Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Blaðsíða 6
22 MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003 Sport i>v Við eigum helling inni - sagði Ólafur Stefánsson eftir að sjöunda sætið var í höfn á HM „Ég er hæstánægður með árang- ur okkar á heimsmeistaramótinu. Sjöunda sætið er mjög viðunandi niðurstaða en auðvitað langar mann alltaf til að fara hærra en það tókst ekki í þetta sinn. Þetta lið náði ekki að sýna allt það sem í því býr en það kemur mót eftir þetta. Mér finnst mikill léttir að verða komnir inn á ólympíuleikana en þangað hef ég stefnt leynt og ljóst lengi. Liðið í heild sinni fannst mér leika vel í mótinu en það glímdi við mótbyr. Það er þýðir ekkert að vera að mála skrattann á vegginn heldur fagna þeim árangri sem náðist í keppninni,” sagði Ólafur Stefáns- son í samtali við DV í Lissabon í gær. „Við lékum að sumu leyti betur á Evrópumótinu í fyrra en þar komum við skemmtilega á óvart. Núna þekkja andstæðingarnir okk- ur betur og eins verður heppnin að vera með líka en hún var ekki með okkur í þessari keppni. Líst vel á framtíðina Mér líst vel á framtíðina hjá þessu liði. Við höfum öðlast mikla reynslu sem kemur liðinu að góð- um notum í stóru mótunum á næsta ári. Eitt er víst að við eigum helling inni,“ sagði Ólafur Stefáns- son. Spurður um sina eigin frammi- stöðu á heimsmeistaramótinu sagð- ist Ólafur vera sáttur við hana en mestu skipti þó liðsheildin og hún hefði staðið sig vel. -JKS Ólafur skoraði sitt 200. mark á stórmóti Ólafur Stefánsson skoraði sitt 200. mark á stórmóti í lokaleikn- um gegn Júgóslövum i gær. Alls hefur Ólafur skorað 207 mörk í HM og á EM en með 11 mörkum og 6 stoðsendingum átti hann mikinn þátt í því að fá að spila í fyrsta sinn á ólympíuleikum á næsta ári. Flest mörk á stórmótum: Ólafur Stefánsson ............207 Patrekur Jóhannesson..........180 Valdimar Grimsson.............171 Kristján Arason...............118 Geir Sveinsson................113 Dagur Sigurðsson ..............79 Sigm-ður Gunnarsson ...........71 Gústaf Bjarnason...............69 Júlíus Jónasson................69 Einnig markahæstur á HM Ólafur er einnig markahæsti maður íslands á HM frá upphafi en bæði hann og Patrekur urðu þeir fyrstu til að brjóta 100 marka múrinn á HM í þessari keppni. Patrekur hafði 19 marka forskot á Ólaf fyrir keppnina en Ólafur komst upp fyrir Patrek í lokaleiknum gegn Júgóslövum og hefur nú skorað sex mörkum fleira. Flest mörk íslendings á HM: Ólafur Stefánsson ............127 Patrekur Jóhannesson..........121 Valdimar Grímsson..............95 Geir Sveinsson ................87 Kristján Arason................65 Dagur Sigurðsson ..............52 Sigurður Valur Sveinsson.......51 Júlíus Jónasson................51 Einar Öm Jónsson ..............50 -ÓÓJ Ólafur Stefánsson sest hér faöma Sigfús Sigurösson i ieikslok en á myndinni aö ofan fær hann haröar mottökur hja Gott fyrir allt ^ íþróttalíf á íslandi sagði Guðmundur Ingvarsson, formaður HSI, eftir að 7. sæti var í höfn DV. Lissabon: Það var að sjá á Guðmundi Ingvarssyni, formanni HSÍ, að honum væri létt þegar leikn- um við Júgóslava var lokið í Lissaþon í gær. í þessum leik var ekki ein- ungis um ólympíusæti að tefla heldur umgjörð og starfsemi handknattleikssambandsins á næstu árum. Tekur ekki for- maðurinn undir þau orð? „Það er alveg rétt að það er mikill léttir að þessi leikur er að baki með þessum stórkost- legu úrslitum. Þetta var frá- bær leikur hjá strákunum og árangurinn í samræmi við það sem að var stefnt,” sagði Guðmundur. - Hvað hefur þaö að segja fyrir HSÍ að landsliðið er komið inn á Ólympiuleikana i Aþenu? „Það hefur auðvitað mikiö að segja að við séu áfram í hópi bestu þjóða heims í hand- knattleik. Við erum núna í 7. sæti og erum eina Norður- landaþjóðin sem búin er að tryggja sig á ólympíuleikana. Við erum með frábært lið í höndunum sem búið er að standa vel að, vil ég segja. Þessi árangur er ekki einung- is frábær fyrir handboltann heima heldur einnig fyrir allt Guömundur Ingvarsson, for- maður HSÍ. íþróttalif á íslandi að við skul- um fara með breiðfylkingu og flotta umgjörð á Ólympíuleik- ana í Aþenu á næsta ári.“ - Hvað umgjörð verður útbúin i kringum liðið fyrir nœstu tvö stórmót sem það fer á? „Umgjörðin í dag er mjög góð, ég heyri ekki og sé ekki annað og við reynum að halda þessum gæðum sem umgjörð- in er þegar komin í.” Bjartsýnn - Það hlýtur að vera líka fjárhagslegur ávinningur fyrir liðið að vinna þetta sœti á ólympíuleikum? „Eftir því sem við stöndum okkur betur verður dýrara að reka sambandið. Við fáum styrk frá Alþjóða ólympíu- nefndinni en ég veit ekki hverju sú upphæð nemur á þessari stundu. Styrkurinn hrekkur örugglega fyrir kostn- aði hjá liöinu og eins þátttöku þess á leikunum. Ég sé ekki ástæðu til annars en vera bjartsýnn á framhaldið,“ sagði Guðmundur Ingvarsson, for- maður HSí, í samtali við DV. -JKS júgóslavnesku vörninni DV-myndir Hilmar Þor

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.