Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2002, Blaðsíða 28
28
FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002
Sport
Margrét Ólafsdóttir og Þormóður Egilsson fá viðurkenningu fyrir leik sinn:
Félag veggtennis-
spilara gangsett
í kvöld fer fram á Champion’s
Café á Stórhöföa kynningarkvöld
Squash Active, sem er nýtt félag
veggtennisiðkenda hér á landi. Ætl-
unarverk félagsins er að brúa bil
þeirra sem keppa að staðaldri í
íþróttinni og tómstundaiðkenda.
Á komandi tímabili verður sett á
stofn mótaröð 11 móta þar sem veg-
leg verðlaun verða i boði og eru all-
ir þeir sem stunda íþróttina gjald-
gengir keppendur. Styrkleikalisti
verður birtur reglulega sem gerir
leikmönnum kleift að bera sig sam-
an við aðra á jafnréttisgrundvelli,
eins og stendur i fréttatilkyningu
frá Squash Active. Þá verða einnig
milliklúbbakeppnir þar sem leik-
mönnum verður skipað í lið, fyrir-
tækjadeild og gefið verður reglulega
út fréttabréf sem og að reglu- og
dómarakvöld verða haldin.
Hægt er að kynna sér málið nán-
ar á vef félagsins, squashactive.is.
Þormóður Egilsson, varnarjaxl-
inn úr KR, og Margrét Ólafsdóttir,
miðvallarleikmaður úr Breiðabliki,
fengu viðurkenningu frá KSÍ og
Landssímanum fyrir frammistöðu
sína í sumar en það voru íþrótta-
fréttamenn sem greiddu atkvæði í
kjörinu. Þormóður fékk viðurkenn-
inguna fyrir frammistöðuna í 7.-12.
umferð Símadeildar karla en Mar-
grét fyrir fyrstu sjö umferðirnar í
Símadeild kvenna.
Þormóður hefur verið lykilmaður
í KR-liðinu sem hefur heldur betur
snúið við blaðinu eftir slakt gengi í
fyrra. „Tímabilið í fyrra var
skelfilegt en síðan kom nýr þjálfari
með nýjar áherslur og þetta hefur
gengið glimrandi það sem af er. Ég
átti persónulega ekki alveg von á
svona góðu gengi.“
Þessi góða frammistaða Þormóðs
vekur athygli, ekki hvað sist þar
sem hann byrjaði seint að æfa með
KR-ingum, raunar ekki fyrr en
nokkrum vikum áður en
Símadeildin hófst. „Ég æfði reyndar
sjálfur í vetur vegna þess að það
hentaði mér betur. Ég kom svo
seint inn í hópinn hjá liðinu en
þegar liðið er gott og gengur vel þá
hjálpar það manni að komast inn í
hlutina.“
Þormóður er sáttur viö deildina
eins og hún hefur verið í sumar.
„Þetta er búið að vera jafnt þangað
til kannski nú upp á síðkastið og
mér sýnist boltinn hafa verið alveg
þokkalegur. Liðin eru frekar jöfn og
flestir þeir leikir sem við höfum
spilað hafa verið að vinnast með
einu marki."
Framhaldið leggst vel í Þormóð.
„Við erum i góðri stöðu og nú er
bara að njóta þess og hafa gaman af
þessu og sjá hvort það skilar
einhverju í lokin. Við erum ekkert
famir að spá mikið í næstu leiki en
óneitanlega væri gaman ef svo færi
að leikur okkar gegn Fylki i
næstsíðustu umferð yrði eins konar
úrslitaleikur um titilinn. En það er
mikið eftir af mótinu enn þá og
ýmislegt getur ennþá gerst,“ sagði
Þormóður að lokum.
Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki, og Þormóður Egilsson, KR, með viðurkenningar sínar.
DV-mynd Pjetur
Orðin ellismellur
Margrét segir þetta tímabil hafa
verið öðruvísi en önnur tímabil fyr-
ir sig. „Ég er nú orðin elst í hópn-
um, ellismellurinn í liðinu! Þetta
hefur því verið dálítið öðruvísi en
jafnframt krefjandi fyrir mig. Ég
vona bara að mér hafi tekist að
miðla af mirrni reynslu hingað til
og mun reyna að gera það áfrarn."
Margrét segist þokkalega sátt við
gengi Blikaliðsins. „Þetta er í raun
Verður þú
heppinn
áskrifandi?
Næstkomandi fimmtudaq
mun einn heppinn DV-áskrifandi vinna
samkvæmt spánni fyrir mótið, þar
sem reiknað var með okkur í þriðja
sæti, og ég er nokkuð sátt við það.
Auðvitað vill maður alltaf vera í
efsta sæti en við erum með ungt lið
og vonandi tekst okkur að nota
þetta tímabil til að byggja liðið upp
þannig að ungu stelpumar öðlist
reynslu. Ég er reyndar ósátt við að
hafa fallið svona snemma úr bikar-
keppninni en þar lentum við gegn
sterku liði og urðum að játa okkur
sigraðar."
