Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003 19 DV Sport líða. Það er mikilvægt að við yf- irfornm alla okkar vinnu í kring- um liðið og gagnvart leikmönn- unum sjálfum. Við þurfum að fara í naflaskoðun og reyna bæta það sem við getum bætt. Það er mikilvægt að byrja strax en við getum glaðst í nokkra daga og síðan tekur við þrotlaus vinna á nýjan leik að undirbúa liðið fyrir næstu stór- keppni. Þannig gengur þetta fyr- ir sig, en ekki byrja að slaka á og halda að við séum bestir í hebn- inum.” - Getur þú hagað undirbún- ingi öðruvísi en þú gerðir fyr- ir heimsmeistaramótið? „Ég hef takmarkaða mögu- leika á að haga honum eitthvað öðruvisi en við geröum núna. Okkur er mjög naumt skammt- aður tími með leikmennina en við verðum að skoða það, sem og aöra hluti. Ég er ekki akkúrat á þessari stundu búinn að leggja það niður fyrir mér hvemig það verður. Það er hins vegar alveg ljóst að við þurfum strax að fara huga að framtíðinni og næstu verkefnum." Dauöþreyttir - Hvernig er þér innan- brjósts þegar svona áfangi er i höfn? „Ég er afskaplega glaður en jafnframt þreyttur. Við erum all- ir dauðþreyttir því að svona mót reynir mikið á, líkamlega og andlega. Þaö er stórkostleg til- finning að hafa náð markmiðinu sem við settum okkur en það voru margar sterkar þjóðir sem náðu þvi ekki. Við getum verið mjög stoltir cif þessari niður- stöðu." -JKS það tapast auðvitað líka leikir, við getum ekki unnið allt og það þarf líka að læra aö umgangast það. í síðasta leiknum kom upp þessi einstaki karakter sem ein- kennir okkur þegar að við erum bestir. Að berjast með hjartanu er hka okkar styrkleiki og það skilar okkur áfram og það sæti sem við hrepptum.” - Þú settir þér takmark með lióið fyrir keppnina en lék það eins og þú vonaðist eftir? „Maður vonast alltaf til að komast enn lengra, en eftir að við komumst í þann möguleika að fara í undanúrslit þá settum við markmiðið á það. Ég held við getiun sagt að leikur liðsins hafi batnað með hverjum leik. Við vorum ekki langt frá því aö vinna Spánverjana og Rússa og leikinn við Júgóslava unnum við síðan með eftirminnilegum hætti. Þegar upp verður staðið skoðar maður niðurstöðuna bet- ur þegar fram höa stundir en að- alatriðið er að við settum okkur markmið fyrir þessa keppni og náðum því.” Frábærir tímar - Hvaö um framtiðina með þetta reynslumikla liö i hönd- unum? Eru ekki spennandi timar fram undan i þvi Ijósi? „Það geta verið frábærir tímar fram undan en við erum nú þeg- ar búnir að tryggja okkur inn á tvö stórmót, Evrópukeppni og ólympíuleika.. Viö getum ekki kvartað yfir því og sé ég því fram á spennandi tíma. Það er líka frábært að finna þennan stuðn- ing frá íslensku þjóðinni. Hvað hðið áhærir þurfum við aö setj- ast niður og skipuleggja næstu mánuði en tíminn er fljótur að „Mér líður mjög vel að liðið skuli hafa náð markmiði sínu en þátttöku í svona móti fylgir mik- il pressa og ekki ailtaf sem markmiðum er náð, en það gerð- ist núna og óneitanlega er það mikill léttir." - Ef þú litur yfir farinn veg og mótið i heild sinni? „Þetta var mjög erfitt mót þar sem leikið var stundum á móti slökum liðum og við komumst vel frá því í sjálfu sér. Við náð- um að dreifa álaginu mikið og það held ég að hafi hjálpað okk- ur þegar upp var staðið. Það vantaði herslumuninn gegn Þjóðverjum, Spánverjum og Rússum og við töpuðum með htl- um mun á móti þeim.“ Erfiöir andstæðingar „Það segir okkur ákveðið um styrkleika okkar en við hefðum í öllu fahi þurft að halda lengur út en við gerðum. Það er líka mikhvægt í þessari umræöu að fara ekki fram úr sér og gera sér grein fyrir því þessi 290 þúsund manna þjóð er að etja kappi við sterkustu þjóðir heims. Við höf- um verið spurðir að því marg- sinnis hvað farið hafi úrskeiðis í tapleikjunum en við erum ein- faldlega að leika gegn bestu þjóð- unum. Ef menn vilja kaha það að eitt- hvað hafi farið úrskeiðis að tapa meö einu marki fyrir Spánveij- um þá verða menn að eiga það við sig. Staðreyndin er sú að þetta eru gríðarlega erfiðir and- stæðingar og það er ekki hiaupið að því að leika góða vöm og sókn á móti sterkum sóknarmönnum. Við erum meðal þeirra bestu og PORTUGAl Guömundur Guömundsson landsliðsþjálfari var mjög ánægður með leikinn gegn Júgóslövum í gær og sagði aö það væri frábær tilfinning að liðið hefði hreppt sæti á ólympíuleikum sem væru stærsti íþróttaviðburður sem haldinn væri í heiminum. Þeir væru rosalega ánægðir með að verða fyrsta Norðurlandaþjóðin til að tryggia sér sæti þar. „Við vissum að þetta væri síðasta tækifærið til að tryggja okkur sæti á ólympíuleikum og ná um leið mark- miðinu sem við settum okkur í upphafi. Leikmennirnir voru mjög ákveðnir og innstilltir á leikinn. Við lögðum upp með grimman varnarleik þar sem áherslan var lögð á miðjusvæðið. Leikmenn sýndu mikið frumkvæði í vörninni og við fengum fjöldann allan af hraðaupphlaup- um. Enn fremur var sóknarleikurinn góður en þetta var leikur þar sem allt gekk upp. Það má því segja að þetta hafi verið leikur sem ég hafði óskað mér. Við nýttum breidd liðsins vel og það er varla hægt að gagnrýna liðið fyrir þennan leik, það hreinlega blómstraði, og ánægju- legt að sjá Guðmund í markinu með frábæra mark- vörslu,” sagði Guðmundur. Guðmundur Guðmundsson landsliðs þjálfari í yiðtali eftir HM í Portúgal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.