Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2002, Side 20
20
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
95 ára______________________________
Sigríður Halldórsdóttir,
Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík.
95 ára_____________________________
Björn Jónsson,
Gilsárvöllum 1, Borgarfirði eystri.
80 ára_____________________________
Arthur Stefánsson,
Skjólvangi Hrafnistu, Hafnarfiröi.
Rakel Guðmundsdóttir,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði.
Sigríður Arnfinnsdóttir,
Hraunbæ 170, Reykjavík.
75 ára_____________________________
Ólafía Kristjánsdóttir,
Miðtúni 16, Isafirði.
Sigurður H. Kristjánsson,
Köldukinn 3, Hafnarfirði.
70 ára ____________________________
Fríða Kristjánsdóttir,
Stekkjarflöt 9, Garðabæ.
Hafsteinn Eyjólfsson,
Lambastaðabraut 3, Seltjarnarnesi.
Vigdís Dagmar Filippusdóttir,
Bjarmalandi 14, Sandgerði.
60 ára_____________________________
Fanney Sigurðardóttir,
Jörfabakka 8, Reykjavík.
Gunnar Ásgeirsson,
Bakkaseli 13, Reykjavík.
Gylfi Þór Ólafsson,
Melteigi 18, Keflavík.
Jónína Bryndis Sigurðardóttir,
Asparlundi 7, Garðabæ.
Pétur Valdimarsson,
Hólagötu 18, Vestmannaeyjum.
Sigurður Garðarsson,
Rjúpufelli 42, Reykjavík.
Sverrir Magnússon,
Efra-Ási, Sauðárkróki.
50 ára_____________________________
Aðaisteinn Hauksson,
Austurgötu 26, Keflavík.
Auðbjörg Gunnarsdóttir,
Skólavegi 82a, Fáskrúðsfirði.
Evelyn R. Sullivan,
Akurgerði 10, Akranesi.
Guðjón Oddsson,
Móabarði 8, Hafnarfirði.
Jón Bæringsson,
Freyjugötu lOb, Sauðárkróki.
Kolbrún Sigurðardóttir,
Háabergi 17, Hafnarfiröi.
Magnús Kristjánsson,
Löngumýri 28, Garðabæ.
Margrét Auðunsdóttir,
Blesugróf 17, Reykjavík.
Margrét Ö. Stephensen,
Tunguseli 5, Reykjavík.
Reynir Friðfinnsson,
Stekkjarhvammi 34, Hafnarfirði.
Sigríður Jóhannsdóttir,
Njörvasundi 1, Reykjavik.
Þórhallur Kárason,
Njarðarholti 2, Mosfellsbæ.
40 ára_____________________________
Klaus Kretzer,
Hverfisgötu 16, Reykjavik.
Kolbrún Jónsdóttir,
Bæjargili 89, Garðabæ.
Kristján Helgason,
Hafnargötu 123, Bolungarvík.
Marta María Sveinsdóttir,
Marargötu 4, Grindavík.
Sigríður E. Hafsteinsdóttir,
Fróðengi 6, Reykjavík.
Sigrún Sigurðardóttir,
Víkurströnd 3, Seltjarnarnesi.
Sólveig Ólafsdóttir,
Dunhaga 11, Reykjavík.
Eyjólfur E. Kolbeins, Þorragötu 9, lést á
Landspítala Hringbraut að morgni
föstud. 14.6.
Jóhanna Jónsdóttir frá Leirubakka í
Landsveit, síðast til heimilis á Hrafn-
istu, Reykjavík, andaðist aö morgni
föstud. 14.6.
Herdís Bjarnadóttir frá Bjarghúsum
andaðist á Heilbrigðisstofnuninni
Hvammstanga aðfaranótt föstud. 14.6.
ingólfur Árni Sveinsson, Syðri-Kárastöð-
um, lést á Landspítalanum við Hring-
braut sunnud. 16.6.
Jón Magnús Snorrason, Smobruvejen
210, Mysen, Noregi, er látinn. Jarðarför
hans fór fram í Mysen föstud. 14.6.
