemur í Morgun-
komi íslandsbanka í gær.
Þar segir að gengisþróun krón-
unnar undanfariö hafi hvatt til auk-
ins innflutnings. Samkvæmt bráða-
birgðatölum um innheimtu virðis-
aukaskatts af innflutningi í maí
voru fluttar inn vörur fyrir 18,7
miiijarða króna í þeim mánuöi. í
maí í fyrra vom fluttar inn vörur
fyrir 17,8 milijarða króna en fyrir
18,1 miiljarð í apríl síðastliönum. Á
fóstu gengi er um talsverða aukn-
ingu að ræða, bæði frá apríl síöast-
liðnum og maí í fyrra, en meðal-
gengi erlendra gjaldmiðla var 3,4%
lægra í maí síðastliðnum en í apríl
og 5,8% lægra en í maí i fyrra.
Neytendur hafa brugðist við
hækkun á gengi krónunnar með
auknum kaupum á vörum erlendis
frá. Útflutningur hefur einnig tekið
við sér. Heildaraflinn í maí síðast-
liðnum var um 66 þúsund tonnum
meiri en í apríl síöastliðnum. Mun-
ar þar mest um aukinn kolmunna-
afla. Vel hefur veiðst það sem af er
ári. Af þessum sökum má gera ráð
fyrir því að útflutningsverðmæti
sjávarafurða hafl veriö nokkuð
meira í maí síðastliðnum en í apríl.
Á móti vegur gengisþróun krónunn-
ar og verð sjávarafurða sem heldur
hefur farið lækkandi. Útflutningm-
iðnaðarvara hefur færst í aukana að
undanfómu. Einkum hefur verið
vöxtur í útflutningi annarrar iðnað-
arvöru en áls.
I Morgunkomi segir að gera megi
ráð fyrir því að áfram verði vöxtur
i þessum útflutningi. „Miklar sveifl-
ur eru hins vegar á milli mánaða i
þessum lið útflutnings sem erfitt er
að spá fyrir um. Greining ÍSB spáir
því að verðmæti útflutnings verði
um 20-22 milljarðar króna í maí og
að vöruskiptin við útlönd hafi verið
hagstæð um 1-3 milljarða króna. í
maí í fyrra voru vöruskiptin óhag-
stæð um 3,5 milijarða króna. Rætist
spáin munu vöruskiptin hafa veriö
jákvæð um 9-11 miiljarða króna
samanborið við tæplega 9 milijarða
króna halla á sama tímabili í fyrra.“
Hagstofan mun birta tölur um ut-
anríkisverslun í maí fóstudaginn 28.
júní næstkomandi.
sér áfram að sölu, þjónustu og þró-
un á dk viðskiptahugbúnaðinum.
Guðmundur tók fram að engar
breytingar hefðu orðið á eignar-
haldi eða markmiðum félagsins.
dk hugbúnaður ehf. mun yfír-
taka gerða þjónustu- og uppfærslu-
samninga viðskiptavina dkRetis
ehf. og verða þeir eftir sem áður
uppfylltir bæði af Retis ehf. og dk
hugbúnaði ehf. Þeir viðskiptavinir
sem ekki hafa gildandi samning
geta gert þjónustu- og uppfærslu-
samninga við Retis ehf. eða dk
hugbúnað ehf. Retis samanstóð af
fjórum starfsmönnum en dk hug-
búnaður af átta starfsmönniun.
Eftir breytingu eru starfsmenn
Retis fjórir og starfsmönnum dk
hugbúnaðar hefur fjölgað í 11.
HEILDARVIÐSKIPTI
Húsbréf
Hlutabréf
MEST VIÐSKIPTI
Parmaco
KER
Össur
MESTA HÆKKUN
QVinnslustööin
©SÍF
o Eimskip
MESTA LÆKKUN
©TM
© Baugur
©KER
ÚRVALSVÍSITALAN
- Breyting
rj
5.257 m.kr.
2.448 m.kr.
629 m.kr.
167 m.kr.
61 m.kr.
53 m.kr.
1,4%
1,2%
1,1%
4,2%
2,0%
1,6%
1.272 stlg
-0,53%
Afkomuvið-
vorun i kjol-
far strands
Fjölveiðiskipiö Guðrún Gísladótt-
ir KE-15, sem sökk við Lófóten í
Noregi, var tryggt hjá Trygginga-
miðstöðinni hf. í frétt frá TM kemur
fram að skipið er húftryggt fyrir
rúma 2 milljarða króna og einnig
eru afli og veiðarfæri tryggð hjá fé-
laginu. Gera má ráð fyrir að TM
beri um 100 mflljónir króna af tjón-
inu en það sem þar er umfram fell-
ur á endurtryggjendur. Að öðru
óbreyttu verður afkoma félagsins á
árinu því lakari en áætlað var. Ætla
má að tjón þetta geri endurtrygg-
ingakjör félagsins lakari i framtíð-
inni, að því er segir í frétt TM.
Fiskaflinn:
Sjómannaverk-
fall einkennir
samanburð frá
fyrra ári
Fyrstu funm mánuði þessa árs
var hefldarafli islenskra skipa 1.257
þúsund tonn samkvæmt tilkynn-
ingu frá Fiskistofú. í tonnum talið
var heildarafli fyrstu fimm mánaða
þessa árs 24% meiri en á sama tíma
í fyrra. Afli ársins hefur ekki áður
veriö jafn mikill og aðeins einu
sinni verið álíka mikill, eða metafla-
árið 1997 þegar aflinn var 1.238 þús-
und tonn. Aukinn afli milli ára
skýrist af mjög góðri loðnuvertíð í
upphafi árs, mun meiri kolmunna-
og karfaafla. Hafa ber í huga við
samanburö milli ára að í april og
maí í fyrra stóð yfir sex vikna verk-
fall sjómanna. Þannig var afli í maí
á þessu ári 136 þúsund tonn sem er
rúmlega 80 þúsund tonnum meiri
afli en í maí 2001.
Botnfiskaflinn í maí var 55 þúsund
tonn en var 30 þúsund tonn í maí 2001.
Þorskafli í maí var 17 þúsund tonn en
var 16 þúsund tonn í maí 2001. Tæp 19
þúsund tonn bárust á land af út-
hafskarfa í síðastliðnum mánuði en
nær engar úthafskarfaveiðar fóru
fram í mai í fyrra sökum sjómanna-
verkfallsins. í tilkynningu frá Fiski-
stofú kemur fram að botnfiskafli í maí
hafi verið nálægt meðalafla þessara
tegunda á síðasta áratug. Fiskistofa
segir þó að sérstaka athygli veki lítill
ýsuafli en hann var 3.300 tonn í mai
en fréttir undanfarið hafa bent til auk-
innar veiði. Ýsuafli í maí er sá
slakasti í áratug ef undan er skflinn
aflinn í fyrra en þá hamlaði verkfall
veiðum. Alls var landað 63 þúsund
tonnum af kolmunna í maí en aflinn
var aðeins 16 þúsund tonn í maí 2001.
Ekta fiskur ehf.
J S. 460 1016 J
úí’vatnaður saltfiskur,
dn beina, til ao sjáða.
Sénitvatnaóur sa
án beina, til að stt
iskur,
Sa/tfisksteikur (Lomos)
fyrir veitingabús.