Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2002, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2002, Blaðsíða 14
14 Menning Manngerðir og manngreinarálit Þegar innvígöir eru beönir aö nefna þýðingarmestu ljósmynd- ara allra tíma eru æöi margir sem láta sér sjást yfir August Sander (1876-1964) sem nú er sýndur í Ljósmyndasafni Reykja- víkur. Þó má halda því fram að fáir ljósmyndarar hafi haft eins mikinn skilning og þessi fyrrver- andi námumaöur frá Westerwald i Þýskalandi á náttúru ljósmynd- arinnar, hvemig hún varöveitir í sér hvorttveggja, augnablikið og eilífðina. Sander leitast viö að bregöa upp sannverðugum augnabliksmyndum af samsetn- ingu þýsks þjóðfélags og skila þeim áleiðis til komandi kyn- slóða, samtímanum og framtíð- inni til skilningsauka. Alveg burtséð frá félagslegu og sál- fræðilegu inntaki myndanna hef- ur söguleg framvinda gætt þær aukalegum áhrifamætti. Allt þetta fólk sem mætir augnaráöi okkar er ekki einasta horfið i tímans svelg heldur eru töluverð- ar líkur á því að stór hluti þess hafi látið lífið með voveiflegum hætti undir harðstjórn nasista. í ljósmyndasögunni eru fá, ef nokkur, dæmi um viðlíka metn- að og birtist í ævistarfi Sanders. Að sönnu má nefna til sögunnar bandaríska ljósmyndara á borð við Walker Evans, Robert Frank og opinbert ljósmyndagengi und- ir stjóm Roys Strykers, sem höfðu að markmiði að „dókúm- entera" bandarískt samfélag á 4. og 5. áratugnum en vinnubrögð þeirra voru óskipuleg og beindust aðallega að þvi að skrá- setja kjör fátæklinga og utan- garðsmanna. Frumeiningar samfélags Sander bar sig að eins og þeir mörgu 19. ald- ar vísindamenn sem töldu sig geta skrásett og flokkað manngerðir út frá andlitsfalli, höfuð- standandi, og heldur á einkunn sinni - múrarinn á múrskeið, lása- smiðurinn á lyklum, rithöftmdurinn á bók o.s.frv. - og horfir til okkar án þess að iáta nokkuð uppi um hugs- anir sínar og tilfinningar. Enda var Sander ekki á höttum eftir leyndar- málum fyrirsætna sinna heldur hlutverkaskipaninni f samfélaginu. Ekki ósvipað og Muybridge leiddi okkur í allan sannleika um eöli hreyflngarinnar með því að búta hana niður í frumeiningar sínar birtir Sander okkur frumeiningar samfélagsins. Það er því skiljanlegt hvers vegna nasistar bönnuðu bókina sem Sand- er gaf út með ríkulegu úrvali þess- ara mynda fyrir þær sakir að hún væri „andfélagsleg". Það sem nasist- um blöskraði var auðvitað jafhaðar- stefna Sanders, að hann skyldi freista þess að gera öllum jafnhátt undir höfði í ljósmyndum sinum. Sander leitar fanga ótrúlega víða. Hann ljósmyndar háaöal og flakk- ara, skrifstofublækur og búanda- kalla, nasista og sígauna. En eins og Susan Sontag hefur bent á fer Sand- er engu að síður í manngreinarálit. Menntamenn og embættismenn eru yflrleitt ljósmyndaðir innan dyra og oft án einkunna. Verkamenn og ut- angarðsfólk er ljósmyndað undir beru lofti, með einkimnum sínum og við aðstæður sem tala máli þeirra með einhverjum hætti. Ósjálfrátt gefur Sander sér að borg- arastéttimar séu betur færar um að tala eigin máli en verkalýðurinn. En áhrifa Sanders gætir víða um lönd, jafnvel hér uppi á íslandi. Sig- ríður Zoéga vann fyrir hann og lærði töluvert af honrnn, eins og fram hefur komið í bók Ingu Láru Baldvinsdóttur. Og í Ameríku hafa þau Diane Arbus, Richard Avedon og Irving Penn haldið merki hans á lofti. Miss- ið ekki af þessari sýningu í Ljósmyndasafn- inu. Aðalsteinn Ingólfsson Sýningin stendur til 1. des. Safnið er opiö kl. 12-18 virka daga og 13-17 um helgar. August Sander: Ungir bændur (1914) Hann valdi sér „týpíska“ fulltrúa allra stétta, starfsgreina eöa aldurshópa ... lagi og öðrum ytri einkennum mannskepn- unnar. Hann valdi sér „týpíska" fulltrúa allra