Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2002, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002
27
DV
f*:Í) EHGLAND
™ —-------
Úrvalsdelldin
Birmingham-Aston Villa .... 3-0
1-0 Morrison (31.), 2-0 Eckelman (77.
sjálfsm.), 3-0 Horsfield (83.)
Staðan
Arsenal 6 4 2 0 15-6 14
Tottenham 6 4 1 1 11-8 13
Leeds 6 4 0 2 10-4 12
Chelsea 6 3 3 0 13-8 12
Liverpool 6 3 3 0 13-8 12
Fulham 5 3 1 1 12-6 10
West Brom 6 3 0 3 6-9 9
Middlesbr. 6 2 2 2 7-5 8
Birmingham 6 2 2 2 8-7 8
Man. Utd 6 2 2 2 5-5 8
Everton 6 2 2 2 7-8 8
Man. City 6 2 1 3 7-9 7
Blackburn 6 1 3 2 7-8 6
Bolton 5 2 0 3 6-9 6
Aston Villa 6 2 0 4 3-6 6
Charlton 6 2 0 4 6-10 6
Southampt. 6 1 2 3 3-7 5
Sunderland 6 1 2 3 2-8 5
Newcastle 5 1 1 3 6-8 4
West Ham 5 0 1 4 4-12 1
Ragnars sárt
saknað
Ragnar Óskarsson, landsliðsmað-
ur i handknattleik, gengst í dag
undir aðgerð á hné en á dögunum
sleit hann krossbönd í æfingaleik
með franska liði sínu, Dunkerque.
Eftir hana tekur við endurhæfmg
sem talið er að muni taka 4-5 mán-
uði. Ljóst er hans verður sárt sakn-
að en hann lék stórt hlutverk með
liðinu á sl. tímabili, skoraði mikið
og lagði upp fjöldann af mörkum.
Liðið verður i miklum vanda vegna
fjarveru Ragnars og kom það ber-
lega í ljós i fyrsta leiknum í deild-
inni um helgina. -JKS
Sænska konan Annika Sörenstam sigraöi á golfmóti í amerísku mótarööinni sem lauk í Portland í Or-
egon í fyrrinótt. Sörenstam háöi æsispennandi keppni viö Kate Golden á siðustu holunni og haföi bet-
ur þegar hún lék á fugli. Ástralinn Stephen Leaney bar sigur úr býtum á þýska meistaramótinu sem
fram fór í Pulheim. Hann fór á kostum og lék alls á 266 höggum eöa á 22 höggum undir pari. Alex
Ceikja, sem var í ööru Sæti, var ekki aö leika síöur en hann lék alls á 267 höggum. í næstu sætum þar
á eftir komu þeir lan Woosnam frá Wales og Bretarnir Nick Dougherty og Paul Casey á alls 268 högg-
um. Þess má geta aö fyrir sigurinn fékk Leaney um 42 milljónir íslenskar krónur. Golfáhugamenn hafa
eitthvaö til aö hlakka til en nú styttist óðum í Ryder-bikarinn sem dregur ávallt til sín mikia athygli en
þar berst úrvalslið Evrópu gegn bestu kylfingum Bandaríkjanna.
Reuter
Rúnari Sigtryggssyni og télögum hjá Ciudad Real er spáð góðu gengi í vetur.
Rúnar byrjar vel
hjá Ciudad Real
Spænska deildin í handknatt-
leik hófst um helgina en þrír ís-
lendingar leika með félagsliðum
þar í landi I vetur. Rúnar Sig-
tryggsson og félagar í Ciudad Real
hófu tímabilið með góðum útisigri
á Granollers, 28-35. Ciudad Real
gerði út um leikinn I fyrri hálfleik
en í hálfleik hafði liðið náð yfir-
burðaforystu, 11-21. Rúnar skor-
aði tvö mörk í leiknum og átti góð-
an leik og þá alveg sérstaklega í
vöminni.
Ciudad Real mætir sterkt til
leiks í ár og þykir afar liklegt til
að blanda sér í baráttuna um
spænska meistaratitilinn.
