Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2002, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 2002
lögregluþjónar brautskróðir:
Björtu hliöarnar bæta
annað upp
Slagarar sungnir. Magnús Einarsson útvarpsmaö-
ur, til vinstri, og Valgeir Guöjónsson komu meó
gítarana og sungu Bítlaslagara.
PP-forlag kynnir
útgáfubækur sínar:
Undir teki& i
Fjölmenni mætti í Eymundsson í Austurstræti á
laugardag þegar þar voru kynntar þær bækur sem
fyrir þessi jól koma út á vegum PP-forlags. Fríða
Sophia Böðvarsdóttir kynnti bók sína Bakað úr spelti
og einnig var kynnt bók Ingólfs Margeirssonar, Bylt-
ing Bíltanna. Var höfundur á staðnum og áritaði.
Bókin góða ber sama nafn og þættir sem höfundur-
inn var með í útvarpi fyrir nokkrum árum. Þeír nutu
mikilla vinsælda en þar og í bókinni nú fjallar Ingólf-
ur um fjórmenningana sem heldur betur urðu til
þess að bylta heiminum og þeim viðhorfum sem viö-
tekin voru. Það var Magnús Einarsson útvarpsmað-
ur sem las upp úr bókinni - en síðan léku hann og
Valgeir Guðjónsson saman og sungu Bítlaslagara svo
undir var tekið i Eymundsson. -sbs
Bókln Bylting Bítlanna er eftir Ingólf Margeirsson en höfundur var á staön-
um og áritaöi. Magasín-myndir hh
„Það er mun skemmtilegra að starfa í lögreglunni en
ég reiknaði með. Maður fmnur sannarlega að maður er
að gera gagn. Kannski eru dökku punktarnir í starfmu
fleiri en hinir, en þá er um að gera að nota björtu hlið-
arnar til að bæta þá upp,“ segir Aldís Hilmarsdóttir,
nýútskrifaður lögreglumaður.
Hún er dúx Lögregluskóla ríkisins sem var slitið sl.
fostudag. Alls voru 46 nemar brautskráðir, þar af tólf
konur. Er þess vænst að nú verði allir lögreglumenn á
Reykjavíkursvæðinu orðnir faglærðir. Raunar er stað-
an sú að þeir nemar sem útskrifuðust á föstudaginn
hafa ekki allir fengið vinnu i lögreglunni. Þeirra á með-
al er Aldís, en hún hefur þó verið sumarmaður við að
gæta landsins laga.
Meðaleinkunn hennar úr lögregluskólanum var 9,38,
en sá sem næstur kom var með 9,0 í einkunn. „Þetta er
vissulega talsvert erfitt nám, svo sem lögfræðifógin í
bóklegu greinunum. Einnig veröur maður að vera í
góðu formi, enda er líkamsþjálfun stór hluti námsins,"
segir Aldís.
Meðal annarra sem brautskráðust úr lögregluskólan-
um voru sambýlisfólkið Aníta Rut Harðardóttir og Ei-
ríkur Beck. Þau störfuðu bæði á sínum tima sem af-
leysingafólk í lögreglunni og kynntust þannig. í dag
starfar Eiríkur hjá Lögreglunni í Kópavogi en Aníta er
enn ekki komin með vinnu.
„Þegar sambýlisfólk er í lögreglunni þarf að láta
vaktimar stemma þannig að fólk eigi stundir saman.
Þétta er vissulega ekki fjölskylduvænt starf,“ segir Ei-
ríkur. Hann segir að draumurinn um að gerast lög-
reglumaður hafi lengi blundað í sér, enda sé starfiö
skemmtilegt. Einkum hin mannlegu samskipti sem
starfið allt gangi í raun út á. -sbs
Sambýlisfólkiö Aníta Rut Haröardóttir og Eiríkur
Beck. Þau kynntust í lögreglunnl þegar þau störfuöu
saman um hríö.
Dúxlnn tilbúinn aö gæta landsins laga. „Mun skemmtilegra aö starfa
lögreglunnl en ég reiknaöi meö,“ segir Aldís Hllmarsdóttir.
Magasín-myndir E.ÓI.
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráöherra og Bjarki Elíasson, fyrrverandi
yfirlógregluþjónn í Reykjavík, voru mætt vlö útskriftina.
Fongulegur hopur brautskraöra logreglumanna setur hufu a hofuöiö -
en síðastur til var sjálfur dúxinn.
i
s
k
i