Bergur Vigfússon, Hringbraut 61, Hafn-
arfirði, lést á heimili sinu laugard. 8.6.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey aö ósk
hins látna.
Else Margrethe Runólfsson, Hátúni 31,
Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni þriöjud. 11.6. Jarðarför hefur
farið fram í kyrrþey.
Páll Arnar Guðmundsson, Engihjalla 23,
Kópavogi, lést á líknardeild
Landspjtalans í Kópavogi þriðjud. 18.6.
María Árnadóttir frá Flateyri andaðist á
hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði
sunnud. 16.6.
FTMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2002
DV
Sjötugur
Ólafur W. Stefánsson
skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
Ólafur Walter Stefánsson, skrif-
stofustjóri í dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu, Hrefnugötu 10,
Reykjavik, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann tók stúdentspróf frá
VÍ 1952 og lauk embættisprófi í lög-
fræði frá HÍ í ársbyrjun 1959.
Ólafur varð fulltrúi i dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu 1959, deild-
arstjóri þar frá 1964 og hefur verið
skrifstofustjóri þar og staðgengill
ráðuneytisstjóra frá 1972.
Ólafur sat í stjóm Orators, félags
laganema, 1954-55, í stjóm Stúd-
entafélags Reykjavíkur 1963-64, í
stjóm Bandalags háskólamanna
1963-67, var formaður Lionsklúbbs-
ins Baldurs 1986-87. Hann hefur átt
sæti í ýmsum stjórnskipuðum
nefndum og ráðum, átti sæti i Um-
ferðarráði frá upphafi 1969 til 1.
mars sl., var formaður fram-
kvæmdanefndar þess 1969-88 og síð-
an í stjóm; varaformaður ráðsins
1970-72 og frá 1988, var ritari al-
mannavamaráðs frá 1963 og síðan
áheymarfuUtrúi tii 1994, hefur setið
í happdrættisráði (eftirlitsnefnd)
Happdrættis HÍ frá 1971 og verið
formaður þess frá 1973, átti sæti í
Flóttamannaráði 1995-99, var for-
maður ritnefndar Lagasafns 1990,
1995 og 1999, hefur tekið þátt í und-
irbúningi ýmiss konar löggjafar,
átti sæti í umferðarlaganefnd
1963-87 er m.a. samdi frumvarp til
gildandi umferðarlaga, var formað-
ur nefndar er samdi frumvarp tO
laga um tæknifrjóvgun og formaður
nefndar um endurskoðun laga um
kosningar tO Alþingis 1998-99, ann-
aðist samningu frumvarps tO ný
samþykktra laga um útlendinga,
átti sæti í lagasamvinnunefnd Evr-
ópuráðsins 1965-89, hefur veriö fuO-
trúi í norrænu samstarfi um um-
ferðaröryggi frá 1979, i norrænum
samráðshópi æðri embættismanna
um málefni flóttamanna frá 1989 og
í norrænu embættismannanefnd-
inni um löggjafarmálefni frá 1995,
var fuOtrúi í norrænu ráði um
rannsóknir á Evrópusamrunarétti
1991-96, átti sæti í nefnd tO undir-
búnings Lúganó-samningi EFTA og
EB-ríkja um dómsvald og viður-
kenningu dóma í einkamálum
1987-88, tók þátt í undirbúningi að-
Odar íslands að EES-samningnum
og aðdraganda aðOdarinnar að
Schengen-samstarfmu.
Fjölskylda
Bræður Ólafs eru Bjöm S. Stef-
ánsson, f. 19.6. 1937, dr. scient, bú-
settur í Reykjavík, var kvæntur
Margaretu Norrstrand en þau
skOdu og er sonur þeirra Gunnar
Bjömsson, fll. dr., heimspekingur
við Stokkhólmsháskóla; Jón Ragnar
Stefánsson, f. 17.2. 1941, dósent í
stærðfræði við HÍ.
Foreldrar Ólafs: Stefán G. Bjöms-
son, f. 17.6. 1906, d. 2.9. 1990, fram-
kvæmdastjóri Sjóvátryggingarfélags
Islands, og Sigríður Jónsdóttir, f.