Það gekk ekki eins vel hjá Heið-
mari Felixssyni og félögum hans i
Bidasoa sem töpuðu á heimavelli
fyrir Ademar Leon, 26-33, en í
hálfleik var staðan 11-15 fyrir
Ademar sem hefur öflugu liði á að
skipa.
Loks bar Cangas ósigur á
heimavelli fyrir Real Valladolid,
15-20, eflir að gestimir höfðu haft
eins marks forystu í hálfleik, 8-9.
Hilmar Þórlindsson gerði eitt
mark fyrir Cangas úr vítakasti.
Úrslit i öðmm leikjum urðu þau
að Barcelona vann nýliða Torrevi-
eja, 45-25, Caldar tapaði fyrir ný-
liðum Alacobendas frá Madríd,
24-25, Portland sigraði Barakaldo,
30-23, og Altea vann Cantabria,
23-22.
-JKS
Guðbjörg
til liös
við Val
Guðbjörg
markvörður
knattspymu,
við Val. Guð-
björg, sem er
einn efnileg-
asti mark-
vörður
landsins,
meiddist 1
leik með
unglinga-
landsliði síð- Guðbjörg
ari part sum- Gunnarsdóttir
ars og náði
því ekki að klára tímabilið með
FH. Það er ljóst að koma Guð-
bjargar til Hlíðarendaliðsins er
þeim mikill styrkur.
Gunnarsdóttir,
kvennaliðs FH í
hefur gengið til liðs
Handknattleikur:
Landsliðið leikur
12 leiki fyrir HM
Undirbúningsáætlun íslenska
landsliðsins í handknattleik fyrir
heimsmeistaramótið í Portúgal
liggur nú fyrir og er ljóst að liðið
leikur 12 leiki áður en að .mótinu
kemur. Landsliðið kemur saman í
lok október í Svíþjóð þar sem það
tekur þátt í World Cup og leikur
liðið á mótinu alls fjóra leiki gegn
nokkrum af sterkustu handbolta-
þjóðum heims.
Landsliðið kemur síðan ekki
saman fullskipað fyrr en um ára-
mótin og dagana 3. til 5. janúar
leikur landsliðið þrjá leiki við
Slóvena hér á landi. Auk leikjanna
munu Slóvenar dvelja hér í æfínga-
búðum en þeir eru einnig að fara á
heimsmeistaramótið í Portúgal.
Helgina 10.-12. janúar tekur liðið
þátt í fjögurra landa móti í Dan-
mörku ásamt Dönum, Pólverjum og
Egyptum.
Síðustu leikir liðsins fyrir heims-
meistaramótið verða siðan gegn
þýska úrvalsdeildarliðinu Gross-
waldstadt 16. og 17. janúar.
Eftir þá leiki heldur liðið áleiðis
til Portúgal og mun dvelja þar við
æflngar áður en flautað verður til'
leiks á heimsmeistaramótinu.
Fyrsti leikur Islendinga á heims-
meistaramótinu verður gegn Áströl-
um 20. janúar og síðan fylgja á eftir
leikir gegn Grænlandi, Portúgal,
Katar og Þýskalandi.
-JKS
Sport
Bland í poka
Garðar Örn Hinriksson dæmir
hinn þýðingarmikla leik lA og Fylkis
á laugardag en Garðar var á dögun-
um útnefndur dómari 7-12. umferðar
Símadeildarinnar. Eins og kunnugt
er getur Fylkir tryggt sér íslands-
meistaratitilinn með sigri í leiknum.
Leik KR og Þórs dæmir hins vegar
Egill Már Markússon.
Brann tapaði i gær fyrir Odd Gren-
land í norsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu á útivelli, 2-0. Ármann
Björnsson, sem er í láni hjá Brann
frá Valsmönnum lék allan leikinn í
fremstu viglínu og átti nokkur færi
til að skora en hafði ekki árangur
sem erfiði.
Róbert Gunnarsson skoraði sex
mörk fyrir danska liðiö Árhus sem
tapaöi á heimavelli fyrir Fredercia í
1. deildinni í handknattleik um helg-
ina. Þetta var önnur umferð í deild-
inni en Róbert og félagar unnu sinn
leik í 1. umferð.