stétta, starfsgreina eða aldurshópa og ljós- myndaði þá f hlutlausu umhverfi, fyrir fram- an tjald eða vegg. Sérhver þessara fulltrúa er myndaður í fullri lengd, ýmist sitjandi eða Bókmenntir ; Við og hinir í heimsþorpinu ■ Ari Trausti Guðmundsson er þekktur af mörgu. Hann er einn þekktasti fjallagarpur íslands og brautryðjandi á því sviði, snöfur- mannlegur veðurfréttamaður til margra ára og höfundur alþýð- legra fræðirita um náttúru ís- lands. Nú hefur hann söðlað um og snúið sér að skáldskap en áður hafði hann birt skáldskap i safnritum og mun auk þess hafa verið afkastamikið skóla- skáld i eina tið. í smásagnasafninu Vegalínum sem hlaut bók- menntaverðlaun kennd við Halldór Laxness 7. þessa mánaðar eru ferðasögur. Ari Trausti hef- ur ferðast víða en þaö eitt og sér er vitanlega engin trygging fyrir góðum sögum. Það sem sker úr um það að sögumar eru vel heppnaðar er að Ari Trausti hefur ekki bara reynslu held- ur einnig hæfileika til að lýsa umhverfi og per- sónum á sannfærandi og lifandi hátt - sögurnar í Vegalínum bera þess merki. Þær eru meira en bara ferðalýsingar. Þær fjalla um það hvemig íslendingar, eða Vesturlandabúar almennt, hafa gert allan heiminn að leikvelli sínum og hvem- ig þeir höndla það að mæta því fólki sem býr á feröamannaslóðunum og verður eftir þegar ferða- mennirnir eru famir heim. Allar sögurnar bera nafn er- lendrar persónu og i öllum tilfellum nema einu er þetta persóna sem íslenskur sögu- maður hefur hitt á ferðalagi og tengst með einum eða öðr- um hætti. Við kynnumst örlögum þessara skyndivina, stund- um í frásögn þeirra sjálfra eins og í fyrstu sögunni, stundum vefast örlög þeirra saman við líf sögumannsins eins og í sögunni af Razaaq. Sú saga er með þeim betri í safninu, þar afhjúpast hræsni Vesturlandabúans á grimmilegan hátt. Þegar hinn framandi reynir að komast inn á okkar svæði er viðmótið annaö en þegar við erum í öruggu hlutverki Ari Trausti túristans. Sagan „Tala“ myndar svo skemmtilegt mótvægi viö þessa sögu, þar er lýst traustri vináttu sem myndast milli tveggja manna við erf- iðar aðstæður og í návist dauðans. Bestu sögumar - og þær eru miklu fleiri en hinar - eru þær sem einbeita sér að samfundum ólíkra heima og ólíkra einstaklinga. í þeim sögum þar sem atburðarás- in verður æsilegri tekst Ara Trausta síður upp, þetta á t.d. við sögurnar „Hansen“ og „Chen“. Ari Trausti Guðmunds- son fer stórvel af stað sem rithöfundur. Sögumar í Vegalínum eru skrifaðar af innsæi og umtalsverðri stíl- gáfu og þær fjalla um efni sem kemur okkur sífellt meira við: samskipti okkar við þá sem em okkur fram- andi og erfiða sambúð í dv-mynd hari heimsþorpinu. Guðmundsson. Jón Yngvi Jóhannsson Ari Trausti Guðmundsson: Vegalínur. Vaka-Helgafell 2002. mannsgaman ,. m ■HHHI Flogið með Einari Ben Hann sagðist kunna Einar Ben nokkumveg- inn utan að. Og auðvitað hváði ég við hlið hans í heitri flugvélinni. Jú, mikO ósköp og hann strauk niður myndarlega vömb sína og dustaði þaöan mylsnu af brauðhomi. Og það væri ekki annað en að hann hefði alist upp viö bækur skáldsins frá fyrsta lestri og Vogar væm best, tilfinningaríkust, tignarlegust. Hann talaði hátt, jafnvel þannig að fallegu flugfreyjunum brá sem gengu hjá. Sagði að aOt tal um stirðbusakvæði og ofhleðslu væri vit- leysa og níð í nálægð Einars Ben. Menn þyrftu bara að kunna að lesa hann, þekkja taktinn hans, hrynjandina, vilja hans. Og líðan skálds- ins í hverri línu, hverju erindi. Skáldið sitt léki á stuðla og höfuðstafi eins og stjórnandi á heOa sinfóníu. Ég sat þama við hlið mannsins og hlustaði. Við flugum undir norðurljósin og næsta sýn var myrkur út um kýrauga. Nokkur ljóða skáldsins liðu um huga mér. En svo hélt hann áfram ein- tali sínu, feiti