Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2002, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002
Fréttir
T>‘\y
Margir íslenskir blómabændur að komast í þrot:
Bullandi offramleiðsla
og allt of margir bændur
- segir Bragi Einarsson í Eden í Hveragerði
Stuttar fréttir
Flytur ræöu hjá SÞ
Halldór Ásgríms-
son utanríkisráð-
herra flytur ávarp i
dag í almennri um-
ræðu á allsherjar-
þingi Sameinuðu
þjóðanna. Ræðan
hefst klukkan 15 að
íslenskum tíma og
áhugasamir geta fylgst með henni á
slóðinni www.un.org/webcast.
íslenskir blóma-
bændur eiga nú i
vök að verjast og
gefast upp hver af
öðrum. Félag
blómabænda
hyggst reyna að
ná samningum
um lengingu lána
og vill einnig ná
samningum við Bragi Einarsson.
landbúnaðarráðuneytið um heimild
til úreldingar á gróðrarstöðvum.
Samkvæmt heimildum DV er mikið
offramboð, eða um 50-60%, og hefur
salan gengið illa í sumar. Dæmi eru
um allt að 80% afíoll á framleiðslu
bænda vegna sölutregðu.
Bragi Einarsson í Eden í Hvera-
gerði segist kannast við þann vanda
sem nú er uppi. Hann segist þó sjálf-
ur svo heppinn að vera ekki algjör-
lega háður þessu þar sem hann
byggi meira á veitingasölu og sölu
blóma beint til ferðamanna. Bragi
telur að margir blómabændur, m.a.
í Hveragerði og uppi á Flúðum,
standi í dag verulega illa fjárhags-
lega.
„Málið er að framleiðslan hjá
blómabændum er alltof mikil og það
eru komnir alltof margir framleið-
endur í þessa grein,“ segir Bragi.
„Upphaflð að þessum vanda má
rekja svona 10 ár aftur í tímann. Þá
tóku einstaka blómabændur upp á
því að lýsa upp gróðurhúsin hjá sér.
Við það jókst framleiðslan um
40-50% á ári. 1 kjölfarið komu allir
aðrir blómabændur og hófu jafn-
DV-MYNÐ GVA
Látum blómin tala
Elva Jónatansdóttir í Garöheimum hagræöir biómaskrúöi sem mikiö offramboö
viröist vera á hérlendis. Biómabændur segja mikla afslætti frá framleiöendum
samt ekki skila sér til neytenda né í meiri sölu. Þeir horfa því margir fram á
gjaldþrot ef ekki tekst aö skuldbreyta eöa ná fram hagræöingu í greininni.
framt að stækka sínar gróðrarstöðv-
ar um 30-40%. Þannig hafa menn
verið að bæta við þrátt fyrir að vit-
að væri fyrir að markaðurinn væri
fullmettaður. Markaðurinn hefur
hins vegar ekki nema ákveðið svig-
rúm til að vaxa á hverju ári og það
er ekkert í líkingu við þetta. - Það
er bullandi offramleiðsla og það er
kannski verið að selja um helming
þess sem ræktað er.“
Margir að gefast upp
Nýkjörinn formaður Félags
blómabænda, Sveinn Skúlason í
Hveragerði, segir nokkuð ljóst að
margir blómabændur muni gefast
upp á næstunni. „Ég held að ástand-
ið sé víða slæmt," segir Sveinn.
„Við ætlum að fara í viðræður við
Lánasjóð landbúnaðarins um leng-
ingu lána. Þá viljum við líka reyna
að semja við landbúnaðarráðuneyt-
ið um að komast inn í þann mögu-
leika að fá að úrelda einhverjar
gróðrarstöðvar. Blómabændur hafa
ekki möguleika á úreldingu eins og
staðan er í dag. Þetta er spuming
um hvaða leiðir menn vilja fara.“
Sveinn segir að auk offramleiðslu
séu framleiðendur að gefa mikla af-
slætti sem skili sér þó ekki til neyt-
enda. Samstaða blómabænda til að
knýja fram það verð sem þurfi sé
einfaldlega ekki nógu sterk. „Þó að
við framleiðum allt að 50-60% um-
fram markaðsþörf þá eru blómasal-
ar einnig að flytja inn blóm í stór-
um stil sem við verðum síðan að
keppa við.“ -HKr.
