Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2002, Blaðsíða 1
4
i
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
DAGBLAÐIÐ VISIR
271. TBL. - 92. ARG. - MANUDAGUR 25. NOVEMBER 2002
VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK
Þeir Guölaugur Þór Þóröarson,
34 ára, Birgir Ármannsson, 34
ára, og Siguröur Kári Kristjánsson,
29 ára, eru allir aö heita má í
öruggum þingsætum eftir prófkjör
Sjálfstæöisflokksins í Reykjavík.
Blaösíöa 2 og 6.
DV-mynd Sig. Jökull
A leið á þing
Kristján Pálsson afar ósáttur við að vera ekki boðið sæti á framboðslista:
„Ótrúlega ruddaleg aðgerð"
„Mér finnst þetta ótrúlega rudda-
leg aögerð og skil hana eiginlega
ekki. Ég minnist þess ekki að sitj-
andi þingmanni haíi áður verið
sýndur slíkur ruddaskapur," segir
Kristján Pálsson alþingismaður en
hann verður ekki á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör-
dæmi samkvæmt tillögu kjörnefnd-
ar sem gengið var frá um helgina.
Kristján segir að sér virðist að
kjömefnd viiji að Ámi R. Árnason
skipi 1. sæti, Drífa Hjartardóttir 2.,
Guðjón Hjörleifsson 3., Kjartan
Ólafsson 4. og Böðvar Jónsson, bæj-
arfulltrúi í Reykjanesbæ, 5. sæti.
aKristján krafðist
fundar með Ellerti
Eiríkssyni, for-
manni kjörnefnd-
ar, í gærmorgun og
var hann haldinn
síðdegis í gær.
Hann segir engar
haldbærar skýring-
Krístján ar hafa komið fram
Pálsson. á niðurstöðu nefnd-
arinnar.
„Ég átta mig ekki á því hvemig
svona niðurstaða er fengin gegn sitj-
andi þingmanni. Ég fékk á áttunda
þúsund atkvæða i síðasta prófkjöri,
mun fleiri en til dæmis Árni Ragn-
ar, og veit ekki til þess að ég hafi
neitt til saka unnið á þessu kjör-
tímabili sem gæti leitt til þessarar
niöurstöðu," segir Kristján.
„Málið lyktar af alveg óskapleg-
um klíkuskap sem virðist hafa tröll-
riðið þessar kjömefiid. En ég hef
ekki sagt mitt síðasta orð í þessu og
mun aldrei sætta mig við svona
framkomu frá neinum."
Kristján segir að til greina komi
að leggja fram breytingartillögu á
kjördæmisráðsfundi á laugardag
þar sem atkvæði verða greidd um
tillögu kjömefndar. Hann segir að
samkvæmt sveitarstjórnarkosning-
unum í vor sé um helmingur kjós-
enda flokksins í kjördæminu á Suð-
umesjum, sem þó fái aðeins 1. og 5.
sæti listans. „Svo verð ég að vekja
athygli á því að Ámi Ragnar býr
ekki á Suðumesjum og hefur ekki
átt heima hér í mörg ár. Það má því
velta fyrir sér hvort þar sé verið aö
skipa Suðurnesjamann," segir
Kristján.
Ámi Ragnar sagðist í samtali við
DV í gærkvöld ekki geta staðfest
neinar fréttir af tillögum kjömefnd-
ar. Ekki náðist í Ellert Eiríksson,
formann kjömefndar. -ÓTG
Talar um
baráttu sína
■ Sómalska bar-
áttukonan Waris
Dirie heldur er-
indi í íslensku óp-
erunni í dag. Uni-
fem á íslandi
boðar til fundar-
ins og er tilefnið
að í dag er alþjóð-
Waris Dirie. íegur baráttudag-
ur Sameinuðu þjóðanna gegn of-
beldi á konum.
Dirie, sem er höfundur Eyði-
merkurblómsins sem vakti mikla
athygli fyrir síðustu jól, mun segja
frá reynslu sinni og svara fyrir-
spurnum um baráttuna gegn um-
skurði. Nýjasta bók Dirie, Eyði-
merkurdögun, kemur út í íslenskri
þýðingu um þessar mundir.
Fundurinn hefst klukkan 12 og er
öllum opinn.
ENSKA ÚRVALSDEILDIN í
KNATTSPYRNU:
Toppliðin
töpuðu
bæði
ÚRSLIT í HÖNNUNAR-
KEPPNINNI STÍLL:
Stíll unga
fólksins
BÍLASPRAUTUN OG RÉTTINGAR
AUÐUNS
wmmmmamm
Tjónaskoðun • Bílaréttingar • Bílamálun
Þú færð bílaleigubíl á
meðan viðgerð stendur yfir
Sími 554 2510
Nýbýlavegi 10 • Kópavogi
Við hliðina á Toyota umboðinu ■ www.bilasprautun.is
Handfrjáls GSM búnaður á 9.945
MRTiroTllgeislaspilarár frá 287900
Skeifan 4
Sími 585 0000
www.aukaraf.is