Gunnar Berg Viktorsson var ekki á
meðal markaskorara Paris St.
Germain sem sigraði Istres, 28-23, í 1.
deild franska handboltans sem hófst
um helgina. Parísarliðiö hefur
styrkst nokkuð fyrir átökin í vetur og
eru forvarsmenn liðsins að binda
vonir um betri árangur en á siðasta
tímabili. Liöinu gekk hins vegar af-
leitlega á undirbúningstímabilinu og
tapaði flestum leikjum sínum.
Lærisveinar Atla Hilmarssonar í
þýska handknattleiksliðinu Friesen-
heim biðu ósigur fyrir Solingen,
31-27, í 2. deild syðri um helgina.
Halldór Sigfússon skoraði fjögur
mörk fyrir Friesenheim en Rússinn
Voronin var markahæstur og skor-
aði 11 mörk. Þetta var leikur í 2. um-
ferð mótsins en Friesenheim vann
sinn leik í 1. umferð.
Robert Waseige, þjálfara belgíska
liðsins Standard Liege, hefur verið
vikið úr starfi vegna slaks árangurs
liðsins það sem af er tímabilinu. Liö-
ið beið ósigur um helgina og var
þetta fjórða tap liðsins í fyrstu fimm
umferðum deildarkeppninnar. Þetta
ár ætiar ekki að verða Weisege sér-
lega farsælt en hann hætti meö
belgíska landsliðið eftir HM í sumar.
Það er eftir töluverðu að slægjast
fyrir leikmenn svissneska liðsins í
meistaradeild Evrópu. Þangaö komst
liðið eins og kunnugt er eftir fræki-
legan sigur á Celtic. Nú hafa leik-
mönnum liösins verið boðnar fimm
milljónir króna fyrir hvert það stig
sem liöið fær í sínum riðli en fyrsti
leikur liðsins verður gegn Spartak
Moskvu í Basel í kvöld.
Bayern Miinchen leikur án Bixente
Lizarazu þegar liðið mætir spænska
liöinu Deportivo Coruna í meistara-
deildinni annað kvöld. Einnig er alls
óvíst hvort Michael Ballack getur
leikið en hann æfði ekkert meö liðinu
í gær vegna meiösla á fæti. „Við
munum gera allt sem í valdi okkar er
til aö Ballack geti leikið með okkur,“
sagði Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bæj-
ara í gær.
Þór varó í gær bikarmeistari 2.
flokks karla í knattspyrnu þegar liðið
sigraði KR, 8-6, eftir framlengdan
leik og vítaspymukeppni í úrslitaleik
á Akureyri. Staðan að loknum venju-
legan leiktíma var 3-3. Nánar verður
(jallað um leikinn á unglingasíðu síð-
IS sigraði lR í Reykjavíkurmóti
kvenna i körfuknattleik, 61-56, en í
hálfleik var staðan 25-26 ÍR-stúlkum i
vil. Stigahæst stúdina var Þórunn
Bjamadóttir með 23 stig og Jófriður
Halidórsdóttir með 11 stig. Hún var
jafnframt með 8 fráköst og 5
stoösendingar. Stigahæstar ÍR-inga
voru þær Kristrún Sigurjónsdóttir
með 13 stig og Hildigunnur
Helgadóttir með 12 stig.
Vantaði Sigurð
Á lista yfir markahæstu menn
í Símadeild karla sem birtur var
í gær vantaði nafn Sigurðar
Ragnars Eyjólfssonar á listann.
Við biðjumst að sjálfsögðu
velvirðingar á mistökunum. Hér
fylgir réttur listi yflr marka-
hæstu leikmenn:
Grétar Hjartarson, Grindavík ... 12
Sævar Þór Gíslason, Fylki....12
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, iBV 11
Jóhann Þórhallsson, Þór, Ak. ... 10
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, KR . .10
Bjarki Gunnlaugsson, ÍA.......7
Jónas Grani Garðarsson, FH....7
Óli Stefán Flóventsson, Grindavík . 7