Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2002, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2002 DV Fréttir Bein þátttaka íslands í NATO-hernaði: Aukin þróunaraðstoð gerir heiminn friðvænlegri - segir Ögmundur Jónasson, þingmaður VG Ef til hernaðaraö- gerða kemur á veg- um Atlantshafs- bandalagsins hefur Island skuldbundið sig til að leigja flug- vélar undir her- flutninga þar sem þeirra kann að vera þörf. Gengið hefur verið frá samning- um við Flugleiðir og Atlanta hvað þetta varðar. 300 milijónir króna er hámarksupphæð tengdri hverri hernaðaraðgerð NATO. Auk þess verður uppbygg- ingu íslensku friðargæslunnar flýtt, friðargæsluliðum fjölgað um helm- ing fyrir árið 2006, eða í 50 talsins. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokks og varaformaður w LI Guömundur Árni Magnús Stefánsson. Stefánsson. utanríkismálanefndar, segir að mál- ið hafi ekki verið kynnt fyrir nefnd- inni, en ísland sé þátttakandi í NATO-samstarfinu og því geti fylgt eitthvað á þessum nótum. „Þetta er nýtt en við erum full- gildir meðlimir í NATO og hljótum að axla ábyrgð í samræmi við það,“ segir Magnús Stefánsson. Guðmundur Ámi Stefánsson, þingmaður Samfylkingar, segir að Samfylkingin hafl verið samþykk því að stækka NATO og að ísland taki með auknum mæli þátt i starf- semi NATO með þátttöku friðar- gæslusveita. „Mér flnnst hins vegar lakara að ríkisstjórnin hafi tekið þá ákvörðun að gerast beinn aðili að hernaðarað- gerðum. Það er engin hefð fyrir því í 50 ára sögu NATO að ísland geri það. Við erum herlaus þjóð og ég hef því alvarlegar efasemdir um ágæti þess og hefði talið eðlilegra að við legðum okkar að mörkum til Atlantshafsbandalagsins eins og við höfum gert til þessa og eigum að gera í vaxandi mæli með þátttöku í friðargæslu eins og góð reynsla er af í Bosníu og Kosovo," segir Guð- mundur Ámi Stefánsson. Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, segir að niðurstaða NATO-fund- arins i Prag sé ekki fagnaðarefni, og framlag islensku ráðherranna þar dapurlegt, en þar var tekið undir allar kröfur um aukinn hernað hemaðarbandalagsins. „Framboð á farþegaflugvélum til flutnings á hergögnum um allt að 300 milljónum króna er fráhvarf frá aðskilnaði samfélagslegs og hemað- arlegs þáttar. Við leggum til 0,11% af þjóðartekjum til aðstoðar við þró- unarlönd og við munum árið 2006 ná sama hlutfalli til hemaðar. Nær væri að auka þróunaraðstoð I 0,7% sem verður framlag til þess að út- rýma fátækt og gera heiminn frið- vænlegri þar með,“ segir Ögmundur Jónasson. -GG Ögmundur Jónasson. Karl V. Matthíasson, 2. þingmaður Vestfírðinga, hefur hafnað þvi að taka 4. sætið á lista Samfylkingarinn- ar í Norðvesturkjördæmi eins og upp- stillingarneíhd flokksins leggur til. Uppstillingamefnd leggur til að Jó- hann Ársælsson á Akranesi verði í fyrsta sæti, Anna Kristín Gunnars- dóttir í Skagafirði í 2. sæti og Gísli S. Einarsson á Akranesi í 3. sæti, en Gísli er fæddur í Súðavík, og því tel- ur uppstillingamefnd hann geta verið fulltrúa Vestfirðinga.„Það var verið að sameina þrjú kjördæmi og sú hætta skapast ef þess er ekki gætt að þessum þremur fomu kjördæmum sé gert jafnhátt undir höfði í næstu kosningum að kjósendur Samfylking- arinnar í þeim hluta kjördæmisins sem yrði utanveltu við röðun á lista leituðu annað með atkvæði sín. þykktu Vestfirðingar tillöguna. Á fundi á ísafirði kom fram skýr vflji mikils meirihluta fundarmanna að ég yrði fulltrúi Vestfirðinga, ekki Gísli S. Einarsson, þó hann væri fæddur á Súðavík. ingum. Réttast væri að upp- stillingamefnd kæmi með tvær tillög- ur, annars vegar með mig í 3. sætið og Gísla í 4. sætið og öfugt. Kjör- dæmaþingið fengi þá að velja og þá niðurstöðu mundi ég sætta mig við,“ segir Karl V. Matthíasson. Stjóm kjördæmisþings fundaði í Reykjavík í gær en í þessu víðfeðma kjördæmi var það talin besti kostur- inn, allar leiðir liggi til höfuðborgar- innar. Formaður kjördæmisráðs, Vé- dís Geirsdóttir, segist ekki eiga von á öðru en að uppstillingamefnd skili aðeins einni tillögu. -GG DVWYND GVA Ljósadýrð Þótt mánuður sé til jóla er víða orðið jólalegt í verslunarhúsum og umhverfis þau. Þessi mynd er tekin í Garðheimum _________________; Reykjavík þar sem yfir 300 tegundir Ijósa eru til sölu. Þrjú ný þingmannsefni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík: Skattalækkanir verða efst á baugi „Ég ætla að beita mér fyrir því að hætt veröi að refsa fólki fyrir ráð- deild, sparsemi og dugnað,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, verðandi þingmaður, um það hverju hann hyggst breyta með störfum sínum á Aiþingi. Guðlaugur Þór er einn þriggja ungra manna sem má telja víst að hafi tryggt sér sæti