Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.2002, Page 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 2002
Sport
Gunnar Gunnarsson var að vonum
kampakátur eftir að hafa tryggt sér
íslandsmeistaratitilinn með sigri f
keppninni.
Bland * i P oka
Miklar gangíruflanir hafa hrjáð
Trúðinn hjá Gunnari Gunnarssyni
í síðustu keppnum þar sem hefur
verið mikil bleyta. Erfiðlega hefur
gengið að finna bilunina en í vik-
unni fyrir Hellu-keppnina brugðu
þeir félagar á það ráð að sprauta
vatni yfir vélarsal Trúðsins,
slökkva öll ljós og ræsa jeppann.
Þá sást að hvalbakur jeppans log-
aði allur í útleiðslu.
Gunnar fékk þá sérfræðing í mál-
ið en það var Benedikt Eiriksson
frá Selfossi sem yfirfór allt rafkerfi
lYúösins og stillti kveikjukerfið.
Eftir þetta gekk Trúðurinn eins og
klukka, sló ekki feilpúst og virkaði
hrikalega á Hellu.
DV
Trúðurinn hjá Gunnari Gunnarssyni virkaði vel eftir að hann og aðstoðarmenn hans höfðu komist fyrir bilanir í rafkerfi bílsins. Hér er Gunnar á „jólagjöfinni"
í mýrinni en torfæruökumenn tala um að vera á jolagjöfinni þegar allt er í botni, aukabensíndælan á fullu og nítróið á fullu. DV-myndir JAK
Sigurdur Þór Jónsson var búinn
að breyta stýrisganginum í Tos-
hiba-tröllinu svo að hann þarf nú
einungis að snúa því einn hring,
borð í borð, en stýrið er samt eins
létt og áður.
Karl Lúdviksson var að keppa i
fyrstu torfærukeppni sinni og var
á "gamal" Frissa friska, keppnisbíl
sem Helgi Schöith smíðaði.
Pétur V. Pétursson var einnig að
keppa í sinni fyrstu keppni. Pétur
hafði keypt Nesquick-skutluna af
Ásgeiri Jamil Allanssyni á fimmtu-
deginum fyrir keppnina og hafði
aldrei keyrt jeppann fyrr en hann
lagði af stað í fyrstu brautina.
Lokaumferð íslandmeistaramótsins í götubílaflokki:
Gunnar Gunnarsson
íslandsmeistari
Ragnar Róbertsson var nærri bú-
inn að velta Pizza 67 Willysnum í
endastáli 1. brautarinnar en bjarg-
aði sér, eins og svo oft áður, með
því að reka jeppann i bakkgírinn
og botna hann.
Gunnar Ásgeirsson velti Good-
Tear-eminum eftir að hafa lent í
hrikalegu frákasti í endastáli 2.
brautar. Jónas Karl Sigurösson
velti Batman í enda 5. brautar.
Bjarki Reynisson sýndi hversu
góður, rólegur og yfirvegaður öku-
maður hann er orðinn þegar hann
bjargaði sér frá veltu í endastáli 5.
brautar með þvi að bakka þegar
dýrið var að falla afturyfir sig.
Karl Lúðvíksson hugðist beyta
Baráttan um íslandsmeistaratitil-
inn í Götubílaflokki torfærunnar
hefur verið mjög jöfn og spennandi
í sumar. Þar hafa Gunnar Gunnars-
son á Trúðnum og Ragnar Róberts-
son á Pizza 67 Willysnum skipst á
að sigra en fyrir lokaumferðina
hafði Ragnar þriggja stiga forskot á
Gunnar sem hefur átt í verulegu
basli með Trúðinri í þeim keppnum
sumarsins sem haldnar hafa verið í
votviðri. Þá hafa miklar gangtrufl-
anir verið í jeppanum. Gunnar og
aðstoðarmenn hans hafa átt í mikl-
um erfiðleikum með að fmna út úr
því hvað væri að jeppanum. Á
Hellu voru þessir erfiðleikar hins
vegar að baki og strax í fyrstu
braut var ljóst að Trúðurinn og
Gunnar voru í hörkuformi.
Trúðurinn virkaði
„Ég hef sennilega klárað þetta
strax í fyrstu þremur brautunum
og það gerði einnig gæfumuninn að
mér tókst að komast yfir mýrina.
Það var rosalega gaman að geta
keyrt mýrina og klárað þetta. Fyrir
mýrina var ég 300 stigum á undan
Ragnari en þar innsiglaði ég sigur-
inn og tryggði mér íslandsmeistara-
titilinn. Þetta var virkilega gaman.
Trúðurinn virkaði vel í dag, nema í
vatninu, en fyrir þá braut settum
vin annan nítró-kút í bílinn en sá
kútur er sennilega eitthvað bilaður
því vélin gekk illa í ánni,“ sagði
Gunnar sem vildi sérstaklega
þakka aðstoðarmönnum sinum og
styrktaraðilum fyrir þennan árang-
ur.
Ragnar í erfiðleikum
„Þetta virkaði ekki í dag. Gekk
alls ekki og það vantaði mikið upp
á. Það var komið að mér að vera
óheppinn," sagði Ragnar Róberts-
son að keppninni lokinni. Erfiðleik-
arnir dundu á mér jafnt og þétt.
Strax í 2. braut lenti ég í erfiðleik-
um. Sú braut varð alltaf erfiðari og
erfiðari. Ég komst ekki upp í enda-
markið. I tímabrautinni var ég svo
nærri búinn að velta og tapaði
miklum tíma þar. Svo gekk vélin í
Pizza 67 Willysnum hvorki í ánni
né mýrinni. Það eitt hefði svo sem
dugað til að ég næði ekki sigrinum.
Ég vona bara að mér gangi betur
næst, í lokaumferð Heimsbikar-
mótsins, en þar hef ég þriggja stiga
forskot á Gunnar,“ sagði Ragnar að
endingu.
JAK
Óskar Gunnar Óskarsson keppti á Steðjanum í sinni annarri torfærukeppni
og var greinilega farinn að færa sig upp á skaftið. Hér stendur hann
Steðjann flatann upp lokabarð annarrar brautar.
Ragnar Róbertsson átti í erfiðleikum í Hellu-keppninni og varð að láta
íslandsmeistaratitilinn af hendi. Hér er Ragnar að bjarga sér frá því að veita
Pizza 67 Willysnum aftur yfir sig með því að reka bílinn í bakkgírinn og botna
hann siðan.