22.11. 1908, húsmóðir.
Ætt
Föðursystkini Ólafs: Margrét hús-
móðir í Reykjavík; Jón, málara-
meistari í Reykjavík, faðir Margrét-
ar K. Jónsdóttur, forstöðukonu á
Löngumýri; Þórarinn, timburkaup-
maður í Reykjavík; Guðlaug Mar-
grét, húsmóðir í Hveragerði.
Stefán var sonur Þórarins Björns,
verslunarstjóra á Djúpavogi og
Vopnafirði, síðar í Reykjavík, Stef-
ánssonar, b. í Teigi í Vopnafirði, og
Margrétar Bjömsdóttur. Bróðir Þór-
arins Bjöms var Þórarinn, b. í
Teigi, faðir Sigurðar jarðfræðings.
Bróðursonur Stefáns í Teigi var
Þórarinn Þórarinsson, skólastjóri á
Eiðum. Bróðursonar Margrétar var
Sveinn E. Björnsson, læknir og
skáld í Kanada.
Móðir Stefáns var Margrét K.
Jónsdóttir, pró-
fasts í Hjarðar-
holti í Dölum
Guttormssonar,
bróður Vigfús-
ar, pr. á Ási, og
Bergljótar,
prestsfrúar á
Hallormsstað,
afa og ömmu
Guttorms skóg-
arvarðar Páls-
sonar, föður
Hjörleifs, fyrrv.
ráðherra. Jón
var sonur Gutt-
orms, prófasts í
Vallanesi Páls-
sonar, bróður
Bergljótar,
langömmu Ein-
ars H. Kvaran
rithöfundar.
Móðir sr. Jóns í
Hjarðarholti var Margrét Vigfús-
dóttir, systir Ingunnar, langömmu
Þorsteins Gíslasonar, skálds og rit-
stjóra. Móðuramma Stefáns var
Guðlaug M. Jónsdóttir frá Brekku í
Fljótsdal, systurdóttir Gísla læknis
Hjálmarssonar.
Meðai bræðra Margrétar frá
Hjarðarholti voru Jón læknir og
Páll verslunarmaður, einn stofn-
enda Elliheimilisins Grundar.
Móðursystkini Ólafs: Ágúst, sjó-
maður í Reykjavík, afi Elinar Eddu
Ámadóttur búningahönnuðar; Guð-
munda, húsmóðir í Reykjavík, móð-
ir Ágústs Guðmundssonar, fyrrv.
forstjóra Landmælinga íslands;
Marta, dó ung; Ragna, húsmóðir í
Reykjavík, amma Evu Maríu dag-
skrárgerðarmanns og Rögnu Söm
blaðamanns Jónsdætra; Ingibjörg,
húsfreyja í Reykjavík.
Sigríður er dóttir Jóns frá Móum,
stýrimanns í Reykjavík, Ámasonar.
Ein systir Jóns var Guðrún í Ási
við Hafnarfjörð, móðir Jónasar Sig-
urðssonar, skólastjóra Stýrimanna-
skólans. Meðal barnabama Guðrún-
ar em verkfræðingamir Geir A.
Gunnlaugsson, Páll Jensson og Ámi
Bjöm Jónasson, faðir Rögnu, skrif-
stofustjóra í dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu.
Meðal annarra systkina Jóns
voru Oddný, ljósmóðir á Esjubergi á
Kjalamesi, Bjöm stýrimaður, faðir
Áma lýtalæknis, og Sigrún, amma
Magnúsar Hreggviðssonar útgef-
anda og Geirs Magnússonar for-
stjóra. Jón var sonur Áma, b. í Víði-
nesi og Móum á Kjalamesi Bjöms-
sonar og Sigríðar Jónsdóttur frá
Bakka í Landeyjum. Ámi í Móum
var hálfbróðir Eyjólfs, rithöfundar á
Hvoli og Halldórs rafmagnsfræðings
Guðmundssona.
Móðir Sigríðar var Ragnhildur
Jónsdóttir, b. í Breiðholti við
Reykjavik Jónssonar og Bjargar
Magnúsdóttiu' frá Óttarsstöðum.