á Alþingi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Birgir Armannsson. Amerískur hvíldarstóll Ótrúlega þœgilegur! Reykjavík. Hinir tveir taka f sama streng. „Ég vona að það komi inn í þingflokk sjálf- stæöismanna að- eins meiri óþolin- mæði gagnvart ríkisútgjöldum og háum sköttum," segir Birgir Ár- mannsson og Sigurður Kári Krist- jánsson segist munu beita sér fyrir því að skattar verði lækkaðir. „Ég vil að skattar á fólk og fyrirtæki verði lækkaðir duglega og mun beita mér fyrir því að ríkisreksturinn verði dreginn saman," segir Sigurður Kári. Enginn þeirra þremenninga telur að þeir verði hrópendur í eyðimörk í þingflokknum á komandi þingi. „Ég held að það hafi styrkt okkur og okk- ar kynslóð að svona margir okkar höfum náð þessum árangri," segir Sigurður Kári. „Það styrkir okkur að vera þama allir saman og það mun Sigurður Kári Kristjánsson. Guðlaugur Þór Þórðarson. gera hrópin háværari en elia.“ Birgir Ármannsson telur sömuleiðis að það muni gefa þessari kynslóð innan flokksins mjög mikið vægi nái þeir þremenningar allir kjöri, og Guð- laugur Þór bætir við að þeir hafi fengið stuðning úr öllum aldurshóp- um. „Það liggur alveg fyrir að við þrír fengum stuðning úr öllum ald- urshópum, þannig að það er ekki eins og við séum einir; niðurstaöa prófkjörsins sýnir að þau viðhorf sem við beijumst fyrir hafa hljóm- grunn innan Sjálfstæðisflokksins. -ÓTG Samfylkingin: Vestfirðingar vilja Karl V. í 3. sætið Innbrotafaraldur um helgina Tilkynnt var um ellefu innbrot i Reykjavík frá klukkan sjö til klukk- an fjögur í gær og á laugardag voru níu innbrot framin á sama tímabili. Þetta er óvenjulegt ástand að sögn lögreglunnar og hefur það varað nú í nokkra daga. Afar algengt er um að brotist sé inn í bíla og einnig geymslur fólks og greipar látnar sópa. Að sögn lög- reglunnar dreifast þessi innbrot nokkuð um borgina en í gær voru áberandi margar tilkynningar um innbrot við Bergþórugötu og þar í grennd. Verksummerki eru svipuð alls staðar. Lögregla hefur enn ekki haft hendur í hári innbrotsþjófanna en rannsókn allra málanna stendur yfir. -Gun. Stuttar fréttir Tvö rán upplýst Tveir menn hafa játað á sig rán í verslun 11/11 við Skúlagötu og bensínstöð Olís við sömu götu í lið- inni viku. Mennirnir voru yfir- heyrðir í gær og sleppt eftir að játn- ing lá fyrir. Vara við sölumönnum Óprúttnir náungar hafa undan- farið stundað það að selja lyklakipp- ur sem þeir segja til styrktar dauf- blindum. Daufblindrafélag íslands vill vekja athygli á því að sölumenn þessir séu ekki á vegum félagsins. Mikið atvinnuleysi Um 4% félags- manna í VR eru án atvinnu. Gunnar Páll Pálsson, for- maður VR, segir í samtali við mbl.is að leita þurfi aftur til áranna 1996 og 1997 til að finna jafnmikið atvinnuleysi meðal félags- manna og nú. í ársbyrjun voru 973 félagsmenn atvinnulausir saman- borið við 499 árið á undan. Um 20.000 manns eru í VR. Gráhegrar á vappi Tveir sjaldséðir gráhegrar sáust vappa við Rif á Snæfellsnesi í gær. Mörg ár eru síðan þeir sáust síðast á þessum slóðum ef marka má frétt mbl.is. Veðurblíðan á Rifi undan- farna daga hefur vafalaust fallið vel í kramið hjá gráhegrunum tveimur. Deila á stjórnvöld Verkalýðsfélagið Vaka á Siglufirði skorar á fjármálaráðherra að efna þegar loforð um jöftiun réttinda milli ASÍ og félaga hjá ríki og annarra rík- isstarfsmanna. Formaður Vöku segir mikinn mun á réttindum þessara hópa er varði lífeyris-, orlofs- og veik- indarétt. RÚV greindi frá. Hjartavernd beöin afsökunar Breska blaðið The Guardian hef- ur beðið Hjartavemd afsökunar á ummælum sem birtust í blaðinu í lok október - þess efnis að Hjarta- vernd hafi keypt um 200 þúsund hluti í DeCODE á gráa markaðnum og tapað um sjö hundruð milljónum á viðskiptunum. Hjartavernd hyggst láta afsökunarbeiönina duga og hyggur ekki á skaðabótamál. Lenti í öðru sæti Níu ára stúlka, Halldóra Bald- vinsdóttir, hafnaði í öðru sæti í italskri barnasöngvakeppni sem haldin var í Bologna um helgina. Halldóra var aðeins þremur stigum frá því að hreppa fyrsta sætið. Alþjóðastofa tekin til starfa Alþjóðastofan á Akureyri hefur formlega tekið til starfa en liðlega 200 erlendir ríkisborgarar eru bú- settir á Akureyri og í bænum búa nú um fjögur hundruð manns sem eiga ættir að rekja til útlanda. -áþ CBEBSl Þau leiðu mistök urðu við vinnslu Helgarblaðs DV að einn viðmælenda í „vandamáli vik- unnar" var sögð heita Stella Sigur- geirsdóttir mynd- listarkona. Stella var ekki í téðu við- tali heldur kona að nafni Stella Sig- urðardóttir. Stella Sigurgeirsdóttir er beðin velvirðingar á þeim óþæg- indum sem hún kann að hafa orðið fyrir vegna mistakanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.