Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Side 1
Y Maður sem notaði kvikmyndatökuvél í kynferðislegum tilgangi í þremur málum:
Ákærður fyrir að halda
\ ungri konu í gíslingu
- myndavél á salerni i þriöja málinu
STÓRl KÍNVERJINN
HJÁ HOUSTON:
Yao Ming
er mættur
til leiks
26
Það var
mikill glans
i kringum
hana
21
MINNINGARTÓNLEIKAR UM
SVANHVÍTI EGILSDÓTTUR:
i
i
1
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
- ekið á afvikinn stað í tveimur tiifellum
Réttarhöld hafa aö undanfómu
staðið yfir í stórfelldu og alvarlegu
kynferðismáli þar sem karlmanni er
meðal annars gefið að sök að hafa
haldið stúlku um tvítugt í gíslingu í
yfirgefnu húsi utan þéttbýlis á síðasta
ári. Maðurinn hafði boðist til að taka
stúlkuna, sem var mjög ölvuð, upp í
bíl sinn eftir að hún kom út af veit-
ingahúsi í miðborg Reykjavíkur. Ljóst
þótti liggja fyrir að hann hafði reynt
að hafa uppi kynferðislega tilburði,
meðal annars með því að taka mynd-
ir, en hann er ekki ákærður fyrir að
misnota stúlkuna kynferðislega með
öðrum hætti en að taka myndir af
henni mjög ölvaðri. Maðurinn er
ákærður fyrir að svipta stúlkuna
frelsi en einnig fyrir kynferðisbrotið.
í réttarhöldunum er sami maður
ákærður fyrir tvö önnur kynferðis-
mál. Annað þeirra er vegna svipaðs
tilfellis og að framan greinir - að taka
ölvaða stúlku um tvítugt upp í bíl
sinn og aka með hana á afvikinn stað
og taka af henni myndir.
í þriðja lagi er maðurinn ákærður
fyrir að hafa komið kvikmyndatöku-
vél fyrir á salemi á annarri hæð gisti-
heimilis á Reyðarfirði á síðasta ári en
maðurinn rak þá heimilið fyrir aðra.
Þannig er honum gefið að sök að hafa
komiö netmyndavélinni fyrir á sal-
erninu og síðan tekið myndir úr
henni og fært í tölvu sína. Athæfið
komst upp þegar gestir tóku eftir að
ekki var allt með felldu á salerninu.
Maðurinn, sem er með lögheimili í
Reykjavík, neitaði sök en lögreglunni
tókst að fmna myndirnar í tölvu hans.
Á það raunar við í öllum framan-
greindum tilfellum.
Að undanfórnu hefur verið réttað í
málinu en töf hefur orðið á því vegna
þess að vitnaleiðslur hafa ekki getað
farið fram með hefðbundnum hætti.
Gert er ráð fyrir að réttarhöldin haldi
áfram í héraðsdómi áður en langt um
líður. -Ótt
Talið í Valhöll
- miðstjórn fundar vegna prófkjörsins
Vllhjálmur
Egilsson.
Atkvæði í próf-
kjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Norð-
vesturkjördæmi
verða endurtalin í
höfuðstöðvum
flokksins i Valhöll í
dag. Talning hefst
síðdegis og er gert
ráö fyrir að henni
ljúki fyrir mið-
nætti. Fulltrúar kjömefndar í Norð-
vesturkjördæmi og stjómar kjördæm-
isráös veröa viðstaddir en starfsmenn
á skrifstofu flokksins sjá um talningu.
Miðstjóm flokksins kemur saman
til fundar einhvern næstu daga til
þess að taka afstöðu til erindis frá á
sjöunda tug félaga í fulltrúaráðum
flokksins í Húnavatns- og Skagafjarð-
arsýslu, sem óska eftir því að mið-
stjórn skeri úr um hvaða áhrif ágallar
á prófkjörinu í Norðvesturkjördæmi
hafi á gildi þess. Erindið barst skrif-
stofu flokksins i gær.
Ekki er augljóst af skipulags- og
prófkjörsreglum flokksins að aðrir en
stjórnir kjördæmisráða geti skotið
ágreiningi um prófkjör til miðstjóm-
ar. Vilhjálmur Egilsson ræddi málið
við formann flokksins í gær og segir
að sér hafi skilist að miðstjóminni
væri ekkert að vanbúnaði aö taka
málið til umfjöllunar.
Tuttugu og sjö eiga sæti í mið-
stjóm; formaður og varaformaður
flokksins, ellefu fulltrúar kjömir á
landsfundi, fimm þingmenn kjömir af
þingflokki, fimm formenn kjördæmis-
ráða, formaður verkalýðsráðs flokks-
ins og formenn landssambanda sjálf-
stæðiskvenna, ungra sjálfstæðis-
manna og eldri sjálfstæðismanna.
-ÓTG
i
i
S.B.D.
Sætúni 4 • Sími 562-6066
Smur- bon og dekkjaþjonustan
VETRARDEKK
JmuuesTonE
ftrcstone® KJ