Ólafur tekur á móti gestum á af-
mælisdaginn á Kjarvalsstöðum ki.
18.00-21.00.
Áttatíu ofi fimm ára 1 lí Fimmttigur
Bragi Ó. Thoroddsen
fyrrv. rekstrarstjóri Vegagerðar ríkisins
Jón Ó.Vilhjálmsson
stöðvarstjóri Sorpu
Bragi Ó.
Thoroddsen, rekstr-
arstjóri Vegagerðar
ríkisins, Aðalstræti
78, Patreksfirði, er
áttatíu og fhnm ára
í dag.
Starfsferill
Bragi fæddist í
Vatnsdal I Patreks-
firði og ólst þar
upp. Hann stundaði
nám við Bænda-
skólann á Hvann-
eyri 1938-40.
Bragi stundaði
landbúnaðarstörf
og sjósókn 1930-38, var við sjó-
mennsku og siglingar á togaranum
Verði frá Patreksfirði 1940-45, var
verkstjóri hjá Patrekshreppi
1945-55, verkstjóri hjá Vegagerð rík-
isins 1955-65 og rekstrarstjóri Vega-
gerðar ríkisins í Barðastrandar-
sýslu 1965-85. Hann hætti störfum
hjá Vegagerðinni fyrir aldurs sakir
1990.
Bragi sinnti ýmsum trúnaðar-
störfum. Hann sat í stjóm Eyra-
sparisjóðs í átján ár, starfaði í
Kirkjukór Patreksfjarðar í fjörutíu
ár, gekkst fyrir stofnun Skógræktar-
félags Patreksfjarðar og fyrir stofh-
un Öldrunarfélags Vestur-Barða-
strandarsýslu og var stofnfélagi í
Lionsfélagi Patreksfjaröar.
Hann var búsettur í Vatnsdal í
Patreksfirði til 1943 en flutti þá á
Patreksfjörð og hefur átt þar heima
síðan.
Fjölskylda
Bragi kvæntist 12.5. 1945 Þórdísi
Haraldsdóttur, f. 26.6. 1920, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Haralds Guð-
mundssonar og Þór-
unnar Bjargar Þórar-
insdóttur, bænda á
Þorvaldsstöðum í
Skeggjastaðahreppi í
Norður-Múlasýslu.
Börn Braga og Þór-
dísar eru Úlfar B.
Thoroddsen, f. 17.7.
1945, en kona hans er
Helga Bjarnadóttir og
eiga þau fjögur böm;
Eiður B. Thoroddsen,
f. 16.10. 1946 en kona
hans er Sigríður Sig-
urðardóttir; Erlingur
B. Thoroddsen, f. 15.7.
1948 en kona hans er
Agústa Sigurðardóttir og eiga þau
þrjú böm; Björg Bragadóttir, f.
20.11.1950, og á hún tvö böm; Ólína
Weightman, f. 26.2. 1952, búsett í
London en maður hennar er Paul
Weightman og eiga þau tvö börn;
Ólafur B. Thoroddsen, f. 25.7. 1953,
búsettur í Haugesund í Noregi en
kona hans er Þóra Ákadóttir og eiga
þau þrjú böm.
Systkini Braga: Sigríður, f. 31.1.
1908; Þorvaldur, f. 31.8. 1909; Svava,
f. 28.8. 1910; Oddur Birgir, f. 10.10.
1911; Einar, f. 23.5. 1913; Una, f. 8.6.
19114; Amdís, f. 14.9. 1915; Ólafur, f
29.7. 1918; Eyjólfur, f. 25.10. 1919;
Stefán, f. 12.6. 1922; Auður, f. 9.1.
1924; Magdalena Jón Steinunn, f.
7.2. 1926; Halldóra, f. 17.12. 1927.
Hálfbræður Braga, samfeðra,
vom Oddur, f. 26.9.1891, d. 4.6. 1911;
Kjartan, f. 17.11. 1919, d. 11.9. 1940.
