Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.2002, Síða 20
20 > íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85 ára______________________________ Emllía B. Helgadóttir, Hjallaseli 55, Reykjavík. Herbjörn BJörgvinsson, ja. Ásvegi 26, Breiðdalsvík. 75-ára______________________________ Ólafur Halldórsson, Breiövangi 63, Hafnarfirði. Páll Halldórsson, Skipagötu 1, Akureyri. Traustl Thorberg Óskarsson, Lækjasmára 6, Kópavogi. Eiginkona hans er Dóra Sigfúsdóttir. Þau verða að heiman. 70 árg______________________________ Inga Skarphéðlnsdóttir, Grænumýri 10, Akureyri. Jens Olsen, Silfurbraut 10, Höfn. Sigurstelnn Sigursteinsson, Kárastíg 10, Reykjavík. Þorsteinn Gíslason, Miöleiti 3, Reykjavík. 60 ára______________________________ Anna Guðmundsdóttir, Uröarvegi 37, Isafiröi. Elín Káradóttlr, Jöldugróf 2, Reykjavík. Elínborg Ingólfsdóttir, Furugerði 13, Reykjavík. Elísabet Krlstjánsdóttir, Breiðvangj 23, Hafnarfirði. Jósefína Ásgeirsdóttir, Mýrarbraut 13, Blönduósi. ** 50 ára______________________________ Dóra Steinsdóttir, Álfatúni 17, Kópavogi. Eglll I. Hermannsson, Keilusíöu 4a, Akureyri. Gréta Vigfúsdóttir, Torfufelli 50, Reykjavík. Hreinn Krlstófersson, Heiðmörk 31, Hveragerði. Jón Kristlnn Guðmundsson, Álfholti 24, Hafnarfiröi. Kristín Jóna Guðmundsdóttir, Fáfnisnesi 14, Reykjavík. Sævar Ólafsson, Ásabraut 13, Sandgerði. Þorgeir Hauksson, Hammersminni 18, Djúpavogi. Öm Sigurðsson, Hringbraut 46, Hafnarfirði. 40 árg______________________________ Brynja Birgisdóttir, Arnarsmára 26, Kópavogi. Helga Hjaltested, Fjallalind 31, Kópavogi. Krlstín Sigríður Traustadóttir, Vesturbergi 98, Reykjavík. Oddur Haraldsson, Laufengi 5, Reykjavík. Ragnar Hólm Ragnarsson, Hafnarstræti 86a, Akureyri. Valgeir Ólafsson, - Trönuhólum 2, Reykjavík. Vlgdís Vilhjálmsdóttir, Faxabraut 37a, Keflavík. Þorstelnn Garðarsson, Stekkjarhvammi 9, Hafnarfiröi. \ Ekta fiskur ehf. Utvatnaður saltfískur, án beina, til ao sjóða. Sérútvatnaður saltfiskur, án beina, til að steikja. Saltfisksteikur (Lomos) fyrir veitingabús. V_________________________________2 Andlát Hámundur Eldjárn Björnsson, Löngumýri le, Akureyri, lést á heimili sínu laugard. 9.11. Útför hans hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hins látna. Kristrún Arnfinnsdóttir, Neskaupstaö, lést á fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup- stað að kvöldi miðvikud. 13.11. Jón Ægir Jónsson, Reykjamel 1, Mos- fellsbæ, lést á líknardeild Landspítala í Kópavogi miövikud. 13.11. Slgurdís Guðjónsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík, andaðist á elli- og hjúkrunar- heimilinu Grund þriðjud. 12.11. Jarðar- förin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 2002 DV Emilía Ásta Júlíusdóttir daggæslufulltrúi Emilía Ásta Júlíusdóttir, Blásöl- um 18, Kópavogi, er sextug í dag. Starfsferill Emilia fæddist og ólst upp á Akranesi. Hún sttmdaði nám við Reykholtsskóla í Borgarfirði 1956, lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræða- skóla Akraness 1959, nam við Nor- ræna Lýðháskólann í Kungalv 1960-61, lauk leikskólakennaraprófi frá Fósturskóla íslands 1976, fram- haldsnámi fyrir leikskóla- og tóm- stundakennara við Uppeldis- og kennslufræðstofnun Gautaborgar- háskóla 1994 og er nú að ijúka meistaraprófi í uppeldisfræðum. Emilía vann á langlínustöð Land- síma Islands í Reykjavík 1965-73, var leikskólakennari og leikskóla- stjóri í Fögrubrekku 