Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2003, Side 5
MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003
21
lceiaNDAm
Islensku strakarnir
fógnuöu vel goöum
sigri á Júgoslovum
eins og sja ma a
myndasyrpu Hilmars
Pors Guömundsson-
ar hér á síöunni.
Sæta-saga
islaivcls á HM:
_ i3. keppnin aö baki
1958 í Austur-Þýskalandi /fWk)
3 leikir, 1 sigur, 33% árangur Hjjgjgli'
1961 í Vestur-Þýskalandi
6 leikir, 2 sigrar, 42% árangur
1964 í Tékkóslóvakíu
3 leikir, 2 sigrar, 67% árangur
1970 í Frakklandi
6 leikir, 2 sigrar, 33% árangur
1974 í Austur-Þýskalandi
3 leikir, 0 sigrar, 0% árangur V^y/
1978 í Danmörku
3 leikir, 0 sigrar, 30% árangur
1986 i Sviss
7 leikir, 3 sigrar, 43% árangur
1990 í Tékkóslóvakiu
7 leikir, 2 sigrar, 29% árangur
1993 í Svíþjóð
7 leikir, 3 sigrar, 43% árangur
e
Q
1995 á Islands
7 leikir, 3 sigrar, 43% árangur
1997 í Japan
9 leikir, 7 sigrar, 83% árangur
*
2001 í Frakklandi
6 leikir, 2 sigrar, 42% árangur
2003 í Portúgal
9 leikir, 6 sigrar, 67% árangur
2005 í Túnis
ísland verður með
0
Gott tak á Júggum
og ólympíusætinu
- eftir sigur á Júgóslavíu í úrslitaleiknum um 7. sæti í gær
DV, Lissabon:
Islenska landsliöið í handknattleik
tryggði sér í gær þátttökurétt á Ólymp-
íuleikunum í Aþenu á næsta ár þegar
liðiö vann glæstan sigur, 32-27, á
Júgóslövum í leik um 7.-6. sætið á
heimsmeistaramótinu í Lissabon. Um
var að ræða hreinan úrslitaleik um
ólympíusæti og tóku íslendingar síð-
asta sætið sem í boði var i þessari
keppni. Af einbeitingarsvip íslensku
leikmannanna að dæma fyrir leikinn
gegn Júgóslövum í gær var greinilega
eitthvað mikið í uppsiglingu. Menn
stöppuðu stálinu hver í annan,
grimmdin var þvílik að menn ætluðu
ekki að láta þetta tækifæri sér úr
greipum ganga heldur ná þannig
markmiðinu sem liðið setti sér fyrir
heimsmeistaramótið.
Nú var að duga eða drepast og liðið
sprakk út eins og blóm á sumardegi.
Það var hrein unun að sjá til liðsins í
þessum leik, allir lögðust á eitt, bar-
áttuandinn var frábær og þegar upp
var staðið skilaði þetta liðinu að settu
marki. Eftir tvo tapleiki i röð, fyrir
Spánveijum og Rússum, reis liðið upp
á raunastundu og sýndi virkilega hvað
býr í því.
Byrjunin í leiknum í gær sló
Júgóslava alveg út af laginu og gerði
íslenska liðið íjögur fyrstu mörkin.
Tónninn var gefinn og ekki varð aftur
snúið. Júgóslavar skoruðu ekki fyrsta
markið fýrr en eftir sex minútna leik.
Vamarleikurinn var eins og múr,
hreyfanleikinn og vinnslan alveg ein-
stök. tslendingar voru um miðjan hálf-
leikinn búnir að ná sex marka forystu
en Júgóslövum tókst að minnka mun-
inn í þrjú mörk, 11-8. Júgóslavar
breyttu vöm sinni og klipptu Ólaf Stef-
ánsson út. Liðið var smátíma að átta
sig á þessu en þriggja marka munur
hélst þó á liðunum þegar fyrri hálfleik-
ur var allur. Guðmundur Hrafiikelsson
átti hreint stórkostlegan leik í mark-
inu og varði m.a. tvö vítaskot.
íslendingar mættu mjög ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik og gerðu þá end-
anlega út um leikinn á skömmum
tíma. Liðið gerði fyrstu þrjú mörkin i
síðari hálfleik, tvö úr hraðaupphlaup-
um og eitt af línunni. Mestur var mun-
urinn niu mörk og sigurinn kominn í
öragga höfh. Liðið slakaöi aðeins á
klónni undir lokin og Júgóslavar
minnkuðu muninn í fimm mörk áður
en lauk.
Leikmönnum var létt, takmarkinu
var náð, menn féllust í faðma og réðu
sér að vonum ekki fýrir kæti. Það var
ekki laust við að sumir hverjir klökkn-
uðu á þessari sigurhátíð. Það var ails
ekki létt verk fyrir liðið að mæta í
þennan leik eftir ósigurinn gegn Rúss-
um en liðið sýndi mátt sinn og megin.
Islenska liðið mætti mun einbeittara
til leiks en það júgóslavneska og það
skilaöi rikulegri uppskeru þegar upp
var staðið.
Sterk liðsheild skóp þennan árangur
en það er þó á engan hallað að nefna
nöfn þeirra Ólafs Stefánssonar og Guð-
mundar Hrafnkelssonar. Gömlu félag-
amir fóra hreint á kostum í leiknum,
Ólafur Stefánsson gerði 11 mörk auk 6
stoðsendinga og Guðmundur varði 24
skot og þar af þijú vítaköst. Aron
Kristjánsson var drjúgur og Einar Örn
Jónsson og Patrekur Jóhannesson
komust vel frá sínu. Sigfús Sigurðsson
og Rúnar Sigtryggsson náðu sérlega
vel saman i vamarleiknum. Sigurður
Bjamason skilaði sínu vel eins og
hann hefur gert í allan timann.
Á ýmsu hefur gengið í keppninni,
sigrar og töp en þegar upp er staðið er
ekki annað hægt en hrósa liðinu fyrir
þennan frábæran endasprett og koma
þannig markmiðum sinum í höfn. Með
þennan hóp er hægt að gera enn betur
og aiitaf er hver keppni spuming um
heppni líka. Hún var ekki alltaf með
liðinu og oft stóðu leikir tæpt gegn
sterkum þjóðum sem hafa mikla hefð á
bak við sig. Það er ekki annað hægt en
að kætast yfir þessum árangri. ís-
lenska handboltalandsliðið er í hópi
liða bestu þjóða heims og keppir á
næstu tveimur stórmótum sem verður
að teljast merkur áfangi. -JKS