Foreldrar Braga voru Ólafur Ein-
arsson Thoroddsen, f. 4.1. 1873, d.
17.11.1964, bóndi í Vatnsdal, og k.h.,
Ólína Andrésdóttir, f. 23.9. 1883, d.
4.9. 1959, húsfreyja.
Jón Ólafur Vil-
hjálmsson stöðvar-
stjóri, Miðengi 23,
Selfossi, er fimmtug-
ur í dag.
Starfsferill
Jón fæddist að
Fjarðarhomi í Bæj-
arhreppi í Stranda-
sýslu en flutti að
Kollsá 1954. Hann
gekk í bamaskólann
á Borðeyri, lauk
gagnfræðaprófí frá
Héraðsskólanum á
Reykjum í Hrúta-
firði 1970, hóf þá
nám í vélvirkjun hjá Sindrasmiðj-
unni, lauk sveinsprófi frá Iðnskól-
anum í Reykjavík 1974 og öðlaðist
meistararéttindi 1977.
Jón starfaði hjá Björgun hf
1975-78 er fjölskyldan fluttist á Sel-
foss. Þá hóf hann fljótlega störf hjá
Bifreiðasmiðjum KÁ sem vélvirki.
Hann varð verkstjóri í vélsmiðju
Bifreiðasmiðjanna 1980 og gegndi
því starfi til 1996 er hann varð fram-
kvæmdastjóri Vélsmiðju KÁ hf. Því
starfi gegndi hann til 2002 er hann
réðst til Sorpu í Reykjavík sem
stöðvarstjóri.
Jón hefur einnig rekið áhalda-
leigu að heimili sínu frá 1984.
Jón er formaður Verkstjórafélags
Suðurlands frá 1981, situr í stjóm
Verkstjórasambands íslands frá
1985 og er gjaldkeri þess frá 1997. Þá
hefur Jón starfað mikið í Kiwanis-
hreyflngimni frá 1980, hefur setið í
stjóm Bújöfurs Búvéla, situr í
stjórn KÁ frá 2002, hefur verið virk-
ur félagi í Framsóknarfélagi Selfoss
og setið í nefndum á þess vegum í
Árborg.
Fjölskylda
Jón kvæntist
10.10. 1974 Ester
Jónsdóttur, f. 5.4.
1951, leikskólakenn-
ara.
Ester er dóttir
hjónanna Jóns Þór-
arinssonar, verka-
manns úr Selvogi, og
Elísabethar Bernd-
sen, húsmóður frá
Skagaströnd. Þau
bjuggu að Bergi í
Setbergshverfi og
síðan í Garðabæ.
Börn Jóns og
Esterar eru Eyrún, f.
14.1. 1976, sjúkraliði í Reykjavik, í
sambúð með Boga Arasyni trésmið
og er dóttir þeirra María, f. 6.5. 2000;
Sóley, f. 14.2. 1981, nemi í foreldra-
húsum; Eyþór, f. 12.5. 1983, iðnemi
í foreldrahúsum.
Systkini Jóns: Benedikt Sævar, f.
13.9. 1948, innkaupastjóri, kvæntur
Elísabetu Bjarnadóttur; Ingi Bjöm,
f. 20.6. 1952, dó tveggja ára; Atli, f.
12.7. 1961, þjónustustjóri, kvæntur
Álfheiði Pálsdóttur; Bima, f. 1.10.
1963, uppeldisfræðingur og kennari;
Ingibjörg Ólöf, f. 17.9. 1970, lögfræð-
ingur, i sambúð með Sóloni Lárusi
Ragnarsyni flugmanni.
Foreldrar Jóns: Vilhjálmur Ólafs-
son frá Hlaðhamri, f. 31.7. 1922, og
Ólöf Bjömsdóttir frá Reynihólum í
Miðfirði, f. 14.12. 1926. Þau voru
bændur, fyrst á Fjarðarhomi
1948-54, síðan að Koflsá og bjuggu
þar til 1995, en fluttu þá til Reykja-
víkur.
Jón og fjölskylda taka á móti vin-
um og ættingjum með opnu húsi í
Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi
þann 22.6. kl 19.00.