maðurinn í gluggasætinu og fór meir og meir I Einari sínum. Eins og hann væri skáldið endurfætt, drukkið á siglingu, óðamála, alviturt. Svo lentum við nokkru síðar, hvor í sinni hæð. -SER MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2002 _______________________PV Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttír silja@dv.is Kammertónlist Jóns Kammersveit Reykja- víkur heldur fyrstu tón- leika sína á starfsárinu annað kvöld kl. 20 á Kjarvalsstöðum. Þeir eru helgaðir kammer- tónlist eftir Jón Ás- geirsson og eftirtalin verk verða flutt: Þjóð- lagasvíta fyrir píanók- vintett, Blásarakvintett nr. 2, Strengja- kvartett nr. 3, Sjöstrengjaljóð og Oktett fyrir blásara. Jón Ásgeirsson er afkastamikið tón- skáld en einnig vel þekktur sem kennari og af skrifum sínum i Morgunblaðið. Fyrir utan vinsæl sönglög eins og Maí- stjörnuna hefur hann samið einleiks- konserta og óperurnar Þrymskviðu og Galdra-Loft sem hlaut Menningarverð- laun DV í tónlist 1997. Verkin verða tek- in upp að tónleikum loknum tO útgáfu á geisladiski. Samtímalist og hverfaskipulag 1 dag kl.12.30 flytur Giovanni Garcia Fenech fyrirlestur um samtímamálara- list í Listaháskóla íslands, Laugarnesi, stofu 024. Fenech er málari, búsettur í New York þar sem hann rekur galleríið The Project í Harlem. Hann hefur skrif- að greinar um samtímamyndlist i ýmis listtímarit. Á miðvikudaginn á sama tíma flytur Malin Zimm arkitekt fyrirlestur um rót- tækt hverfaskipulag frá tilvOjana- kenndri fagurfræði fyrsta kvikmyndafé- lags heimsins tO áhrifa Archigrams og frá þráðlausu ímyndunarafli fútúrist- anna tO áhrifa hinna þráðlausu kerfa al- þjóðavæðingar í LHÍ i Skipholti 1, stofu 113. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. Danir og Finnar dást að Heimsins heimskasta pabba Skáldsagan Heims- ins heimskasti pabbi eftir Mikael Torfason kom út árið 2000 og var bæði tilnefhd tO Menn- ingarverðlauna DV í bókmenntum og Bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs. Nú er hún komin út í Finn- landi og Danmörku og hefur fengið fínar viðtökur. í ritdómi í finnska blaðinu Matkaan segir tO dæmis: „Biturleiki verksins er þrunginn samfélagsgagnrýni sem þrátt fyrir íslensk einkenni ratar beint inn í finnskan veruleika ..." Og í stærsta síð- degisblaði Finna, nta-Sanomat, segir að texti bókarinnar sé „hnitmiðaður nor- rænn prósi af bestu gerð.“ Det kristelige dagblad í Danmörku segir m.a. um aðalpersónuna, Martein, að „þrátt fyrir aOan ömurleikann sé hann viðkvæmur inn viö beinið og trúi því að einhvers staðar sé lausnina að finna og hann geti lifað með þær byrðar sem lífið hefur lagt honum á herðar. Þessi viðkvæmni er fullkomin andstæða hins harðsoðna, gamansama og hraða frásagnarstOs bókarinnar (...) í þessari bók hefur Mikael Torfason skapað trú- verðuga og merkOega persónu sem er í senn fyndin og harmræn." í Danmarks Radio fékk bókin þá ein- kunn að vera „Einstaklega vel heppnuð bók eftir einn af bestu og yngstu höfund- um íslands. Fylgist með honum." Norræn sakamál Norræn sakamál eru komin út í annað sinn á vegum íþróttasambands lögreglumanna á Norður- löndum. Þar eru frásagnir af störfum norrænna lög- regluþjóna og þrátt fyrir titOinn tengjast þau ekki öO sakamálum. Frásagn- imar eru skrifaðar af þeim sem önnuðust rannsókn viðkomandi mála og gefa því innsýn í almenn störf lögreglu. Meðal frásagna bókarinnar má nefna „Innbrotið í listmunaverslunina", „Kyn- ferðisbrot gegn unglingsstúlkum", „LOiið í vegkantinum", „Ókunni maðurinn í ís- skápnum", „Morðið á Tom“, „Fjölskylduá- tök - tifandi sprengja" og „Rán í óláni“. Ritstjóri íslensku útgáfunnar er Ámi Þór Sigmundsson rannsóknarlögreglumað- ur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.