Margrét lék í Bandaríkjunum í
fyrra og sagði að það hefðu verið
viðbrigði að koma aftur heim eftir
þá dvöl. „Knattspyrnan í Bandaríkj-
unum er á mun hærra plani en hér
og það var því kannski stökk aftur
á bak að koma hingað aftur. Þessi
reynsla í Bandaríkjunum hefur tví-
mælalaust hjálpað mér.“
Margréti líst ágætlega á fram-
haldið hjá liðinu. „Kjarninn í liðinu
eru stelpur á aldrinum 19-20 ára og
ég er viss um að þetta lið á eftir að
verða mjög sterkt þegar þessar
stelpur hafa öðlast reynslu."
-HI
Packard Bell Easy One fartölvu.
Að auki munu tveir heppnir áskrifendur vinna
pizzaveislu fyrir 8 manns á Pizza Hut.
BRÆÐURNIR
ORMSSON
áskrift
- borgar sig
Bland í noka
Hafnaboltaleikmenn í Bandaríkjun-
um eru við það að fara í sitt 9. verk-
fall á undaníömum 30 árum. Deilan
snýst um svokailaða munaðarskatta
og hvort leikmennimir sjálfir eða eig-
endur félagana eiga að standa straum
að þeim kostnaði. Árið 1994 þegar
leikmenn fóro í verkfall þurfti að af-
lýsa úrslitakeppninni (World Series)
og kostaöi það mikinn áhuga almenn-
ings á íþróttinni.
Inake Saez, nýr landsliðsþjálfari
Spánverja, hefur valið fimm nýliða i
landsliðið sem mætir Ungverjaíandi í
vináttuleik í næstu viku. Fernando
Hierro og Luis Enriqe hafa báðir
sett punktinn við landsliðsferil sinn
og skilja þeir eftir stór skörð.
Nýliöarnir 5 ero Carlos Marchena
(Valencia), Jose Antonio Garcia Cal-
vo (Atletico Madrid), Juanito (Real
Betis), Raul Bravo (Real Madrid) og
Pablo Orbaiz (Athletic Bilbao).
Alls voro gefin 11 rauð spjöld og 91
gult spjald í fýrstu umferð frönsku
úrvalsdeildarinnar. Er þetta mun
meira en á sama tíma í fyrra þar sem
64 fengu áminningu og tveir voro
reknir af velli. Veldur þetta áhyggj-
um forráðamanna knattspymunnar
þar í landi og ganga ásakanir á víxl.
Leikmaóur Arsenal, Frakkinn Ro-
bert Pires, mun ekki æfa með félög-
um sinum I vikunni en 1. umferð úr-
valsdeildarinnar verður leikin um
helgina. „Ég mun ekki geta hafið æf-
ingar í þessari viku, það yrði of sárs-
aukafullt," sagði Pires og bætti því
við að hann gæti ekki fylgst með fé-
lögunum æfa, það væri of erfitt fyrir
hann.
íþróttafréttamenn í Þýskalandi hafa
valið leikmann Bayem Múnchen,
Michael Ballack, sem knattspymu-
mann ársins þar í landi. Hann hlaut
433 atkvæði en sigurvegari síðustu
tveggja ára, Oliver Kahn, varð annar
með 345 atkvæði.
Junichi Inamoto, leikmaður Ful-
ham, líkti jöfnunarmarkinu sem
hann skoraði gegn Bologna í Inter-
toto-keppninni í fyrradag við markið
sem hann skoraöi gegn Belgum með
japanska landsliðinu á HM 2002.
„Þetta var alveg jafn mikilvægt og
markið gegn Belgum því í báðum
leikjum máttu liðin ekki við því að
tapa,“ sagði Inamoto við heimasíðu
Fulham í gær.
Ungverjinn Gustavo Poyet gæti
misst af lunganum af tímabilinu í
Englandi sem nú er að hefjast en lið-
bandaslit í hné gætu krafist stórrar
aðgerðar. Hann hefur þjáðst af hné-
meiðslum undanfama mánuði en
virtist óðum vera aö komast í fyrra
form þegar hann meiddist svo aftur á
æfmgu í gær. Þetta virðist þvi ætla
að verða rysjótt sigling hjá Totten-
ham þetta árið.
Meöal þeirra leikmanna Tottenham
sem hafa átt við meiðsli aö striða má
nefna þá Darren Anderton, Christian
Ziege, Ledley King, Steffen Freund,
Stephen Clemence, Anthony Gard-
ner, Les Ferdinand, Jamie Redknapp
og Ben Thatcher.
Serena Williams gæti misst af opna
bandaríska meistaramótinu í tennis
vegna meiðsla I hné. Hún hefur í ár
þegar unniö opna franska og
Wimbledon-mótin en systir hennar,
Venus, vann opna bandaríska mótið í
fyrra.
David Trezeguet, leikmaöur Juvent-
us á Ítalíu, mun missa af fyrstu leikj-
um tímabilsins með liöi sínu vegna
hnémeiðsla. í tilkynningu frá félag-
inu segir að hann þurfi að hvíla sig í
20-30 daga en meiðsli sem hann varð
fyrir í æfmgaleik í lok júlí tóku sig
upp á æfingu í fyrradag.
-esá
Deildin jafnari