Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 DV Fréttir —•* Skúli Eggert Þórðarson skattrannsóknar- stjóri hefur stýrt fram hjá kastljósi fjölmiðlanna þótt verkefni dagsins þyki oft- ar en ekki sœta miklum tíðind- um. Hann er sagður búa yfir þeim eig- inleikum tveimur sem skattrannsókn- arstjóra eru lífs- nauðsynlegir: heið- arleika og forvitni. Forvitinn felumaður Nafn: Skúli Eggert Þóröarson Staöa: Skattrannsóknarstjóri ríkisins Aldur: Rmmtugur í gær Heimili: Reykjavík Maki: Dagmar Elín Siguröardóttir, bókari hjá Samtökum iönaðarins; þau eiga þrjá syni Menntun: Stúdentspróf frá MH og lagapróf frá HÍ Tilefnl: Tíöindi af rannsókn á um- fangsmestu meintu skattsvikum sem dæmi eru um Það er ekki heiglum hent að bregða ljósi á einstakling sem vinn- ur markvisst að því að vera ekki í sviðsljósinu. Þannig er háttaö um Skúla Eggert Þórðarson skattrann- sóknarstjóra. Með hliðsjón af þeim ofurviðkvæmu - og oft fréttnæmu - málum sem skattrannsóknarstjóri hefur með að gera mætti fyrir fram ætla að maðurinn í þeirri brú hlyti að verða þjóðþekktur, jafnvel al- ræmdur, en Skúla Eggerti hefur tekist að stýra fram hjá kastljósi fjölmiðia. Rækir vinskapinn Jón Bemódusson, forstöðumaður hjá Siglingastofnun, er í hópi elstu vina Skúla Eggerts. Þeir gengu sam- an í Menntaskólann við Hamrahlíð en eftir lokapróf flutti Jón til Þýska- lands og bjó þar næstu fimmtán ár. Vinskapurinn var ræktaður allan þann tíma með bréfaskiptum. „Skúli er mikill vinur vina sinna . frá fyrri tíð og hefur haldið vel sam- bandi við fólk,“ segir Jón. „Hann á mikinn fjölda vina og það eiga menn ekki nema það sé eitthvað í þá varið.“ „Hann er mjög minnugur á af- mælisdaga vina sinna,“ segir annar vinur Skúla, Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna kerfa. Þeir Skúli kynntust í gegnum við- skipti. „Hann var mjög kröfuhaður viðskiptavinur og við þurftum allir að vera á tánum aö uppfylla hans kröfur en þetta þróaðist síðan þannig að við urðum ágætir félagar þegar upp var staðið," segir Frosti. Og fleiri en Frosti hafa stofnað til vinskapar við Skúla Eggert eftir slík „skyndikynni", ef svo mætti kalla. Jónas Jónasson útvarpsmað- ur er einn þeirra en Skúli Eggert var gestur í þætti hans Kvöldgest- um. „Þetta er yndislegur drengur," segir Jónas um Skúla. „Hann er töluverður felumaður. Ákaflega ljúfur, þótt ég efist um að hann myndi játa þá hlið á sér opinber- lega. Mér finnst gott að þekkja þennan mann vegna þess að í mín- um huga er hann ímynd hins heið- arlega embættismanns. Svo er hann góður húmoristi, hlátur hans hljóm- ar skemmtilega í eyrum. Við liggj- um ekki við þröskulda hvor annars en tölum oft saman í síma; hann er mér vænn ráðgjafi," segir Jónas. Þess má geta að Skúli Eggert var milligöngumaður um að vinur hans, Magnús Leópoldsson, rauf tuttugu ára þögn sína um Geir- finnsmálið í þætti Jónasar. Ólafur Teltur Guönason Fagmaður Skúli Eggert vann hjá rannsókn- arlögreglunni í Hafnarfirði með fram laganámi en eftir lagapróf frá HÍ 1981 hóf hann störf hjá skatt- stjóranum í Reykjanesumdæmi, þá 28 ára. Fljótlega lá leiðin til ríkis- skattstjóra og upp á við hjá því embætti, allt þar tU hann varð vara- ríkisskattstjóri árið 1990, 37 ára að aldri. Hann tók við embætti skatt- rannsóknarstjóra ríkisins þegar því var fengið sjálfstæði frá ríkisskatt- stjóra og hefur því verið við stjórn- völinn allan þann tíma sem emb- ættið hefur verið við lýði í núver- andi mynd, í réttan áratug. Samstarfsmenn Skúla Eggerts hjá embættinu lýsa honum sem miklum fagmanni. „Hann er strang- heiðarlegur, duglegur og sanngjarn, skarpgreindur og fylginn sér,“ segir einn þeirra og bætir við