1976-83, var dagvistarfuOtrúi 1983-1984, leik- skólastjóri i Grænatúni 1984-87, um- sjónarfóstra 1987-91 og er daggæslu- fulltrúi með umsjón með daggæslu bama og starfsemi gæsluleikvalla frá 1991. Emilía hefur verið stundakennari við Námsflokka Reykjavíkur og Leikskólaskor KHÍ og haldið nám- skeið fyrir dagmæður og leikskóla- kennara. Emilía er félagi í Rotaryklúbbn- um Borgrnn í Kópavogi, formaður nefndar félagsmálaráðuneytis um námskrár fyrir dagmæðranámskeið 1993 og var í stjórn og samninga- og kjaranefnd Starfsmannafélags Kópa- vogs 1980-88. F]ölskylda Emilía giftist 30.10. 1965 Guð- mundi Bertelssyni, f. 23.7. 1942, raf- iðnfræðingi. Foreldrar Guðmundar voru Bertel Andrésson, skipstjóri hjá Eimskip, og k.h., Ingibjörg Sæ- unn Jónsdóttir húsmóðir. Þau voru búsett í Sveinskoti á Álftanesi og í Reykjavík. Emilía og Guðmundur slitu samvistum 1989. Dóttir Emilíu og Guðmundar er Ingibjörg, f. 27.12. 1966, grunnskóla- og íþróttakennari í Smáraskóla í Kópavogi, í sambúð með Valgeiri Ægi Ingólfsyni, slökkviliðsmanni á Keflavikurflugvelli, börn þeirra eru Gauti Jan, f. 10.2. 1988, og Freyja Hlín, f. 21.2. 1995. Systkini Emilíu eru Guðrún Edda, f. 3.8. 1938, húsmóðir á Akra- nesi; Ragnheiður Júlíusdóttir, f. 14.11. 1940, fulltrúi í Ráðhúsinu í Reykjavík; Þórður Ásmundsson Júl- íusson, starfsmaður Landsbanka ís- lands; Ásdís Elín Júlíusdóttir, starfsmaður Landsbanka íslands; Gunnhildur Júlíusdóttir, fótaað- gerðarfræðingur á Akranesi. Foreldrar Emilíu: Hans Júlíus Þórðarson, f. 11.3.1909, d. 28.10.1998, útgerðarmaður á Akranesi, og Ás- dís Ásmundsdóttir, f. 18.8. 1912, d. 26.7.1985, húsmóðir. Ætt Júlíus er sonur Þórðar, útgerðar- manns á Akranesi, Ásmundssonar, formanns á Elínarhöfða, Þórðarson- ar. Móðir Ásmundar var Elín Ás- mundsdóttir, b. á Elínarhöfða, Jörg- enssonar, b. þar, Hanssonar, ættfóð- ur Klingenbergsættar. Móðir Jörg- ens var Steinunn Ásmimdsdóttir, systir Sigurðar, langafa Jóns for- seta. Móðir Þórðar var Ólína, systir Brynjólfs, langafa Þorsteins Gunn- arssonar arkitekts. Systir Ólínu var Þórunn, amma listmálaranna Sig- urðar og Hrólfs Sigurðssona og Sig- urlaugar og Sigurðar Bjamasonar frá Vigur. Ólína var dóttir Bjama, b. á Kjaransstöðum í Innri-Akranes- hreppi, Brynj- ólfssonar, b. í Ytrahólmi, Teits- sonar, bróður Amdísar, langömmu Finn- boga, fóður Vig- dísar. Móðir Ólínu var Helga Ólafsdóttir Stephensens, stúdents í Galtar- holti, Björnsson- ar, stúdents á Lágafelli, Ólafs- sonar, ættföður Stephensensætt- ar, Stefánssonar. Móðir Júlíus- ar var Emilía Þorsteinsdóttir, útvegsb. á Grund á Akranesi, Jóns- sonar, b. á Ölvaldsstöðum, Runólfs- sonar, bróður Guðmundar, afa Karls O. Runólfssonar tónskálds og langafa Guðmundar Sveinssonar skólameistara og Alfreðs Elíassonar forstjóra. Systir Jóns var Kristín, amma Ara Gíslasonar ættfræðings. Móðir Þorsteins var Ragnheiður Jó- hannsdóttir, pr. á Hesti, Tómasson- ar, afa Jakobs Jóhannessonar Smára skálds. Móðir Emilíu var Ragnheiður Þorgrímsdóttir Thor- grímsson, pr. í Saurbæ á Hvalfjarð- arströnd. Móðir Þorgríms var Sig- ríður Halldórsdóttir, pr. í Hítardal, Finnssonar, biskups i Skálholti, Jónssonar. Hálfbróðir Ásdísar, sammæðra, er Magnús Gíslason fyrrum fræðslustjóri og síðar rektor í Kungálv i Svíþjóö. Ásdís er dóttir Ásmundar, kennara á Akranesi, Magnússonar, b. í Sýruparti, Gísla- sonar, b. þar, Gíslasonar. Móðir Gísla var Margrét Jónsdóttir, b. á Krossi, Hallsteinssonar