Hrey f ilseinví gið:
Oral lagöi baráttu-
glaðan Stefán
Tékkneski stórmeistarinn vann í
gær þriðju skákina í einvíginu við
hinn unga alþjóðlega meistara, Stef-
án Kristjánsson. Staðan í sex skáka
einvígi þeirra er þar með 3-0. Um
miðbik skákarinnar var hann með
vænlega stöðu en Oral tókst neð
klókindum að leggja íslendinginn
unga.
Hreyfilseinvigið er haldið í Þjóð-
arbókhlöðunni á vegum Skákfélags
Hróksins og Skákfélags Hreyfds en
því lýkur á fimmtudag. Engan bil-
bug var að finna á hinum 19 ára
Stefáni eftir tapið í gær. Hann lýsti
því yflr að nú lægi ekkert annað fyr-
ir en að vinna skákirnar þrjár sem
eftir væru. -rt
Barátta
Baráttan stendur enn þótt ísiendingurinn hafi tapaö í gær. Stefán
Kristjánsson ásamt Hrafni Jökulssyni, forsprakka einvígisins.
Guðni Ágústsson segist vera að auka útflutningsskyldu sauðfjárbænda:
Þurfum að verja sauðfjárbúskap
fyrir kjúklingarækt sláturleyfishafa
Munur á kennaralaunum
Um 45% munur er á meðalheildar-
launum kennara í þeim skóla þar
sem launin voru lægst samanborið
við þann hæsta. Launin eru frá
234.002 til 341.138 þúsund kr.
Ómar og Trausti tilnefndir
Ómar Ragnars-
son og Trausti Vals-
son eru meðal átta
manna sem eru til-
nefhdir til náttúru-
og umhverfisverð-
launa Norðurlanda-
ráðs, en verðlaunin
verða afhent á 50
ára afmælishátíð ráðsins í Helsinki í
Finnlandi í næsta mánuði.
Jeppinn upp úr
Um sólarhring tók að ná jeppabif-
reið upp úr Jökulsá á Fjöllum en
jeppinn hafnaði í ánni á sunnudag.
Ökumaður og farþegi komust út úr
bílnum af eigin rammleik.
Skotnir meö loftbyssu
Tveir ellefu ára drengir voru
skotnir á færi þar sem þeir voru að
leika sér við Suðurbæjarlaug í Hafn-
arfirði. Atburðurinn átti sér stað á
laugardag og voru 14 og 15 ára dreng-
ir gripnir með loftbyssu.
Aukin umsvif
Umsvif verða
aukin hjá Ríkisend-
urskoðun, m.a. á
sviði fjárhagsendur-
skoðunar, með því
að fjölga áritunum
ársreikninga úr
rúmlega 200 í 400.
Sigurður Þórðarson
ríkisendurkoðandi segir i samtali
við mbl.is að ljúka þurfi verkefnum
stofmmarinnar á skemmri tíma en
áður vegna beiðna um úttekth af
ýmsu tagi. Þá hefur Rikisendurskoð-
un auglýst eftir sérfræðingi á sviði
umhverfisendurskoðunar sem er
nýr málaflokkur.
Óviðeigandi áróöur
Nýr vefur Friðar 2000, sem hefur
slóðina althing.org, er óviðeigandi
að mati Árna Ragnars Ámasonar al-
þingismanns. Frá þessu er greint á
mbl.is en á vefnum er starfsemi Frið-
ar 2000 kynnt og árásir á írak for-
dæmdar svo dæmi sé tekið.
Ólafur til Kvikmyndasjóðs
Ólafur H. Torfason hefúr verið
ráðinn til Kvikmyndasjóðs. Um
hlutastarf er að ræða en verksvið
Ólafs verður upplýsingamiðlun til
fjölmiðla, stofhana, samtaka og ein-
staklinga um íslenskar kvikmyndir.
-aþ
- dapurlegt aö eiga ekki óskoraðan stuðning bænda
„Ég er að auka útflutningsskyldu
íslenskra kindakjötsframleiðenda en
ekki draga úr henni, enda þótt ég hafi
ekki fallist á ítrustu kröfur Bænda-
samtaka Islands í því sambandi," seg-
ir Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra í samtali við DV. I blaðinu í gær
segir Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtakanna, að mönnum sé ekki að
takast það ætlunarverk að minnka
fyrirliggjandi kindakjötsbirgðir í
landinu, sem á þessum tímapunkti
séu um 1.000 tonn. Bændur hafi viljað
að útflutningsskyldan á haustdögum
yrði 28% en ráðherrann aðeins fallist
á 25%. Á bak við þennan þirggja pró-
sentastiga mun séu um 200 tonn af
kjöti. Guðni Ágústsson hefur viljað að
sem mest af kjötinu sé selt á innan-
landsmarkaði en „... við erum ekki
jafn bjartsýnir á að hægt sé að auka
söluna og ráðherrann er,“ eins og Ari
segir í DV í gær.