að ekki sé hlaupið að því að sigla jafnerfiðu embætti jafnlygnan sjó og raunin hefur verið á. í því sambandi má líka rifja upp ummæli Sigurðar G. Guðjónssonar, forstjóra Norðurljósa, um húsleit skattrannsóknarstjóra hjá fyrirtæk- inu. „Við unnum málið í góðu sam- starfi viö skattrannsóknarstjóra og hans menn. Þeir myndu fá 10 í ein- kunn hjá mér því að það hefur allt staðist sem hefur farið hér á milli og aldrei verið nein vandræði," sagði Sigurður G. í viðtali við Frjálsa verslun. Á Bjöllu í menntó Skúli Eggert er bindindismaður og hefur verið allt frá því á mennta- skólaárunum. Jón Bernódusson rifiar upp að þegar þeir voru í Menntaskólanum viö Hamrahlíð hafi Skúli ávallt tekið að sér hlut- verk bílstjórans þegar þeir félagarn- ir gerðu sér dagamun. Fararskjót- inn var heldur ekki af verri endan- um; Volkswagen Bjalla. Jón segir að á þeim árum hafi hann helst giskað á að Skúli legði læknavísindin fyrir sig en ekki hafi þó heldur komið á óvart að lögfræð- in skyldi verða fyrir valinu. Jón segir að Skúli hafi verið félagslynd- ur á menntaskólaárunum en þó lát- ið heldur lítið á sér bera. Helstu áhugamál Skúla eru að sögn kunnugra útivist og bók- menntir. Forvitinn Hinn alræmdi „embættismanna- hroki“ er sagður víðs fiarri í fari Skúla Eggerts, en hann hleypir heldur ekki öllum að sér. Hann fell- ur illa að hinni neikvæðu (ímynd- uðu) ímynd um hægvirka, mosa- vaxna embættismanninn þótt hann hafi alið allan starfsaldur sinn í „kerfinu". Sagt er að hann eyöi ekki tima í óþarfa mas heldur komi sér snöggt að kjama málsins - og sé óvenjufljótur að átta sig á flóknum viðfangsefnum. Hann gerir kröfur um árangur en helst vel á starfs- fólki sem kann að meta stefnufestu og styrka stjóm. Hann er sagður fiölfróður, enda forvitinn að eðlisfari. „Ég hef stund- um bent honum á hve forvitinn hann sé,“ segir Frosti Bergsson, „og að þess vegna sé ekki hægt að hugsa sér betri mann í þessa stöðu!" Tré farin að grænka Hlý veðrátta á síðustu mánuð- um hefur orðið til þess að ýmsar trjátegundir, líkt og gljámispill og blátoppur, eru farnar að grænka í göröum landsmanna. Steinunn Reynisdóttir, garð- yrkjufræðingur hjá Garðheim- um, segir að ekkert sé hægt að segja til um hvort skemmdir hljótist af, það velti allt á veðr- inu í vor. „Raunverulega er lítið hægt að gera til að koma í veg fyrir skemmdir ef það fer að frysta. Við stjórnum ekki veðr- áttunni." Ef fólki er mjög annt um trén er hægt að skýla þeim með skjólneti eða jafnvel pakka þeim inn í pappakassa. Til að bjarga skemmdum trjám á að klippa skemmdirnar burt því að þær eru eingöngu stað- bundnar. „Trén eru skemmd þeg- ar blöðin eru grábrún, sprotinn svartur og stilkurinn mjúkur,“ segir Steinunn. Hún bendir á að trén hafi verið vel undirbúin fyr- ir veturinn vegna þess að haust- ið var langt og hlýtt. -dh Forsætisráðherraefni Samfylkingar sagt standa með fíkniefnasölum: Svona gróf ummæli dæma sig sjálf - segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Benedikt Jóhannesson, aðal- eigandi Útgáfufélagsins Heims og Talnakönnunar, gerði ræðu Ingibjargar Sólrúnar á flokks- stjórnarfundi Samfylkingarinn- ar í Borgarnesi fyrir skömmu að umtalsefni á vefsíðu sinni fyrir helgina. Þar víkur hann sérstak- lega að meintu dálæti Ingibjarg- ar á Jóni Ólafssyni, stjórnarfor- manni Norðurijósa, sem hann nefnir flkniefnasala, en Jón sæt- ir nú rannsókn skattrannsókn- arstjóra fyrir meint stórfelld undanskot frá skatti. Segir Benedikt að það hafi vakið athygli að Ingibjörg hafi séð ástæðu til þess í ræðu sinni að efast um að gagnrýni og rannsóknir á einstökum fyrir- tækjum væru byggðar á rökum heldur mætti túlka þær sem