og Ónnu, systur Jörgens á Elínarhöfða, móð- ur Gísla. Móðir Ásmundar var Ing- veldur Ásmundsdóttir, b. á Ósi í Skilmannahreppi, Þorlákssonar. Móðir Ásmundar Þorlákssonar var Ragnheiöur Beinteinsdóttir, lrm. á Breiðabólstað í Ölfusi, Ingimundar- sonar, b. i Holti, Bergssonar, ættfóð- ur Bergsættar, Sturlaugssonar. Móðir Ásdisar var Þóra Þorvalds- dóttir, b. í Brautartungu, Þórðar- sonar, bróður Jóns, afa Jóns Ás- geirssonar tónskálds. Móðir Þor- valdar var Guðríður Þorvaldsdóttir, b. á Stórakroppi, Jónssonar, ættföð- ur Deildartunguættar, Þorvaldsson- ar. Móðir Þóru var Elín Vigfúsdótt- ir, b. á Grund í Skorradal, Gunnars- sonar. Móðir Vigfúsar var Kristín Jónsdóttir, b. á Vindási, Bjamason- ar, ættfóður Víkingslækjarættar, Halldórssonar. Fertugur Ágúst Borgþór Sverrisson rithöfundur í Reykjavík Ágúst Borgþór Sverr- isson rithöfundur, Tómasarhaga 39, Reykjavík, er fertugur í dag. Starfsferill Ágúst fæddist á Sel- tjamarnesinu og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1983, las þýsku og bók- menntir við háskóla í Berlín og Múnchen 1984-86 og heim- speki við HÍ 1989-91. Ágúst var dagskrárgerðarmaður og dagskrárstjóri við símatorgsþjón- ustu Miðlunar frá 1990-95, var texta- gerðarmaður á kynningardeild ís- lenska útvarpsfélagsins 1995-96, framkvæmdastjóri Veitunnar- nýmiðlunar, fyrirtækis í símatorg- þjónustu, 1996-2000, blaðamaður á Vísi.is 2000-2002 og hefur starfað sjálfstætt frá mars 2002 við ritstörf, þýðingar, bæklingagerð fyrir Ný- herja, blaðamennskuverkefni fyrir tímaritið Lyfjatíðindi og er auk þess nýráðinn íþróttafréttamaður á Vísi.is, sem verktaki i hlutastarfi. Útgefin ritverk Ágústar: Eftirlýst augnablik, með mynd- skreytingum eftir Jón Óskar Sólnes, ljóð, 1987; Síðasti bíllinn smásögur, 1988; í síð asta sinn, smásögur 1995; Hringstiginn, smá- sögur, 1999; Sumarið 1970, smásögur, 2001. Ýmsar sögur Ágústs hafa birst í Tímariti Máls og menningar og verið lesnar í útvarp á Rás 1. Nokkrar þeirra hafa unnið til verðlauna. Þekktust verð- launasagnanna er Hverfa út í heim- inn sem hlaut 1. verðlaun í smá- sagnasamkeppni Strik.is 2001. Ein saga eftir Ágúst, Afraksturinn, var þýdd á þýsku og birt í þýska safnrit- inu Wortlaut Island sem kom út 2000 og geymir ljóð og smásögur eft- ir helstu samtímahöfunda íslands. Þá má geta mjög lofsamlegs ritdóms um smásagnasafniö Hringstigann í alþjóðlega bókmenntatímaritinu World Literature Today 2000. Ágúst Borgþór vinnur nú að fimmta smásagnasafnu. Fjölskylda Ágúst kvæntist 11.6. 1994 Erlu Kjartansdóttur, f. 8.4. 1965, við- skiptafræðingi og deildarstjóra hjá íslandspósti. Foreldrar hennar: Jón- ína Hannesdóttir húsmóðir og Kjartan Bjömsson, d. 1991, stöðvar- stjóri Pósts og síma á Vopnafiröi. Böm Ágústs og Erlu eru Freyja Ágústsdóttir, f. 17.12. 1994; Kjartan Ágústsson, f. 2.11. 1999. Alsystkini Ágústs: Aðalbjöm Jón Sverrisson, f. 3.7. 1958, slökkviliðs- maður í Reykjavík; Ragnheiður Jónína Sverrisdóttur, f. 11.2. 1957, læknaritari og sölumaður í Reykja- vík; Sæmundur Pétur Sverrisson, f. 14.4. 1965, d. 9.4. 1974. Fóstursystir Ágústs: Þorbjörg Steinarsdóttir, f. 18.1. 1967, grafisk- ur hönnuður, búsett í San Diego í Bandaríkjunum Foreldar: Sverrir Aðalbjömsson, f. 11.3. 1936, og Freyja Jónsdóttir, f. 5.10. 