„Ég hef viljað leyfa mér að vera
bjartsýnn fyrir hönd íslensks land-
búnaðar og tel raunar fulla ástæðu
til. Það er líka alveg ljóst að sífellt
meiri sátt er að nást um þessa mikil-
vægu atvinnugrein. Sóknarfæri ís-
lensks landbúnaðar eru hvarvetna
og auðsæ; hér var bandarískur heil-
brigðisráðherra á ferð og vildi kynna
sér hollustu mjólkurafurðanna okk-
ar, íslenski hesturinn er þekktur
víða um lönd sem glæsigripur og ís-
lenska lambakjötið er viðurkennt
sem hátíðarmatur, einstakur að
bragðgæðum. Þetta nefni ég sem
dæmi um hve góða vöru íslenskir
bændur eru að framleiða; vöru sem
ég held að hægt sé að efla mjög sölu
á. í það þurfum við að setja aukinn
kraft.“
Guðni segist bera Jivíðboga gagn-
vart þeirri þróun acT stór matvæla-
vinnslufyrirtæki séu að færa út kví-
arnar með því að hasla sér sjálf völl
í frumframleiðslu. Þar nefnir hann
sem dæmi nýleg kaup Sláturfélags
Suðurlands á Reykjagarði og kaup
Norðlenska á íslandsfugli á Dalvík.
„Því þarf að standa vörð um sauð-
fjárframleiðsluna, þannig að allt víki
ekki fyrir þeirri framleiðslu sem
sláturleyfishafarnir eru sjálfir farnir
að standa í,“ segir Guðni. Hann seg-
ir viðreisn og stuðning við sauðfjár-
ræktina vera mikilvægan með tilliti
til hagsmuna hinna dreifðu byggða.
Meira undanhald hennar megi ekki
eiga sér stað.
Drífa í mótsögn
Landbúnaðarráðherra segir dap-
urlegt að hann eigi ekki óskoraðan
stuðning Bændasamtaka íslands í
þeirri viðleitni sinni að auka söluna
á innanlandsmarkaði, enda eigi sá
markaöur að gefa bændum hærra
skilaverð en sala á erlenda markaði.
Raunar séu öll svör manna í þessu
sambandi mjög ruglingsleg og ekki i
sama takti.
„Formaður landbúnaðarnefndar
Alþingis, Drífa Hjartardóttir, sagði í
viðtali á dögunum að hún teldi það
ekki raunhæft markmið að auka
kindakjötsmarkaðinn hér heima, þá
með tillliti til þess að ég vildi ekki
fara að ítrustu kröfum Bændasam-
takanna um útflutningsskyldu. Samt
sagði hún í þessu sambandi að það
mætti selja kindakjöt hér heima með
miklu markvissari hætti en verið
hefði til þessa. Ég fæ ekki skilið
þessa röksemdafærslu þingmannsins
og finnst hún raunar vera strax
þarna komin í mótsögn við sjálfa sig.
Kannski gildir það um fleiri," sagði
Guðni Ágústsson.
-sbs
í fyrirsögn fréttar á bls. 6 í DV í
gær var haft eftir Karli Sigurbjöms-
syni biskupi að prédikunarstóllinn
mætti „ekki verða dægurlagaút-
varp“. Ummæli Karls, sem vitnað er
til í fyrirsögninni, komu dægurlög-
um hins vegar lítt viö. Þau voru á
þann veg að predikunarstóflinn
mætti ekki verða dægurmálaútvarp
þar sem slegið væri fram fullyrðing-
um, órökstuddum og lítt ígrunduð-
um, um mál líðandi stundar.
í DV 8. september sl. var sagt frá
verðlaunaafhendingum í tengslum
við íslensku sjávarútvegssýninguna,
og þar m.a. greint frá því að Þor-
steinn Kristjánsson, skipstjóri nóta-
skipsins Hólmaborgar frá Eskifirði,
hefði verið valinn fiskimaður árs-
ins.- Ranglega var þar sagt að hann
hefði aflað 8.400 tonna, þetta átti að
sjálfsögðu að vera 84.000 tonn. -hlh