árás forsætisráðherrans á þessi ákveðnu fyrirtæki. í því sam- Ingibjörg Sólrún Benedlkt Gísladóttir. Jóhannesson. bandi hafi hún rætt um Baug, Norðurljós og Kaupþing. Baug- ur sætir einmitt rannsókn efna- hagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra og Norðurljós eru í rann- sókn hjá skattrannsóknarstjóra. Síðan segir Benedikt: „Reyndar hefur Ingibjörg áöur lýst yfir sérstöku dálæti á Jóni Ólafssyni, stjórnarfor- manni Norðurljósa. Það er öll- um kunnugt að Jón fékkst á æskuárum við fíkniefnainn- flutning og sölu. Hann hefur sjálfur viðurkennt þetta í viðtöl- um og kennt við „bernskubrek“. Aðrir stjórnmálamenn reyna yf- irleitt að skipa sér í lið gegn flkniefnasölunum en það gerir Ingibjörg Sólrún ekki og sýnir þar með að hún er öðruvísi stjórnmálamaður, pólitíkus sem á auðvelt með að fyrirgefa bernskubrekin." Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, forsætisráðherraefni Samfylk- ingarinnar, sagði í samtali við DV að þetta væri vart svaravert. „Mér finnst svona ummæli svo gróf að þau dæma sig sjálf. Þau lýsa best þeim sem viðhefur þau en ekki þeim sem þau beinast gegn. Þetta lýsir sérkennilegu sálarlífi þessa einstaklings,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir. -HKr. Grænmetisverö: Veruleg verðlækkun Meðalverð á flestum algengum grænmetistegundum hefur lækkað allverulega á síðastliðnu ári sam- kvæmt verðkönnun sem Sam- keppnisstofnun gerði nú í febrúar. Mest hefur lækkunin oröið á agúrkum; sú innflutta hefur lækk- að um 61% en íslenska um 51%. Þá hefur meðalverð á papriku lækkað um 38-44%, blómkál hefur lækkað um 46%, ísbergsalat um 44%, spergilkál um 35%, kínakál um 28%, ýmsar tegundir lauka svo og sellerí hafa lækkað um 24-49%. Þá hefur meðalverð á innfluttum tómötiun lækkað um 33% á meöan íslenskir tómatar hafa lækkað um 19%. Meðalverð á gulrófum og gul- rótum er hins vegar 9-14% hærra nú en í fyrra. í kjölfar afnáms tolla á ýmsum grænmetistegundum ákvað Sam- keppnisstofnun að fylgjast náið með verðþróun á grænmeti og ávöxtum. Frá því í febrúar 2002 hef- ur stofnunin gert mánaðarlegar verðkannanir. Þrátt fyrir verðlækkunina getur skipt miMu hvar fólk kaupir græn- meti. Þannig var lægsta verð á ís- lenskum tómötum 455 krónur kíló- ið en hæsta verð 599 krónur. Lægsta verð á íslenskum gúrkum var 169 krónur en hæsta verð 399 krónur. -hlh Metlöndun í Eyjum: Stærsti loAnufarmur frá upphafl Loðnulöndunarmet var sett í Vestmannaeyjum á sunnudag þeg- ar Baldvin Þorsteinsson EA kom til hafnar og landaði þar 2.282 tonnum af loðnu. Er þetta langstærsti einstaki loðnufarmur sem landað hefur verið í Eyjum til þessa, en loðnan fer í bræðslu hjá Isfélagi Vestmannaeyja. Jóhann Andersen, forstöðumað- ur fyrir uppsjávarsvið ísfélagsins, segir að næst þessum farmi hafi kómist erlent fiskiskip sem land- aði tæpum 2.000 tonnum af kolmunna fyrir nokkrum árum. Hann segir loönuvertíðina nú hafa gengið furðu vel, þrátt fýrir rysj- ótta tíð. „Það eru komin rétt tæp 20.000 tonn af loðnu á land hér í Vest- mannaeyjum á þessari vertíð, sem er talsvert meira en á sama tíma í fyrra. Alla síðustu vertíð komu hér á land um 50.000 tonn.“ Jóhann sagði að loðnan úr Bald- vin Þorsteinssyni færi öll í bræðslu og tekur um tvo sólar- hringa að vinna þennan farm. -HKr. Flugfélag íslands: Fyrsta konan ráðin Jóhanna G. Gylfadóttir var í gær ráðin flugmaður hjá Flugfé- lagi íslands. Ráðningin markar tímamót því Jóhanna er fyrsta konan sem ráðin er í starf flug- manns hjá félaginu. Jóhanna hefur starfað sem flug- kennari hjá Flugskóla íslands og þykir meðal reynslumestu kenn- ara skólans. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.