1932, blaðamaður Ætt Sverrir er sonur Aðalbjöms, gull- smiðs Péturssonar, b. og hákarlafor- manns frá Melum í Ámeshreppi, Péturssonar, b. á Dröngum, Magn- ússon. Móðir Péturs Péturssonar var Hallfríöur Jónsdóttir. Móðir Aö- albjöms var Ingibjörg Jónsdóttir frá Amarbæli í Dalasýslu. Móðir Sverris var Ragnheiður Guðjónsdóttir Nordahl, dóttir Guð- jóns Jóhannssonar, skó- og báta- smiðs frá Súgandafirði. Móðir Ragn- heiðar var Ágústa Bjamadóttir. Freyja er dóttir Jóns, frá Dúki í Skagafirði Ólafssonar, Sæmunds- son, af Tröllatunguætt. Móðir Jóns var Steinunn Steinsdóttir, hrepp- stjóra í Stóru-Gröf í Skagafirði, Vig- fússonar, og Helgu Pétursdóttur. Systrasynir Steinunnar vom Pétur Sigurðsson tónskáld og Sigurður Skagfield óperusöngvari. Móðir Freyju var Jónína Guð- björg Bjömsdóttir, b., gull- og silfur- smiðs á Bessastöðum á Heggstaða- nesi, af Guðlaugsstaðaætt, Jónsson- ar, frá Melum í Hrútafirði, Jónsson- ar. Móðir Bjöms var Guðbjörg Björnsdóttir, síðast húsfreyja í Foss- koti í Miðfirði. Móðir Jónínu var Kristín Bjarnadóttir. Móðir hennar var Helga Jónsdóttir frá Krossanesi í Setbergssókn á Snæfellsnesi og faðir hennar Bjami Bjamason, ætt- aður úr Hrútafirði, sonur Kristínar Þorkelsdóttur frá Geithól og Bjama Bjamasonar, bónda á Bálkastöðum í Hrútafirði. Ágúst Borgþór hélt vinum sínum og ættingjum veislu laugardaginn 16.11. sl. í dag er hann að störfum. Merkir Islendingar Ari Guðmundsson, vegaverkstjóri í Borgar- nesi, fæddist 18. nóvember 1895. Hann kenndi sig gjaman við Skálpastaði í Lundarreykjadal, enda þar uppalinn, var hreppstjóri þar um tíma. Foreldrar hans voru Guðmundur Auðunsson, bóndi á Skálpastöðum og Guðbjörg Aradóttir, húsfreyja og ljósmóðir. Ari var bú- fræöingur frá Hvanneyri. Hann varð vegaverkstjóri í Borgarfirði 1926 en vann einnig á Kaldadal, Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og Kerlingarskarði. Haim tók við yfirstjórn vegamála í Borgarfjarðarhérði norðan Skarðsheið ar 1943, hafði umsjón með vegheflun og vélaflutningum á svæði frá Botnsá í Hval- firði, um Snæfellsnes og Dali, vestur í ísa- fjarðardjúp og að Hólmavík og Hrútafjarðará. Ari Guömundsson Ari var hann einn af stofhendum Hesta- mannafélagsins Faxa, Landssambands hesta- manna, Verkstjórasambands Islands, Verk- stjórafélags Borgarness, Björgunarsveitar Borgamess, Bridgefélags Borgarness, Rótaryklúbbs Borgarness, Hrossarækt- ardeildar Búnaðarsambands Borgar- íjarðar og var stjórnarmaður í þeim öllum og formaður í mörgum þeirra í fjölda ára, m.a. Faxa í 22 ár. Hann sat í stjórn Búnaðarsambands Borgar- fjarðar, var í yfirskattanefnd, sýslu- nefnd, hafiiamefnd og var endurskoð- andi reikninga Ræktunarsambands Borgarfjarðar. Eftir hann liggur fjöldi ritverka sem birtist víða í bókum, blöðum og tímaritum. Hann lést af slysfórum 21. maí 1959. Jarðarfarir Sigurjón Parmesson múrarameistari verður jarösunginn frá Húsavíkurkirkju þriöjud. 19.11. kl. 14.00. Björn Húni Ólafsson, Uröarvegi 54, ísafiröi, veröur jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju þriöjud. 19.11. kl. 11.00. Guörún Margrét Árnadóttir, áöur til heimilis aö Laugavegi 99, Reykjavík, veröur jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjud. 19.11. kl. 13.30. Annes Svavar Þorláksson frá Veiöileysu, Álfabergi 4, Hafnarfiröi, verður jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju þriöjud. 19.11. kl. 13.30. Fanney Elnarsdóttlr Long kjólameistari, Miðleiti 5, áöur Brekkugerði 10, veröur jarösett frá Frikirkjunni í Reykjavík miövikud. 20.11. kl. 15.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.